Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 128. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Argentínumenn gáftist upp þegar Stanley yar að falla I/ondon og Buneo.s Aires, 14. júní. AP. MARGARET THATCHER tilkynnti í breska þinginu um kl. 21.10 í kvöld, að hvítir fánar blöktu við hún víða í Port Stanley til merkis um uppgjöf Argentínumanna. Skýrði Thatcher ennfremur frá því, að viðræður stæðu yfir um hvern- ig staðið skyldi að uppgjöfinni. Að sögn lagði fjöldi argent- ískra hermanna niður vopn sín eftir að Bretar höfðu rofið síðasta varnarmúr þeirra umhverfis Port Stanley. Mikill fögnuður braust út í breska þinginu við tilkynningu Thatcher. Fyrr í kvöld rauf breska útvarpið útsendingar sínar til að tilkynna, að samkomulag hefði tekist á milli yfirmanna her- liðs beggja þjóðanna um vopnahlé. Breska landvarnaráðu- neytið vildi þá ekki staðfesta þessa frétt. Breska landgönguliðið á Falk- landseyjum þrengdi enn frekar að Argentínumönnum í Port Stanl- ey í dag og sóttu þeir að Argentín- umönnum úr þremur áttum. Voru Argentínumenn fyrst hraktir að öftustu varnarlínu sinni umhverfis bæinn. Þar sem Páfi heldur 10 ræður á 12 klukkustundum (ienf, 14. júní. AP. JÓHANNES Páll páfi II mun á morgun ávarpa þing alþjóða vinnumálasambandsins í sinni 14. utanlandsferð frá því hann tók við embætti fyrir rúmu þremur og hálfu ári. Dvöl páfa í Sviss verður aðeins 12 klukkustunda löng, en á þeim tíma ætlar hann að halda hvorki fleiri né færri en 10 ræður hjá hinum ýmsu alþjóðasamtök- um. Ætlar hann ennfremur að heimsækja höfuðstöðvar Rauða krossins. Yfirvöld í Pól- landi heröa aðgerðir á ný Var.sjá, 14. júní. AP. YFIRVÖLD í Póllandi hafa sett útgöngubann á að nýju í borginni Wroclaw í suðvesturhluta landsins og hert löggæslu í öðrum borgum í kjölfar óeirða, sem urðu er þess var minnst, að 6 mánuðir eru lið- nir frá því herlög voru sett í land- inu. Lögreglan varð að nota tára- gas og öflugar vatnsdælur til þess að dreifa mannfjöldanum í Wroclaw og Nowa Huta, náma- bæ rétt utan við Kraká. Voru amk. 55 manns handteknir vegna mótmælanna. í yfirlýs- ingu frá yfirvöldum seint í dag var frá því skýrt, að nokkrir lögreglubílar hefðu skemmst í átökunum og 23 lögreglumenn slasast. Fregnir af óeirðunum bárust á sama tíma og orðrómur komst á kreik þess efnis, að páfa væri etv. að vænta í heimsókn til Póllands í ágúst. Hins vegar skýrði sendimaður Vatikansins, sem nú er staddur í Póllandi, frá því, að heimsókn páfa væri háð þeim skilyrðum að eðlilegt ástand ríkti í landinu við heim- sókn hans. talið var að að þeir hefðu komið fyrir miklum fjölda jarðsprengja. í fréttum frá Argentínu var frá því skýrt, að barist, hefði verið á götum í Port Stanley í kvöld, en breska landvarnaráðuneytið vildi ekki staðfesta þær fregnir. Frá því var skýrt í Vatikaninu í dag, að í bréfi frá Leopoldo Galti- eri, forseta Argentínu, til Jóhann- esar Páls páfa II féllist hann á vopnahlé með þeim skilyrðum þó, að báðir aðilar drægju lið sitt til baka af eyjunum. Bresk yfirvöld höfnuðu í dag alfarið öllum tilboð- um um vopnahlé. Báðar þjóðirnar hafa samþykkt hlutleysissvæði það, sem Rauði krossinn lagði til handa íbúum eyjanna. Er hér um að ræða tveggja hektara svæði þar sem á eru nokkuð rammgerar byggingar, sem veita munu íbúunum 600 eitthvert skjól. Hefur yfirmönnum breska herliðsins verið gefin fyrir- skipun um að sneiða hjá þessu svæði eins og frekast er kostur. Argentínumenn skýrðu frá því, að tveir óbreyttir borgarar hefðu fallið í árásum Breta um helgina og fjórir særst. Engar upplýsingar hefur verið að fá um mannfall Breta um helgina, en samkvæmt upplýsingum frá eyjunum hafa amk. 20 Bretar fallið um helgina. Hafa þá um 240 Bretar látið lífið í deilunni frá því hún hófst. Símamynd AP. Forsetahöllin í I.íbanon umkringd ísraelskum skriðdrekum. Höllin er í útjaðri borgarinnar, en ísraelar segjast ekki munu ráðast inn í miðborgina til að forðast blóðbað. Tékkneskir andófsmenn fá hótanir Vín, 14. júní. AP. EIGINKONU Ladislav Lis, eins af talsmönnum tékknesku mannrétt- indahreyfingarinnar, hefur borist bréf þar sem haft er í hótunum við hana og mann hennar og sagt, að aldrei sé að vita hvað hent geti börn þeirra hjóna. Einnig var þess krafist, að þau reiddu fram u.þ.b. 150.000 ísl. kr. til að tryggja öryggi barnanna. Þessar fréttir voru í dag hafðar eftir tékkneskum útlögum í Vín. Lis er einn af þremur tals- mönnum Mannréttindahreyf- ingarinnar ’77, sem m.a. hefur fylgst með því hvernig tékknesk stjórnvöíd standa við skuldbind- ingar sínar samkvæmt Helsinki- -sáttmálanum. Bréfið, sem konu hans barst í fyrri viku, er undir- ritað af „byltingarmanni" og er þar haft í hótunum við dætur þeirra hjóna, sex og tólf ára gamlar. Það hefst með orðunum „Allar mæður elska börnin sín ..." að því er haft er eftir heimildum. I síðustu viku var þess minnst í Tékkóslóvakíu, að 40 ár eru lið- in frá því nasistar myrtu alla karlmenn í þorpinu Lidice og sendu konur og börn í fangabúðir þar sem þau báru mörg beinin. Að þessu sinni var minningar- athöfnin með nýju sniði og kölluð „friðarfundur" í fjölmiðlunum. Þar var sovéska hernum hrósað í hástert en Bandaríkjamenn og vestrænar þjóðir að sama skapi úthrópuð. „Ekkert fær Palestínumenn til að leggja niður vopn“ — skæruliðar PLO hóta að Beirút verði að „nýrri Stalingrað“ ráðist ísraelar inn í borgina ^ Tel Aviv, Beirút, 14. júní. AP. ÍSRAELSMENN hafa umkringt hverfi Palestínuskæruliða í Beirút, en Yasser Arafat skæruliðaleiðtogi sagði, að ekkert afl fengi Palestínu- menn til að leggja niður vopn. George Habash, einn af leiðtogum skæruliða, sagði að Beirút yrði „ný Stalingrað’* ef ísraelar sæktu inn í borgina. Hins vegar báðu skæruliðar í Beirút tvisvar um vopnahlé í dag, með milligöngu Egypta, að sögn embættismanna í utanríkisráðu- neytinu í Tel Aviv, en þær um- leitanir verða ekki teknar til greina fyrr en skæruliðar hafa hætt öllum skotárásum. Háttsettur maður í ísraelska innrásarliðinu sagði, að ísraelar vildu forða blóðbaði sem af hlyt- ist í götubardögum, og myndu þeir því ekki sækja inn í Beirút. Þegar sól gekk til viðar í kvöld heyrðust varla skothljóð í borg- inni. Utanríkisráðuneytið ísraelska sagði, að lögreglan í Líbanon áætlaði að 9.583 hefðu fallið og 16.608 særst, flest óbreyttir Líb- anir og Palestínumenn, frá því Israelar réðust inn í Líbanon fyrra sunnudag. Einnig væri haldið fram að 600 þúsund hefðu misst heimili sín. Af hálfu ísra- ela voru tölur þessar stórlega dregnar í efa. Skæruliðar sögðust hafa hafið nýja sókn gegn Israelum við ísra- elsku landamæraborgina Jouni- eh. Hefði verið haldið uppi árás á þrjár borgir við Galileuvatn frá stöðvum á austurbakka Jórdan- árinnar, Ashdot Yaaqov, Maoz Hayyim og Mehola. Frakkar hvöttu ísraela til að hætta aðgerðum í Líbanon sam- stundis og hefur ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu í París verið sendur til viðræðna við líb- anska leiðtoga í Beirút. íbúar í hverfum kristinna fögnuðu ísraelska innrásarliðinu innilega, þegar það ók um götur hverfa þeirra og sameinaðist sveitum hægri manna á hæðun- um fyrir ofan Beirút.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.