Morgunblaðið - 15.06.1982, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
39
Helgarskákmótið á Hvolsvelli:
Jóhann Hjartarson
tapaði ekki skák
Skák
Jóhannes Gísli Jónsson
Sumarvertíð íslenskra skák-
manna hófst á Hvolsvelli um síó-
ustu helgi er þar var haidið helgar-
skákmót á vegum tímaritsins
Skákar, hið 15. í röðinni. Þátttak-
endur voru aðeins 38 að þessu
sinni og voru heimamenn i miklum
minnihluta. Tefldar voru 9 umferð-
ir og umhugsunartími var 1 klst. á
mann, en mót þetta var fimmta
mótið þar sem slíkur háttur var
hafður á.
Röð efstu manna varð annars
sem hér segir:
1. Jóhann Hjartarson 8 v.
2. Jón L Árnason 7,5 v.
3.-4. Jóhannes G. Jónsson og Karl
Þorsteins 6,5 v.
5.-8. Ásgeir Þ. Árnason, Róbert
Harðarson, Dan Hansson og
Pálmi Pétursson 6 v.
Jóhann Hjartarson
Jóhann sýndi nokkuð öryggi
og tapaði ekki skák, en gerði
jafntefli við Sturlu Pétursson og
Jón L. Arnason. Hann lenti að-
eins í taphættu gegn Helga
Ólafssyni, sem teygði sig of
langt og tapaði um síðir.
Jón L. Árnason tefldi af mikl-
um ferskleika enda hefur hann
hvílt sig að mestu frá skákiðkun
að undanförnu. Hann vantaði
aðeins herslumuninn á að sigra í
mótinu, en örlagadísirnar reynd-
ust Jóhanni hliðhollar. Jón var
einnig taplaus í mótinu.
Ekki er ástæða til að fjölyrða
um taflmennsku annarra í mót-
inu, en þó má vekja athygli á
slæmri frammistöðu Helga
Ólafssonar, sem hlaut einungis
5.5 vinninga. Honum voru mjög
mislagðar hendur, því að í öllum
tapskákum sínum hafði hann
vænlega stöðu framan af en lék
af sér þegar fram í sótti. Helgi
hlaut hins vegar 15.000 kr. verð-
laun fyrir bestan árangur á sið-
ustu helgarmótum, sem hann
hafði þegar tryggt sér fyrir mót-
ið.
Að móti loknu var slegið upp
hraðskákmóti undir berum
himni í blíðskaparveðri. Þar bar
Jóhann Hjartarson hæstan hlut
frá borði öðru sinni. Hann hlaut
11.5 vinninga af 14 mögulegum.
Fast á hæla honum komu Helgi
Ólafsson og Jón L. Árnason með
11 vinninga.
Þó að klukkustund sé heldur
skammur umhugsunartími til að
tefla reglulega góða skák, tókst
Jóni L. Á.rnasyni að tefla sann-
kallaða stórmeistaraskák:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Elvar Guðmundsson
Alekhinesvörn
I. e4 — Rf6, 2. e5 — Rd5, 3. d4 —
d6, 4. Rf3 — Bg4, 5. Be2 — c6, 6.
Rg5
Nákvæmara en 6. 0-0 — bxf3,
7. Bxf3 — dxe5, 8. dxe5 — e6 og
svartur hefur jafnað taflið. Ann-
ar möguleiki er hins vegar 6. c4
— Rb6 7. Rbd2 — dxe5, 8. Rxe5
(Vogt — Bagirov Riga 1981) —
Bxe2. Einnig kom 6. — Bf5 til
greina. 7. Dxe2 — dxe5 8. dxe5 —
e6, 9. 0-0 — Rd7, 10. Hel. Skarp-
ara framhald er 10. f4 en Jón fer
sér að engu óðslega. 10. — Be7,
II. Rf3 — Rc5, 12. a3 — a5, 13. b3
— 0-0, 14. Bb2 — Dc7, 15. Rbd2
— Hfd8, 16. g3 — Hd7, 17. h4.
Hvítur blæs til sóknar en svart-
ur lætur sér fátt um finnast. 17.
— Had8, 18. h5 — h6, 19. Rfl —
Ra6, 20. Rlh2 — c5, 21. Rg4 —
c4? Þessi eðlilegi leikur reynist
banabiti svarts. Betra var 21. —
Bf8 og staðan er tvísýn.
22. bxc4 — Rb6.
23. Rf6+! Upphafið að fallegum
endalokum. 23. — gxf6. Eftir 23.
- Bxf6 24. exf6 - Rxc4, 25. Re5
er svartur glataður. 24. exf6 —
Bf8, 25. Re5 — Hd4. Með texta-
leiknum hyggst svartur koma í
veg fyrir 26. Dg4+ en hvítur á
einfalt svar við þvi. Reyna mátti
25. - Ra4!? 26. Hadl! Hvitur
hundsar hrókinn en tryggir sér
g4-reitinn í staðinn. 26. — Hxdl,
27. Hxdl - Hxdl+, 28. Dxdl.
Hótunin er nú 29. Dg4+ — Kh8,
(29. - Kh7, 30. Rg6! - Bd6, 31.
Re7 og vinnur) 30. Rg6+! — fxg6,
31. f7+ og svartur er óverjandi
mát. 28. — Bd6.
Nú getur svartur svarað 29.
Dg4+ — með 29. — Kf8, 30. Dg7+
— Ke8, 31. Dg8+ — Bf8 og sókn
hvíts er stöðvuð, en hvítur lumar
á óvæntum leik sem gerir vonir
svarts að engu. 29. Rg6!! — fxg6.
Eftir 29. - Kh7, 30. Dg4 -
Dxc4,31. Rf4 - Bf8, 32. Dg6+!! -
fxg6, 33. hxg6+ - Kh8, 34. f7+
vinnur hvítur og sama er að
segja um 29. — Bxg3, 30. Dg4 —
Bxf2+, 31. Kxf2 - Dh2+, 32. Kel
— Dhl+, 33. Kd2 - Dh2+, 34.
Kc3 - Ra4+, 35. Kb3 - Ra5+, 36.
Ka2 — Rc3+, 37. Bxc3 — Dxc2+,
38. Bb2 - Db3+, 39. Kal. 30. hxg6
— e5, 31. Dh5 — Dd8. Eða 31. -
Rd7, 32. f7+ - Kg7, 33. Bcl og
hvítur vinnur. 32. f7+ 32. Bxe5
var jafnvel einfaldara 32. — Kg7,
33. Bxe5+ — Bxe5, 34. Dxe5+ —
Kg6, 35.1)e8 og svartur gafst upp
enda getur hann ekki hindrað
liðstap.
EVTNRUDE
öðrum fremri
g^,nBÓDEÍ
ÞÓRf SIIVII B1500 Abiviulaii
« OI.VSINCASiMINN KR:
ZZ480
JBorflunblnbit)
:C3>
COmmCAmPeasy
Viö opnun Combi Camp tjaldvagnsins þá lýkst upp
nýr möguleiki til feröalaga. Combi Camp er sérstak-
lega sérhæföur fyrir íslenzka staöhætti bæöi fyrir
lélega vegi og kalda veöráttu. Hann er því bæöi hlýr
og traustur.
Einnig er gott geymslurými fyrir allan viölegubúnaö
5—8 manna fjölskyldu.
Verð frá 30.710. BGIICO
til afgr. strax.Gengl 1/6 1982 , . _ .Qjtc
9 Bolholti 4, simi 21945.