Morgunblaðið - 17.06.1982, Qupperneq 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ1982
Kjarnorkuvopnalaust svæði
á Norðurlöndunum og Danir
Dansk
sikkerheds
politik
og forslagene om
Norden som
kernevábenfri
zone
DET SIKKERHEDS- OG NEDRUSTNINGSPOLITISKE UDVALG
Björn Bjarnason
í ársbyrjun 1981 var skipuð nefnd
í Danmörku til að fjalla um öryggis-
og afvopnunarmál. Ilinn 10. júni var
fyrsta skýrsla hennar gefin út og
heitir hún „Dansk sikkerhedspolitik
og forslagene om Norden som
kcrnevábcnfri zone“ eða Öryggis-
málastefna Dana og tillögurnar um
kjarnorkuvopnalaust svköí á Norð-
urlöndum. Skýrslan er 200 síður og
þar er gerð ítarleg grein fyrir þeim
sjónarmiðum, sem fram hafa komið
um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum og þeim umræðum,
sem orðið hafa um slík svæði á
vettvangi Samcinuðu þjóðanna og
annars staðar. Er bæði fjallað um
viðfangsefnið frá hernaðarlegu og
pólitísku sjónarmiði. Hlýtur öllum
þeim, sem áhuga hafa á öryggismál-
um, að þykja töluverður fengur að
þessari greinargóðu úttekt. Hver sá,
sem les skýrsluna hlýtur að sannfær-
ast um, að hér er um flókið og vand-
meðfarið mál að ræða. Síst af öllu
verður það brotið til mergjar með
áróðursherferðum, enda bera þær
þess glögg merki, að aðstandendur
þeirra eru alls ekki á einu máli,
hvert sé hið endanlega og eiginlega
markmið baráttunnar.
í skýrslunni segir, þegar greint
er frá stefnu Norðurlandanna í ör-
yggismálum: „Eins og málum er
nú háttað eru Danmörk, Finnland,
Noregur og Svíþjóð í reynd (de
facto) kjarnorkuvopnalaust svæði.
Á það hefur aldrei verulega reynt,
að eitthvert landanna yrði sér
sjálft úti um kjarnorkuvopn. Sam-
kvæmt varnarstefnu NATO er
gert ráð fyrir að gripið sé til
kjarnorkuvopna á stríðstímum, og
þá einnig til varnar Danmörku og
Noregi, en þessi lönd æskja þess
ekki, að við núverandi aðstæður,
það er að segja á friðartímum, sé
kjarnorkuvopnum komið fyrir
innan landamæra þeirra."
Þegar þessi málsgrein er lesin,
vekur tvennt athygli. I fyrsta lagi
er ísland ekki nefnt meðal Norð-
urlandanna. Er full ástæða til að
gera athugasemd við þá málsmeð-
ferð, því að enginn munur er á
afstöðu ríkisstjórnar íslands í
þessu efni og stefnu ríkisstjórna
Danmerkur og Noregs. íslend-
ingar vilja ekki, að í landi þeirra
séu kjarnorkuvopn og þau eru ekki
hér á landi eins og margsinnis
hefur verið sýnt fram á, siðast
sumarið 1980. Raunar fjallar hin
danska skýrsla ekki um öryggis-
mál íslands að öðru leyti en því, að
í henni kemur fram, að hernaðar-
legt mikilvægi Norður-Finnlands,
Norður-Svíþjóðar, Norður-Noregs,
íslands og Grænlands hefur auk-
ist síðustu ár vegna vaxandi hern-
aðarumsvifa Sovétmanna á norð-
urslóðum og útþenslu vígbúnaðar
þeirra á sjó og í lofti frá stöðvum
á Kola-skaga. Hitt atriðið, sem at-
hygli vekur í þessari skilgreiningu
á Norðurlöndunum sem „de facto"
kjarnorkuvopnalausu svæði, er, að
í strangasta skilningi felst það í
kröfu um breytingu frá núverandi
stöðu, að Danir og Norðmenn svo
að fjallað sé um þær þjóðir, sem
skýrslan nær til, skuldbindi sig til
að leyfa ekki kjarnorkuvopn á
landi sínu á stríðstímum.
Upphaf umræðna um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum má rekja til bréfaskipta
milli forsætisráðherra Sovétríkj-
anna og forsætisráðherra Dan-
merkur, Islands og Noregs í árs-
byrjun 1958. Á árinu 1963 lagði
Kekkonen, Finnlandsforseti, í
fyrsta sinn til, að Norðurlönd yrðu
gerð að kjarnorkuvopnalausu
svæði. Kekkonen hreyfði málinu á
ný í maí 1978 með vísan til tækni-
þróunar í vígbúnaði og hugmynda
um takmarkað kjarnorkustríð.
Hugmyndir Kekkonens leiddu
ekki til mikilla umræðna á Norð-
urlöndum. Hins vegar dró málið
að sér athygli haustið 1980, eftir
að Jens Evensen, sendiherra í
Noregi, lýsti yfir stuðningi við
hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum á
fundi í Norsk Kemisk Arbejder-
forbund, án þess að hafa ráðfært
sig við ríkisstjórn Verkamanna-
flokksins um efni ræðunnar fyrir-
fram, en Evensen hefur af og til
látið til sín taka á vettvangi
flokksins.
Varð málið þá þegar að póli-
tísku umræðuefni og deilumáli
bæði innan norska Verkamanna-
flokksins og milli stjórnmála-
flokkanna í Noregi, breiddust þær
umræður síðan til annarra Norð-
urlanda. Það var tekið upp á fundi
utanríkisráðherra Norðurland-
anna og komst þar með á annað
pólitískt stig en áður. Kemur fram
í fréttatilkynningu sem danska ör-
yggis- og afvopnunarnefndin sendi
frá sér í tilefni skýrsiu sinnar, að
vegna þessara umræðna hafi hún
ákveðið, að fyrsta skýrsla sín
skyldi snúast um Norðurlönd sem
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Á hinn bóginn er ljóst, að hinar
ítarlegu umræður, sem orðið hafa
í kjölfar deilnanna í Noregi, hafa
síður en svo leitt til þess, að ríkis-
stjórnir Norðurlanda séu hlynnt-
ari því en áður, að breyta um
stefnu í afstöðu sinni til málsins.
Danska nefndin kemst að þeirri
niðurstöðu, að ekki sé með ein-
hliða hætti skynsamlegt að lýsa
því yfir, að Norðurlöndin séu
kjarnorkuvopnalaust svæði, held-
ur verði að líta á viðfangsefnið
sem hluta af heildarskipan örygg-
ismála í Evrópu, sé með öllu
óþarft að staðfesta núverandi
stöðu þessara mála á Norðurlönd-
unum, sem áður er lýst, með ein-
hverskonar samningi. Er þetta
álit í samræmi við opinberar yfir-
lýsingar ríkisstjórna og stjórn-
málaflokka í Noregi og Svíþjóð.
í skýrslu dönsku nefndarinnar
segir: „Við gerð skýrslunnar hefur
komið í ljós, að hugsanlegt fram-
lag Norðurlanda til að draga úr
hlutverki kjarnorkuvopna í Evr-
ópu felst tæplega í því, að þau
grípi til beinna staðbundinna að-
gerða með því að stofna kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum. Skipan öryggismála í
Evrópu veldur því, að það er erfitt
að grípa til sérstakra aðgerða í ör-
yggismálum á svæði, sem nær í
senn til hlutlausra landa og landa,
sem eru í öðru af bandalögunum
tveimur. Mönnum verður þar að
auki að vera ljóst, að hugsanlegt
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum breytir auðvitað
ekki eitt þeim grundvallar ágrein-
ingi, sem að hluta stuðlar að víg-
búnaðarkapphlaupinu."
í skýrslunni segir einnig, að
hvorki Danir né Norðmenn geti
tekið mikilvægar ákvarðanir um
stefnuna í kjarnorkuvopnamálum
nema með stuðningi ríkja, sem
skipta sköpum um þróun örygg-
ismála á Norðurlöndum og byggist
þetta bæði á aðstæðum innan-
lands í Danmörku og Noregi og
stefnu landanna í utanríkismál-
um. Er hér vísað til þátttöku Dana
og Norðmanna í Atlantshafs-
bandalaginu, en sú skoðun kemur
fram í skýrslunni, að einhliða yfir-
lýsingar NATO-ríkja um kjarn-
orkuvopnaafsal án samráðs innan
bandalagsins yrðu túlkaðar sem
andstaða við önnur bandalagsríki
og skref í átt til hlutleysis og úr-
sagnar úr bandalaginu.
Þess má geta hér, að hinn 4. júní
síðastliðinn lagði norska ríkis-
stjórnin fram skýrslu á Stórþing-
inu um afvopnun og öryggi, þar
sem einnig er fjallað um kjarn-
orkuvopnalaust svæði. Kemur
fram í þessari skýrslu, að miðað
við núverandi aðstæður sé með
öllu ábyrgðarlaust að hrinda í
framkvæmd hugmyndunum um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndunum. Til þess skuli
aðeins stofnað sé svæðið hluti af
samkomulagi milli austurs og
vesturs.
Eins og áður segir er hin danska
skýrsla 200 blaðsíður og segja má,
að þar sé í löngu máli komist að
niðurstöðu, sem engum straum-
hvörfum veldur. í skýrslunni er þó
ekki einungis fjallað um kjarn-
orkuvopnalaus svæði heldur einn-
ig rakin þróun kjarnorkuvopna frá
stríðslokum og gerð grein fyrir
þeim kenningum, sem ráða hug-
myndum manna um beitingu gjör-
eyðingarvopnanna. Skýrslan er í
senn flókin og einföld. Hún er ekki
alltaf auðskiljanleg, enda endur-
speglar hún sjónarmið þeirra, er í
dönsku öryggis- og afvopnunar-
nefndinni sitja og byggist því
orðalagið á málamiðlun á stund-
um. Öryggismálanefndin hér á
landi hefur valið þann kost að gefa
skýrslur sínar út undir nafni
þeirra, sem þær semja. Það er
hins vegar „formandskab" dönsku
nefndarinnar eða framkvæmda-
nefnd innan hennar, sem ber
ábyrgð á skýrslunni um viðhorfin
til kjarnorkuvopnalauss svæðis á
Norðurlöndum. Þriðja skýrsla ís-
lensku öryggismálanefndarinnar
mun einmitt fjalla um kjarnorku-
vopnalaus svæði.
Bókaverslunin Europaboger,
Gammeltorv 6, Postboks 137, 1004
Kobenhavn K, sér um dreifingu á
Dansk sikkerhedspolitik og for-
slagene om Norden som kerneváb-
enfri zone, og kostar eintak af
skýrslunni 60 danskar krónur.
Plata sem vert er
að veita athygli...
Fram úr
hófi leið-
inlegt
Nina Hagen
Nunsexmonk Rock ('BS 85774
Fyrsta platan sem kom út með
Nínu Hagen var frábær. Hún
heitir einfaldlega Nina Hagen
Band. Nokkru eftir útkomu
hennar rak Nina alla hljóðfæra-
leikarana og fékk nýja til liðs við
sig. Þeir sem hún rak í burtu
héldu hópinn og stofnuðu þá
frábæru hljómsveit Spliff Radio
RAINBOW
Straight Between The Eyes.
Polydor 5056.
Skömmu eftir að Deep Purple
lagði upp laupana árið 1975
stofnsetti Ritchie Blackmore gít-
arleikari Deep Purple sína eigin
hljómsveit og kallaði hana
Ritchie Blackmore’s Rainbow.
Ferill hljómsveitarinnar hefur
verið ákaflega stormsamur,
menn hafa komið og farið jafn-
óðum og í dag munu þeir vera
um 15 sem hafa gist hljómsveit-
ina í lengri eða skemmri tíma.
Show. Önnur platan sem Nina
sendi frá sér heitir Ubehagen og
er góð, þótt hún sé ekki eins góð
og sú fyrsta. Fyrir skömmu kom
svo út þriðja plata Ninu en í
Þrátt fyrir miklar mannabreyt-
ingar liggja nokkrar frábærar
rokkplötur eftir Rainbow. Þar
þarf bara að nefna plötur eins og
„Catch The Rainbow" og „Long
Live Rock’n Roll“.
Nýverið kom ný plata frá
Rainbow og á henni eru „að
sjálfsögðu (?) nýir hljóðfæra-
leikarar. Þeir sem koma nýir inn
eru Bobby Rondinelli trommur
og David Rosenthal hljómborð.
Platan er góð, á því er enginn
vafi. Öll lögin eru góð og allt spil
er pottþétt. En platan er ákaf-
millitíðinni hefur Nina eignast
barn sem prýðir umslag plöt-
unnar ásamt móðurinni.
Tónlistin á fyrstu plötunni var
rjómagott rokk; kraftmikið og
þýskur söngur Ninu gerði það
allsérstakt. Önnur platan er
undir reggae-áhrifum og ekki
eins rokkuð. Það sem Nina er að
gera á þessari nýju plötu sinni er
algert rugl. Hún syngur nokkr-
um sinnum inn á hvert lag og
notar sína röddina hverju sinni.
Við þetta verður tónlistin rugl-
ingsleg og kæfir alveg lítið og
ómerkilegt undirspil.
Það má líkja þessari plötu við
gatnakerfið í Kópavogi en
hvorttveggja er flókið og leiðin-
legt. FIVÍ
lega hefðbundin. Ekkert nýtt er
að finna. Sólóin, sem eru ölí góð,
eru á sínum stað og rólegu lögin,
sem bæði eru þrumugóð, eru líka
á sínum stað. Ef vel er hlustað,
má meira að segja finna smá
búta út gömlum Rainbow-lögum
inn á milli nýju rhythmana.
Þessa dagana eru geysilega
margar góðar rokkplötur að
koma út eða komnar og mætti
þar nefna plötur frá Iron Maid-
en, Scorpions, Rory Gallangher,
Michael Schenker Group og síð-
ast og ekki síst Blue Öyster Cult.
Innan um þessar plötur gæti
Rainbow-platan týnst en hún á
það ekki skilið, til þess er hún of
eiguleg. FM
Hljóm
Finnbogi Marinósson
The Boomtown Kats
V Deep
Mercury
Hver man ekki eftir laginu „I
Don’t Like Mondays" sem var
óhemju vinsælt hérna um árið?
Eflaust muna margir eftir lag-
inu en þeir eru sennilega færri
sem muna hverjir spiluðu það.
Fyrir þá sem það ekki muna var
það hljómsveitin „Boomtown
Rats“ sem það gerði. Sá ágæti
flokkur hefur nú nýlega sent frá
sér sína fjórðu plötu og heitir
hún „V Deep“.
Þegar ég setti plötuna í fyrsta
skipti á fóninn gerði ég ráð fyrir
því að „sprengjubæjar rotturn-
ar“ væru að fást við það sama og
á síðustu plötu. Með öðrum orð-
um, mjög gott og vandað ný-
bylgju-popp. En það sem kom í
Ijós þegar farið var að hlusta á
nýju plötuna var vægast sagt
langt frá því að vera það sama
og á plötunni á undan. Að
minnsta kosti var það þannig til
að byrja með. Breytingunni og
breiddinni í tónlistinni má vel
lýsa þannig: Fyrsta lagið á hlið 1
gæti verið á hvaða David Bowie
plötu sem er (að minnsta kosti á
einhverri af síðustu plötum
hans) og síðasta lagið á hlið 2 er
frábært jazz-lag. Þarna á milli
má finna svokallaða nýrómantík
og jafnvel skallapopp. Það sem
er svo skemmtilegast við þetta
allt saman er það að platan er
mjög heilsteypt þrátt fyrir alla
fjölbreytnina. Allur hljóðfæra-
leikur er pottþéttur og erfitt að
gera upp á milli hljóðfæraleik-
ara. Samt sem áður er það einn
sem virðist bera af. Sá sem um
er rætt er höfðupaur þeirra fé-
laga, Bob Geldof. Hann semur
alla tónlistina og á alla texta og
fyrir utan það skipar söngur
hans stóran sess í tónlistinni.
Nokkuð erfitt var að sætta sig
við breytinguna á tónlistinni en
eftir að hafa sætt sig við hana
kom platan öll til og vann stöð-
ugt á. Bestu lögin eru: „Never In
A Million Years“, „House On
Fire“ og „The Little Death".
FM/AM
Hefdbundið rokk