Morgunblaðið - 17.06.1982, Page 3

Morgunblaðið - 17.06.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1982 35 akstri eins og áður sagði. Hann fer hreinlega heldur hratt í 1. gír í lága. Kostir bílsins í torfærum er þeir helztir, að hann er stuttur milli hjóla, þannig að hann kemur mjðg vel út í þýfðu og skornu landi, auk þess er Foxinn mjög léttur eins og áður sagði. Foxinn er í meðallagi niðurbyggður og kemur alveg ágæt- lega út t.d. í hliðarhalla. Hann er gefinn upp fyrir um 43 gráðu hlið- arhalla. Það má reyndar segja, að hann sé furðugóður í halla sé það haft í huga, að hann er tiltölulega mjór og stuttur. Hæð undir drifkúl- ur er um 24 sentimetrar, sem þarf ekki að kvarta yfir. Þá er mjög stutt frá bæði framhjólum fram og afturhjólum aftur, þannig að hann getur farið mjög bratt án þess að eiga það á hættu að reka nef eða afturenda niður. Þegar á heildina er litið er ekki annað hægt en gefa Foxinum ágæt- iseinkunn. Hann er mjög lipur í bæjarakstri og akstri á malbikuð- um vegum. Hann mætti vera skemmtilegri á mölinni og í torfær- um er hann furðugóður af þetta litl- um bíl að vera með aðeins 45 hest- afla vél. — sb. Suzuki Fox Gerð: Suzuki Fox (SJ 410) Framleiðandi: Suzuki Framleiðsluland: Japan Umboð: Sveinn Egilsson hf. Verð: 106.000 krónur Innifalið: Sanseraður litur og hvítar felgur Þyngd: 800 kg Burðargeta: 250 kg VélarsUerð: 970 kúbiksenti- metrar, 45 DIN-hestöfl við 5.000 snúninga Drif: Aftan, fjórhjóladrif, hátt og lágt Gírkassi: 4ra gíra og millikassi Rremsur: Skálabremsur að framan og aftan Fjöðrun: Blaðfjaðrir og tvívirkir demparar Benzíntankur: 40 lítrar Benzíneyðsla: Um 9 lítrar á hundraöið í blönduðum akstri Heildarlengd: 3.430 millimetrar Breidd: 1.460 millimetrar Hæð: 1.680 millimetrar Lengd milli hjóla: 2.030 milli- metrar elvélum um olíulítra á Kadett, eða með öðr- um orðum þá eyðir hann 5,10 lítr- um olíu á hverja 100 kílómetra, en hins vegar sé hægt að aka 19,2 kíló- metra á hverjum olíulítra á Ascona, eða með öðrum orðum, þá eyðir hann um 5,21 lítra af olíu á hverja 100 kílómetra. Bílasérfræðingar eru á einu máli um, að bílarnir séu báðir sérstak- lega vel hljóðeinangraðir, þannig að maður finni lítið fyrir auknum hávaða vélarinnar, sem er óhjá- kvæmilegur þegar um disilvél er að ræða. Opel kynnti ennfremur nýverið Opel Manta með eilítið breyttu út- liti, auk þess sem hann er nú með stærri vél, benzínvél að vísu, sem hefur 1,8 lítra rúmtak og er 90 DIN-hestöfl. „Flugnaskíturu í frímerkjum getur hækkað verð um 20.000% Danskir frímerkjasafnarar hafa fundið örlítið frávik í 200 aura Þjóðdansafrímerkjunum frá 1981, sem er örlítið strik ofarlega í öðru núllinu í töl- unni 200. Þetta frávik er ekki á öllum frímerkjunum, svo þau sem hafa þetta strik eru verð- meiri fyrir bragðið. Frímerkin eru prentuð hjá Joh. Enschedé en Zonen í Haarlem í Hol- landi. Morgunblaðið leitaði til Jóns Aðalsteins Jónssonar, ritstjóra Orðabókar Háskóla íslands, og innti hann eftir fráviki þessu, sem alls ekki er svo sjaldgæfur hlutur í frímerkjum. Jón sagði lítil strik sem þessi oftast kölluð „flugnaskít" eða „plötugalla" og vera eftirsótt af söfnurum víða um heim og væru þau verðmæt- ari en þau frímerki sem heppn- uðust vel í prentun. Jón Aðalsteinn benti á 90 aura Atvinnuvegasettið frá 1950, en í KUkkfk. 2. Ami * Dul. Térri-vn.'l * S*urfar» "terMn, IukjMU. tUmnie tUunuuen. KW»- bjargnBi fimm »v «ov- m»U«ui bOlnrn Frábriedi funnið í 11 FOToyafrímerki ESn litil strika I ■flram nullinum 1 Frimerkjnsavnarar bæði her 1 °8 I kring um i heiminum brúka nógva Uð tal at I granska og kanna bæði gomul og nýg® fri- I merki, teir eiga, og sjálvt um eftirhtið yið 1 arehting av nýggjum frimerkjum «.WF.. [ liga atrangt, pendu- meiri enn ao. at wvn- ararnir finna okkurt fróbrigdi elU variant, | sum teir kalla tað, og sum ger hetta seriiga | frimerkið virðismiklari sum savningarlut | enn hini vanUgu. 1 1 Danmnrk hnv. t«ir «r tfllkM. I Mflie verifl v.rugir vi« ein 200 oyru fólkeíeMOTtn m\ merkinumfrá 1981. ekrivnl flonak bleð. Frábrigdið er 1 tl fymj nuflinum, taer teir 1 einetolPV um frimerkjum heve funnií aátt Bokellað plátueár - eán lltil strike. sum Udd eigæá at vera ber. Frábrigdið finet 1 U 20. frlmerkinum i erkunum. • aum eru prenteð hjá Joh. Enachedá en Zonen i Heer- lero 1 Hoflendi 1 kombinereð etálprenU o* totogrevuru. nokkrum merkjum af þeirri teg- und eru aukastrik yfir húsþaki á frímerkinu. Hjá frímerkjasalanum Magna R. Magnússyni fengust þær upp- lýsingar að verulega getur mun- að á verði frímerkja með þennan svokallaða „flugnaskít" og verði venjulegra frímerkja. Þannig kostar 90 aura Atvinnuvega- frímerki með litla strikinu yfir húsþakinu allt upp í 400 krónur en kostar annars ekki nema tvær krónur sem þýðir 20.000 prósent verðhækkun. Magni nefndi fleiri gerðir frímerkja með þessum galla. Til að mynda Eimskipafé- lagsfrímerkin frá 1964 en á þeim er i-ið án kommu á einu frímerki í annari hverri örk. Þau frímerki eru seld á 150 krónur en ógölluðu frímerkin eru seld á 14 krónur. Sagði magni að því væri öfugt farið með bækur og frímerki þar sem sá sem fær gallað eintak af bók bregst ókvæða við en sá sem fær gallað eintak af frímerki verður himinlifandi. Nýstirni hefur fegrunarferil sinn með Lux. Lux löðurer cinstakt aðgæðum. Nærmyndir reyna mjög á útlit leikara og stjarna á framabraut eins og Michelle Pfeiffer fer eftir frægustu fyrirmyndum heims og velur Lux til aö vernda húöina. Paö er vegna þess aö Lux freyöir svo vel, hreinsar með mýkt og gerir húöina slétta og mildilega. Mjög mun sjást til Michelle Pfeiffer og meö henni birtist enn eitt fagurt andlit leikkonu, sem byrjar og endar daginn meö Lux. Al I f LUX ER FEGRUNARSÁPA KVIKMYNDASTJARNA HEIMSINS. XPLTS21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.