Morgunblaðið - 15.06.1982, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1982
45
Þakkir til Péturs Péturssonar útvarpsþuls
Þvottalaugarnar í Laugardalnum
Ingjaldur Tómasson skrifar:
Þakkir til Péturs útvarpsþuls.
Einu sinni enn finnst mér ég verða
að þakka Pétri þul fyrir hans ágæta
tónaval í útvarpi, fyrr og síðar. Sér-
staklega varð ég var við hin miklu
umskipti, þegar hann nú nýlega tók
algerlega við stjórn morgunútvarps.
Mér kemur í hug samlíking við vor-
sólina, sem brýst fram eftir þoku-
drunga morgunvöku, sem grúft hef-
ur yfir flesta morgna vetrarins.
Þetta stagl, sem flest skilar sér í
blöðum, mætti gjarnan hverfa úr út-
varpi ásamt alltof mörgu öðru, sem
vægast sagt getur varla talist menn-
ing. Pétur er einn í morgunútvarpi.
Morgunvaka þarf þrjá menn. Var
ekki einhver að segja að útvarpið
væri á hausnum og þyrfti að spara?
*
A að eyðileggja
listaverkið við
þvottalaugarnar?
Fyrir nokkru er ég var á göngu lá
leiðin framhjá gömlu Þvottalaugun-
um. Ég var bæði undrandi og hrygg-
ur, að sjá allan sóðaskapinn og rusl-
ið, sem þarna blasir við. Allt vatn
hefur verið tekið, bæði úr lauginni
og skurðinum sem liggur frá henni,
upphlaðinn af gengnum hleðslusnill-
ingum. Listaverkið er þegar stór-
skemmt af grjótkasti. Þvottalaug-
arnar hafa verið notaðar frá upphafi
byggðar hér og nokkuð frameftir
okkar öld. Þarna hafa íslenskar hús-
mæður og vinnukonur stundað sín
lítilsvirtu þjónustuverk fyrir karl-
ana og börnin.
Árið eftir fermingu var ég ráðinn
til snúninga að Pálsbæ á Seltjarn-
arnesi og var ég mjög oft sendur
„inní Reykjavík" ýmissa erinda. Þá
sá ég oft margar konur á leið í og úr
Þvottalaugunum, ýmist berandi
þvottinn eða akandi í hjólbörum og
handvögnum. Húsfreyjan í Pálsbæ
ákvað eitt sinn að þvo í Þvottalaug-
unum. Ágæt kona úr Reykjavík var
fengin vinnukonunni til hjálpar.
Feiknaaðsókn og þrengsli voru í
laugunum á daginn, svo ákveðið var
að fara að kvöldi og þvo þvottinn um
nóttina.
Duglegur hestur með vagn flutti
bæði fólk og þvott báðar leiðir. Ég
var látinn fara með, bæði sem „kúsk-
ur“ og svo til að létta undir með
stúlkunum eftir getu. Þarna var
nokkrt fólk auk okkar að þvo. Ég
man glöggt að það var mikið fjör og
kæti þarna og kannan alltaf til stað-
ar með heitu sterku kaffi. Heim var
komið undir morgun, og eitthvað
minnir mig að við leggðum okkur.
Mér finnst það mikil móðgun við ís-
lenskar verkakonur, hvernig búið er
að eyðileggja Þvottalaugarnar og
stórskemma þvottakonuna, listaverk
Ásmundar. Þetta er aðeins eitt af
óteljandi dæmum um skepnuskap
karlþjóðarinnar, sem flestu hefur
ráðið, illu heilli frá upphafi byggðar
á landi hér, og er nú að reka smiðs-
höggið á niðurbrot íslensks efna-
hags, með öðru, með gengdarlausri
hátæknivæddri rányrkju á okkar
mestu lífsauðlind, fiskimiðunum. Ég
vil hér með skora á hinn ágæta ný-
kjörna meirihluta Sjálfstæð-
ismanna, að láta nú þegar endur-
reisa Þvottalaugarnar, og gera þær
eins og þær voru er þær voru í notk-
un. Og listaverkinu verður að bjarga
strax, svo það verði ekkkmulið niður.
Ef af einhverjum ástæðum þykir
ekki fært að verða við þessu, þá er
skömminni skárra að slétta yfir öll
ummerki Þvottalauganna.
Þessir hringdu . . .
Hvers eiga
börnin
aö gjalda
M.S. hringdi og sagði: „Mig langar
til að koma á framfæri dálitlu í
sambandi við barnatíma sjón-
varpsins. Það, sem mig langar til
að kvarta yfir, er að barnatími
sjónvarpsins skyldi vera felldur
niður í gær vegna útsendingar á
fótbolta og ég tel að það séu miklu
fleiri börn að höfðatölu sem horfa
á barnatímann, heldur en þeir sem
horfa á fótboltann. Mér finnst að
það sé svo lítið barnaefni í sjón-
varpinu og mér finnst það illa gert
að fella niður þennan eina barna-
tíma sem er í sjónvarpinu, þegar
íþróttaþátturinn er á laugardögum
og svo aftur á mánudögum. Það
eru mörg börn sem urðu fyrir
miklum vonbriðgum.
Fyrirspurn til
formanns
Rithöfundasam-
bands Islands
Vélvakandi var beðinn að koma
á framfæri eftirfarandi fyrirspurn
til formanns Rithöfundasambands
íslands, Njarðar P. Njarðvík.
Formaður Rithöfundasambands
íslands, Njörður P. Njarðvík, gat
þess fyrir ekki alls löngu í Morg-
unvöku Ríkisútvarpsins, að hann,
að gefnu tilefni, ætlaði að birta
skrá yfir þá rithöfunda, sem fengið
hafa fé úr launasjóði þeirra undan-
farin ár. Nú vænti ég og fleiri bók-
lesendur, að þessi skrá fari að birt-
ast. Einnig er ekki úr vegi, að fá
líka tölur yfir þá, sem formaðurinn
og starfsmenn hans hafa veitt við-
urkenningu úr svokölluðum bóka-
safnssjóði og einnig mætti fljóta
með tala yfir þá rithöfunda, sem
fengið hafa ferðastyrki gegnum
tíðina. Með nafnaskránni óska ég
eftir að fá að lesa það, hvað hver
einstaklingur hefur fengið mikið fé
og hvenær. Með ósk um skjóta af-
greiðslu.
Bókalesandi, nafnnr. 7715—4671.
Leiðrétting
Friðrik hringdi og sagði:
„Heyrðist mér rétt síðastliðið laug-
ardagskvöld? í myndinni um furð-
ur veraldar, var viðtal við prófess-
or nokkurn frá Chicago í Banda-
ríkjunum, þar sem hann minntist á
Pygmies, einn af þjóðflokkum Af-
ríku. Ég gat ekki séð betur en þýð-
andi þáttarins nefndi Pygmy-
þjóðina Búskmenn í þýðingartext-
anum. Hafi ég heyrt og séð rétt, vil
ég benda á, að Pygmies og Búsk-
menn eru ekki eitt og hið sama,
heldur tvær þjóðir. Það verður þó
að viðurkenna, að þetta er ef til vill
ekki alvarleg yfirsjón þýðanda."
Kettir og starrafló
Kona skrifar og kvartar um að
köttur hennar beri inn Starrafló
og líði heimilisfólkið fyrir. Um
daginn bjargaði ég Starraunga úr
kjaftinum á ketti merktum Dúlla.
Kannski hérna sé komin skýringin
á flónni.
Það kannast margir við að
vakna upp á nóttinni við breim og
væl í köttum sem þess á milli míga
upp á útidyrnar svo að óþefinn
leggur um allt hús í vikur á eftir.
Þeir míga sennilega ekki upp á
dyrnar heima hjá sér, þeim væri
þá fljótt fargað. Kettir fara einnig
upp í barnavagna og leggjast þar
ofan á sofandi ungbörn og hafa
mæður nú net fyrir opi vagnanna.
Það er engin smáhópur af fólki
sem líður fyrir kattapláguna, sem
er öllu að tröllríða hérna í borg-
inni.
Það ætti að skylda kattaeigend-
ur til að tjóðra sína ketti við sínar
dyr og loka þá alveg inni, í tvo
mánuði, þar sem þrösturinn verp-
ir, á sumri. Mér finnst tími til
kominn að kattaeigendur geri sér
grein fyrir því að þeir eru minni-
hlutahópur sem neyðir sína
lúmsku ketti upp á aðra.
Eitt enn. Hvert ætli megin-
markmið kattavinafélagsins sé?
3874—7282.
Bréfritari telur að margur unginn verði fyrir barðinu á köttunum.
Glæsilegar viðarþiljur úr
eik, aski, furu og oreg-
on-pine.
BJORNINN
Skúlatúm 4. Sími 25150. Reykjavík
Vegg- og loft-
klæðningar
í ótrúlegu úrvali.
Verö frá kr. 32.-ma.
MAMIYA U ER FÆDD.
HÚN ER 35MM,
11,5CM Á BREIDD, 6,5CM Á HÆÐ,
VEGUR 230G OG SEGIR BIIIB!
Náðirðu öllu þessu?
Þó nýja MAMIYA U sé,eins og þú sérð, ótrúlega fyrirferðar-
lítil, er hún samt meðal fullkomnustu 35 mm myndavéla á
markaðnum. Enda má segja að fæðing hennar hafi gengið
framarvonum í allastaði.
Hún er hlaðin tækninýjungum þó hún beri það ekki utan á
sér. Engu var til sparað svo þessi knáa myndavél yrði eins
auðveld í meðföaim og skilaði jafn frábærum myndum og raun
ber vitni um.
1 Mjög fullkominn Ijósmætir vinnur með lokaranum sem stillir á réttan
hraða og Ijósop eftír birtuskilyrðum hverju sinni allt frá f. 2,8 á hraða 1 /8 úr sek.
til f. 16 á hraða 1/500 úr sek
2. Þegar hraðinn fer niður fyrir 1/30 sek. lætur vélin vita að nota þurfi þríföt
eða flass með því að gefa frá sér bæði hljóð (bíííb) og Ijósmerici.
3. Mjúkur afsmellari kemur í veg fyrir að vélin hreyfist þegar smellt er af og
gefur því skarpari myndir.
4. Innbyggt lok fyrir linsuna. Ef lokið er fyrir er ekki hægt að smella af.
5. Sjálftakari. 6. Fyrirferðariítið verð, aðeinskr. 1810.-
MAMIYA U-TEKUR ALLT NEMA PLASS.
HfiNS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR AUSTURVER UMBOOSMENN
S 20313 S 82590 S. 36161 UM ALLT LANO