Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982 15 Soffía Loren á leið í prísundina. Andlegt hrun Soffíu Loren í fangelsinu Landganga Breta: Upplýsingar kennslukonunn- ar mikilvægar London, 24. maí. AP. „ÞAÐ VAR frábært að geta orðið að liði,“ sagði 42 ára gömul kennslu- kona, Carol Miller að nafni, og vitn- aði þá til landgöngu Breta í San Carl- os. Hún flutti frá Falklandseyjum fyrir tveimur árum og upplýsingar hennar reyndust mikilvægur þáttur í landgöngunni. Fagnaði hún mjög er hún frétti að eiginmaður hennar og sonur hefðu verið á meðal þeirra fyrstu, sem komust í hendur breska landgönguliðsins. Haft var samband við hana strax eftir innrás Argentínumanna í eyj- arnar í byrjun apríl og hún spurð hvort hún gæti veitt einhverjar upplýsingar um staðhætti. Lét hún varnarmálaráðuneytið hafa grein- argóða lýsingu á staðháttum og voru þær haldgóðar við landgöng- una. Miller flutti frá eyjunum eftir 20 ára búsetu og tók með sér dóttur sína. Eiginmaðurinn og sonur hennar urðu hins vegar eftir á eyj- unum. Sagði hún, að þegar haft hefði verið samband við hana, hefði verið greinilegt að upplýsingar hennar gætu reynst mikilvægar þótt ekki væri látið uppi að landganga væri fyrirhuguð á eyjunum. Síðan var hringt í hana daglega. „Þeir vildu bókstaflega fá að vita allt.“ Kóm, 25. maí. AP. EFTIR SEX daga fangelsisvist virðist nú sem leikkonan Soffia Loren eigi við mikla andlega erfiðleika að stríða. Haft er eftir systur hennar, Maríu Scicoloni, að hún sé mjög illa haldin af þunglyndi, en einnig mun fangelsisstjórinn hafa miklar áhyggj- ur af heilsufari leikkonunnar. Soffía Loren fékk 30 daga fang- elsisvist vegna vangoldinna skatta, og er nú í haldi í litlu kvennafang- elsi í Caserta, sem er norður af Napólí. Lögmaður leikkonunnar, segir hana munu fara fram á hálf- gildings frelsi, sem felst í því að hún er þá frjáls ferða sinna að degi til en gistir fangelsið um nætur. En samkvæmt ítölskum lögum á hún ekki að njóta þess frelsis fyrr en að fimmtán daga setu lokinni, og ólíklegt er talið að hún verði und- anþegin því vegna frægðarinnar einnar. Vinir leikkonunnar telja hana nú vera að borga fyrir frægð sína, og það fremur dýru verði. Þeir telja aðstöðu hennar fáránlega og segja að enginn án frægðar, myndi lenda innan veggja fangelsis vegna 20 ára gamals skattamáls. Breskur landgönguliði þiggur tesopa frá íbúum í San Carlos. Mynd þessi birtist á forsíðu Mbl. á sunnudag, en síðan hefur hefur það upplýst að eyjarskeggi sá er gefur tesopann er af norskum ættum og heitir Berntsen og er afkomandi Lars Berntsen, sem tók sér bólfestu á eyjunum 1855. Tæki sem eyðir kvefi Tel Aviv, 24. maí. AP. L/EKNAR við Weizmann-stofnunina fullyrða að eyði kvefi. Tækið blæs frá sér heitu röku lofti, og með því að bera öndunar- hólk upp að nefinu segja þeir menn losna við kvef á innan við klukkustund. Við tilraunir með tækið reynd- ust 78% kvefaðra losna við kvef sitt á innan við klukkustund. Við tilraunir losnuðu 68% þeirra sem verið höfðu með krónískt kvef við krankleika sinn á innan við einni stundu. Að sögn læknanna gerir tækið ísraelsku hafa þróað vél, sem þeir menn ekki ónæma fyrir kvefi, en það gerir mönnum kleift að losna við óþægindin á nokkrum klukku- stundum í stað þess að þurfa að þjást í marga daga. Tækið byggir á þeirri þekkingu að starfsemi veira verður miklu hægari við hærri hita en líkams- hita. Kvefsjúklingurinn stjórnar meðferðinni sjálfur og meðferðin er sársaukalaus. Búist ér við að tækið kosti um 250 dollara á al- mennum markaði. Milk Mate FRÁBÆR NÝJUNG — FRÁBÆRT í MJÓLKINA, BANANA-, JARÐARBERJA- OG SUKKULAÐI- BRAGБ HEILDSÖLUBIRGÐIR: ALPAR sf., s. (91)82207. EINSTAKT TÆKIRÆRI! Skemmtisigling meö lúxusskipi f rá Reykjavík til Noiegs og þýskalands Nú gefst íslendingum tækifæri á siglingu með einu glæsilegasta skemmtiferðaskipi Evrópu M.s. MAXIM GORKI (áður Hamburg) sem er 25 þús. tonna fleyta. Skipið kemur til Reykjavíkur 29. ágúst og fer kl. 8 að kvöldi 30. ágúst. Siglt er um norsku firðina og eru viðkomustaðir: Þrándheimur, Hellesylt, Geiranger, Olden, Vik, Fiam og Bergen. Frá Bergen verður sigit beint til Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi og komið þangað 8. septem- ber. Þaðan verður ekið samdægurs til Luxem- borgar þar sem dvalið er á 1. flokks hóteli til 12. september. Þaðan verður svo flogið að kvöldi beint til Keflavíkur. MAXIM GORKI er lúxusskip. Allir vistarverur eru með sturtu og w.c.. Á meðan dvalið er um borð er farþegum séð fyrir fullu fæði og fá þeir aðgang að öllum þægindum um borð, svo sem sundlaug, leikfimisherbergi, borðtennis, kvikmynda og veitingasölum, börum og næturklúbb, svo eitt- hvað sé nefnt. Skipið verður til sýnis í Reykjavíkurhöfn 7. júlí FERÐASKRIFSTOFA,Iönaðarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388og28580 1982 kl. 14-16. (HUMIIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.