Morgunblaðið - 15.06.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
15
Styrkir úr „Dansk-
íslenzka sjóðnum“
Á FUNDI í stjórn „Dansk-íslenzka
sjóósins" fyrir skömmu var sam-
þykkt að veita nokkrum aðilum
styrki úr sjóðnum, samtals að upp-
hæð 16.300 danskar krónur.
Tilgangur styrkveitinganna er
að auka samband Islands og Dan-
merkur á menningar- og vísinda-
sviði. Stærsti styrkurinn var veitt-
ur stofnun Árna Magnússonar,
5.000 krónur danskar, til útgáfu á
Skjöldungasögu.
Kaffisala
Kristilegs
stúdenta-
félags
Þjóðhátíðardaginn, 17. júní, sem
jafnframt er stofndagur Kristilegs
stúdentafélags, verður félagið með
kaffisölu á 3. hæð Freyjugötu 27.
Áður en kaffisalan hefst, eða kl.
14.30, hefur Ástráður Sigurstein-
dórsson, fyrrverandi skólastjóri,
hugleiðingu en kaffisalan stendur
síðan fram eftir degi.
Tappi tíkarrass
heldur tónleika
HUÓMSVEITIN Tappi tíkarrass
efnir til tónleika í I.indarbæ í kvöld
kl. 21. Tappi Tíkarrass er ein yngri
hljómsveita landsins og vakti t.d.
verulega athygli í kvikmyndinni
Rokk í Reykjavík.
Lengst af var hljómsveitin skip-
uð fimm meðlimum, en annar
söngvarinn, Eyþór Arnalds, hefur
sagt skilið við poppið í bili og ætl-
ar að snúa sér að cellóleik.
Þau, sem skipa Tappa tíkarrass
nú, eru: Jakob Magnússon, bassi,
Guðmundur (föðurnafn vantar),
trommur, Eyjólfur Jóhannesson,
gítar, og Björk Guðmundsdóttir,
söngur.
GLÆSIVAGN Á GÓÐU VERÐI
Ó5VIKINN GÆÐINGUR
1 NÝ ISLENSK FRAMLEIDSLA
DBS-TOURING 10 gíra/kven eða karlmanns
bogið eða beint stýri/lokaðar skálabremsur innbyggður
lás/standari/ljósatæki/ 3 stærðir litir: silfurgrátt/ljósblátt
FÁLKINN