Morgunblaðið - 26.05.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 26.05.1982, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982 Drangur: Aðilar í Keflavík og á Bahama-eyjum hafa áhuga „Það hcfur enn ekkert verid ákv- eðið hvað gert verður við Drang, þegar nýi flóabáturinn keraur, en við höfura þegar fengið margar fyrir- spurnir um skipið bæði frá innlend- um og erlendum aðilum," sagði Jón Steindórsson, framkvæmdastjóri fló- abáLsins Drangs, þegar Morgunblað- ið ræddi við hann í gær. Samkvæmt því, sem Morgun- blaðið hefur komist næst þá hafa aðilar í Keflavík hug á að kaupa Drang og breyta skipinu til fisk- veiða. Ennfremur er blaðinu kunnugt um, að aðilar á Bahama- eyjum hafa sýnt skipinu áhuga. Drangur er smíðaður árið 1959, 176 rúmlestir að stærð og er búinn 400 hestafla Wichmam-vél. Þreifingar í deilu tæknimanna útvarps „FYRSTI fundur deiluaðila var haldinn í ráðuneytinu í dag, en þar var ekki um að ræða neitt annað en þreifingar,“ sagði Þórir Steingríms- son, tæknimaður hjá útvarpinu, í samtali við Mbl„ er hann var inntur eftir gangi mála í deilu tæknimanna og ríkisins, en tæknimenn hafa sagt upp störfum sínum frá 1. júni nk. og „Hvað er að gerast...“ I»eir sem vilja koma að frétt- um í þáttinn „Hvað er að gerast um helgina", eru beðnir um að koma þeim inn á ritstjórn Morg- unblaðsins eigi síðar en fyrir miðvikudagskvöld. Berist frétt- irnar síðar, er ekki hægt að tryggja birtingu þeirra í þættin- um. Þátturinn birtist á fóstudög- hafa ákveðið, að hlíta ekki þriggja mánaða framlengingu á starfstima þeirra. — Það er síðan boðaður annar fundur í lok vikunnar og þá skýr- ast málin væntanlega, þ.e. hvort af uppsögnum okkar verður eður ei, sagði Þórir ennfremur. Þórir Steingrímsson sagði að- spurður, að hann sæi ekki annað, en starfsemi útvarpsins lamaðist aigerlega, ef tæknimennirnir ganga út þann 1. júní nk. — Okkar krafa er að fá sam- bærileg laun við radíóvirkja í ríkisverksmiðjunum, en þeir fá greidd laun samkvæmt 19. launa- flokki, sagði Þórir ennfremur, en tæknimenn útvarps fá í dag greidd laun samkvæmt 10—14. launa- flokki BSRB. Halldór Aðalsteinsson látinn Látinn er i Reykjavík eftir erfiða sjúkdómslegu Halldór Viðar Aðal- steinsson, starfsmaður í tæknideild Morgunblaðsins. Halldór var fædd- ist í Reykjavík hinn 29. apríl 1932, og var hann því nýlega fimmtugur er hann lést. Foreldrar hans voru Aðalsteinn Óskar Guðmundsson, rafvirki í Reykjavík, og kona hans, Sigrún Einarsdóttir hárgreiðslukona. Halldór vann mestalla starfs- ævi sína hjá Morgunblaðinu. Hann hóf nám hinn 1. apríl 1949 í Prentsmiðju Morgunblaðsins, og tók sveinspróf í setningu 1953. Þar Aðalfundur SH hefst á morgun AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hefst að Hótel Sögu á morgun, fimmtudag, klukkan 14.00. Auk venjulegra að- alfundarstarfa, verða til umfjöll- unar ýmis málefni SH og afkoma fyrirtækja Sölumiðstöðvarinnar í Bandaríkjunum og í Englandi. vann hann siðan sem handsetjari til 1957, og síðan við vélsetningu. Hann var trúnaðarmaður starfs- manna í Prentsmiðju Morgun- blaðsins um tíma og 2. meðstjórn- andi í stjórn Hins íslenska prent- arafélags 1967 til 1969. Halldór var ókvæntur og barn- laus, en lætur eftir sig aldraða móður. Þingmenn í útreiðatúr Landssamband hestamannafélaga bauð nýlega nokkrum alþingismönnum í útreiðatúr, en tilefnið var það að unnið var efni í nýtt blað er sambandið hefur gefið út. Var farið með þingmönnum í stuttan útreiðartúr, og síðan rætt um ýmis hagsmunamál hestamanna yfír hressingu í hesthúsi á eftir. Á þessari Ijósmynd Kristjáns Einarssonar, má sjá þingmennina, sem boðið þekktust, talið frá vinstri: Páll Pétursson, Matthías Á. Mathiesen, Egill Jónsson, Steinþór Gestsson, Ólafur Þórðarson og Stefán Guðmundsson. — Hestana fengu þingmennirnir lánaða hjá Sigurbirni Bárðarsyni, nema Matthías, sem sjálfur á gæðinginn er hann situr. Fyrsti fundur sjúkraliða og fjármálaráðuneytis í dag: Mið tekið af samningi hjúkrunarfræðinga segir Málhildur Angantýsdóttir „FYRSTI alvöru viðræðufundur að- ila verður haldinn í dag og því geri ég mér vonir um, að einhver hreyf- ing fari að komast á okkar mál,“ sagði Málhildur Angantýsdóttir, sem sæti á í stjórn Sjúkraliðafélags ís- lands og samninganefnd félagsins, í samtali við Mbl„ er hún var innt eftir stöðu mála í deilu þeirra og ríkisins, en félagsmenn hafa sagt upp störfum sínum frá 1. júní nk. hafí samningar um bætt kjör ekki tekizt. Það er því Ijóst, að náist ekki samkomulag mun starfsemi sjúkra- húsanna lamast að miklu leyti á nýj- an leik eftir hjúkrunarfræðingadeil- una. Málhildur varðist frétta af því hverjar væru kröfur sjúkraliða. Hún sagði sjúkraliða vilja kynna þær fyrir samningsaðila sínum á morgun. — Það er hins vegar ekk- ert launungarmál, að samningur hjúkrunarfræðinga er okkur ákveðið leiðarljós í okkar baráttu, sagði Málhildur ennfremur. Sjúkraliðar fengu greidd laun eftir 7.—10. launaflokki BSRB, en kjaranefnd úrskurðaði á sínum tíma, að launin skyldu greidd samkvæmt 8.—11. launaflokki. Þessari niðurstöðu vilja sjúkralið- ar ekki una og hafa því sagt upp störfum sínum frá og með 1. júní nk. eins og áður sagði. Um er að ræða 600 sjúkraliða á sjúkrahús- unum í Reykjavík og nágrenni. Vöruskiptajöfnudur óhagstæður um rúmar 647 milljónir króna janúar-apríl: Innflutningurinn jókst um liðlega 72% í apríl Vöruskiptajöfnuður íslendinga var óhagstæður á tímabilinu janúar- apríl um liðlega 647,1 milljón króna, en verðmæti innfíutnings á þessu timabili var tæplega 2,88 milljarðar króna. Verðmæti útflutnings á tíma- bilinu var hins vegar liðlega 2,23 milljarðar króna. Á sama tíma í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um liðlega 211 milljónir króna. Verðmæti innflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var sem sagt tæplega 2,88 milljarðar króna, en til samanburðar var verðmæti innflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins 1981 liðlega 1,845 milljarð- ur króna. Aukning innflutnings er því um 56% á þessu tímabili. Aukningin í útflutningi lands- Þjóðviljinn í gær: „Spurningarmerki við líf og stöðu“ ríkisstjórnarinnar „HLJÓTA kosningaúrslitin að setja spurningarmerki við líf og stöðu ríkisstjórnarinnar," segir í hugleiðingum Þjóðviljans, málgagni Alþýðu- bandalagsins, um niðurstöður kosninganna í gær. Telur blaðið einkum tvennt valda „því að efasemdir vakna" ura líf stjórnarinnar, það er afstaða Alberts Guðmundssonar og Eggerts Haukdal, sem Þjóðviljinn segir, að verði „eflaust dýrkeyptari" í haust, og óróleiki í framsóknar- mönnum. í forystugrein Þjóðviljans kemst Kjartan Ólafsson, vara- formaður Alþýðubandalagsins svo að orði: „Ymsir spyrja hvaða áhrif úrslit sveitarstjórnakosn- inganna muni hafa á ríkisstjórn- arsamstarfið. Alþýðubandalagið stefnir að því að halda samstarf- inu nú áfram til loka kjörtíma- bilsins. Hvort það auðnast hlýt- ur þó að ráðast af því, hvort samkomulag tekst um veiga- mestu mál, ekki síst hvað varðar kjara- og efnahagsmálin." Við hliðina á þessari yfirlýs- ingu varaformanns Alþýðu- bandalagsins og ritstjóra Þjóð- viljans birtist svo nafniaus hug- leiðing um „spurningarmerki við líf og stöðu ríkisstjórnarinnar". Þar segir meðal annars: „Ljóst er að Gunnar Thorodd- sen vill halda áfram á sama grunni, en ekkert liggur fyrir um það, hvort Eggert Haukdal eða Albert Guðmundsson eru sama sinnis. Þeir félagar gengu á móti samstarfsgrundvelli stjórnarliða í hverju málinu á fætur öðru á Alþingi í vetur, og verða eflaust dýrkeyptari en nokkru sinni fyrr með haustinu er þing kemur saman að nýju. I öðru lagi er Framsóknar- flokknum ekki rótt ... Tómas Árnason byrjar að klifa á óskum sínum um almenna kjaraskerð- ingu þegar að kosningaúrslitum kynntum." manna var hins vegar aðeins um 36,6% á umræddu fjögurra mán- aða tímabili, en verðmæti útflutn- ings fyrstu fjóra mánuði þessa árs er liðlega 2,232 milljarðar króna, samanborið við liðlega 1,634 millj- arð á sama tíma í fyrra. Ef litið er á innflutningsaukn- inguna í aprílmánuði kemur í ljós, að um 72% meiri innflutningur var í apríl sl., en var í apríl á síðasta ári. Aukning á útflutningi var hins vegar aðeins um 42,8% á sama tímabili. í útflutningnum vegur ál og ál- melmi þyngst, en verðmæti þess útflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var tæplega 279,5 milljónir króna, smanborið við liðlega 173,5 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Verðmæti útflutnings á kís- iljárni var fyrstu fjóra mánuðina liðlega 51 milljón króna, saman- borið við tæplega 17,3 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Það er því um þreföldun á þeim út- flutningi að ræða. I innflutningnum vega vörur fyrir íslenzka álfélagið þyngst, en verðmæti þess innflutnings var fyrstu fjóra mánuðina liðlega 135,6 milljónir króna, samanborið við liðlega 120,5 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Við samanburð við utanríkis- verslunartölur 1982 verður að hafa í huga, að meðalgengi erlends gjaldeyris í janúar-apríl 1982 er talið vera 40,1% hærra en það var í sömu mánuðum 1981.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.