Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982 35 grannur, ljós yfirlitum, sterklegur og spengilegur. Þegar Halldór gekk að eiga systur mína 1951, urðu samskipti okkar nánari og kunningsskapur- inn breyttist fljótlega í vináttu, sem aldrei hefur fallið skuggi á allar götur síðan, og hefur hún eflst með ári hverju með sterkum fjölskylduböndum og tíðum sam- gangi. Svo hagaði til, að við vorum samtímis í Svíþjóð um nokkurt skeið, er hann var læknir í Vest- erás í tvö ár 1956—1958 og ég lekt- or í Uppsölum, og var þá ekki talið eftir sér að skreppa á milli bæja. Er skemmst af að segja, að á und- anförnum þremur áratugum höf- um við farið margar ferðir saman með konum okkar bæði utanlands og innan og átt ótal samveru- og ánægjustundir bæði á sólríkum sumardögum og löngum vetrar- kvöldum. Halldór var félagslynd- ur og glaðsinna, léttur og kíminn í tali, og blessunarlega hafinn yfir hversdagsþref og smámunasemi. Það var því notalegt að vera í ná- vist hans og hafa samfylgd hans. Hann var einstaklega greiðvikinn og mikill vinur vina sinna. Heimili þeirra Gerðar og Halldórs mótað- ist af myndarskap og smekkvísi. Þau voru frændrækin og gestrisin með afbrigðum. Heimili þeirra var samkomustaður allrar fjölskyld- unnar, og þau héldu henni saman öllum öðrum fremur. Á þessari stundu vil ég fyrir mína hönd, systkina minna, maka og barna þakka þeim hjónum fyrir þá rausn og viðtökur, sem við höfum notið á heimili þeirra hjóna bæði fyrr og síðar. Síðustu árin mátti sjá þess merki, að Halldór gekk ekki heill til skógar, og vissi hann það best sjálfur af þekkingu sinni, að kallið gæti komið, þegar minnst varði. Engu að síður kom hið sviplega fráfall hans sem reiðarslag, enda var hann aðeins 55 ára, þegar hann lést og á miðjum aldri. Og ég taldi enga ástæðu til að ætla ann- að en hann ætti eftir mörg starfs- ár ólifuð og mundi líta augum mörg vor og njóta enn um sinn unaðar margra bjartra sumar- daga með fjölskyldu sinni og vin- um. En það fór á annan veg. Með Halldóri er genginn góður drengur, og syrgja hann margir og þeir mest, sem þekktu hann best. En mestur harmur er kveðinn að Gerði, systur minni, og börnum þeirra Halldórs, Jónínu Margréti, Kristjáni og Guðna og tengda- börnum og bróður hans, Ragnari. Megi sá, er sólina skóp, halda verndarhendi sinni yfir þeim og veita þeim styrk. Ekki verður undan þvi vikist, að eitt sinn skal hver deyja, en sorgin er líka staðreynd við ástvinamissi og eftirsjáin. Og hvernig má lifa við þennan harm? Halldór mágur hefði haft svar á reiðum höndum: Við skulum gleðjast og gleðja aðra, meðan sól er á lofti. Bjarni Guðnason Genginn er góður drengur. Hall- dór Arinbjarnar læknir lést á ferðalagi erlendis föstudaginn 4. júní sl. Hann kvaddi mig glaður og reifur daginn áður en hann lagði af stað í sína hinztu för, og þótt mér hefði verið það ljóst um tíma að hann gengi ekki heill til skógar, var ég grunlaus um að svo stutt væri eftir. Kynni mín af Halldóri hófust að afloknu stúdentsprófi beggja. Hann hafði verið bekkjarbróðir og skólafélagi konu minnar tilvon- andi frá því í barnaskóla og kvæntist síðar góðri vinkonu hennar. Tókst snemma með okkur góð vinátta sem hélzt og efldist æ síðan. Jafnframt því að vera einn okkar bezti heimilisvinur, var hann læknir okkar alla tíð, utan þeirra ára sem hann gegndi lækn- isstörfum úti á landi og erlendis. Halldór Arinbjarnar var ein- stakur maður, ástsæll með af- brigðum, og svo trúr og tryggur vinum sínum og sjúklingum að með fádæmum var. Eins og sumra lækna er siður, gat hann verið hrjúfur á yfirborðinu og hann bar ekki tilfinningar sínar á torg, en undir niðri sló viðkvæmt hjarta sem ekkert aumt mátti sjá. Oft fannst mér með ólíkindum hvað hann lagði á sig, óumbeðinn, til að fylgjast með sjúklingum sínum og gera þeim lífið bærilegra. Margt kemur fram í hugann á þessum degi, en efst er þakklæti fyrir allt sem Halldór vinur minn gerði fyrir mig og mína, svo og fyrir að hafa kynnst jafn miklum mannkostamanni. Eftirsjáin er sár. Ég og mitt fólk sendum Gerði, Nínu, Kristjáni og Guðna og ást- vinum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þau nú og ævinlega. Fari vinur minn í friði. Guðni Sunnudagsmorguninn þ. 4. júní barst mér fregn um, að Halldór vinur minn og heimilislæknir væri látinn. Ég trúði þessu naumast, en varð harmi lostin. Þó fylgdi það fregninni, að hann hefði orðið bráðkvaddur um borð í skipi, er sigldi um Miðjarðarhaf. Lífið er margslungið, og alltaf rekur mað- ur sig á sönnur þess, að enginn ræður sínum næturstað. Ekki var langt um liðið, að Hall- dór vitjaði mín og staldraði við stundarkorn, glaður og reifur að vanda. Margt bar á góma, en þó var ýmislegt vantalað, og svo kom fregnin um, að hann væri allur, og engu yrði um þokað; mér fannst það skelfilegt. Halldór Arinbjarnar fæddist að Gunnfríðarstöðum á Ásum í Austur-Húnavatnssýslu 4. sept- ember 1926. Sem kornabarn missti hann móður sína. Tóku þá lækn- ishjónin á Blönduósi litla móður- lausa drengnum opnum örmum, og varð hann strax sólargeisli á heimilinu. Læknir á Blönduósi var þá Kristján Arinbjarnar af Laugavegsættinni í Reykjavík eins og hann sagði sjálfur frá, þegar Húnvetningar létu sér dátt yfir að rekja ættir til Björns Bólstaðarhlíðarklerks, Blöndala eða annarra höfðingja í héraðinu, en Kristján var allra manna spaugsamastur. Guðrún kona Kristjáns var dóttir Otto Tulinius, kaupmanns og útgerðarmanns á Akureyri, sem gat svo sannarlega státað af göfugu ætterni, þó hún gerði það ekki: Heyrði ég oft minnst á það, er við vorum smá- stelpur á Akureyri, að hún líktist mjög nöfnu sinni og föðurömmu, prestsdótturinni frá Hofi í Álfta- firði, en hún hafði viljað öllum gott gera og var annáluð fyrir gleði og hjartagæsku. Sama mátti segja um læknisfrúna á Blönduósi, það vissu þeir best, er gerst þekktu. Læknisheimilið á Blönduósi var þá um margt frábrugðið því sem gerðist þar um slóðir. Þau lækn- ishjónin höfðu flutt til Blönduóss snemma sumars 1922, þá var Blönduós lítið þorp, sem hafði staðið í stað um áraraðir. Mikil kyrrstaða ríkti þar, eina tilbreyt- ingin var vor og haust, þegar sveitafólk kom í kaupstaðinn og gerði sér dagamun. Svo má einnig geta þess, að Blönduós hafði það fram yfir mörg þorpin, að norðan við Blöndu var stórt skólahús, þar sem tugir námsmeyja komu á hverju hausti, og setti sinn svip á umhverfið. Mikil fátækt og umkomuleysi ríkti meðal almennings og at- vinnuleysi langa vetur, eymdin setti sinn svip á fátæka fólkið í torfbæjunum í kvosinni undir brekkunum. Þó leyndust þar margir hæfileikamenn, iðnaðar- menn svo ég tali nú ekki um söng- menn og hagyrðinga, en það þurfti eitthvað að gera fyrir þetta fólk, og það vildu læknishjónin gera. Þau læknishjón voru mjög fé- lagslynd og hjá þeim var oft fullt hús af gestum. Læknirinn vildi gera meira en sinna sjúkum; hann sá naúðsyn þess að vekja nýjar vonir hjá þessu blessaða fólki, sem sat heima á stokki og beið þess, að vorið kæmi og til þess yrði kallað til vinnu. Veit ég ekki betur en Kristján læknir ætti sinn stóra hlut í því að stofnað var til félagsskapar með þessu snauða fólki í þorpinu, og það fór að rofa til. Hann var hvatamaður þess, að samkomuhúsið gamla var byggt; menn þurftu að geta kallað saman til fundar og rætt áhugamálin hverju sinni, einnig að geta tekið á móti gestum, sem vildu láta ljós sitt skina. Gamla samkomuhúsið á Blönduósi þykir víst ekki merki- legt í dag, en það stóð fyrir sínu á meðan það var og hét. Þar voru haldnir margir skemmtilegir fundir, leiksýningar og söng- skemmtanir, að ég nú ekki tali um Húnavökuna, sem þar hóf göngu sína. Efast ég um að Húnavöku- gestir seinni tima eigi sér skemmtilegri endurminningar frá Vökunni en við, sem nutum henn- ar í gamla samkomuhúsinu innan við ána, þó húsakynnin séu nú glæsilegri. Þá þurfti að lappa upp á sjúkra- skýlið, sem byggt var við lækna- bústaðinn. Nú var kominn læknir í héraðið, sem gat gert skurðað- gerðir ef í harðbakka sló, svo ekki þurfti lengur að senda sjúklingana suður. Þá kunnu læknishjónin manna best að fagna gestum, ég hygg að fáir hafi farið þar um, án þess að koma við, öllum leið vel undir þeirra þaki. — Við Guðrún erum bernskuvinkonur frá Akureyri. Naut ég þess í ríkum mæli, eftir að ég flutti í Húnavatnssýslu. Henni fannst aldrei neitt ofgert, ef vinir hennar áttu í hlut. Ef sjaldséðir gestir voru á ferð, lista- menn eða sameiginlegir vinir að norðan, fannst henni sjálfsagt að gera mér boð inn að Þingeyrum og sagði mér að koma strax. Ékki var þó auðvelt að koma boðum milli manna; enginn sími á bæjum, hvað þá útvarp né önnur sendi- tæki. En læknisfrúin á Blönduósi gerði sér lítið fyrir og lét söðla Dreyra sinn og reið sjálf eða fékk sendimann til að ríða einn að Þingeyrum með skilaboðin. Ef far- in var stysta leið voru það 15 km, en að næstu símstöð voru 6 km. Þessum myndum er aðeins brugðið upp til að sýna í hvaða umhverfi og andrúmslofti Halldór sleit barnsskónum og hvernig hin jákvæðu viðhorf foreldranna urðu til að móta hann. Gleðin, hjálp- semin og hjartahlýjan fylgdu hon- um til æviloka. Því miður nutum við Húnvetn- ingar þessara góðu hjóna skemur en skyldi. Eftir að hafa þjónað héraðinu allt að 10 ár, var Krist- jáni lækni veitt héraðslæknisem- bættið á ísafirði, og flutti hann þangað vestur með fjölskyldu sína. Þá voru drengirnir tveir, Ragnar sonur þeirra bættist í hóp- inn 12. júlí 1929. Húnvetningar söknuðu mjög þeirra hjóna, því þau höfðu notið þar almennra vinsælda. Öðru hvoru komu til okkar fréttir að vestan og vinátta okkar hélst, þó vík væri milli vina. Sumarið 1939 var Halldór hjá okkur á Þingeyrum. Hann var elskulegur unglingur glaður og samviskusamur við öll störf, er honum voru falin. Meðal annarra starfa átti hann að aka vatni í bæ- inn. Vafalaust kemur það mörgum spánskt fyrir sjónir, því óvíða þarf nú annað en skrúfa frá krana inn- andyra, þá streymir blessað vatn- ið. En öðru máli gegndi á Þingeyr- inni, þar þurfti að sækja allt vatn í lind, sem var all fjarri bænum og þurfti að gæta varúðar við þann flutning, en þetta starf rækti ungi drengurinn af mikilli alúð og sam- viskusemi, sem lengi var í minn- um höfð. Þegar Halldór kvaddi okkur um haustið, söknuðu hans allir á bænum og vonuðu að sjá hann aftur með næstu vordögum. Þegar hernámið fór fram vorið 1940 hafði Guðrún verið í Reykja- vík í tvo vetur með drengina sína, sem gengu þar í skóla. Miklar blikur voru á lofti, þegar hernám- ið skall yfir. Guðrún fór með báða syni sína heim til ísafjarðar, það mátti ekki slíta hópinn á ískyggi- legum tíma. Varð því ekkert úr því að Halldór kæmi norður til okkar um sumarið og urðum við fyrir rniklum vonbrigðum, höfðum Tilakkað til að fá hann. — Ekki var Kristján lengi á ísafirði, sumarið 1941 var honum veitt héraðslækn- isembættið í Hafnarfirði og gegn- di hann því embætti til dauða- dags, en hann andaðist langt fyrir aldur fram, þann 5. mars 1947. — Nú stóð Guðrún vinkona mín ein eftir með drengina sína tvo, Hall- dór og Ragnar. Ári áður hafði Halldór lokið stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík og því næst lá leiðin í læknadeild Há- skóla Islands. Þar lauk hann námi með miklum sóma. Halldór sinnti um tíma héraðslæknisstörfum í Árneshéraði á Ströndum, og eitt ár var hann héraðslæknir í Höfða- kaupstað á Skagaströnd. Þótti Skagstrendingum þeir hafa himin höndum tekið þegar Halldór kom til þeirra, og varð hann brátt mjög vinsæll í gamla læknishéraði föð- ur síns. Eigi varð hann þó rótgróinn þar, sem varla var von, þar sem um lítið útkjálkahérað var að ræða, en hann ungur og athafna- samur læknir. Halldór hvarf aftur suður og fór síðan utan til framhaldsnáms. Varð sérfræðingur í handlækning- um, í kvensjúkdómum og fæð- ingarhjálp. Var um tíma aðstoðar- og deildarlæknir við handlækn- ingadeild Landspítalans í Reykja- vík, en sjálfsagt kunna aðrir betur en ég skil á læknisferli hans. En eitt veit ég með vissu, að hvar sem hann fór, reyndist hann duglegur námsmaður og drengur góður. Þann 30. júní 1951 kvæntist Halldór Gerði Guðnadóttur pró- fessors í Reykjavík Jónssonar, hinni ágætustu konu, var það beggja gæfa. Þau hjón virtust lík um margt, glaðleg og viðmótsþýð, hvort held- ur var heima fyrir eða á förnum vegi. Áttu þau fallegt heimili að Bjarnarlandi 20 í Fossvogi, þar sem gott var að koma. Börnin þeirra voru þrjú, Jónína Margrét, Kristján og Guðni. Síðustu árin hefur Halldór stundað heimilislækningar auk þess sem hann hefur haft lækn- ingastofu að Klapparstíg 25—27. Ég var svo lánsöm að eiga hann fyrir heimilislækni nokkur undan- farin ár. Það var sama, hvenær ég kvakaði til hans, viðbrögðin voru ætíð jafn ljúfmannleg. Mér varð það fyllilega ljóst, að starfi hans fylgdi mikill erill. Sí- fellt kvabb seint og snemma hlaut að vera þreytandi, því erfitt reyndist að gera öllum til hæfis. Sem betur fór, þurfti ég ekki oft að leita til hans sem læknis fyrstu árin, en það var mikið öryggi að eiga þar hauk í horni, sem hann var. Síðastliðinn vetur, er heilsu minni tók að hraka, hef ég oft leit- að til læknis míns og fann þá hve dýrmætt það var að eiga hann að. — En nú er hann allur og ég sakna vinar í stað. Með þessum fáu línum langar mig til að færa þessum ljúfa vini mínum kveðjur og þakkir fyrir frábæra umhyggju, og jafnframt votta konu hans, börnum og einkabróður hans, Ragnari, inni- lega samúð mína. I Guðs friði. Hulda Á. Stefánsdóttir Kveðjustund. Halldór mágur og Gerður systir mín voru á leið í ferðalag um framandi lönd. Nú skyldi loks rætast gamall draum- ur um að skoða og sjá með eigin augum allt það sem hinar fornu menningarþjóðir við botn Mið- jarðarhafs höfðu eftirlátið síðari kynslóðum. Kveðjuhandtakinu fylgdi vinarkoss á vanga og í svip mágs míns var sama hlýjan og ævinlega í minn garð. Kannski var tilhlökkunin blandin örlitlum kvíða því að ferðaáætlunin var ekki aðeins fjölbreytileg og skemmtileg heldur líka æði strembin, en við brostum öll og væntum góðra endurfunda að þremur vikum liðnum. En það fór á annan veg. í Kairó kom kallið og skemmtiferðin lang- þráða hafði á einu andartaki snú- ist í för á vit dauða og sorgar. Það er oft erfitt að una hinum endan- lega dómi þess sem öllu ræður og svo er vissulega nú þegar Halldór mágur er allur, aðeins 55 ára gam- all. Sárast er það þeim sem næst honum stóðu, konunni hans og börnunum þremur, en líka okkur tengdafólki hans sem alltaf áttum vísan vin þar sem Halldór var, vorum alltaf svo velkomin, hvort sem skroppið var í Bjarmaland í stutta fjölskyiduheimsókn, í fjöl- mennar veislur eða til að þiggja læknisráð. Vegna aldursmunar okkar leit Halldór gjarnan á mig sem hálf- gildingsdóttur sína og þess naut ég alla tíð, allt frá því ég sem smá- krakki tók að venja komur mínar á fyrsta heimili þeirra Gerðar. Halldór var einstaklega barngóð- ur og hafði yndi af að sprella með krökkum. Honum tókst að leika á mér töfrabrögð sem ég hef ekki komist til botns í enn þann dag í dag. Ég á margar dýrmætar minn- ingar sem tengjast Halldóri og Gerði því að hjá þeim hef ég alltaf átt eins konar annað heimili; sumarlangt á Skagaströnd þar sem Halldór var héraðslæknir að loknu læknanámi og tvívegis í Vasterás i Svíþjóð, en þar stund- aði hann sérnám sitt. Langdvalir á heimili þeirra urðu til þess að ég bast því á alveg sér- stakan hátt og þegar ég hafði sjálf eignast minn förunaut reyndist heimili Gerðar og Halldórs okkur hjónum jafn opið og mér áður. í tímabundnu húsnæðisleysi buðu þau okkur að búa með fjölskyld- una sem reyndar stækkaði einmitt í húsi þeirra. Alltaf var Halldór sá bakhjarl sem við gátum treyst þegar á þurfti að halda. Á yfir- borði gat hann virst hrjúfur á stundum en það þurfti ekki löng kynni til að komast að því hversu þunn sú skel var og að inni fyrir bjuggu sterkar tilfinningar og hlýtt hjarta. Það fengum við að reyna mest sem þekktum hann best. Þegar við nú kveðjum hann hinsta sinni í dag virðist svo ótrú- legt og erfitt að fella sig við til- hugsunina um að eiga aldrei eftir að hitta hann fyrir með kankvisa, hlýja brosið, en minningin mun geymast og ylja um ókomin ár. Með þessum fáu kveðjuorðum vil ég votta Halldóri mági mínum þakklæti fyrir það sem hann gaf mér og fjölskyldu minni af vinar- þeli og tryggð alla tíð. Blessuð sé minning hans. Nína Halldór Arinbjarnar, læknir, lést á ferðalagi erlendis þann 4. þ.m. 55 ára að aldri. Það eru orðin 38 ár, telst mér, síðan ég kynntist Halldóri, þegar við urðum bekkjarbræður í 5. bekk Menntaskólans í Reykjavík. Mér stóð nokkur beygur af honum í fyrstu. Hann var þá tröllaukinn handboltakappi og skaut þrumu- skotum sínum í markið, þar sem ég stóð sem skotskífa, hræddur mjög um nef mitt og fleiri við- kvæma líkamshluta. Fljótlega kynntist ég honum einnig sem vöskum liðsmanni við umsjónar- mannsstörfin, sem gátu orðið háskafull í löngu frímínútunum þegar baldnir skólabræður reyndu að gera okkur „útkösturum" lífið leitt. Það vinarþel, sem skapaðist með okkur skólabræðrunum á menntaskólaárunum, hélst óbreytt alla tíð. Halldór átti góðan hlut að upp- byggingu lækningamiðstöðvar að Klapparstíg 25—27 hér í bæ, 1961. Um allmörg ár var sú miðstöð dágott dæmi um samstarfsvett- vang lækna í ýmsum sérgreinum læknisfræðinnar. Þótt ég væri ekki í samstarfshópnum nema 3—4 ár, finnst mér ég hafi öðlast í honum verðmæta reynslu og gott veganesti. Það hef ég alltaf þakk- að Halldóri öðrum fremur. Við, sem útskrifuðumst úr MR 1946, áttum þess kost að heyra eitt kröftugasta „Valete Studia“, sem heyrst hefur af tröppum skólans. Á 100 ára afmæli MR voru þeir Pétur Jónsson, óperusöngvari, og Árni frá Múla meðal jubilantes og drógu ekkert af sér í söngnum þann dag. Þegar sungið var með Halldóri á bekkjarskemmtunum á umliðnum árum fannst mér ég alltaf upplifa stemmninguna miklu frá 1946. Ólafur Jensson Fréttin um hið skyndilega and- lát Halldórs kom eins og reiðar- slag yfir mig sem og aðra vini hans og venslamenn. Slík frétt lamar mann í fyrstu og maður SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.