Morgunblaðið - 11.08.1982, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
37
„Að líkna þeim sem lifa“
TIL AÐ leggja hönd á plóginn með
öllum þeim, sem vinna að mann-
úðarmálum, hafa sjöunda-dags að-
ventistar hjálpar- og líknarstarf
með höndum um allan heim. Þátt-
ur þeirra hér á landi er árleg söfn-
un en í fvrra söfnuðust kr.
694.950.22,-. Veittu þessar gjafir
kærkomna hjálp allslausu og líð-
andi fólki.
Enn sem fyrr verður gengið
um með kynningarbæklinginn
Kristileg menning sem varpar
ljósi á þörfina og tilganginn.
Þar gefur m.a. að líta íslending,
Eric Guðmundsson Júlíusson, að
starfi meðal holdsveikra.
Söfnunin hefst um miðjan
þennan mánuð.
(KrótUlilkynning.)
Ráðstefnu um öldrun
lokið í Vínarborg
RÁÐSTEFNU Sameinuðu þjóð-
anna um málefni aldraðra lauk í
Vinarborg sl. föstudag. Alls tóku
um 120 þjóðir þátt í ráðstefnunni
og þar að auki áttu tugir samtaka
fulltrúa, þannig að þátttakendur
voru alls um 900.
Af Islands hálfu sátu á ráð-
stefnu þessari Svavar Gestsson,
heilbrigðisráðherra, Páll Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóri,
Gunnhildur Sigurðardóttir,
hjúkrunarforstjóri, Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður, Sigurð-
ur H. Guðmundsson, sóknar-
prestur og Dögg Pálsdóttir,
lögfræðingur.
Gert var ráð fyrir að allar
þjóðir legðu fram greinargerð
um málefni aldraðra hjá sér, og
af íslands hálfu var slík skýrsla
gerð á vegum undirbúnings-
nefndarinnar. Þetta er rit ráðu-
neytisins nr. 1/1982 og nefnist
„Aging in Iceland", Icelandic
National Report for the World
Assembly on Aging, Vienna
1982.
Svavar Gestsson flutti ræðu á
fundi 29. júlí. Hann gerði í
stuttu máli grein fyrir stöðu
mála hér á landi í málefnum
aldraðra og hvað áunnist hefði
síðustu áratugi. Hann gerði
einnig grein fyrir fyrirhugaðri
lagasetningu um málefni aldr-
aðra á þessu hausti og hvað í því
frumvarpi felst. Síðan lagði
hann áherslú á fjögur megin-
atriði sem hann vildi að tekið
væri mið af þegar fjallað væri
um málefni aldraðra, að því er
segir í frétt frá heilbrigðisráðu-
neytinu:
1. Réttur einstaklingsins til
að lifa eðlilegu lífi, þó til þess
þurfi hjálp af ýmsu tagi.
2. Réttur einstaklingsins til
sjálfsákvörðunar, þannig að ráð
séu ekki tekin af fólki aldurs
vegna.
3. Réttur einstaklingsins til
áhrifa og þátttöku um eigin
málefni og þjóðfélagsins í heild.
4. Endurskoðun ríkjandi
stefnu um hvenær fólk hættir
starfi. I þessu sambandi ræddi
hann um of einhliða reglur, sem
víða væru um starfslok, þrátt
fyrir löngun aldraðra og getu til
starfa.
Stykkishólmur:
Sex sækja um
stöðu kaup-
félagsstjóra
Sty kkishólmi, 1. ágúst.
Kauprélagsstjóraskipti við Kaup-
fólag Stykkishólms verða nú 1. sept
nk. Arnar G. Pálsson, sem hér hefir
starfað um hríð, hefir sagt upp störf-
um oj» var auglýst eftir kaupfélags-
stjóra fyrir nokkru og hafa 6 manns
sótl um stöðuna. Kaupfélagsstjór-
askipti hafa verið tíð hér og kaupfé-
laginu ekki haldist vel á forstjórum
sínum, enda hafa þar á undanfórn-
um árum verið minnkandi umsvif.
Rætt hefir verið um að skipta
um húsnæði og byggja annað ný-
tískulegra, enda gamla húsið bæði
erfitt og dýrt í rekstri, sérstaklega
með hitunarkostnað. Hvað úr
þessum áformum verður er ekki
vitað. Kaupfélagið hefir undanfar-
in ár veitt mörgum atvinnu og bú-
ið að starfa hér í rúm 60 ár.
Fréttaritari.
Hver er Bergström?
kaupmannahófn. AP.
HVER er Kurt Bergström og
hvers vegna vill hann að heimur-
inn muni Danmörku í október
1943? Þetta er helzta umræðu-
efni Kaupmannahafnarbúa í
dag, föstudag. Málavextir eru
allir hinir sérstæðustu, en skulu
raktir stuttlega: Þann 6. ágúst
birtist í Int. Herald Tribune,
sem er gefið út í París, heilsíðu-
mynd af Kristjáni X heitnum
Danakonungi, og texti myndar-
innar var einfaldlega: „Danmörk
1943. Munið þið ekki eftir því.“
Gunnar nokkur Hömann,
lögfræðingur í Kaupmannahöfn,
segist vera fulltrúi Bergströms
sem augýsinguna setti, og hann
talaði í gátum þegar blaðamenn
þyrptust til skrifstofu hans að
leita skýringa á málinu. Það má
taka fram í leiðinni, að fyrir
auglýsinguna voru greiddir 20
þúsund dollarar. Hömann sagð-
ist ekki hafa heimild til að
greina frá hvar skjólstæðingur
sinn væri, hver hann væri, hvar
hann væri staddur, né heldur af
hvaða þjóðerni hann væri. Hann
gaf það þó í skyn, að auglýsingin
kynni að vísa til fjöldaundan-
komu danskra Gyðinga árið
1943. Danskir blaðamenn brutu
ákaft heilann um það hvort
auglýsingin væri einhvers konar
ákall um alþjóðlega hjálp til
handa Palestínumönnum, sem
væru innikróaðir í Beirút. „Þið
munið hvað gerðist 23. október
1943,“ sagði Hömann. „Ég held
að þá hafi einhver hjálpað
dönskum Gyðingum ... það sak-
ar ekki að minna á það.“ Þegar
málið var rifjað upp af snöfur-
legum dönskum rannsóknar-
blaðamönnum, kom upp úr dúrn-
um, að þann dag komst allveru-
legur fjöldi danskra Gyðinga yf-
ir til Svíþjóðar og barg þannig
lífi sínu.
Bladió sem þu vaknar vió!
lMofinnooi* 1 imilorl
Til sölu, Wagoneer Limited árg.
1981 mjög glæsilegur bíl 1. Ekinn að
mestu erlendis.
Upplýsingar í síma 45491 á skrif-
stofutíma.
Prentar hún peninga?
Nei, en getur sparaó stórfe!
U-BÍX100
15 Ijósrit á mínútu,
á venjulegan pappír, þitt eigið
bréfsefni eða glærur.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33
aml 20560