Morgunblaðið - 19.08.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.08.1982, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982 21 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarssori. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 8 kr. eintakiö. Er ofbeldi að aukast á íslandi? Hörmuieg tíðindi hafa borizt austan úr Öræfasveit, sem slegið hafa óhug á landslýð allan. Tvær franskar stúlkur, sem gerðu ferð sína um landið, verða fyrir aðför, sem leiðir til dauða annarrar en stórmeiðsla á hinni. Þessi sorglegi atburður, sem hér verður ekki fjallað um sérstaklega, vekur upp spurningu, sem gerzt hefur áleitn- ari með ári hverju. Er ofbeldi að aukast í íslenzku samfé- lagi? Er þjóðfélag okkar, sem til skamms tíma var af- skekkt og friðsælt, að taka á sig mynd af því ofbeldi, sem við vitum að víða er til staðar í veröldinni? Innbrotafaraldur í skartgripaverzlanir, sem sett hefur svip sinn á fréttir, ýtir undir þessa spurningu. Líkur eru að því leiddar, að slík auðgunarbrot kunni að vera afleið- ing stóraukinnar fíkniefnaneyzlu hér á landi. Fíkniefna- neytendur svífist einskis til að komast yfir bölvald sinn. Ef þetta er rétt, að ofbeldi fari vaxandi hér á landi og að fíkniefnaneyzla hafi stóraukizt síðustu misserin, stöndum við frammi fyrir þjóðfélagslegu vandamáli, sem jafnvel kann að skyggja á „efnahagsvandann“. Siðferði- legir innviðir samfélagsins skipta ekki síður máli en þeir efnahagslegu, enda lifir enginn á brauðinu einu saman, þó ómissandi sé. íslenzkir foreldrar, sem horft hafa á eftir stálpuðum börnum sínum út í hinn stóra heim, til ferðalaga, náms eða annarra erinda, ólu gjarnan í brjósti ótta við þær margvíslegu hættur, sem þar kynnu að leynast á vegferð. Og víst er, að margir steyttu á skeri persónulegs skipbrots í „kristaníum" umheimsins. En hvað hugsa erlendir for- eldrar, sem vita börn sín á ferð um ísland.um land okkar og þjóð, er þeir fá fréttir af örlögum frönsku systranna? Háttvísi í hegðun, orðfari og breýtni, hófsemd í líferni, vinnusemi, dugnaður, tillitssemi við náungann, virðing fyrir lögum og reglum samfélagsins og aðrar fornar dyggðir, sem fyrrum vóru vegvísar á leið til farsældar einstaklinga, virðast ekki lengur í sömu hávegum hafðar. Hvað hefur breytzt í þankagangi þjóðarinnar, sem skekkt hefur verðmætamat hennar á persónubundnum þáttum í fari einstaklinga? Er það skólakerfið sem hefur brugðizt? Eru það heimilin og foreldrarnir? Eða vandamálafræð- ingar margs konar, sem sett hafa svip sinn á mótun barns og unglings í ríkari mæli síðasta mannsaldurinn? Eða kannski þessir aðilar allir? Kirkjan kemur einnig inn í þessa mynd. Kristin kenn- ing er tvímælalaust bezti vegur einstaklings og þjóðar til mannræktar. Kristin siðfræði, sem náð hefur fótfestu í einhvers brjósti, er fyrirbyggjandi gegn flestum víxlspor- um einstaklingsins. Hafa máske tengsl kirkjunnar við fólkið í önn dagsins trosnað? Þjóðin getur ekki komizt fram hjá þeirri áleitnu spurn- ingu, sem nú býr í huga margra: hefur ofbeldi í íslenzku samfélagi aukizt? Því miður bendir margt til þess að svo sé. Engin tök eru á því, hér og nú, að gera tæmandi úttekt á orsökum, enda eru þær efalaust margar, flóknar og samvirkandi. En það er nauðsynlegt að bregðast skjótt og duglega við. Samátak til að efla kristileg viðhorf, almenna góðvild og „fornar" dyggðir, sem áreiðanlega blunda í flestra brjóstum, en víðast þarf að hlúa að, eins og öllu því sem ætlað er að vaxa og þroskast, er fyrsta skrefið. En sam- hliða er nauðsynlegt að auka á aga og reglu, án þess þó að ganga á þegnrétt einstaklingsins. Ljósm. Mbl. KÖK. Skildi við stúlkuna lifandi í lokaðri farangursgeymslunni „GRÉTAR Sigurður Snær Árnason hefur játað það að hafa sett frönsku stúlkuna lifandi og stórslasaða ofan í farangursgeymslu bifreiðar sinnar, þar sem hún síðar lést. Þetta liggur þegar fyrir,“ sagði Friðjón Guðröðarson, sýslumaður í Austur-Skafta- fellssýslu í samtali við Morgunblaðið í gær. „Hann hefur einnig játað að hafa veitt systur hennar þung högg með byssuskefti inni í sæluhúsinu á Skeiðarársandi og líka að hafa farið gagn- gert inn í sæluhúsið til þess að fá systurnar til að fylgja sér inn í bíl sinn,“ sagði Friðjón. „Við yfirheyrslur hefur mannin- um sagst svo frá, að hann hefði komið að sæluhúsinu á Skeiðarár- sandi um klukkan 23 á mánudags- kvöld, en hann átti þá leið um veg- inn sem FÍB-maður. Þegar hann ók eftir veginum kvaðst hann hafa orð- ið var við eitthvað óeðlilegt í sælu- húsinu og áleit rétt að líta þar á. Sagðist hann hafa orðið var við megna hasslykt við sæluhúsið og hefði hann talið sér rétt og skylt að grípa þar inn í og flytja frönsku stúlkurnar til Hafnar í Hornafirði. Taldi hann þær hafa töluvert magn eiturlyfja í fórum sínum, en ekkert hefur komið fram sem rennir stoð- um undir þessa fullyrðingu," sagði Friðjón. „Þá skipaði maðurinn, að eigin sögn, stúlkunum að fara út í bifreið- ina, en þær neituðu því. Þá segist hann hafa farið út í bílinn og sótt þangað hlaðna haglabyssu. Þetta gerði hinn handtekni vegna þess, að hans sögn, að „útlendingum stæði ógn af skotvopnum". Þegar hann kom inn í húsið sagði hann stúlkun- um að þá væri síðasti möguleikinn á að koma út í bílinn. Þær neituðu enn og, að sögn hins handtekna, réð- ust þær á hann og upphófust stymp- ingar milli þeirra. Þá stökk stúlkan sem nú er látin, út úr húsinu og skildi dyrnar eftir opnar. Hin syst- irin hélt þá utan um manninn og í átökum þeirra segir hinn hand- tekni, að skot hafi hlaupið af. Hann kveðst hafa reynt að losna við stúlk- una af baki sínu og hefðu átök þeirra endað með því að hann rotaði hana með byssuskefti, en í þann, mund hefði skotið hlaupið úr hagla- byssunni. Segist hann ekki hafa vit- að þá að stúlkan, sem hljóp á dyr, hefði orðið fyrir skotinu og hefði hann farið út til að leita hennar, en ekki fundið," sagði Friðjón. „Þá kveðst maðurinn hafa farið í bíl sinn, sem stóð við sæluhúsið, og ekið allgóðan spöl í austurátt, en ekkert séð. Þá hefði hann snúið við og haldið sömu leið til baka. Þegar hann var kominn að afleggjaranum niður að sæluhúsinu, að því er hann telur, kemur stúlkan inn í geisla bílljósanna. Honum sagðist síðan svo frá að hann hafi átt í erfiðleik- um með að ná sambandi við stúlk- una og því hefði hann stöðvað bílinn og farið út. í þann mund hefði flutn- ingabíl borið þar að. Bílstjóri hans hefði spurt hvað komið hefði fyrir og hefur hinn handtekni viðurkennt að hafa leynt því vísvitandi fyrir bílstjóranum, að stúlkan hefði orðið fyrir skoti. Þá kveðst hann hafa fyrst tekið eftir að hún var særð skotsárum og gert sér þá fyrst grein fyrir því að hún hefði orðið fyrir skotinu sem hljóp úr haglabyssunni við átökin í sæluhúsinu. Hins vegar sagði hann að ekið hefði verið á hana. Aðspurður hefur hinn hand- tekni sagt að hann hefði ekki lagt í að segja satt frá. Segist hann hafa beðið bílstjórann um að sækja hjálp — lækni og lögreglu — sem bílstjóri flutningabílsins gerði. Þegar hann var farinn snéri maðurinn sér að stúlkunni og beitti hana valdi við að koma henni ofan í farangurs- geymslu bifreiðarinnar. Síðan seg- ist hann hafa ekið af stað, með stúlkuna í farangursgeymslu bif- reiðarinnar, mikið særða en lifandi, sem leið lá upp undir Hafrafell. Þar hefði hann hlaupið úr bílnum og tekið með sér haglabyssu og riffil, en ekki litið ofan í farangurs- Lögreglan fór með Gétar Sigurð að sæluhúsinu á Skeiðarársandi, þar sem hann var látinn lýsa því hvernig viöskipti hans og stúlknanna hefðu verið. Myndin er tekin er þetta fór fram. geymsluna þar sem stúlkan var,“ sagði Friðjón. „Segist maðurinn hafa ætt um við Hafrafell í angist og ráðleysi. Hafi hann farið upp á útsýnishól fyrir neðan fjallið og dvalið þar alllengi, en síðan farið að leita sér að skjóli í hlíð fjallsins. Þar hefði hann komið sér fyrir í skúta, en í honum hefði verið vatnsagi og því hefði hann byggt sér byrgi í öðrum skúta neðar í hlíðinni sem hann huldi trjágróðri. Þar hefði hann legið síðan. Þetta byrgi er um 200 metra frá veginum sem liggur inn að Svínafellsjökli," sagði Friðjón. Friðjón sagði að hjálpar- og björgunarsveitarmenn frá Hafnar- firði hefðu fundið manninn í byrg- inu í fjallshlíðinni, en þangað væri um það bil 5 mínútna gangur frá veginum. Þegar hann kom að byrg- inu var maðurinn að skríða út úr því, en hann hefði þá afhent vopn sín. „Við gengum síðan niður að bif- reið minni," sagði Friðjón, „og var manninum sagt að setjast í aftur- sætið. Einnig settust í bílinn maður frá Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði og formaður björgunarsveitarinnar á Höfn. Síðan var ekið rakleitt að þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli og hefur maðurinn verið þar í yfir- heyrslum. Vettvangur hefur verið rannsakaður og hefur maðurinn verið fluttur til Reykjavíkur, en þar sætir málið frekari rannsókn," sagði Friðjón. „Það er mikið matsatriði hversu miklar upplýsingar eigi að gefa og hvenær í svona málum. Ymsum þykir að ég hafi verið full sam- vinnuþýður við fjölmiðla, jafnframt því sem talað er um tregðu á upp- lýsingastreymi í slíkum málum. Um það vil ég segja að ég álít að upplýs- ingar í þessu máli hafi ekki getað spillt fyrir rannsókninni, enda var aðeins einn maður grunaður og öll lykilvitni höfðu þegar verið yfir- heyrð þegar greint var frá málinu. Það sem um þetta mál hefur verið sagt er aðeins til að kveða niður gróusögur. Almennt ber að sjálf- sögðu að fara sér hægt í upplýs- ingagjöf varðandi sakamál og er ég sammála stefnu Rannsóknarlög- reglunnar í þeim efnum," sagði Friðjón Guðröðarson sýslumaður. Sagðist ætla að fá riffilinn og náði taki á skeftinu — segir Snorri Magnússon, sem fann manninn í byrginu „VIÐ VORUM þrír með sporhund- inn og könnuðum við slóðina sem hundurinn fann á þriðjudag, með því að fara meðfram henni. Við drcifðum okkur í brekku í Hafra- felli, vestan við Svínafellsjökul," sagði Snorri Magnússon í samtali við Morgunblaðið, en hann fann Grétar Sigurð Árnason um klukkan 10.30 í gærmorgun, í byrgi sem hann hafði hlaðið sér í llafrafelli. Grétar Sigurður Árnason hefur ját- að að vera valdur að dauða franskr- ar stúlku og að hafa misþyrmt syst- ur hennar. Snorri Magnússon er í Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði og hefur hann umsjón með sporhund- um sveitarinnar. „Þegar við leituðum í brekk- unni tók ég eftir hleðslu sem hlaðin var fyrir stóran stein sem slútti fram úr hlíðinni, niður und- ir jafnsléttu. Mér fannst þetta grunsamlegt og kíkti inn og sá ég þá manninn liggja þar inni. Ég hélt fyrst að hann væri látinn og kallaði ég á þá sem með mér voru. Þegar þeir koma, rís maðurinn upp og töluðum við saman. Ég sagðist ætla að fá hjá honum riff- ilinn og teygði mig eftir honum og náði taki á skeftinu. Þá virðist hann verða skelkaður og sagði að riffillinn væri hlaðinn og bað mig að passa mig á því að koma ekki við gikkinn. Síðan náði ég rifflin- um út og afhlóð ég hann, en hann afhlóð sjálfur haglabyssu sem hann var með og rétti mér hana út. Síðan ruddum við niður hleðslunni og hann kom út og sýndi ekki mótspyrnu," sagði Snorri Magnússon. Guðbrandur Jóhannsson, forr maður Björgunarsveitarinnar á Höfn, en hann hefur stjórnað leitinni að Grétari Sigurði Árna- syni í samráði við sýslumann, var einn þeirra sem fyrstir komu á Snorri Magnússon (t.h.) við byrgið þar sem maðurinn fannst. Aður hafði maðurinn falist í skútanum, sem sést á myndinni, en hann flutti sig þaðan vegna vatnsaga. Ljósm. Mbi. Einar. vettvang. „Snorri kallaði á okkur þegar hann varð mannsins var og bað okkur að að koma sér til að- stoðar," sagði Guðbrandur. „Á meðan við vorum á leiðinni til hans, afhenti maðurinn Snorra vopnin. Hann var mjög meðfæri- legur og sýndi okkur enga mót- spyrnu, en við fylgdum honum síðan í bíl sýslumanns og var hann fluttur að Skaftafelli," sagði Guðbrandur Jóhannsson. Þrjár vióurkenningar á afmælisdegi Reykjavíkurborgar: Fjölnisvegur, fegursta gata borgarinnar 1982. Hulda Valtýsdóttir formaður umhverfismálaráðs gerir grein fyrir niðurstöðum nefnda ráðsins. FJÖLNISVEGUR fegursta gatan 1982 Gisla Sigurbjörnssyni og íbúum viÖ Engjasel 52—68 veitt viöurkenning í TILEFNl afmælis Reykjavíkurborgar í gær, 18. ágúst, veitti borgarstjóm Reykjavíkur þrjár viðurkenningar fyrir vel unnin störf til fegrunar í borginni. Fjölnisvegur var valinn fegursta gata borgarinnar 1982. Lóð raðhúss og fjölbýlishúsa við Engjasel 52 til 68 fékk viðurkenningu fyrir fyrirmyndar frágang og ræktun. Þá var Gisla Sigurbjörnssyni forstjóra veitt sérstök viður- kenning fyrir vel unnin störf í þágu aldraðra. Hulda Valtýsdóttir, formaður Umhverfis- málaráðs Reykjavíkur, fór nokkrum orðum um framangreindar viðurkenningar. Hulda sagði meðal annars: „Enda þótt borgaryfirvöld standi að mikl- um framkvæmdum til að fegra og bæta um- hverfi í borginni, sæi lítt högg á vatni ef borgarbúar sjálfir legðu ekki fram sinn drjúga skerf til mótunar síns umhverfis — ef þeir væru ekki virkir þátttakendur við að fegra og prýða borgina svo hér megi dafna blómlegt og menningarlegt mannlíf. Svo er fyrir að þakka að áhugi almennings á umhverfismálum fer ört vaxandi — menn meta í æ ríkari mæli gróið, ræktað og vel hirt umhverfi — skilja æ betur að umhverfi allt mótar manninn. Góð húsakynni missa gildi sitt ef umhverfið úti fyrir er snautt og í óhirðu. Borgin okkar, höfuðborg íslands, á að vera öðrum þéttbýlisstöðum á landinu til fyrir; myndar um umgengni og umhverfismótun. I því tilliti eiga Reykvíkingar, allir sem einn, að tileinka sér heilbrigðan metnað gagnvart borg sinni. Hver sá sem leggur þar sitt af mörkum hlýtur að auðgast á sálinni. Með þessum viðurkenningum vill borgar- stjórn sýna að allt framtak er metið að verð- leikum og hvetja um leið til enn stærra átaks." I nefnd þeirri er Umhverfismálaráð skipaði Lóð húsana við Engjasel 52 til 68 þótti m.a. einkar vel fallin leikvöllur fyrir böm. til að velja fegurstu götuna áttu sæti Vil- hjálmur G. Vilhjálmsson, Hafliði Jónsson og Pétur Hannesson. í greinargerð með niður- stöðu sinni segja nefndarmenn meðal annars: „Fjölnisvegur er gömul og gróin gata með fallegum og stílhreinum húsum. Stórum og miklum trjágróðri og vel hirtum görðum með miklu fuglalífi, sem gefur götunni sérstakan unað. Samræmd girðing er meðfram allri norðurhlið götunnar. Hvergi er rusl að sjá á gangstéttum og akbraut." Soffía Thorarensen tók við viðurkenning- unni fyrir hönd íbúa Fjölnisvegar. Soffía var valin til þessa vegna þess að hún átti afmæli þennan dag, 18. ágúst, varð 21 árs. í samtali við Mbl. sagði hún að í sjálfu sér hefði það ekki komið henni svo mjög á óvart að Fjölnis- vegur skyldi verða valinn fegursta gata borg- arinnar. Gatan væri falleg og garðar flestir til fyrirmyndar vegna fágætrar umhirðu. Kvaðst Soffía vera mjög ánægð fyrir hönd íbúana, þeir ættu þetta skilið enda notuðu þeir jafnan góða veðrið á sumrin til garð- vinnu ýmisskonar. Vilhjálmur Sigtryggsson, Gísli Kristjáns- son og Guðrún Ólafsdóttir skipuðu nefnd sem leita skyldi uppi lóð við raðhús eða fjölbýlis- hús sem vert væri að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi snyrtilegan frágang og umgengni húss og lóðar. Um þá niðurstöðu sína að velja lóðina við Engjasel 52 til 68 segja þau meðal annars: „Ibúum þessara húsa hefur með samstöðu og góðri samvinnu tekist að skapa heilstætt. fallegt og notalegt umhverfi, þar sem mjög vel er séð fyrir leikaðstöðu fyrir börn jafnt og unglinga, þar sem hver einstök fjölskylda á sér lítinn reit til eigin yfirráða og þar sem jafnvel bílageymslum og aðkeyrsla að þeim er einkar smekklega fyrirkomið." Fyrir hönd íbúa í Engjaseli 52 til 68 tók Ölafur Ingi Jóhannsson, formaður sameigin- legrar hússtjórnar þessara húsa, við viður- kenningunni. Er Mbl. ræddi við hann í gær kvaðst hann mjög ánægður með viðurkenn- inguna. Sagði hann hana hafa komið sér mjög á óvart, jafnvel þótt engin launung væri á að hann væri ákaflega stoltur af lóðinni. Ólafur Ingi sagði íbúana mjög samtaka í allri um- hirðu, en þess mætti geta að einu sinni tii tvisvar á ári skipulegði hússtjórn allsherjar hreinsunardag og þá tækju allir til hendinni sem vettlingi yllu. Kvað Ólafur viðurkenning- una til þess fallna að auka metnað íbúana og vonandi yrði viðleiti þeirra Engjaselsbúa öðr- um íbúum fjölbýlishúsa til eftirbreytni. Þá var skipuð nefnd til að veita viðurkenn- ingu hugmyndum eða framkvæmdum í þágu aldraðra. í henni áttu sæti: Erna Ragnars- dóttir, Stefán Benediktsson og Jónína Pét- ursdóttir. í greinargerð með þeirri niðurstöðu sinni að veita Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra viðurkenninguna kveðast þau undirstrika tvennt: „Annars vegar að lifandi umhverfi skiptir aldraða meira máli en dauðir hlutir og að enginn núlifandi íslendingur hefur starfað ötullegar að því að hlúa að öldruðum en Gísli Sigurbjörnsson." Gísli Sigurbjörnsson var hinn ánægðasti er Mbl. ræddi við hann í gær. Sagði hann viður- kenninguna vera sér mikils virði og væri hann þakklátur fyrir þann heiður sem Borg- arstjórn nú sýndi sér. „Þegar ég frétti að þessi viðurkenning stæði til,“ sagði Gísli, „hélt ég nú eiginlega frekar að þeir ætluðu að veita honum Eiríki Larsen, garðyrkjumanni á Grund, hana. Hann hefur unnið þar frábært starf í þrjá áratugi, en fagurt umhverfi er öldruðu og sjúku fólki mjög mikils virði. Ég hefði látið Eirík fá þessa viðurkenningu."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.