Morgunblaðið - 17.06.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ1982
55
fclk í
fréttum
1 tal.sk i fatahönnuður-
inn Gianni Versace
með nokkrum af tísku-
sýningarstúlkum sín-
um.
Hinn 36 ára gamli Gianni
Versace er einn nýjasti og
frægasti tískuhönnuður nútímans.
Hann notar mest svartan lit og
klæðist alltaf svörtu sjálfur.
Gianni Versace er ættaður frá
Kalabríu á Suður-Ítalíu. Móðir
hans átti tískubúð í Reggio og
dag einn þegar hann var sex ára
sat hann og faldi sig á bak við
rauð flauelisgluggatjöldin í búð-
inni. Svartklædd kona angandi
af ilmvatni mátaði svartan flau-
eliskjól fyrir framan spegil og
segir Gianni Versace að þetta
Gianni Versace —
sem klæðir sig all
hafi verið fyrsta kveikjan að
ferli hans sem fatahönnuður því
að hann hafi fallið í algleymi.
I Kalabría-héraði er mikið af
gömlum grískum og rómversk-
um rústum og Gianni lék sér
meðal þeirra sem barn og segir
hann að þær hafi orðið kveikjan
að því að hann lærði arkitektúr.
Seinna fór hann svo að sjá sam-
hengi á milli línanna í grískri
byggingarlist og línanna í
skikkjum grískra stytta. Það
varð til þess að hann ákvað að
fara að sinna sinni upprunalegu
köllun, hann fór að framleiða
föt.
Fötum hönnuðum af Gianni
Versace er útstillt á söfnum í
New York, Tokyo, Amsterdam
og bráðlega í París. Hann er tal-
inn helsti fulltrúi ítalska néo-
klassikismans í ítalskri fatagerð.
Hönnunarfyrirtæki hans veltir
um hundrað milljón dollurum og
ilmvatn með nafni hans er ný-
komið á markaðinn.
Maria Burton að sýna fot í New York.
Elizabeth
Taylor verð-
ur amma
í nóvember
+ Hin 21 árs gamla kjördóttir Gl-
isabetar Taylor, Maria Rurton,
sem reyndar notar eftirnafnið
('arson, síðan að hún gifti sig,
vinnur sér inn ríflega vasapeninga
um helgar sem tískusýningar-
stúlka. Hún vinnur hjá Tony
('hase, tiskusýningarumboðinu í
New York. En |*ó að Maria klæði
sig yfirlcitt í víð fót hefur leynd-
armál hennar komist upp, — hún
á von á barni í nóvember.
COSPER
Æ, ég leyfði bara fjölskyldu fyrri mannsins míns að
sofa hérna yfir nóttina.
Patti Davis, dóttir Reagans
Kandaríkjaforseta, í Nizza í
Frakklandi.
Dóttir Reagans
Bandaríkjaforseta
leikur í mynd um
bleika pardusinn
+ Hin 29 ára gamla Patti Davis,
dóttir Reagans Randaríkjafor-
seta, hefur dvalið á frönsku riví-
erunni upp á síðkastið, önnum
kafin við að leika í nýrri mynd
um Bleika pardusinn.
Þegar hún fékk þetta hlut-
verk í Bleika pardusinum varð
hún að skilja sinn hjartans
vin, Peter Strauss, einn aðal-
leikarann í „Rich Man, Poor
Man“ eftir í Kalíforníu. Ást-
arævintýri þeirra Patti Davis
og Peters Strauss hefur valdið
forsetahjónum, foreldrum
Pattíar kinnroða, einkum þeg-
ar fyrrverandi sambýliskona
Peter Strauss, tískusýn-
ingarstúlka Shan Hoffman,
fór í mál við Peter til að fá
hann til að greiða sér meðlag.
Hagsýnir
velja
Fiat 125 P
Fiat 125 P hefur notið mikilla vin-
sælda eins og þegar hefur sést
hér á götunum.
Hann er einn sá allra, allra ódýr-
asti á markaönum og kostar aö-
eins
74.000
m/ryðvörn
Geri aðrir betur.
Tekur 5 farþega og 50 kg af far-
angri. 4ra dyra. Hentugur bæöi í
bæjarakstri og úti á landsbyggö-
inm.
FIAT
UMBOÐIÐ
SMIÐJUVEGI 4, KÓP. SÍMI 77-200
SÖLUMENN 77-720
FIA
125 P
Sá rétti
fyrir þig,
mig,
og alla
hina