Morgunblaðið - 11.08.1982, Síða 28
Síminn á afgreiöslunm er
83033
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
Bankaráðsfundur Seðlabankans í dag:
Tillögur um vaxtahækk-
un og gengisfellingu
Ráðherrarnir Svavar Gests-
son, Steingrímur Hermanns-
son og Gunnar Thoroddsen
koma til fundar ráðherra-
nefndar og efnahagsnefndar
ríkisstjórnarinnar í Stjórn-
arráðinu síðdegis í gær.
MorgubUiU/ GuJVjón
Á BANKARÁÐSFUNDI, scm bodaður hefur verió í dag, verður væntanlega,
samkvæmt heimildum Mbl., gengið frá tillögum til rikisstjórnarinnar um 10
til 15% gengisfellingu, auk hækkunar á inn- og útlánsvöxtum. Hugsanlegt er
að gjaldeyrisdeildum bankanna verði þvi lokað þar til gengið hefur verið frá
nýrri gengisskráningu. Ráðherranefnd, sem fjallaö hefur um efnahagsmálin
að undanförnu, og í eiga sæti Gunnar Thoroddsen, Steingrímur Hermanns-
son og Svavar Gestsson, fundaði í gær og kemur hún saman á ný í dag. Það
verður væntanlega hún sem ákveður í umboði rikisstjórnarinnar hver geng-
isfellingin verður að fenginni tillögu Seðlabankans.
Á ríkisstjórnarfundi, sem hald-
inn var í gærmorgun, voru efna-
hagsmálin til umræðu. Þar voru
væntanleg bráðabirgðalög um
vísitöluskerðingu til samræmis
við ASÍ-samningana ítarlega
rædd og einnig ákveðnir þættir
verðlagsmála. Engar endanlegar
ákvarðanir voru þó teknar á þeim
fundi. Síðdegis fundaði ráðherra-
nefnd ásamt efnahagsnefnd ríkis-
stjórnarinnar og var þar tekin
ákvörðun um gengisfellinguna og
vaxtahækkanirnar samkvæmt
heimildum Mbl., en það hefur leg-
ið í loftinu í nokkurn tíma að til
slíkra aðgerða skuli gripið.
Kl. 16 kom þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins saman til fundar.
Þar voru efnahagsmálin enn til
umfjöllunar og er ljóst að mikið
ber í milli Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags um hverjar
áframhaldandi efnahagsaðgerðir
verði. Samstaða hefur náðst um að
sett verði bráðabirgðalög um vísi-
töluskerðingu í samræmi við
ASI-samningana og munu þau lög
væntanlega sjá dagsins ljós í
næstu viku. Alþýðubandalags-
menn hafa ekki verið á eitt sáttir
Forseti íslands
ræðir við Ronald
Reagen 8. sept.
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, mun hitta forseta
Bandaríkjanna, Ronald Keagan, að
máli þann 8. september næstkom-
andi, samkvæmt Heimildum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér. Þá
verður forseti íslands staddur í
Washington vegna opnunar sýn-
ingarinnar „Seandinavia today“.
Forseti Islands er boðinn til
hádegisverðar í Hvíta húsinu 8.
september og munu þjóðhöfð-
ingjarnir hittast að máli um
morguninn. Hinir fulltrúar
Norðurlandanna við opnun sýn-
ingarinnar eru einnig boðnir til
hádegisverðarins, en einungis
forseti íslands mun hitta Banda-
ríkjaforseta að máli þá um morg-
uninn.
um gengisfellinguna og vaxta-
hækkanirnar, en þó veitti þing-
flokkur þeirra Svavari Gestssyni
umboð til að ganga frá gengisfell-
ingu á bilinu 10—15%, þó með því
skilyrði að hann héldi sig við lægri
mörkin. Það kom þó fram á fund-
inum í gær, að fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í bankaráði Seðla-
bankans, sem verður Þröstur
Ólafsson í fjarveru Inga R. Helga-
sonar, hafði ekki ákveðið endan-
lega hverja afstöðu hann myndi
taka til gengisfellingarinnar á
fundi ráðsins í dag. Innan stjórn-
arliðsins var því í gærkvöldi talið
geta brugðið til beggja vona um
hvort takast muni að ná saman
um tillögur Seðlabankans í dag
eða hvort fresta verður afgreiðslu
þeirra þar til hlutirnir liggja skýr-
ar fyrir.
Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra:
Borðliggjandi að við
fáum ekki nýja flugstöð
„ÞAÐ ER orðið borðliggjandi, eða
allar likur sem benda til þess að við
fáum ekki nýja flugstöðvarbyggingu
á Keflavíkurflugvelli. Alþýðubanda-
lagsmenn hafna þeirri tillögu sem ég
lagði fram og það kemst enginn yfir
þetta ákvæði i stjórnarsáttmálanum
nema þá fuglinn fljúgandi," sagði
Ólafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra, er Mbl. spurði hann í gær
hver staðan væri í flugstöðvarbygg-
ingarmálinu, en afgreiðslu þess var
frestað á ríkisstjórnarfundi i gær->
morgun.
Ólafur sagðist Vænta þess að
málið yrði afgreitt á næsta fundi
ríkisstjórnarinnar, sem boðaður
hefur verið á þriðjudag í næstu
viku. „Það mun þá reyna á þetta
og ég mun leggja mína áherslu á
að fá þetta samþykkt. En alþýðu-
bandalagsmenn hafa látið i ljós
sína afstöðu og stjórnarsáttmál-
inn segir skýlaust, að ekkert verði
framkvæmt ef ekki er full sam-
staða."
Ólafur var þá spurður, hvort
einhverjar málamiðlunartillögur
hefðu komið fram, t.d. um minni
byggingu. „Nei, þær virðast ekki
Maður fórst í bílslysi
SEXTÍU OG fjögurra ára gamall
maður fórst í bílslysi í Borgarfirði
eystri aðfaranótt mánudagsins sl.
Bíll sem hann ók fór út af vegin-
um og hafnaði í skurði og var
maðurinn látinn þegar að var
komið. Slysið átti sér stað skammt
utan við bæinn Hofströnd, austan-
megin fjarðarins.
Maðurinn hét Ólafur Pálmi
Þorsteinsson og bjó hann í Borg-
arfirði eystri. Hann var fæddur 9.
júní 1918.
Til verkfallsboðunar gæti
komið um mánaðamótin
— segir Kristján Thorlacius formaður BSRB
„Það kom okkur verulega á óvart
er við fengum þær fréttir að hug-
myndin væri að skerða vísitöluna
með bráðabirgðalögum,*' sagði
Kristján Thorlarius formaður BSRB
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær. „Við áttum að vísu
von á að þetta kæmi inn í viðræðurn-
ar með einhverjum hætti, en ekki
með tilkynningu um bráðabirgða-
lög,“ sagði Kristján.
„Af okkar hálfu er það alveg
ljóst að við skoðum þessi mál í
samhengi, skoða verður grunn-
kaupshækkanir og vísitölumálin í
samhengi," sagði Kristján er hann
var spurður hver áhrif hin nýja
staða hefði á samningaviðræðurn-
ar. „Við litum á þetta sem eina
heild, og fordæmum það að lög-
binda eigi þessi mál í stað þess að
útkljá þau við samningaborðið. Ef
ekki semst og til verkfalla kemur,
verður það trúlega um næstu
mánaðamót, en engar ákvarðanir
hafa þó verið teknar um dagsetn-
ingar," sagði Kristján. „Það ber
einnig að hafa í huga að hjá okkur
er þessum málum á nokkuð annan
veg farið en hjá ASÍ, verkfall
verður til dæmis að boða með
hálfs mánaðar fyrirvara, og síðan
kemur sáttatillaga frá sáttasemj-
ara og atkvæðagreiðsla um hana
með ákvæðum um ákveðna lág-
markskjörsókn. Þannig að jafnvel
þótt við boðum verkfall, frestun á
því komi fram og við til dæmis
fellum sáttatillögu, þá tekur þetta
mánuð. En að sjálfsögðu vonum
við að ekki þurfi að koma til verk-
fallsaðgerða og við leggjum allt
kapp á að ljúka samningum fyrir
1. september.“ Sjá nánar á miðopnu.
finnast," svaraði hann. Hann
sagði í lokin, að sér fyndist anzi
hart að þurfa að skilja við flug-
stöðvarbyggingaráformin á þenn-
an hátt og bætti við: „og þetta er
alvarlegast af því að þessi fjár-
veiting frá Bandaríkjamönnum
tapast með þessu, fjárveitingar-
heimildin rennur út núna 1. októ-
ber.“
I tilefni af ummælum Ólafs og
þeirri umræðu sem átt hefur sér
stað um ástand flugstöðvarbygg-
ingarinnar á Keflavíkurflugvelli
spurði Mbl. Steingrím Her-
mannsson samgönguráðherra,
hvort reynt yrði að lagfæra bygg-
inguna á einhvern hátt þar sem
fyrirséð virtist að ekki yrði ráðizt
í byggingu nýrrar. Hann sagði í
upphafi samtalsins, að hann hefði
alltaf verið hlynntur byggingu
nýrrar flugstöðvar og einnig væri
það sitt álit að Bandaríkjamenn
ættu að greiða hana að fullu, þar
sem hún væri þáttur í aðskilnað-
inum, en hann sagði eins og Ólaf-
ur það ljóst vera að stjórnar-
sáttmálinn réði í þessu máli.
I tilefni af umræðum um slysa-
hættu og ástand byggingarinnar í
dag sagði Steingrímur: „Ég held
að það sé nú alltaf málaður
skrattinn á vegginn í öllum slíkum
málum. Auðvitað er gamla bygg-
ingin orðin allt of lítil, en það er
líka furðulegt að allar þær flug-
vélar sem koma til landsins skuli
ailar koma á sömu klukkustund-
inni og auðvitað má reikna þörf
fyrir stóra byggingu út frá því, en
svo stendur hún tóm 20 klukku-
stundir sólarhringsins."