Morgunblaðið - 17.06.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ1982
39
Rússar reyna
að ógna óháðri
friðarhreyfingu
Moskvu, 14. júní. AP.
Sovézka leyniþjónustan hefur lok-
ið yfirheyrzlum og handtökum á 11
forsprökkum óháðu friðarhreyf-
ingarinnar rússnesku, en tilgangur
yfirheyrzlanna virðist vera að hræða
og ógna hreyfingunni, að sögn eins
af forkólfum hennar.
Yfirvöld hafa látið taka 11
helztu menn friðarhreyfingarinn-
ar fasta síðustu daga og voru tveir
af stofnendum hennar hnepptir á
ný í varðhald í gær, eftir að hafa
setið inni í tvo sólarhringa í síð-
ustu viku.
„Það er vonlaust fyrir okkur að
reyna að koma saman," sagði
Gennady Krochik, 33 ára læknir,
„en barátta mun halda áfram".
Hann sagði um eitt hundrað
manns hafa undirritað stuðnings-
yfirlýsingu við hreyfinguna, sem
stofnuð var fyrr í mánuðinum.
Sergei Batovrin og Sergei Roz-
enoer stofnendur hreyfingarinnar
voru hnepptir á ný í varðhald í
gær, að sögn ættingja þeirra.
Oeinkennisklæddir lögreglumenn
vísuðu fréttamönnum bandarískra
blaða í Moskvu á brott frá húsi
Batovrins í dag og símasamband
til hans hafði verið rofið.
Jafnframt var Igor Sobkov, 37
ára sálfræðingur tekinn fastur í
gær. Hann var fyrst yfirheyrður á
vinnustað sínum á sjúkrahúsi. Var
honum gert að afklæðast að fullu
og hírast í herbergi, þar sem ís-
köldu vatni hafði verið sprautað á
gólf. Honum var síðan sleppt eftir
að bækur um yóga höfðu verið
gerðar upptækar á heimili hans.
Þá var Boris Kluzhny, 39 ára
stærðfræðingur, tekinn fastur um
helgina, og var hann ennþá í haldi
í dag. Engin formleg ákæra hefur
verið gefin út á hendur neinum
ellefumenninganna.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir birti
óháða friðarhreyfingin yfirlýsingu
í dag, þar sem Bandaríkjamenn
eru hvattir til að staðfesta SALT-
samkomulagið frá 1976. Einnig er
þess krafizt af borgarstjórninni í
Moskvu að hreyfingin fái að efna
til friðsamlegra mótmæla í borg-
inni 27. júní næstkomandi. Jafn-
framt eru bandarískir og sovézkir
þegnar hvattir til að helga vikuna
20. til 27. júní umræðum um af-
vopnunarmál.
swnanúrj oKkar®’ 367 i ^erið Tl
AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTA HF
Castrol
er olían fyrir allar vélar sumar sem vetur
Margir hafa beöiö um Castrol á is-
landi, en án árangurs - fremstu
smurolíu á heimsmarkaði. En nú er
hún komin. þÓR H/F hefur tekið
aö sér sölu og dreifingu á íslandi.
Castrol framleiöir 450 gerðir af
smurolíum fyrir bíla, báta- og ski-
pavélar, iðnvélar og búvélar. Örug-
gar olíur, sem auka slitþol véla og
gera þær hagkvæmari í rekstri -
oliur meö 75 ára reynslu aö baki.
Innan skamms fæst Castrol einnig
um allt land. hringiö og spyrjiö um
næsta sölustað og biöjið um
ókeypis smurkort.
SÍMI 815QQ-ÁRIV1ÚLA11
íi
Castrol
LAUGARDALSVÖLLUR
KR - Fram (Afram
á morgun kl. 20.00 > KR
Toppleikur
KR