Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982 Halldór Arínbjarnar lœknir — Fæddur 4. september 1926 Dáinn 4. júní 1982 Föstudagskvöldið 4. júní síðast- liðinn bárust þau harmtíðindi hingað til lands, að þann dag hefði Halldór læknir Arinbjarnar orðið bráðkvaddur á ferðalagi um suð- urlönd Evrópu, á siglingaferð um Miðjarðarhafið. Hann var í sumarleyfisferð ásamt eiginkonu og vinafólki. Vika var að baki ferðarinnar, og hafði hópurinn haft viðdvöl á It- alíu og í Grikklandi. Næsti áfangi var sjóieiðis til Egyptalands. Þar hvíldi Halldór nár, um síð- ustu helgi, þar til lík hans var flutt heim síðastliðinn laugardag til hinstu hvíldar í íslenzkri mold. Útför hans fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 15.00. Halldór Arinbjarnar, læknir, fæddist að Gunnfríðarstöðum á Ásum í Vestur-Húnavatnssýslu þann 4. september 1926. Hann var kjörsonur Guðrúnar, dóttur hjónanna Valgerðar f. Möller og Ottós Carls Tuliniusar útgerðarmanns á Akureyri. Guð- rún var stúdent að mennt, vel að sér í tungumálum, fékkst við tung- umálakennslu og var í mörg ár kennari í Verzlunarskóla Islands. Maður Guðrúnar var Kristján Arinbjarnar, læknir, sonur Sigríð- ar Jakobsdóttur, ættaðrar frá Kol- beinsstöðum í Hnappadal í Snæ- fellssýslu, og faðir Kristjáns var Arinbjörn Sveinbjörnsson, bók- bindari í Reykjavík. Kristján Arinbjarnar, læknir, var ljúfmenni í allri umgengni, dagfarsprúður, glaðlyndur, vin- tryggur og vinsæll læknir, norðan- lands, á ísafirði og síðast starfaði hann í Hafnarfirði og var þar hér- aðslæknir frá 1. júlí 1942 allt til þess að hann andaðist 5. marz 1947. Æviár Kristjáns urðu jafnmörg og kjörsonarins, aðeins 55. Báðir dóu þeir ungir, fyrir aldur fram. Á Hafnarfjarðarárum Kristjáns Arinbjarnar og konu hans kynnt- ist ég allnáið heimili þeirra og var oft gestkomandi. Halldór var þá við nám í Menntaskólanum í Reykjavík og nokkur aldursmunur á okkur. Ég kynntist honum þá aðeins af orðspori, en síðastliðin tæp átta ár höfum við verið nánir samverka- menn og góðir vinir. Halldór Arinbjarnar lauk stúd- entsprófi úr stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík 11. júní 1946 með fyrstu einkunn, og læknakandidat varð hann frá Há- skóla íslands 30. janúar 1953, einnig með fyrstu einkunn. Halldór var við framhaldsnám í Danmörku 1954 og 1955, síðar einnig í Svíþjóð 1956 til 1958. Hann réðst aðstoðarlæknir í fæðingardeild Landspítalans haustið 1958 og í handlækninga- deild spítalans 1%0 en deildar- læknir í þeirri deild varð hann 1962. Halldór Arinbjarnar hlaut al- mennt lækningaleyfi 6. júlí 1955. Að auki öðlaðist hann viðurkenn- ingu sem sérfræðingur í hand- lækningum 1960 og ennfremur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp 1962. Á námsárum Halldórs Arin- bjarnar í Háskóla Islands var hann settur héraðslæknir í Árnes- héraði í Strandasýslu og síðar starfandi læknir í Höfðakaupstað í Húnavatnssýslu á vegum hrepps- félagsins og sjúkrasamlags stað- arins. Heimilislæknir hefir Halldór verið hjá mörgum fjölskyldum og einstaklingum hér í borg og stund- aði þau störf af stakri alúð og trúmennsku og mun hans lengi minnst og saknað fyrir sjúkravitj- anir og heimilislækningar. Halldór gekk að eiga skólasyst- ur sína og samstúdent, Gerði, 30. júní 1951, dóttur Jónínu Margrét- ar Pálsdóttur og Guðna Jónsson- ar, prófessors í Háskóla Islands. Á heimili Gerðar og Halldórs Minning hefir gleði, ánægja og fegurð verið í öndvegi og fjölskyldan hefir unað þar vel sínum hag. Gerður og Halldór tóku til fóst- urs og ættleiddu kornabarn, Jón- ínu Margréti, sem nú er gift Ben- óný Ólafssyni, vélvirkja. Tvo syni einguðust þau hjón, Gerður og Halldór: Kristján Ar- inbjarnar, verkfræðinema, kvænt- ur Kristínu Erlu Björnsdóttur, og Guðna, læknanema, sem er heit- bundinn Berglind Guðmundsdótt- ur. Þeir eru báðir til heimilis í for- eldrahúsum. Sem fyrr segir var samstarf okkar Halldórs einlægt, þéttofið og vinsamlegt undanfarin tæp átta ár frá upphafi haustið 1974 innan vébanda Útvegsbanka Is- lands. Útvegsbanki Islands hefir um tugi ára látið sér annt um heilsu- far og vellíðan starfsfólksins í þjónustu hans. Hann hefir haft fastráðinn trúnaðarlækni á vegum bankans til þess að stuðla að góðu heilsufari starfsfólksins. Eftir að dr. Óli Hjaltested féll frá, en hann hafði árum saman verið trúnaðarlæknir bankans, var Halldór Arinbjarnar ráðinn til þess að taka að sér starfið. Auk þess að hafa með höndum árlega allsherjar læknisskoðun allra starfsmanna Útvegsbankans á Reykjavíkursvæðinu mætti Halldór vikulega í bankanum og hafði opinn viðtalstíma til aðstoð- ar, fyrirgreiðslu og læknishjálpar fyrir starfsfólk bankans. Það hefir verið í mínum verka- hring, allt frá upphafi, að vera til aðstoðar við fyrirkomulag lækn- isskoðunarinnar. Þegar vitað var að Halldór Ar- inbjarnar væri fáanlegur og fús að taka starfið að sér, var það engum meira fagnaðarefni en mér. Ég þekkti foreldra hans og þann góða heimilisbrag er hann ólst upp við. Hann hafði getið sér góð- an orðstír og allra vanda vildi hann leysa. Framkoman var frjálsleg og vinsamleg. Framréttir hjálpararmar ávallt fúsir til að- stoðar og útvegunar sjúkrarýmis þegar mikinn vanda bar skjótt að höndum. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum að kynnast skilningi og sam- starfsvilja Halldórs Arinbjarnar í Útvegsbankanum. Mér er einnig kunnugt um að bankastjórn Útvegsbanka Islands mat mikils þau störf, er Halldór leysti samviskusamlega af hönd- um í þágu bankans og starfsfólks- ins, og harmar sáran að njóta ekki lengur starfskrafta hans, en þakk- ar á leiðarenda vökul læknisstörf Halldórs Arinbjarnar, sem unnin hafa verið á vegum bankans. Mér er kunnugt og ljóst af góðri reynslu, hversu ágætur mann- kosta- og drengskaparmaður Hall- dór Arinbjarnar var í raun, örlát- ur og fagnandi að þjóna starfs- fólki bankans, þegar leitað var til hans í heimsóknartímum í bank- anum, á læknastofuna við Klapp- arstíg eða ónáðaður í heimasíma. Hann var öllum jafn greiðvikinn, enda velhugsandi, glaðlyndur og góðgerðasamur, og mat meira starfið og góðan árangur en stimpilklukkuna. Hann hafði allt- af nægan tíma til þess að hjálpa öðrum. Fyrir tæpum tveimur mánuðum hitti ég Halldór léttan á fæti, brosandi að vanda, á afmælisdegi mínum. Honum var allt til yndis. Gamanyrði sindruðu á vörum hans og iífið virtist eiga langa framtíð. Seinast bar fundum okkar sam- an tveimur dögum áður en hann lagði af stað í ferðalag, sem hon- um var framandi en heillandi og ákaflega mikið tilhlökkunarefni. Við ræddum þá um að taka upp þráðinn í samstarfi okkar aftur á ný eftir mánaðartíma. Nú hafa örlögin slitið þráðinn og samstarfi okkar er lokið, sem hefði getað orðið til næstu ára- móta mín vegna. Ég er forsjóninni þakklátur að hafa átt kost á að kynnast og starfa með jafn ágæt- um og einlægum drengskapar- manni og Halldór Arinbjarnar reyndist mér alla tíð. Ég mun trega hann lengi og sár- an. Eiginkonu Halldórs, börnunum þremur, barnabarni, tengdasyni, tengdadóttur og ættingjum öllum sendi ég samúðarkveðjur og bið Guð að þerra sorgartárin á hvarmi þeirra og varðveita og vernda framtíðarspor þeirra og lífsbraut alla. Góður vinur hvíli í guðsfriði. Adolf Björnsson Fregnin um andlát Halldórs Ar- inbjarnar læknis snerti mig djúpt og svo hefir eflaust verið um marga fleiri. Hann varð heimilis- læknir fjölskyldu minnar, þegar flutt var til Reykjavíkur sumarið 1958. Þá var töluverðum erfiðleik- um háð að fá heimilislækni strax, og einhvers konar biðtími og fyrirstaða, sem ég man ekki leng- ur að segja frá. En svo var það eitt kvöld að barn á heimilinu veiktist og við urðum að hringja á kvöld- lækni. Gleði mín var ekki lítil, þegar ég sá hver það var, sem stóð við dyrnar, þegar læknirinn birt- ist. Við höfðum svolítið kynnst Gerði og Halldóri, þegar þau voru í Kaupmanahöfn, og þarna var hann kominn með sitt yndislega viðmót og traustvekjandi fram- komu. Að sjálfsögðu sleppti ég ekki tækifærinu og bað hann ger- ast heimilislækni okkar og var það auðsótt. Halldór Arinbjarnar var óvenju vel gerður maður, en ég þekkti best þá hlið, sem að starfi hans laut, en þar var hann frábær og var gott að leita til hans og þiggja ráð hans. Hann var sérlega barn- góður og hændi börnin að sér með þeim hætti, að þau fögnuðu hon- um alltaf, þegar hann birtist, þótt skoða þyrfti í háls eða eyru. Sam- bandið við heimilislækninn var alltaf fyrir hendi, hvort sem for- eldrarnir voru heima eða á ferða- lögum. Bréf til Halldórs var fastur liður í ferðaundirbúningi og hann var beðinn að Iíta til með heilsu barnanna. Það brást heldur aldrei og eitt sinn höfðu þau fengið kíg- hósta meðan foreldrarnir voru í fjarlægum löndum. Þá var ekki ónýtt að eiga jafn góðan heimilis- lækni og Halldór Arinbjarnar var. Það kom fyrir að hann kom óbeð- inn til þess að gá að því, hvort allt væri ekki með felldu og láta sjá að hann myndi eftir smáfólkinu. Og þegar undirrituð beið yngsta barns síns, var Halldór ómetan- legur ráðgjafi og vinur. Hann átti til að birtast upp úr þurru. „Ég átti leið hjá,“ sagði hann með glettni í svip, „og ætlaði bara að gá að því, hvort allt væri ekki í góðu lagi hjá þér.“ Slíkar heim- sóknir eða innlit held ég að séu ekki algengur þáttur í starfi heim- ilislækna, enda varla við því að búast. En svona var Halldór. Það var þessi mannlega hlýja og skiln- ingur, sem auðkenndu störf hans. En hann var líka frábær læknir, víðlesinn og lærður og þegar allt þetta fer saman er ekki að sökum að spyrja. Þegar Halldór hóf störf við Landspítalann sagði hann upp öll- um sínum sjúklingum, en þá eign- uðumst við annan „doktor Arin- bjarnar" eins og börnin kölluðu lækninn sinn fyrstu árin, en það var Ragnar bróðir Halldórs, sem nú sér á bak góðum vini. Ein- hverra hluta vegna sneri Halldór sér aftur að heimilislækningum og stundaði þær þar til hann féll frá. Það eru því mörg heimili í borg- inni og einstaklingar, sem sakna nú góðs læknis og góðs manns. En sárastur er söknuður Gerðar og fjölskyldu Halldórs allrar, sem hefir misst hann frá sér aðeins 55 ára gamlan, gáfaðan lækni, glæsi- legan og góðan dreng. Heimili mitt þakkar Halldóri af hjarta og biður honum blessunar Guðs. Djúp samúðarkveðja til fjölskyld- unnar. Anna Snorradóttir Fundum okkar Halldórs Arin- bjarnar bar fyrst saman haustið 1942, þegar hann fluttist til Hafn- arfjarðar með foreldrum sínum og bróður, en faðir hans, Kristján Arinbjarnar, hafði þá um sumarið verið skipaður héraðslæknir þar. Þar með hófst með okkur góð og mikil vinátta, sem ég í dag þakka fyrir, um leið og ég sakna þess að hún skyldi ekki verða lengri, en Halldór var 55 ára er hann lést. Margs er að minnast frá góðum dögum. Ég minnist heimilis hans við Strandgötu í Hafnarfirði, þar sem móðir hans, Guðrún Túlinius, hafði búið fjölskyldunni notalegt heimili. Þar var mikil gestrisni, vinir sonanna velkomnir, tekið á móti manni með brosi og glað- værð, elskuleg kona. Kristján varð fljótt vinsæll læknir í Hafnarfirði, en andaðist langt um aldur fram, árið 1947, og flutti fjölskyldan þá til Reykjavíkur, en þar bjó Hall- dór mestan hluta ævi sinnar. Ég minnist handboltans í Hafn- arfirði á þessum árum, en mikil gróska var í þeirri grein íþrótta. Haukarnir voru oft á toppnum og ekki síst að þakka leikmanni, eins og Halldór var, eldsnöggur, marksækinn og innleiddi og þró- aði nýja tækni við að skora mark, sem var fólgin í því að stökkva upp yfir varnarleikmenn um leið og skorað var. Má með sanni segja að þetta 5 ára tímabil sem Halldór lék með Haukum hafi verið einn besti Ieiktími félagsins. Halldór fetaði í fótspor föður síns og las læknisfræði við Há- skólann. Sóttist námið vel, enda góðum gáfum gæddur. Fór síðan til Norðurlanda og fullnumaðist þar. Halldór var góður læknir og ákaflega vinsæll og það eru marg- ir sem sakna hans nú, og þakka honum umhyggjusemi og tryggð. Halldór var skemmtilegur mað- ur, hláturmildur, hress í bragði, tæpitungulaus, gat stundum virst hrjúfur, en hafði betra hjarta að geyma en flestir sem ég hefi kynnst. Hann var vinmargur og aufúsugestur hvar sem hann fór. Halldór giftist bekkjarsystur sinni, Gerði, dóttur Guðna heitins Jónssonar, magisters, og áttu þau yndislegt heimili, nú síðast að Bjarmalandi 20, og er barnalán þeirra mikið. Börnin eru 3, dóttir- in Jónína og synirnir Kristján og Guðni, sem báðir stunda nám við Háskólann. Er nú líkt komið fyrir þeim og Halldóri og Ragnari bróð- ur hans, þegar faðir þeirra, Krist- ján, féll frá, en þá voru þeir bræð- ur að hefja háskólanám. Ég veit að móðir þeirra verður nú sá styrkur sem þörf er á til þess að þeirra marki verði náð. Við, ég og fjölskylda mín öll, svo og Heidi mágkona mín, þökkum Halldóri nú að leiðarlokum alla umhyggju og góðsemi í okkar garð. Bjarni Bjarnason Nú er stórt skarð höggvið í frændgarð minn. Halldór Arin- bjarnar læknir andaðist 4. júní í fjarlægu landi, er hann var í sumarleyfi með konu sinni. Og í dag, 15. júní, er hann til moldar borinn. Halldór var bæði mágur minn og aldavinur, svo að fáir stóðu mér jafnnær og hann, og á ég bágt með að sætta mig við, að hann skuli á miðjum aldri vera horfinn sjónum fyrir fullt og allt. Halldór Arinbjarnar fæddist 4. september 1926 á Gunnfríðar- stöðum á Ásum í Húnaþingi, og voru foreldrar hans Daníval Daní- valsson bóndi á Litla Vatnsskarði, síðar kaupmaður í Keflavík, og kona hans, Júdit Guðmundsdóttir frá Hnífsdal, sem var kynjuð af viðkunnri vestfirskri ætt. Halldór missti móður sína, er hann var á öðru ári og var þá tekinn í fóstur af þeim ágætishjónum, Guðrúnu Tulinius og Kristjáni Arinbjarnar héraðslækni á Blönduósi, og gengu þau honum í foreldra stað og tók hann ættarnafn þeirra. Kjörfor- eldrar hans sýndu honum mikið ástríki, enda bar hann mikinn hlý- hug til þeirra. Þetta hlutskipti mun síðar hafa ráðið um menntun og ævistarf Halldórs. Er Ragnar Arinbjarnar læknir bróðir hans. Halldór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík á því sama ári, er skólinn varð 100 ára gamall. Þá gengu út í sumar- dýrðina 17. júní mörg mannvæn- leg og glæsileg ungmenni, og með- al þeirra var Gerður Guðnadóttir, systir mín, er síðar varð eiginkona Halldórs og lífsförunautur. Að loknu stúdentsprófi lagði Halldór stund á læknisfræði og brautskráðist með sóma frá Há- skóla íslands 1953. Þá hófst sá þáttur í ævi Halldórs, sem tíðkað- ist hjá ungum læknakandídötum, að velja sér svið innan læknavís- indanna og verða sér úti um víð- tækari þekkingu. Hann gegndi læknisstörfum um tíma úti á landi fyrst í Árneshéraði, síðar í Höfða- kaupstað, og þótt hann væri ekki lengi læknir á þessum stöðum, minnast hans enn margir þar með þakklæti, þótt langt sé um liðið. Því næst sigldi hann til fram- haldsnáms og var fyrst í Dan- mörku og síðar í Svíþjóð. Eftir það sneri hann heim og var deildar- læknir á Landspítalanum um nokkurt skeið, en gerðist síðan heimilislæknir og gegndi því starfi, uns hann féll frá. Halldór var því læknir tæpa þrjá áratugi og lífsstarf hans var að megin- hluta fólgið í því að þjónusta van- heila og líkna sjúkum í aldarfjórð- ung í Reykjavík. Halldór var prýðilega menntað- ur læknir, eftir því sem ég ber skynbragð á. Hann var sérfræð- ingur í handlækningum, kven- sjúkdómum og fæðingarhjálp og var trúnaðarlæknir Pósts og síma, Iðnaðarbankans og Útvegsbank- ans. Halldór var röskur læknir og snarráður, þegar mikið lá við, en um leið nærgætinn við sjúklinga sína og hjartahlýr. Yfirlæti var honum víðs fjarri, og honum var gefið, eins og öllum góðum lækn- um, með orðum og látbragði að stappa stáli í sjúklinga sína, telja í þá kjark, lífsvilja og þrek. Áf viðræðum okkar Halldórs um læknisstarfið réð ég það, að hann bar sterka ábyrgðarkennd gagn- vart sjúklingum sínum og bar hag þeirra mjög fyrir brjósti og var ekki sporlatur að vitja þeirra. Halldór græddi mein margra og hjálpaði mörgum til heilsu, og mun því mörgum sjúklingum og skjólstæðingum Halldórs þykja nú nær sér höggvið, er hann er allur og þeir geta ekki lengur sótt til han ráð og umönnun. Við Halldór vorum skólasveinar í Menntaskólanum í lok síðari heimsstyrjaldar, og var hann tveimur bekkjum á undan mér. Þá var lögð mikil rækt við hand- knattleik undir leiðsögn öðlingsins Valdimars leikfimiskennara Sveinbjörnssonar, og þá tókust fyrstu kynni með okkur Halldóri. Hann var þá þegar orðinn einn af bestu handboltamönnum landsins og keppti um tíma í þeirri íþrótt með Haukum í Hafnarfirði ásamt æskuvinum sínum og skólafélög- um úr Flensborg og Menntaskól- anum, Islandsmeistari í meistara- flokki karla í handknattleik árið sem Hekla gaus. Kristján Arin- bjarnar var um þær mundir hér- aðslæknir í Hafnarfirði frá 1942—1947 eða allt til dauðadags. Halldór var glæsilegur íþrótta- maður, og gaf ég honum sérstakar gætur, þar sem hann geystist um völlinn og skoraði hvert markið á fætur öðru. Hann var hár og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.