Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 27 Golfleikarar komnir á fulla ferð UM HELGINA fór fram á Jaðars- vellinum við Akureyri 36 holu högg- leikur, nefnist hann Coca Cola-mót. Veður var hið ákjósanlegasta báða mótsdagana þó með kaldara móti hafi verið en þátttakendur voru ein- ungis af Norðurlandi. Vitanlega tókst mönnum misvel upp eins og gengur og gerist en mótið gekk snurðulaust fyrir sig. Úrslit urðu annars sem hér segir: Án forgjafar högg Kristján Hjálmarsson GH 161 Jón Þór Gunnarsson GA 164 Sigurður H. Ringsted GA 165 Pétur Antonsson GA 166 Með forgjöf högg Arnór Þorgeirsson GA 146 Kristján Hjálmarsson GH 147 Sigurður H. Ringsted GA 151 Sverrir Þorvaldsson GA 151 Pétur Antonsson GA 152 Auk hefðbundinna verðlauna voru veitt sérstök aukaverðlaun og urðu hándhafar þeirra sem hér segir: Kristján Hjálmarsson GH fyrir að vera næst holu á 4. braut, 2,60 metra frá. Pétur Antonsson GA fyrir að vera næst holu á 6. braut, einungis 1,29 metra frá holunni. Þröstur Sigurðsson GH var með lengsta „drive" mótsins en hversu langt það var er mér eigi kunnugt um. — MÞ Sænskur leikmaður frá Heim hjá Þórsurum SÆNSKUR leikmaður frá hinu kunna handknattleiksliði Heim var staddur í Vestmannaeyjum um helg- ina. Þar var hann á æfingu með 2. deildar-liði og leikmönnum Þórs. Hann átti viðræður við forráðamenn félagsins og hefur áhuga á að gerast þjálfari og leikmaður með liðinu á næsta keppnistímabili. Hins vegar mun eiga eftir að ganga frá málum við Heim í Svíþjóð og því fjarri því að málið sé í höfn. Ekki tókst Mbl. að grafa upp nafn þessa Svía, ein- hver leynd hvílir yfir viðræðunum á þessu stigi. Ef Svíi þessi gengur til liðs við Þór, verður hann fimmti Norður- landabúinn sem leikur í íslenska handknattleiknum á næsta keppn- istímabili. Merkilegt er, að aðeins einn þeirra mun leika í 1. deild, Anders Dahl Nielsen. Frjálsíþrótta- námskeið hjá KR Frjálsí þróttadeild KR gengst í sumar fyrir tveimur þriggja vikna námskeiðum fyrir unglinga er kynn- ast vilja frjálsíþróttum. Aldursmörk eru 12 ára og eldri. Frjálsíþróttadeild KR vill að- eins bjóða það bezta í kennslu og hefur því fengið Stefán Hall- grímsson, tugþrautarmann, sem leiðbeinanda á námskeiðunum, sem fara munu fram á Laugar- dalsvelli mánudaga — miðviku- daga og föstudaga kl. 15—16.30. Valbjörn Þorláksson, aðalþjálf- ari Frjálsíþróttadeildar KR, verð- ur Stefáni til halds og trausts. Þátttökutilkynningar berist Heimi Lárussyni í síma 23945 kl. 17—19 næstu daga. Þátttökugjald er kr. 200.00. I lok hvors námskeiðs verður haldið mót og mun besti árangur verðlaunaður með ADIDAS íþróttavörum. Fyrra námskeiðið hefst mánu- daginn 21. júní nk. kl. 15. Guðmundur Skúla hljóp 800 á 1:55,0 Guðmundur Skúlason UÍA náði at- hyglisverðum árangri í sínu fyrsta 800 metra hlaupi, hljóp á 1:55,0 mmínútum á innanfélagsmóti ÍR í l.augardalnum á föstudagskvöld. Guðmundur hefur ekki áður keppt í 800 metra hlaupi utanhúss, en hann varð íslandsmeistari í þessari grein innanhúss á síðastliðnum vetri. í hlaupinu setti Gunnar Birgisson ÍR einnig persónulegt met, hljóp á 2:00,9 mínútum, en það bendir til þess að hann hlaupi örugglega eitthvað undir 2 mínútur í sumar. Gunnar er i framför, hljóp langbezt i fyrra á 2:01,1 mínútu. Gunnar er á 18. aldursári. Brynjóllur hljóp 1500 m á 3:51,99 Brynjólfur Hilmarsson hlaupari úr UIA, sem búsettur hefur verið í Sví- þjóð frá barnæzku, náði ágætum ár- angri i sínu fyrsta utanhússhlaupi i sumar, hljóp 1500 metra á 3:51,99 mínútum í Stokkhólmi og varð þrið- j'- Brynjólfur hefur æft vel í vetur, fór m.a. í þriggja vikna æfingabúðir til Kanaríeyja. Þessi byrjun bendir til að hann stórbæti sig i 1500 metra hlaupi í ár, á bezt 3:49,8 frá í fyrra. • Leikmenn ÍBV gera harða hríð að marki Breiðabliks, en Guðmundi markverði tekst að bjarga í horn. UBK nýtti tvær víta$pyrnur og sigraði lið IBV UBK FÉKK TVÆR vítaspyrnur og skoradi úr bádum er lidiÖ sigraði ÍBV dálítið óverðskuldað f 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á laugardaginn, leikurinn fór fram í Kópavogi og urðu lokatölur hans 2—1 fyrir UBK. Ef á heildina er litið var lið IBV ívið sterkari aðilinn og hefði verðskuldað að ná að minnsta kosti öðru stiginu, líklega hefði jafnteflið verið sanngjörnustu úrslitin. í hálfleik var staðan 1—0 fyrir UBK. Þetta var annars einn af betri leikjum mótsins, bæði liðin freist- uðu þess að leika góða knatt- spyrnu og tókst oft hjá báðum að- ilum, nettur og fallegur samleikur bara fjandi algengur á erfiðum vellinum. Talsverð harka var einn- ig á köflum, en það er jafnan erf- iðara að hemja hana þegar vall- arskilyrði eru eins og í Kópavog- inu á laugardaginn, ausandi rign- ing og völlurinn háll sem áll. Blik- arnir byrjuðu betur, þeir sóttu niður kantana í stað þess að kýla knettinum inn á miðjuna eins og vel flest 1. deildar-liðin virðast telja að sé óhagganleg skylda, og oft náði liðið góðum samleiksflétt- um. En of oft mistókst síðasta sendingin, sú mikilvægasta, til framherjanna sem komu skeið- andi inn í vítateiginn. En það var ÍBV sem fékk fyrsta dauðafærið, Þórður Hallgrímsson fékk knött- inn á kollinn frá Sigurlási og hafði bæði tíma og rúm til að gera betur en hann gerði. Laus skalli hans fór fram hjá markinu. En svo skoruðu Blikarnir á 15. mínútu. Sigurjón Kristjánsson fékk knöttinn á miðjum vellinum og óð með hann alla leið inn í víta- teig ÍBV. Skyldi hann varnarmenn ÍBV eftir hér og þar í kjölfari sínu, glæsilegt gegnumbrot. Síðast glímdi hann við örn óskarsson sem varð það á að brjóta klaufa- lega á honum þannig að víta- spyrna var óumflýjanleg. Úr henni skoraði Sigurður Grétars- son þriðja mark sitt á þessu keppnistímabili. Eftir markið þyngdist mjög sókn Eyjamanna og allt til leik- hlés fór leikurinn lengst af fram við vítateigslínu UBK. Þrátt fyrir góðan samleik gekk Eyjamönnum hins vegar afleitlega að skapa sér færi á þessu tímabili, vörn UBK bjargaði jafnan þó oft væri á síð- ustu stundu. Næst því að jafna komst örn óskarsson er gott skot hans úr aukaspyrnu fór naumlega fram hjá á 24. mínútu. í upphafi síðari hálfleiks hélt sama sagan áfram, skalla frá Kára Þorleifssyni var bjargað í horn og upp úr hornspyrnunni átti Sigurlás gott skot á markið sem Guðmundur Ásgeirsson varði meistaralega. En leikurinn var Erni Óskarssyni ekki til sannrar gleði, eftir að hafa staðið af sér mikla Eyjasókn, náði UBK skyndisókn á 63. mínútu og háðu síðast þeir örn Óskarsson og Sig- urður Grétarsson mikið kapp- hlaup um knöttinn. Sigurður hafði betur, en aftur braut örn klaufa- lega á mótherja sínum og Sigurð- ur afgreiddi vítaspyrnuna aftur örugglega í netið, 2—0. Sigurður þar með orðinn markhæstur í 1. deild með 4 mörk, öll úr vítaspyrn- um. Þetta var erfiður biti að kyngja fyrir leikmenn ÍBV og meðan þeir meltu stöðuna var UBK aðeins hársbreidd frá því að bæta þriðja markinu við aðeins 4 mínútum síðar, en Sigurjón Kristjánsson hitti þá ekki knöttinn í ákjósan- legu færi eftir að Sigurður Grét- arsson hafði komist upp að enda- mörkum og rennt knettinum út til hans. En Eyjamenn sóttu enn í sig veðrið og eftir því sem á leikinn leið, þeim mun óöruggari fór vörn UBK að virka og áður en varði hafði ÍBV minnkað muninn. Það var á 72. mínútu og hvílíkt mark. Kári Þorleifsson lét þá mikinn þrumufleyg ríða af af 30 metra færi og svo fast var skotið að Guð- mundur markvörður festi ekki augu á knettinum fyrr en hann hrökk í fang hans á leiðinni út úr markinu á ný! Nú lögðu Eyjamenn allt í sókn- ina og þeir voru bæði óheppnir og klaufar að jafna ekki á næstu mínútunum. Sigurlás brenndi af úr opnu færi og Kári átti hörku- skot í stöng. Sóknarþungi ÍBV léttist ekki er dró að leikslokum, hins vegar fór mesti broddurinn smám saman úr framlínunni og á lokamínútunum settu Blikarnir saman nokkrar frábærar sóknar- lotur. Sigurður Grétarsson var á bak við þær allar og það var mikill klaufaskapur að skora ekki að minnsta kosti eitt mark. En Sigur- jón brenndi af á 86. mínútu og 90. og 91. mínútunum varði Páll Pálmason tvívegis glæsilega, fyrst frá Sigurði Grétarssyni og síðan frá Hákoni Gunnarssyni. Allt dauðafæri. Ef aðeins er litið á færin sem buðust liðunum eru úrslitin ekki ósanngjörn. Hins vegar verð- skulda lið eitthvað ef þau leika vel eins og ÍBV gerði. Það var mikil og góð barátta í liðinu og það lét ekki deigan síga þó blásið hafi á móti. Liðið var jafnt að getu, helst að Sigurlás skæri sig aðeins úr. Hann átti það þó til að „hanga“ of lengi á knettinum á stundum. Þá voru Valþór, Sveinn og Þórður traustir. Blikarnir léku einnig afar vel á köflum, nettur samleikur hinna leiknu framherja liðsins er nokk- uð sem er allt of sjaldgæft í ís- lenskri knattspyrnu, en menn UBKiÍBV 2:1 kunna líka vel að meta svona knattspyrnu. Þó voru brotalamir í liði UBK. Vörnin virkaði stundum óörugg, sérstaklega þar sem hinn annars geysitrausti Ómar Rafns- son var eitthvað miður sín. Ólafur, Helgi og Valdimar stóðu fyrir sínu. Miðlínan gerði fallega hluti nokkrum sinnum, en ef á heildina er litið, höfðu Eyjamenn betur á þeirri vígstöð. Harðari naglar sem tóku knöttinn með sér úr návígun- um. Framlínan byggði því aðgerð- ir sínar á skyndisóknum þegar góðar sendingar komu frá öftustu vörninni. Þar var fremstur í flokki Sigurður Grétarsson, einn af yfir- burðaframherjum íslenskrar knattspyrnu, sem lék Eyjamenn grátt hvenær sem færi gafst. Sig- urjón Kristjánsson átti einnig ágætan leik, en þarna vantar ein- hvern þriðja afgerandi leikmann til að fá fyllingu. í stuttu máli: íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild. Kópavogsvöllur: UBK—ÍBV 2-1 (1-0) Mörk UBK: Sigurður Grétarsson úr vítaspyrnum á 15. og 63. mínút- unum. Mark ÍBV: Kári Þorleifsson á 72. mínútu. Gul spjöld: Örn Óskarsson og Val- þór Sigþórsson. Áhorfendur: 905. Dómari: Hreiðar Jónsson og stóð hann sig með sóma. — gg. Lið UBK: Guðmundur Ásgeirsson 6 Helgi Helgason 6 Omar Rafnsson 4 Ólafur Björnsson 6 Valdemar Valdemarsson 6 Trausti Ómarsson 6 Birgir Teitsson 5 Þórarinn Þórhallsson 5 Björn Þór Egilsson 5 Siguröur Grétarsson Sigurjón Kristjánsson 7 Jóhann Grétarsson vm. 5 Hákon Gunnarsson lék of stutt. Lið ÍBV: Páll Pálmason 6 Vióar Elíasson 6 Örn Óskarsson 5 Þóröur Hallgrímsson 6 Valþór Sigþórsson 6 Snorri Rútsson 6 Sveinn Sveinsson 7 Jóhann Georgsson 6 Sigurlás Þorleifsson 7 Kári Þorleifsson 7 Hlynur Stefánsson 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.