Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1982 17 Fimm skipbrotsmannanna við komuna til Eyja i gter. Hálfdán Guðmundsson stýrimaður heldur á skipshundinum Kol, og við hlið hans (í lopapeysu) er Gísli Guðmundsson skipstjóri. Reynt að koma dráttartaug yfir í Jóhönnu Magnúsdóttur frá Þórunni Sveinsdóttur í gær, en ekki var hægt að taka bátinn í tog þar sem taugin brann. ggt seat á peaaari mynd. Eldtnngumar l Sigurjón ssum slóðum“ inn, skipstjórann fyrst, og síðan reyndum við að fara niður í vélar- rúmið, en við komumst aldrei nema hálfa leið, vegna mikils olíureyks," sagði Hálfdán Guðmundsson stýri- maður. „Einn maður í káetunni lenti í hálfgerðum vandræðum vegna reyksins, en ég gat ekki einu sinni náð í dagbækur bátsins, veskið mitt eða neitt annað," sagði Gísli Guð- mundsson skipstjóri, „en þegar við fórum í bátana, var ástandið þann- ig, að við töldum okkur ekki geta gert neitt til að bjarga bátnum. Ég hafði kíkt í gegnum kýrauga niður í vélarrúmið, og þar logaði mikill eld- ur. Fyrst sendum við fjóra menn í annan gúmmíbátinn, og skips- hundurinn, Kolur, var einnig settur þar um borð, en við Hálfdán fórum nokkru síðar í hinn bátinn og vorum nokkuð lengi bundnir við Jóhönnu, en skárum okkur frá eftir smá- sprengingu í bátum. Við fórum fljótlega í það, að losa gúmmíbjörgunarbátana ofan af stýrishúsinu," sagði Hálfdán stýri- maður, „vorum fyrst efins í að við ættum að gera það strax, en það kom sér vel, því seinna hefðum við aldrei komist að bátnum vegna hins mikla reyks. Við teljum eftir þessa reynslu, að það sé stórhættulegt að staðsetja báða gúmmíbjörgunarbát- ana uppi á stýrishúsinu." Skipbrotsmennirnir voru allir í koju, nema stýrimaðurinn, þegar eldsins varð vart, og höfðu þeir ekki tíma til að klæðast nema mjög takmarkað. Voru sumir þeirra skó- lausir og sokkalausir og án yfir- hafna er þeim var bjargað um borð í Þórunni. „Það gekk vel að komast um borð í Þórunni, það voru sett bönd á okkur og við hífðir upp á handafli. Hann hefur orðið æfinguna, hann Sigurjón, er orðin vanur því að bjarga mönnum á þessum slóðum. Við vomuðum síðan yfir bátnum, þar til hann sökk,“ sagði Gísli skip- stjóri, „þetta gekk ákaflega vel og mildi að allir skyldu bjargast. Það er gífurlegt tjón að fá þetta áfall í byrjun humarúthalds, en það skipti þó öllu máli að allir skyldu sleppa, og við erum þakklátir björgunar- mönnum okkar fyrir björgunina. Við vorum um það bil klukkustund í bátunum áður en Þórunn kom, en gúmmíbátana rak svipaða leið.“ Þetta er í þriðja skipti, sem Sig- urjón Óskarsson, aflakló á Þórunni Sveinsdóttur; bjargar áhöfnum af fiskibátum. Arið 1974 bjargaði hann áhöfninni af Bylgju RE út af Al- viðru, þar sem skipið var hlaðið loðnu. Hann bjargaði 11 mönnum, en einn fórst á Bylgjunni, komst ekki í bátana, sem voru síðan á reki með skipbrotsmennina í um klukku- stund, áður en Sigurjón kom á vett- vang. I janúar í fyrra strandaði svo Katrín VE á Skeiðarársandi, í þungu brimi og norðanstormi. Sex skipverjum var búið að bjarga í land þegar Sigurjón kom á vettvang á Þórunni, og fyrir harðfylgi skips- hafnar hans og fimm skipverja sem eftir voru um borð í Katrínu, tókst að koma dráttartaug á milli skip- anna í brimgarðinum og var það með ólíkindum hvernig Þórunn dró Katrínu á flot. En úti fyrir beið varðskip, sem treysti sér ekki til að aðhafast neitt. „Það var hraglandi á miðunum þar sem Jóhanna Magnúsdóttir var að brenna, þegar okkur bar að,“ sagði Sigurjón Magnússon í samtali við blaðamann Morgunblaðsins, „en það gekk vel að ná mönnunum um borð, þótt talsverð ylgja væri. Við fylgdumst síðan með Jóhönnu þar til hún sökk um klukkan 10.30 fyrir hádegi, en áður höfðum við reynt að draga skipið án árangurs. Það var allt orðið ónýtt áður en yfir lauk, þilfarið brunnið, hvalbakurinn hruninn, en ég ætlaði inn fyrir 3 mílurnar til að skipið sykki ekki á togbleyðu, en það tókst ekki, og Jó- hanna sökk á svipuðum slóðum og Bylgjan forðum, eftir að hafa rekið 14 til 16 mílur frá þeim stað er elds- ins varð vart. Þetta gekk þannig ágætlega að ná mönnunum, en litlu munaði að stýrimaðurinn hjá mér færi fyrir borð, þegar við vorum að taka björgunarbátana um borð.“ 1 SignrAur Sigurjónsson. á kjörskrá, mestmegnis ungt fólk. Þetta nýja fólk hefði varla flutt í bæinn ef ekki væri eitthvað eftir- sóknarvert við að búa þar og það hlýtur að haldast í hendur við það að vel sé haldið á málum í bæjar- félaginu. Kjósendur hafa því ein- göngu staðfest það með atkvæðum sínum." Sigurður sagði í lokin: „Þá vil ég nota þetta tækifæri til að þakka öllum stuðningsmönnum Sjálf- stæðisflokksins í Garðabæ fyrir stuðninginn, einnig færi ég öllum þeim fjölmörgu sem lögðu okkur lið með vinnu sinni góðar kveðjur og þakkir.“ Síðasti sýn- ingardagur hjá Nikulási Sigfússyni í ÁSMUNDARSAL er nú að Ijúka málverkasýningu Nikulásar Sig- fússonar, sem staðið hefur í tíu daga og íýkur í kvöld kl. 22. Þetta er þriðja einkasýning Nikulásar, hin fyrsta var á Grensásdeild Borgarspítalans árið 1978 og önnur í Nýja Galleríinu árið 1980. Á sýningunni er 31 vatnslita- mynd, mestallt landslagsmyndir sem Nikulás hefur málað á sl. 3 árum og hefur engin þeirra kom- ið fram á sýningu áður. Nikulás er í fullu starfi sem læknir Hjartaverndar og var hann spurður hvernig það færi saman að vera læknir og listmálari: „Mér finnst það fara ágætlega saman. Það er gott að hafa eitthvert hobbý eins og ég held að flestir læknar hafi. Þetta er mitt hobbý. Myndirnar mála ég aðallega í sumarleyfum, en líka um helgar og á kvöldin þegar nógu bjart er á sumrin." — Er þetta gott fyrir hjart- að? „Já, ég held að það sé ágætt fyrir alla að hafa eitthvað til að hvíla sig á og dreifa huganum. Ég hef fengist við þetta frá því ég var strákur og þetta veitir mér góða afslöppun. Það tengist þessu áhugmáli að ferðast um landið, vera úti og skoða náttúr- una. Það er mér mikil ánægja.“ — Hvernig hefur gengið? „Vel. Hérna hittir maður fólk og spjallar við það undir öðrum kringumsiæðum en í læknis- fræðinni. Það hafa margar myndir selst — miklu meira en ég bjóst við, því það eru margir að sýna um þessar mundir sem eru öllu merkilegri en ég.“ Sjálfstæðisflokkur- inn í Reykjavík: Sigurhátíð í Sigtúni annað kvöld Sigurhátíð sjálfstæðismanna í Reykjavík, vegna borgarstjórnar- kosninganna á laugardaginn, verður haldin í Sigtúni við Suðurlandsbraut annað kvöld, fimmtudagskvöld. Húsið verður opnað klukkan 21, og hljómsveitin Pónik mun leika fyrir dansi til klukkan 2. Davíð Oddsson mun flytja ávarp og Jörundur Guðmundsson skemmtir, og margt fleira verður á dagskrá. Sigurhátíð fyrir yngstu sjálf- boðaliðana í kosningabaráttunni verður svo haldin í Sigtúni, efri sal, þriðjudaginn 1. júní kl. 20.30. Sjálfstæðismenn! Fögnum sigri í Sigtúni annað kvöld! Miðar verða afhentir á skrif- stofum Sjálfstæðisflokksins í Val- höll eftir hádegi í dag og á Morg- un. I (Krétuiilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.