Morgunblaðið - 26.05.1982, Page 13

Morgunblaðið - 26.05.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ1982 13 fræðina, og nú á efri árum sendi hann frá sér bók um Jónas Hall- grímsson. Hins vegar voru fræði- störf ekki hans aðalstarf, hann varð embættismaður, fyrst og fremst, skólastjóri Verslunarskól- ans og síðan útvarpsstjóri. Þegar Vilhjálmur gerðist útvarpsstjóri, var hann hagvanur í þeirri stofn- un, hafði verið fréttamaður í byrj- un og ráðunautur og vinsæll út- varpsmaður alla tíð. í áratugi kvaddi hann árið í nafni lands- manna með annáli ársins, sem enginn vildi af missa; hann mótaði þennan annál i persónulegum fjöl- fræðastíl, sem fólki þótti vænt um. Hann var og í flestu sínu far- sæll fræðari, beitti stundum hag- fræðilegri upptalningatækni, sem ýmsir göfðu gaman af, varaðist skilgreiningar skilgreininganna vegna og þó ekki síður vafasöm sannindi og vafasama speki; stíll- inn og málfarið sundurgerðar- laust, en vandað og traust. Vilhjálmi hlýtur að hafa verið gefin mikil starfsorka. Auk sinna aðalstarfa, sem bæði hljóta að hafa verið kröfumikil, og allra sinna ritstarfa og fyrirlestra, gaf hann sér tíma til að sinna hinum margvíslegustu áhugamálum, sem flest lutu að menningu og fram- förum bæjar og lands, líkt og í Kveldfélaginu forðum: Hann sat í Menntamálaráði um langt skeið, var formaður Reykvíkingafélags- ins lengi, Stúdentafélagsins og Blaðamannafélagsins, í stjórn Norræna félagsins, Fegrunarfé- lagsins, í listaverkanefnd Reykja- víkurborgar ofl. ofl. Ekki eru rit Vilhjálms heldur hér öll talin, en auk frumsaminna rita, sá hann um útgáfur ýmissa úrvalsrita íslenskra skálda, Egg- erts Ólafssonar, Hannesar Haf- stein, Guðmundar Friðjónssonar og Sveinbjarnar Egilssonar. Hann gaf út sendibréf Benedikts Grön- dals, sjálfsævisögur Páls Melsteð, Tryggva Gunnarssonar og Jóns Ólafssonar, íslandssögu Jóns Að- ils, ferðabók Helga Pjeturss, ritin Eiríkur á Brúnum, Jón Sigurðsson í ræðu og riti, Reykjavík fyrr og nú og er langt frá allt talið. En eigp að síður gaf hann sér tíma til að þýða bæði Victor Hugo og Dostojevski, og nokkrum verka Gunnars 'Gunnarssonar og Guð- mundar Kambans koma hann yfir á íslensku; þýddi jafnframt fjölda leikrita fyrir svið og útvarp. Ög er þá komið að enn einum þættinum í lífsverki Vilhjálms Þ. Gíslason- ar, áhuga hans og afskiptum af leikhúsmálum, og við þann þátt ætla ég að staldra. Ég býst við að leiklistaráhug- ann hafi Vilhjálmur sótt beint á æskuheimilið. Þorsteinn Gíslason skrifaði markverða leikgagnrýni i blað sitt Lögréttu og birti þar einnig fræðandi greinar um ein- staka leikara, sem fram úr skör- uðu, svo og yfirlitsgreinar til glöggvunar áhugasömum lesend- um. Sjálfur skrifaði Vilhjálmur síðar ágrip af leiklistarsögu í Af- mælisrit Leikfélags Reykjavíkur 1947, á 50 ára afmælinu, og kom þar fram með upplýsingar, sem ekki hafa sést annars staðar á prenti. Sögu Þjóðleikhússins þekkti Vilhjálmur síðan flestum mönnum betur og liggja til þess augljósar ástæður: við stofnun leikhússins varð hann fyrsti for- maður leikhúsráðsins og gegndi því starfi í rúman aldarfjórðung eða fram til ársins 1978. Varð það hans síðasta opinbera trúnað.ir- starf. Undirritaður kynntist Vilhjálmi Þ. Gíslasyni fyrst að einhverju ráði, er hann starfaði sem fulltrúi í dagskrárdeild útvarpsins, á þeim árum, þegar hljóðvarpið fluttist í sitt þriðja bráðabirgða- og leigfu- húsnæði. Nánari urðu þau kynni auðvitað eftir að ég kom til starfa í Þjóðleikhúsinu, og þótti mér Vilhjálmur vaxa af, því meiri sem þau kynni urðu. Þegar Vilhjálmur lét af starfi sem formaður ráðsins, var hann orðinn áttræður, og heyrðust gagnrýnisraddir, sem ekki beindust gegn Vilhjálmi sjálfum, heldur fyrirkomulaginu sem slíku; skýringin var sú, að í nærfellt áratug vafðist fyrir þing- mönnum að koma einu litlu Þjóð- leikhúsfrumvarpi í gegnum laga- smiðjuna. Auðvitað má segja sem svo, að sem regla sé heppilegt að skipta um í Þjóðleikhúsráði oftar en á þrjátíu ára fresti. Á hinn bóg- inn sannfærði seta Vilhjálms í ráðinu, og samvinna okkar þar, mig um þá skoðun, sem oft hefur gerst áleitin, að þessi þjóð hafi fráleitt efni á að segja upp öllum sínum sjötugu afmælisbörnum og setja út af sakramentinu, hvernig svo sem ástatt er um andlega og líkamlega krafta. Störf Vilhjálms fyrir Þjóðleikshúsið einkenndust af víðsýni hans og lifandi áhuga, staðgóðri klassiskri menntun, yf- irtak mikilli þekkingu og þolinni reynslu. Hann hafði ást á öndveg- isverkum heimsbókmenntanna og var þeim handgenginn, og sama hug bar hann til helstu verka is- lenskra leikbókmennta. Honum óx aldrei í augum að takast á við stórvirki, var enginn úrtölumaður þó að rennt væri á ný mið og fyrir löngu búinn að svara þeirri spurn- ingu, hvort menningarstarf mætti kosta ríkiskassann mikið annað en orð. Undir hans stjórn tókst leik- húsráðinu að greina aðalatriði frá aukaatriðum og skilja hismi frá kjarnarum og ágreiningur var settur niður í hugarjafnvægi. Vilhjálmur Þ. Gíslason var mik- ill öðlingsmaður. Ég hygg líka að í flestu tilliti hafi hann verið far- sæll maður og gæfumaður. Hon- um fylgja því við vegamótin þakk- ir margra. Um leið og ég flyt frú Ingu og öðrum nánustu aðstand- endum innilegar samúarkveðjur vil ég kveðja hann sjálfan með þeim óskum, sem hann færði landsmönnum oftar en aðrir: í Guðs friði. Sveinn Einarsson Við fráfall Vilhjálms Þ. Gísla- sonar rifjast upp ótal bernsku- minningar sem tengdar eru æsku- heimili hans að Þingholtsstræti 17 hér í bæ. Þannig stendur á því, að mæður okkar voru frænkur og æskuvinkonur og hélst sú vinátta meðan báðar lifðu. Það var viss venja, að á hverjum sunnudagseft- irmiðdegi í barnæsku minni fór móðir mín með okkur systurnar upp í Þingholtsstræti og þar var okkur ætíð tekið opnum örmum af „Nönnumömmu", en svo kölluðum við systurnar Þórunni móður SJÁ NÆSTU SÍÐU Það er eitthvað við þær.... LAUGAVEGI 47 SIM117575 Nú kemur þú meö okkur til Mallorka í sumar '■***■ FERÐASKRIFSTOFA, Iönaöarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388 og 28580

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.