Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.06.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 41 félk í fréttum + Berhöfðaður páfi, Jó- hannes Páll annar, lyftir barni skömmu eftir kom- una á Speke-flugvöllinn í Liverpool. Vindurinn feykti páfahattinum af höfði páfa þegar hann steig út úr flugvélinni. John-John með föður sínum. John-John Kennedy lítur út eins og grískur guð John-John Kennedy er nógu fallegur til að verða Hollywood-stjarna. COSPER 8735 COSPER + John-John, sonur John F. Kennedys Bandaríkjaforseta og Jackie Kennedy, er nú orðinn 19 ára gamall og gengur í Brown- háskólann, einn elsta og virtasta háskóla Bandaríkjanna. Sam- kvæmt skoðanakönnun í blaði vestanhafs er hann eftirsóttasti ógifti maðurinn í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Hann var m.a.s. fyrir ofan Ryan O’Neil, Brian Ferry, Andrew Bretaprins, Albert prins af Mónakó og Mick Jagger. Móðir John-Johns, Jackie Kennedy, hefur alla tíð áminnt son sinn um að faðir hans hefði verið hetja og að hann ætti að verða eins og faðir hans. Og Ted Kennedy, föðurbróðir John- Johns, hefur sagt að John-John muni starfa með sér í næstu kosningum. „Þá mun honum skiljast að hann er sannur Kennedy — og að hann á að stefna á toppinn." En þangað til baðar John-John sig í kvenhylli sinni. Bekkjarsyst- ir hans, Diane Krivit, segir að hann líti út eins og „griskur guð. Hann hefur himneska fegurð," segir hún. Og í blaðinu sem valdi hann sem eftirsóttasta ógifta mann ársins var honum líst sem „látlausum, karlmannlegum, íþróttalegum og hrífandi" ungum manni. Og nú þegar hefur John- John oft sést í fylgd með mörgum frægum fegurðardísum, þeirra á meðal Brooke Shields. Hin 19 ára gamla Sally Munro, núverandi vinkona John-John Kennedys, álítur að John-John hafi mikla hæfileika til að verða stjórnmála- maður, hann sé svo sannfærandi í tali. Nú lendir þú aftur í slag — ég missti aftur blóma- pott niður á hausinn á einhverjum manni. John-John með móður sinni. Tölvuskólinn Skipholti 1 sími 25400 Tölvunámskeið Byrjendanámskeiö Námskeiöin standa yfir í 2 vikur. Kennt er 2 stundir á dag virka daga. Kl. 17.30—19.30 eöa 20.00—22.00. Viö kennsluna eru notaöar míkrótölvur af algengustu gerö. Námsefniö er allt á ísiensku og œtlaö byrjendum sem ekki hafa komið nálægt tölvum áöur. Á námskeiöunum er kennt m.a.: Grundvallaratriöi forritunarmálslns BASIC. Fjallaö er um uppbyggingu tölva, notkunarsviö og eig- inieika hinna ýmsu geröa tölva. Kynning á tölvukerfum, hugbúnaöi og véibúnaöi, sem notuö eru viö rekstur fyrirtækja. Innritun í síma 25400 kraft>397g n ^tcliup Knnwos TOMATSOSA Kr. 8.20fl. Þetta ergmnnvöruverö GeriÖ verðsamanburö Kjörbúðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.