Morgunblaðið - 26.05.1982, Page 32
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Jttorjjimblnbib
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1982
Mannbjörg er
60 tonna bátur
brann og sökk
VeMtmannaeyjum 25. maí,
frá blm. Mbl. Árna John.sen.
Mannbjörg varð í gær er Jóhanna
Magnúsdóttir KE, 62ja tonna bátur
úr Reykjavík, brann og sökk á mið-
unum undan Suðurlandi. Eldurinn
kom upp í vélarrúmi bátsins um
klukkan eitt, aðfaranótt þriðjudags,
og magnaðist hann svo skjótt, að
ekki varð við neitt ráðið. Skipverjar
voru í kojum, að stýrimanni undan-
skildum, og komust þeir fáklæddir
um borð í gúmmíbjörgunarbáta. Síð-
an var þeim bjargað um borð í Þór-
unni Sveinsdóttur VE, og er þetta í
þriðja skipti sem Sigurjón Oskars-
son skipstjóri á Þórunni og menn
hans, bjarga mönnum úr sjávar-
há-ska á þessum slóðum.
Um borð í Jóhönnu Magnúsdótt-
ur var sex manna áhöfn og skips-
hundur að auki. Eigendur voru
skipstjórinn Gísli Guðmundsson,
Hálfdán Guðmundsson bróðir
hans, stýrimaður á bátnum og
þriðji bróðirinn, Jón Guðmunds-
son, sem er í landi.
Sjá viðtöi og fleiri myndir í mið-
opnu blaðsins í dag.
LjÓHm.Sigurgeir
Fjóla Róbertsdóttir, níu ára stúlka í Vestmannaeyjum, sem bjargaðist
er hún féll í höfnina í Eyjum í síðustu viku. Hjá henni er björgunarmað-
ur hennar, Sævald Elíasson, sem sýndi snarræði við björgun hennar.
V estmannaeyjar:
Bjargaði níu ára
telpu frá drukknun
Frá Arna Johnsen, blaðamanni
Morgunbladsins í Eyjum í gær.
NÍII ÁRA stúlku var bjargað úr
höfninni í Vestmannaeyjum síðast-
liðinn fimmtudag, en hún hafði
fallið frá trillu, þar sem nokkur
börn voru að leik.
Sævald Elíasson, stýrimaður á
Herjólfi, var að aka bíl sínum
við höfnina, þegar hann veitti
athygli hópi barna, og virtist
eitthvað mikið um að vera. Hann
brá skjótt við og gætti að, og sá
þá að eitt barnið buslaði í
ofsahræðslu í sjónum skammt
frá bryggjunni. Stakk Sævald
sér eftir barninu, Fjólu Ró-
bertsdóttur, 9 ára, og synti með
hana til lands. Jafnaði hún sig
fljótlega, en ofsahræðsla hafði
heltekið hana er hún féll í sjó-
inn.
„Harðra gagnaðgerða
okkar er að vænta“
verði haldið áfram á sömu braut, segir Gunnar S. Björnsson, for-
maður Meistarasambands byggingamanna, um verkfóll byggingamanna
„OKKIJR virðist áhrifín ekki
vera ýkja mikil, en það fer ekki
hjá því, að það slíti vinnu töluvert
í sundur, sérstaklega þessa
viku,“ sagði Gunnar S. Björns-
son, formaður Meistarasam-
bands byggingamanna, í samtali
við Mbl., er hann var inntur eftir
áhrifum eins dags verkfalls bygg-
ingamanna í gærdag og væntan-
legu verkfalli þeirra á morgun.
Við urðum hins vegar varir
við það í gærmorgun, að það
var mikill mannskapur að
vinna, og því getum við ekki
ályktað annað, en sveinarnir
sjálfir séu ekkert hrifnir af
þessum aðgerðum félaganna,
sagði Gunnar ennfremur.
Annars vissum við að hverju
stefndi og gerðum því okkar
ráðstafanir eins og hægt var, og
tökum þessum aðgerðum því
með mikilli ró. Ef sveinasam-
tökin ætla sér á hinn bóginn að
halda áfram aðgerðum af þessu
tagi, þá mega þau fljótlega bú-
ast við einhverjum gagnaðgerð-
um af okkar hálfu, sagði Gunn-
ar S. Björnsson að síðustu.
Aðilar hafa ekkert rætt sam-
an síðan á miðvikudaginn var
og að sögn Gunnars er næsti
fundur aðila kominn undir vilja
ríkissáttasemjara, en málið er
alfarið í hans höndum.
Lægsta verð á mjöl-
mörkuðum um árabil
VERÐ á fískimjölsmörkuóunum í heiminum er lægra um þessar mundir, en
þaö hefur verið um árabil, og sagði viðmælandi Morgunblaðsins í gær, að ef
loónuveiðar væru leyfðar hér við land nú, hefði gengið illa að láta enda ná
saman hjá verksmiðjum og skipum. Verðið, sem fæst fyrir proteineininguna
nú er i kringum 6 dollarar, en á síðustu loðnuvertíð seldu íslendingar
proteineininguna á 7,20 til 7,50 dollara.
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríksins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að þótt framleiðsla hefði
dregist saman á íslandi og víðar á
norðurhveli jarðar, þá hefði fram-
leiðslan aukist í Suður-Ameríku-
ríkjum og líklega væri heildar-
framleiðslan nú svipuð því sem
hún hefði verið á undanförnum
árum. S-Ameríkumjöl hefði að
undanförnu verið selt á í kringum
6 dollara proteineiningin, en mjöl
frá Norðurlöndum á 6 til 6,20 doll-
ara. Þá sagði Jón, að lýsisverð
hefði hækkað lítillega frá því ís-
lendingar hefðu síðast selt, en það
væri nú í kringum 400 dollarar
tonnið, en í fyrrahaust var það
selt á 370 til 380 dollara.
Það hefur komið fram í erlend-
um tímaritum, að Japanir hyggj-
ast flytja út í kringum 110.000
tonn af fiskimjöli árlega í fram-
tíðinni, en fram til þessa hafa Jap-
anir þurft að flytja inn fiskimjöl.
Mest eru það sardínutegundir,
sem Japanir bræða. Árið 1979
veiddu þeir 1,74 milljónir tonna,
1980 var veiðin komin í 2,2 millj-
ónir tonna og í fyrra fór veiði Jap-
ana í 2,7 milljónir tonna.
Jón Reynir Magnússon var
spurður að hvort þessi mikli mjöl-
útflutningur Japana væri farinn
að hafa áhrif á heimsmarkaðs-
verðið. Svaraði hann því til, að svo
væri ekki. Lágu verði mætti miklu
fremur kenna um minnkandi kaup
Austur-Evrópuríkja á fiskimjöli,
sem aftur má rekja til erfiðs efna-
hags í löndunum.
Ekkert nýtt í
fiskverðsmálum
FUNDUR var haldinn í yfirnefnd
sjávarútvegsins í gær og stóð fund-
urinn í einn og hálfan tíma. Þetta
var þriðji fundurinn í yfirnefndinni
um fiskverð, en á þessum fundum
hafa fiskverðsmálin aðeins verið
rædd, en ljóst er, að erfiðlega mun
ganga að koma saman fiskverði að
þessu sinni, ef ekki verður gripið til
sérstakra aðgerða. Ríkisstjórnin
mun hafa fjallað um fiskverðs-
ákvörðunina á fundi í gærmorgun og
munu menn hafa lýst yfir áhyggjum
sínum þar með að ákveða nýtt fisk-
verð.