Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982
spyr sjálfan sig: „Hversvegna
hann og hversvegna svo skjótt og
óviðbúið?" Við þessu fást engin
svör og með tímanum sættir mað-
ur sig við það að ekkert svar fáist,
og minningarnar taka að koma
fram í hugann. Þá er gott að hafa
sér til huggunar minningar slíkar
sem ég á um vin minn Halldór
Arinbjarnar. Við höfum þekkst í
nærfellt hálfa öld og á þeim tíma
hefur margt gerst sem ljúft er að
minnast.
Við urðúm samferða frá því að
leika okkur áhyggjulausir í æsku,
stuttklipptir og klæddir stuttbux-
um, til þess að verða hárlitlir afar.
Við höfum reynt súrt og sætt
saman og þótt höf lægju á milli
okkar fylgdumst við samt hvor
með öðrum og strax og leiðir lágu
saman að nýju voru tengslin
endurvakin og styrkt.
Halldór var á margan hátt ham-
ingjumaður. Hann hlaut mennt-
andi og gott uppeldi, kvæntist
góðri og ástríkri konu og átti með
henni góð og mannvænleg börn.
Allt þetta mótaði skaplyndi og
framkomu Halldórs og gerði hann
að þeim mannkosta- og dreng-
skaparmanni sem hann var.
Af öllum þeim góðu kostum sem
Halldóri voru gefnir voru þó tveir
sem ég alla tið dáðist sérstaklega
að og mér þóttu ávallt ríkjandi hjá
honum, en það var í fyrsta lagi hin
mikla vina- og frændrækni hans
sem m.a. kom fram í því hve vel
hann annaðist móður sína og fleiri
sem ekki voru honum jafn nánir.
I öðru lagi var hin einstaka
trygKÓ hans gagnvart öllu og öll-
um er hann tók ástfóstri við.
Þegar kona mín frétti andlát
Halldórs varð henni að orði: „Ég
tel það happ að hafa kynnst öðrum
eins persónuleika og Halldór var.“
Ég hygg að allir hans mörgu
vinir og kunningjar geti af heilum
hug tekið undir þessi orð.
Ég og fjölskylda mín sendum
Gerði og öðrum ástvinum Hall-
dórs innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum þeim styrks og velfarn-
aðar í framtíð.
Halldóri þakka ég langa og góða
samfylgd.
Páll Guðmundsson
Fjórhjóladrifsbíllinn frá MITSUBISHI
er fáanlegur sem „Pick-up“ eöa meó
vandaóri íslenskri yfirbyggingu.
J Mikió brattaþol.
Mjög hljóólát og sparneytin vél
meó titringsdeyfum.
J Sjálfstæð snerilfjöórun aó framan.
J Hlífóarpönnur undir vél
og gírkössum.
$> Veltistýri.
$> Tvöfalt hemlakerfi meó þrýstijafnara
— stöóugur í hálku.
Stór-
utsölumarkaðurinn
Kjörgaröi, Laugavegi 59, kjallara,
sími 28640
Aðeins
dagar
eftir
Utsölunni lýkur
á morgun
Troðfullur kjallari af t.d.
peysum — buxum — pilsum —
m mM /7--\.\ ý \ r skyrtum — kjólum — þykkum bolum
1111 Hofflll 7 V \ — jökkum — úlpum — handklæöum
Ull iIQI IU UIU vi — og mörgu mörgu fleiru.
gert góð kaup, en petta slær öll met