Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982 19 Minning: Sigríður Sigmunds- dóttir frá Hamraendum Fædd 18. marz 1897 Díin 18. maí 1982 I dag er til moldar borin mæt kona úr verkamannastétt, Sigríð- ur Sigmundsdóttir frá Hamraend- um í Breiðuvík á Snæfellsnesi. „Ó, blessuA stund, er burtu þoksn líður, Hem blindar þessi dauðleg augu vor. Kn Kðri dagur dýrðaraker og blíður með drottina Ijósi skín á öll vor Hpor.“ (MJ.) Foreldrar Sigríðar Sigmunds- dóttur voru hin merku hjón á Hamraendum, Sigmundur bóndi Jónsson og Margrét Jónsdóttir. Hann var frá Breiðuhlíð í Mýrdal en hún frá Sammadal í sömu sveit. Sigríður fæddist í Breiðuhlíð, þar sem foreldrar hennar hófu sam- búð sína. Árið 1898 fluttu hjónin Sig- mundur og Margrét með eins árs dóttur sina vestur á Snæfellsnes og settust að á jörðinni Saurum i Helgafellssveit. Þar bjuggu þau eitt ár. Árið eftir hófu þau búskap sinn á Hamraendum i Breiðuvík og gerðu garðinn þann frægan þau rúm 50 ár, sem þau bjuggu þar. Sigmundur bóndi var i sveit sinni forgöngumaður um margs- konar framfarir, svo að orð fór af. Hann skipaði forustu í landbúnað- arsamtökum og framkvæmdum sveitar sinnar, ruddi brautir í raf- orkumálum hennar og raftækni heimilanna o.fl. Einnig var hann forsöngvari í kirkju sóknarinnar um tugi ára. Hann átti lengi sæti í sýslunefnd, hreppsnefnd, skóla- nefnd og safnaðarstjórn. Sigmundur bóndi hlaut heiðurs- verðlaun úr styrktarsjóði Krist- jáns konungs IX árið 1934. Hamraendaheimilið var þannig um tugi ára á orði fyrir mynd- arskap i búnaði og heimilishaldi þeirra hjóna. Vissulega bar Sigríður Sig- mundsdóttir, ein af mörgum börn- um þeirra Hamraendahjóna þess merki, hversu æskuheimili hennar hafði mótað hana að atorku og myndarskap. Börn þeirra Hamraendahjóna, sem upp komust, voru alls 10 að tölu. Sigríður Sigmundsdóttir vann foreldrum sínum fram að eða fram yfir tvítugsaldurinn. En þá hleypti hún heimdraganum og tók að leita sér starfa annars staðar. Um skeið stundaði hún sumar- vinnu á Austfjörðum, og svo fyrr og síðar í Vestmannaeyjum. Þar vann hún nokkrar vetrarvertíðir á kunnum heimilum í kaupstaðnum, svo sem á Lundi, Skjaldbreið og Landamótum. Þarna bjuggu kunn- ir útgerðarmenn og skipstjórar með forkum sínum, eiginkonun- um. Hinn 8. apríl 1928 giftist Sigríð- ur Sigmundsdóttir eftirlifandi manni sínum Magnúsi I. Þórðar- syni frá Sléttabóli í Mýrdal. Fyrstu sjö hjúskaparárin bjuggu þau í Vestmannaeyjum. Þar eign- uðust þau tvö börn, tvo sonu, sem báðir eru nú þjóðkunnir menn í læknastétt þjóðarinnar; Sigmund- ur og Þórður Eydal Magnússynir. Báðir kenna þeir fræði sín við Há- skóla Islands. Árið 1935 fluttu hjónin Sigríður og Magnús burt úr Eyjum og þá til Hafnarfjarðar. Þar bjuggu þau aðeins eitt ár. Síðan bjuggu þau í Reykjavík. Við hjónin hvörflum huga aftur til kreppuáranna óskaplegu, sem léku illa mörg verkamannaheimil- in í landinu, ekki minnst þau, sem áttu alla afkomu sína undir sjáv- arútveginum, afla og afurðasölu. Frá þeim erfiðu árum verður okkur minnisstæður hinn miklu dugnaður þeirra hjóna, Sigríðar og Magnúsar, atorka þeirra, hyggjuvit og hin óbrigðula sam- staða og ósérplægni. Eftir að þau hjón fluttu frá Eyj- um, stundaði Sigríður kaupavinnu nokkur sumur austur í sveitum. Hafði hún þá annan drenginn sinn með sér og vann þar fyrir honum öðrum þræði. Hinn, eldri bróðir- inn, dvaldist þá jafnan hjá afa sín- um og ömmu vestur á Hamraend- um. Með þessari miklu atorku og ósérplægni tókst þeim hjónum að kosta báða sonu sína til langskóla- náms, svo að sómi var að. Nokkur undanfarin ár átti Sig- ríður Sigmundsdóttir jvið van- heilsu að stríða. Og síðustu tvö ár- in eða svo lá hún á Landspítalan- um mikill sjúklingur. Þar andaðist hún 18. þ.m. Við fráfall hinnar mætu konu vottum við hjónin manni hennar, sonum og öðru venzlafólki innileg- ustu samúð okkar. Við minnumst með alúðarþökkum tryggðar, hlýju og einlægrar vináttu þeirra hjóna, sem haldizt hefur á sjötta tug ára og aldrei borið skugga á. „O, hk'SHUÖ stund, er hátt I himinsölum minn hjsrtnns vin ég aftur fc aé sjá. víð um okkar ævi siman tölum, »em eins og skuggi þá er liðin hjá-“ (MJ.) Ingigerður og Þorsteinn Þ. Viglundsson Báran " StvVtWshóW' \ HeWtssandt- Léttir, þægilegir sumarjakkar umboí>smenn«"' lattd gtönduósi, NP®na '’wtutevt', rs—sa fa\ava\ " ___ ^orna- Bornab®r - s- \u. Rtó', , Mtta- V\rö\, oö'n _ BúsavíW, nes\, ^ " Halnar- Barstus'urt>æ' ,á Wrö't jyt Kaup\e\; Beyöarhröi. ^Q^e\\\, Ban9æ'n9 SaU6árKróW', Sparta — cQ\\ss\ööum, SKógar - ^ Borgar- \sb\örn'nn ^ Q\a\S\/íK' nes\, Lea Se\\oss\, Und»n" \jopnaWrö't °ma " paUeKsWrö\' Pa\rona - Gr\ndav\K,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.