Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.05.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982 21 og hverfa inn í sólskinið?” (Gibran frá Libanon.) Þorsteinn er dáinn. Það er skarð fyrir skildi í fé- lagshópi Gerplu. En ráðgáta lífs- ins verður ekki ráðin og enginn ræður í annars barm. Því að eins og við leitum heim í rökkrinu, eins þarf sál okkar, hið fjarlæga og einmana, sem í okkur býr, að leita sinna heimkynna í öræfum. Börn náttúrunnar verða aldrei fjötruð eða múlbundin, ekkert hús getur hýst þeirra þrá. Félagar í Gerplu kveðja Þor- stein M. Gunnarsson í virðingu og þökk. Þökk frá öllu unga fólkinu í Gerplu sem hann gaf sínar tóm- stundir, þökk frá samstarfsfólkinu í stjórn félagsins fyrir allt það sem hann var okkur og heldur áfram að vera þótt hann hverfi handan móðunnar miklu. Minningin um góðan dreng og góðan félaga mun lifa og við von- um að nýir menn og konur komi og beri merki Þorsteins og vinni að kjörorði ungmennafélaganna: „Ræktun lands og lýðs. Islandi allt.“ Við sendum fjölskyldu Þor- steins innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að gefa þeim styrk þessi þungu vordægur. íþróttafélagið Gerpla, Kópavogi. Margrét Bjarnadóttir. í annað sinn nú á örfáum vikum þarf að kveðja ungan mann í há- blóma lífsins. Þegar slíkar vá- fréttir berast er ekki hjá komist að mann setji hljóðan og sú spurn- ing vakni hver sé eiginlega til- gangurinn með því að hrífa burt unga menn frá ástvinum, eigin- konu og ungum börnum. Er skýr- ingin ef til vill sú, að þeir deyja ungir sem guðirnir elska, er ein- hver önnur skýring hugsanleg, eða er engin skýring til. Séu einhver slík máttarvöld til sem ráða yfir lífi og dauða, getur þá verið að þau séu hreint ekki óskeikul, fór sá sem kallaður er maðurinn með ljá- inn mannavillt. Helst er að mér hafi dottið það í hug er ég frétti skyndilegt fráfall vinar míns, Þorsteins M. Gunnarssonar. Hvernig á að skrifa minningar- grein um ungan mann, ekki er hægt að telja upp afrekaskrá langrar ævi, en er það nauðsynlegt við ritun sltkrar greinar, það tel ég ekki, enda er þessum orðum, rituðum af andans fátækt, aðeins ætlað að verða kveðjuorð um góð- an vin. Kynni okkar Steina hófust er við urðum samferða gegnum Iðn- skólann, þá unglingar um tvítugt, ærslafullir og með ótal mörg og margvísleg áhugamál. Eitt var það þó öðru fremur sem varð þess valdandi að við áttum saman ótal skemmtilegar samverustundir, en það var sameiginlegur áhugi okkar á útivist. Margar stundir höfum við gengið um fjöll og grundir við fuglaveiðar og nátt- úruskoðun. í þeim gönguferðum var margt skrafað um lífsins markmið og tilgang. Engum duld- ist það að Steini var góðum gáfum gæddur og skemmtilega ræðinn. Hann kunni á mörgu skil enda vel lesinn í hinum margvíslegasta fróðleik. Áhugamál Steina voru mörg og margvísleg og var hann virkur þátttakandi í ýmsum fé- lagasamtökum. Nokkrum sinnum lágu leiðir okkar einnig saman í starfi að félagsmálum og eirn'ig þar á ég aðeins góðar minningar um áhugasaman og duglegan sam- starfsmann. Um tveggja ára skeið áttum við þess ekki kost að njóta samvista, þegar ég og fjölskylda mín fluttum utan, en strax og heim var komið var þráðurinn tekinn upp að nýju og áttum við í fórum okkar margvíslegar ráða- gerðir um frekari veiðiferðir og útivist. Nú er Steini lagður af stað í sína hinstu gönguför, í þá gönguför get ég ekki fylgt honum, en sannfærð- ur er ég um það að hann gengur ekki lengi einn, því sá hæfileiki hans að laða að sér samferðafólk með opinskárri framkomu sinni mun áreiðanlega fylgja honum áfram á för hans. Ég og fjölskylda mín þökkum honum fyrir margar ánægjulegar samverustundir, bæði á heimili hans að Lundarbrekku 6, og á heimili okkar, og þó ekki síður í sumarbústöðunum okkar i Miðdal. Marga og margvíslega mann- kosti Þorsteins gæti ég sjálfsagt talið upp hér, en ég veit að slíkt væri honum ekki að skapi, svo oft höfum við okkar á milli rætt um hjákátlegar mannkostaupptaln- ingar minningargreina. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég kæran vin í hinsta sinn. Ég sendi Ingibjörgu og börnun- um ásamt þeim Blíðu og Gunnari mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ómar Franklínsson Mannsævinni hefur einhvers- staðar verið líkt við skák. Menn þrauka misjafnlega lengi, en allar fara skákirnar á einn og sama veg, við töpum. En það átti sannarlega enginn okkar von á því að vini okkar og félaga Þorsteini M. Gunnarssyni yrði svo skyndilega svipt af borðinu, rétt í byrjun mið- taflsins. En svona fer því miður alltof oft og alltaf stöndum við jafn agndofa og ráðþrota gegn því sem yfir dynur. Nú fáum við ekki framar að sjá Steina mæta til vinnu á morgn- ana, rjóðan og hressan eftir snarpa göngu frá heimili sínu að Lundarbrekku í Kópavogi. Ævin- lega tilbúinn að leggja orð í belg og góðum málum lið. Hann var fé- lagslyndur og áhugasamur um allt, sem gat gert lífið bærilegra og léttara. Vakandi athygli, frjótt ímyndunarafl og sköpunarþrá birtust í öllum hans athöfnum. Hann las töluvert og tók vel eftir. Þorsteinn tók þátt í ýmsum fé- lagsstörfum, var m.a. í stjórnum Leikfélags Garðabæjar, Miðdals- félagsins og Gerplu, einnig var hann um tíma í skemmtinefnd HÍP. Hann hafði undanfarin sum- ur unnið að byggingu sumarbú- staðar fyrir sig og fjölskyldu sína á orlofssvæði bókagerðarmanna í Miðdal. Þar var hann höfðingi heim að sækja. Áhugamálin voru fjölbreytt hjá honum og síðastlið- inn vetur keypti hann sér bát og hugði á róðra á línu og skak með vorinu. En það varð annar róður sem hann lagði í og hann verður því miður langur. Við, sem höfum unnið með hon- um í Prentsmiðjunni Eddu, mun- um sannarlega sakna hans, ekki aðeins vegna samvinnunnar við hann heldur líka hans óvæntu en góðlátlegu uppátækja og ríku frásagnargleði. Gamansemi getur oft létt störfin á annríkum vinnu- stað. Og eitthvað verður næsta árshátíð svipminni en sú síðasta, þegar Steini sá um Eddupóstinn með tilheyrandi glensi og gríni og var svo kynnir og stjórnandi á árshátíðinni með miklum glæsi- brag. Þorsteinn Metúsalem, eins og hann hét fullu nafni eftir móður- afa sínum, Þorsteini M. Jónssyni, landskunnum skólamanni, alþing- ismanni og bókaútgefanda, var fæddur á Akureyri 2. september 1945, en bjó frá barnsaldri í Kópa- vogi, fyrst á Hlíðarvegi en síðar í Lundarbrekku. Hann var sonur Guðbjargar Þorsteinsdóttur og Gunnars Steingrímssonar, en systkini hans eru þrjú. Hann kvæntist 10. júní 1967 Ingibjörgu Valdimarsdóttur, kennara, og eignuðust þau þrjú börn: Valdi- mar f. 1968, nýfermdur, Ingi- björgu f. 1970 og Gunnar Braga f. 1971. Sendum við þeim öllum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Samstarfsmenn Prentsm. Eddu. Eiginmaöur minn. + HALLDÓR JÓNSSON, Hástainsvegi 60, Vsstmsnnasyjum, veröur jarösunglnn 14.00. frá Landaklrkju fimmtudaginn 27. maí kl. Fyrir mfna hönd og annarra vandamanna. Anna Erlsndsdóttir. Móöir mín, INGIBJÖRG GUDJÓNSDÓTTIR, Miklubraut 9, Rvik, áöur búaatt aó Vagamótum 2, Saltjarnarnaai, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. )únf kl 10.30. Þeim, sem vildu mlnnast hennar, er bent á Ifknarstofnanir. Þráinn Viöar Þóriason. ÞORKELL ÓSKAR MAGNÚSSON, bóndi, Efri-Hömrum, Ásahrappi, er lóst 22. maf sl. f Borgarspítalanum, veröur Jarðsunginn frá Þjóökirkjunnl f Hafnarfiröl, flmmtudaginn 27. maf kl. 14.00. Systkinin. + Frændi minn, BENEDIKT SVEINSSON, Fornastakk 11, sem lóst 17. maí sl., veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 27. maí kl. 15.30. Vigdís Einarsdóttir og aörir aóstandandur. + HANSÍNA INGIBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR, Auaturgötu 29, Hafnarfirói, sem andaöist mánudaginn 17. maí, veröur jarösungln frá Hafnar- fjaröarkirkju föstudaginn 28. maf kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vlnsamlegast bent á aö láta Kristniboösfélagiö njóta þess. Einar Hilmar, böm, tengdabörn, bamaböm og bamabamaböm. Skrifstofa Steindórsprents veröur lokuð eftir hádegi í dag vegna jaröarfarar. Steindórsprent hf.t Ármúla 5. + Bróöir minn, EIÐUR Á. SIGUROSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtudag, kl. 13.30. Hslga Siguróardóttlr. + . Eiginkona mín, móölr okkar og tengdamóöir, SIGRÍOUR Á8TA FINNBOGADÓTTIR, Efstasundi 22, andaöist f Landspftalanum aöfaranótt þriöjudagsins 25. maí. Fyrir hönd aöstandenda, Þorstsinn Kristfánsson. + Móöir okkar og amma, KRISTÍN ÁRNADÓTTIR, Mjölnisholti 9, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. maí kl. 16.30. Ámi Waag Hjálmarason, Kartn Waag Hjábnaradóttir, Hjálmar Waag Hannstson. + Móöir okkar og tengdamóöir, soffIa SIGURDARDÓTTIR, Auaturbrún 21, andaöist f Borgarspftalanum 25. maí. Þórný Stsfánsdóttir, Magnús Zakarfasson, Svava Arnórsdóttir. + Aluöarþakkir færum vlö öllum þelm sem auösýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför PÉTURS SIGURBJÖRNSSONAR, Vssturbraut 19, Höfn, Hornafirói. Magnsa Stsfánsdóttir, börn, tsngdabörn, barna- börn og barnabarnabörn. • + Eiginmaöur minn og faölr okkar, HENRI HENRIKSEN, Gránufálagagötu 33, Akurayri, veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju, föstudaglnn 28. maí, kl. 13.30. Elglnkona og börn. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför systur okkar, JÓRUNNARJÓNSDÓTTUR frá Nsóra-Ási. Jóhanna Jónsdóttir, Zophonias Jónaaon, Frfmann Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.