Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83038. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakiö. Fylgishrun Alþýðubandalagsins ir Alandsvísu tapaði Alþýðubandalagið 6,8% atkvæða í kosningunum á laugardaginn sé miðað við úrslitin 1978 og í Reykjavík tapaði flokkurinn 10,8%. Öll fram- ganga forystumanna Alþýðubandalagsins síðustu fjögur ár hefur einkennst af miklum hroka og yfirlæti, þeim mun sárari hlýtur þeim að þykja ósigurinn. Af yfirlýsingum flokksbroddanna í Alþýðubandalaginu má ráða, að þeir telji sig hafa getað stjórnað landinu vegna áhrifa sinna í ríkisstjórn, borgarstjórn Reykjavíkur og verkalýðshreyf- ingunni. Nú hafa þeir misst valdaaðstöðu sína í Reykjavík en sitja enn í ríkisstjórninni og hafa óneitanlega tök á ýmsum foringjum í verkalýðshreyfingunni. Það var athyglisvert, að með sunnudagssamþykkt frá 25. apríl sl. ætlaði verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins að breyta kosningabaráttunni í kjarabaráttu. í stjórn þessa ráðs sitja ýmsir helstu foringjar í Alþýðusambandi ís- lands, þeir afneituðu hins vegar þessari samþykkt Alþýðu- bandalagsins, eftir að Vinnuveitendasambandið skaut því til ríkissáttasemjara, að hann frestaði kjaraviðræðum fram yfir kosningar, úr því að ýmsir foringjar í ASÍ hefðu samþykkt, að niðurstaðan í þessum viðræðum fengist hvort eð er ekki fyrr en talið væri upp úr kjörkössunum 22. maí. Það kom sem sé fram í kosningabaráttunni, að tök Alþýðu- bandalagsins á verkalýðshreyfingunni eru minni en áður. Hins vegar sýnist hugur flokksbroddanna standa til þess, að hefna harma sinna yfir fylgishruninu með því að beita fyrir sig verkalýðshreyfingunni. Jafnvel fráfarandi forseti borgarstjórnar, alþýðubandalagsmaðurinn Sigurjón Pét- ursson, er farinn að hóta hörðum launaátökum. Með því verður fylgst, hvernig Alþýðubandalagið reynir að nota verkalýðshreyfinguna í flokkspólitískum tilgangi á næst- unni. Hugur ráðherra Alþýðubandalagsins stendur ekki til þess að yfirgefa ríkisstjórnina, og fyrir setu sinni þar munu þeir berjast til síðasta manns. En hvað um þá, sem sitja með Alþýðubandalaginu í ríkisstjórn? Hvaða hag sjá þeir sér í því að binda trúss sitt við þennan tapflokk, sem nú mun grípa til örþrifaráða? Sé það markmið samstarfs- aðila Alþýðubandalagsins í ríkisstjórninni að draga enn úr áhrifamætti þess og fylgi, skal ríkisstjórninni óskað langra lífdaga. Sé það hins vegar ætlunin, að áfram fái Alþýðu- bandalagið að beita neitunarvaldi um meiriháttar mál og spilla samskiptum við aðra, eins og Alusuisse, er svo sann- arlega tímabært að rjúfa stjórnarsamstarfið. Mistök Alþýðuflokksins Fyrir fjórum árum vann Alþýðuflokkurinn glæsilegan sigur og þá gengu ýmsir forystumenn hans fram fyrir skjöldu og lýstu því yfir, að nýtt tímabil væri hafið í stjórnmálalífinu á Islandi, hinn nýi tími myndi meðal ann- ars hafa það í för með sér, að gengið yrði að Sjálfstæðis- flokknum dauðum. Líklega er það fyrir áhrif frá þessum ótímabæru yfirlýsingum, sem Sigurður E. Guðmundsson lét eins og hann væri að greiða Sjálfstæðisflokknum náð- arhöggið í kosningabaráttunni í Reykjavík. Hann sagðist vera að verja lýðræðið gegn „lýðræðisfjandsamlegum al- ræðissinnum" Sjálfstæðisflokksins — næðu sjálfstæðis- menn meirihluta að nýju. Jafnaðist sá atburður á við inn- rás Varsjárbandalagslandanna í Prag 1968 að mati Sigurð- ar E. Guðmundssonar. Hvernig brugðust kjósendur við þessum áróðri krata? Með verðugum hætti, því að Alþýðuflokkurinn er orðinn minnsti flokkurinn í höfuðborginni. Minnimáttarkennd ýmissa krata gagnvart Sjálfstæðisflokknum er mikil, hins vegar er ekki von á kosningasigri, ef hún ræður ferðinni hjá Alþýðuflokknum. Eyðimerkurgangan til vinstri mun vafalaust halda áfram hjá forystusveit Alþýðuflokksins, því að svo er að skilja, að nú reki áhrifamenn þar upphafið að þessum síðustu óförum til útgöngunnar úr vinstri stjórninni 1979. Jóhanna Magnúsdóttir RE rar orAin mjttg illa farin af eldi áður en hún sttkk um klukkan 10.30 árdegis í gær, eins og gltf leika um skipið og mikill reykur kemur upp úr vélarrúminu. „Hann hefur reynsluna hann - hann er orðinn vanur að bjarga mönnum á þe Rætt við skipbrots- menn af Jóhönnu Magnúsdóttur RE Vestmannaeyjum 25. maí. Frá blaðamanni Mbl. Árna Johnsen. „ELDSINS varð vart um klukkan 1, þegar báturinn var á siglingu austur í Skeiðarárdýpi, reykjarlykt gaus upp úr vélarrúminu, og þegar ég opnaði lúg- una niður, sá ég reyk og eld í vélar- rúmi,“ sagði Hálfdán Guðmundsson stýrimaður á Jóhönnu Magnúsdóttur RE, 62ja tonna báti sem brann og sökk út af Alviðru á Suðurlandsmið- um i gærmorgun í samtali við Mbl. Mannbjörg varð en báturinn fórst. Sigurjón Óskarsson, aflakóngur íslands 1982, ásamt skipshöfn sinni bjargaði sex manna áhöfn af Jó- hönnu, og hélt með skipsbrotsmenn- ina til Vestmannaeyja í gær, á skipi sínu Þórunni Sveinsdóttur. „Eg rauk til og ræsti mannskap- Gísli Guðmundsson skipstjóri á Jóhtfnnu RE þakkar Sigurjóni Óskarssyni á Þórunni VE björgunina, en þetta er I þriðja skipti sem Sigurjón bjargar mönnum úr sjávarháska á þessum slóðum. Sigurður Sigurjónsson, Garðabæ: Góð málefnastaða, - staðfesting á að gott er að búa í Garðabæ ÞAU mistök urðu við frágang Mbl. í gær, að í stað viðtals við Sigurð Sig- urjónsson, efsta mann á framboðs- lista sjálfstæðismanna í Garðabæ, birtist viðtal við Sigurgeir Ólafsson, efsta mann flokksins í Vestmanna- eyjum, sem reyndar var einnig á öðr- um stað í blaðinu. Við biðjum les- endur og sjálfstæðismenn í Garðabæ velvirðingar á þessum tæknimistök- um og fer hér á eftir viðtalið við Sigurð: „Ég er sérstaklega ánægður með þessa niðurstöðu og óneitanlega glæsilegan sigur. Það er alltaf erf- itt að vera í meirihlutaaðstöðu og sigurinn er þeim mun kærkomnari af því að við bættum við okkur fylgi. í stað þess að berjast við að halda okkar fylgi, þá hreinlega bætum við við einum manni og stóraukinni prósentu í fylgi, rúm- lega 13%,“ sagði Sigurður Sigur- jónsson, efsti maður á lista Sjálf- stæðisflokksins í Garöabæ, en sjálfstæðismenn þar bættu við sig mjög miklu fylgi og fengu fimm menn af sjö í bæjarstjórn. Þeir höfðu áður fjóra. Sigurður var spurður hverjar hann teldi helstu ástæður þessa stóra sigurs. Hann svaraði: „Helstu ástæðurnar eru þær að þrátt fyrir miklar framkvæmdir á kjörtímabilinu, þá hefur staða bæjarsjóðs verið góð. Það er at- hyglisvert í því sambandi að and- stæðingarnir hafa ekki treyst sér til að gagnrýna stöðu bæjarsjóðs. — Ársreikningana er ekki hægt að vefengja. Þá tel ég eina aðal- ástæðu sigursins, að í framboði voru sterkir og duglegir einstakl- ingar. Sömuleiðis höfum við hald- ið uppi öflugri blaðaútgáfu þar sem bæjarbúar voru upplýstir um framkvæmdir og stöðu bæjarmála á réttan og sannan hátt. Þá héld- um við uppi mjög málefnalegri baráttu fyrir kosningarnar, gagn- stætt við aðra sem héldu uppi persónulegum árásum og dylgjum í garð frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins. Fyrir það hafa þeir áreiðanlega goldið. Þá hafa full- trúar vinstri flokkanna haldið uppi mjög harðri og óbilgjarnri pólitík á kjörtímabilinu fyrst og fremst til að koma sjálfum sér á framfæri og reyna að klekkja á meirihlutanum. Þessar aðfarir hafa eingöngu svert okkur Garðbæinga í augum íbúa ná- grannasveitarfélaganna og það hafa Garðbæingar skynjað. Þá vil ég einnig geta annarrar ástæðu fyrir okkar vinningi, en hún er að við héldum uppi mjög góðum og skipulögðum kosninga- undirbúningi. Frambjóðendur sem flestir er nýir á listanum heim- sóttu Garðbæinga bæði á heimili þeirra og á vinnustaði til að kynna sig og kynnast þeim persónulega og það hefur áreiðanlega gert sitt. — Nú var ákveðin hræðsla skömmu fyrir kosningar við að sjálfstæðismenn væru að missa meirihlutann í Garðabæ. Hvað viltu segja um það? „Það örlaði eitthvað á þessu og líklega vegna þess að fjölgun íbúanna var mjög ör á síðasta kjörtímabili, þannig að um eitt þúsund manns bættust

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.