Morgunblaðið - 29.09.1982, Page 8

Morgunblaðið - 29.09.1982, Page 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 — Hníísdalsheiöi Frá Oshlíöarvegi Óshlíd Eftir Guómund Jakobsson Plr nú ekki bráðum komið nóg? Enn á ný er kraftaverk að ekki verður stórslys á Oshlíðarvegi. Þrír áratugir eru nú liðnir síðan þetta óskabarn var lagt og tekið í notkun. Kraftaverk má teljast hve fá stórslys hafa hlotist af umferð um þennan veg. Oft hefur legið nærri og færri munu þeir dagarn- ir sem ekki hefur sést nýr steinn á veginum eða riýfallið snjóflóð. Segja má að tíðni niðurfalla og ferð bíla mætist í augnabliki, sem sé aðeins brot af möguleikum til slysa, en samt. Þarna er hætta og verður alltaf hætta. 1927 í desember var ég stranda- glópur af báti á ísafirði með æsku- vini, Helga heitnum Vilhelmssyni. Við ákváðum að fara gangandi út- eftir. I Hnífsdal ræddum við um hverja leið skyldi fara, Óshlíð eða Hnífsdalsheiði. Myrkur, súld og slydda var á. Skoðun minni trúr hélt ég fram heiðinni og eftir nokkra þrætu var sú leið valin. Við komumst slysalaust heim: Eftir áramótin var Helgi heit- inn í sömu aðstöðu og var þá valin Óshlíðin, þau voru 5 saman, en að- eins einn varð til frásagnar. Snjóflóð grandaði hinum. Ég man svo langt, að afi minn varð fyrir því einu slysi á lífsleiðinni, að vera á hesti sínum borinn niður í sjó með snjóflóði í Óshlíð, en bjargað- ist naumlega. Þetta eru aðeins tvö dæmi um hver glæpavegur þetta er. Þetta fjall er margklofið frá toppi til tá- ar og jafnvel í það ískyggilegar sprungur, sem gætu fyrr eða síðar leitt til þess að stórar spildur losn- uðu úr fjallinu og þá þarf ekki að afleiðingum að spyrja. Bolvíkingar hafa þjálfað sig í að láta þessa hættu sig engu skipta. Taka þetta sem hluta af lífinu og eins og þar stendur „maður venst öllum andskotanum og svo má illu venjast að gott þyki“. I leiðinni er þess ekki gætt, að þessi vegur er búinn alla tíð að einangra Bolungavík. Þetta hefur verið uppgangsstaður um undan- farin ár. En hve margir eru þeir sem heimsækja Isafjörð og Vest- firði, en veigra sér við og sleppa því að fara þennan veg, sem búið er að skýra Ö-veg. Bolungavík er í mínum augum einn fegursti staður á landinu. Þar eru öll skilyrði til að enginn sá sem fer til ísafjarðar láti undir höfuð leggjast að skoða Bolunga- vík, Syðridal með vatn, námur og sérstæð fjöll og Skálavík með sína frumstæðu töfra. En hræðslan er alltaf á sínum stað, Óshlíðarveg- ur. Nú heyri ég að uppi eru bolla- leggingar um endurbætur. Þær geta með ærnum kostnaði ein- hverjar orðið, en sá uggur, sem fylgir öllum vegum hengdum utaní karsprungin fjöll, verður aldrei upprættur. Þetta væri marklaust snakk ef ekki væri annarra kosta völ, en því fer víðsfjarri. Aður fyrr var til vegur um Hnífsdalsheiði. Hann lá um Syðri- dal annarsvegar og Hnífsdal hinsvegar. Á milli þessara dala er fjallaskarð sem við Vestfirðingar kölluðum Hnífsdalsheiði. Vega- lengd yfir hana er hverfandi eða 1 til 2 kílómetrum lengri en um Óshlíð. Þetta fjallaskarð er líklega í 300 metra hæð og nálgast ekkert ýmsa aðra heiða- eða fjallvegi á Vestfjörðum. Þessi leið er hættulaus alla árstíma. Vegur er kominn að nafni til um báða dalinu og þá er að leggja veg yfir skarðið, líklega ca. 10 kílómetra. Ekki er því að leyna, að á snjóþungum vetrum þyrfti að koma e.t.v. nokkuð oft yfir skarð- ið, sem er í 300 metra hæð, en ég spyr hve oft þarf að moka Óshlíð og fjölmarga fjallvegina á Vest- fjörðum, sem þar víða eru í miklu meiri hæð og margfalt erfiðari. Við eldri menn vorum margir 9 Flokksstjórn Alþýðuflokksins: Lýsir ábyrgð á hendur ríkis- stjórn og útvegsmönnum FLOKKSSTJÓRN Alþýðuflokksins fordæmir þá aðgerð að efna til alls- herjarstöðvunar fiskiskipastólsins og lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkis- stjórn og útvegsmönnum á afleiðing- unum, sem birtast munu í fjöldaat- vinnuleysi, segir í fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt frá flokks- stjórn Alþýðuflokksins. Það er ekki síst alvarlegt mál, ef eitt af markmiðum þessara að- gerða er að knýja fram breytingu á hlutaskiptakjörum sjómönnum í óhag, eins og sjávarútvegsráð- herra hefur gefið í skyn, þrátt fyrir ákvæði kjarasamnings, sem skráðir eigendur fiskiskipaflotans hafa skuldbundið sig til að virða með undirskrift sinni. Vitað er, að afkoma útgerðar er afar misjöfn. Upplýsingar sem gefnar eru um svokallaða „meðal- talsútkomu" fiskiskipaflotans eru ekki mjög traustvekjandi, enda er afkomumunur mikill innan grein- arinnar. Sumar útgerðir eru skuldugar upp fyrir haus vegna þess að þær hafa fjárfest óskyn- samlega. Og sumir eru hæfari til að reka fyrirtæki en aðrir. Flokks- stjórn Alþýðuflokksins er fullljóst að útvegurinn á við vanda að etja. Það réttlætir hins vegar ekki þær aðgerðir sem gripið hefur verið til, þar sem þjóðinni er stillt upp við vegg með hótun um fjöldaatvinnu- „Konungurinn í Thuleu til sölu LISTASAFN Einars Jónssonar hefur látið gera afsteypur af lágmynd Ein- ars Jónssonar, Konungurinn í Thule, sem hann gerði árið 1928, segir í fréttatilkynningu frá Listasafni Ein- ars Jónssonar. Myndin verður til sölu í Lista- safni Einars Jónssonar frá og með miðvikudeginum 6. okt. til og með föstudeginum 8. okt. kl. 16—19. Þar sem eintakafjöldi er mjög takmarkaður hefur stjórn safns- ins ákveðið, að hver kaupandi eigi þess kost að kaupa eina mynd. leysi vegna ágreinings LÍÚ við ríkisstjórnina. Jafnframt bendir flokksstjórnin á að ríkisstjórnin ber fulla ábyrgð á því hvernig málum er nú komið, ekki síst með ábyrgðarlausum innflutningi fiskiskipa og van- efndum á loforðum ráðherra til útgerðarinnar. Ef sjávarútvegs- ráðherra hefði fengist til að leysa vandann í samstarfi við sjómenn og útgerðarmenn svo sem boðið var, þá hefði ugglaust ekki til stöðvunaraðgerða komið. Alþýðúflokkurinn fordæmir að slitið hafi verið viðræðum ríkis- stjórnar og LIÚ um úrlausn máls- ins og krefst þess að þessar við- ræður verði endurhafnar þegar í stað. Þá teiur flokksstjórn að LÍÚ ætti að aflétta banni sínu á veið- um. Flokksstjórn Alþýðuflokksins álítur að ekki megi dragast lengur að endurskoða samskipti sjávar- útvegsins og ríkisvaldsins og leggja grundvöll að frambúðar- stefnumörkun. Nú á að nýta tæki- færið til þess. Sem þátt í því legg- ur Alþýðuflokkurinn til að eftir- farandi verði gert: 1) Samskiptahættir sjávarútvegs- ins og ríkisvaldsins verði endur- skoðaðir þannig, að framvegis ábyrgist ríkisstjórnin að geng- isskráning á hverjum tíma miðist við samkeppnisstöðu atvinnulífs- ins en aðilar sjávarútvegsins ábyrgist að sínu leyti að uppgjör innan greinarinnar fari fram inn- an þess ramma og án bankareikn- inga á ríkið eða með breytingum á gildandi samningum útvegsmanna og sjómanna. 2) Gert verði samkomulag milli ríkisstjórnarinnar annars vegar og LÍÚ og sjómannasamtaka hins vegar um hvernig eigi að draga úr stærð fiskiskipastólsins og hafa hemil á stærð hans í framtíðinni, þannig að eðlileg endurnýjun geti átt sér stað. 3) LIÚ verði gerð grein fyrir því að afnumið verði það bann, sem í reynd hefur verið gegn því að út- gerðarfyrirtæki fari á hausinn. Jafnframt verði náð samkomulagi við LIÚ um hvernig tryggð verði hráefnisöflun til staða, sem lentu í sérstökum vanda af þessum sök- um. Að uppfylltum þessum skilyrð- um verði ákveðið hvernig og að hve miklu leyti skuli mæta því tapi sem útgerðin hefur þegar orð- ið fyrir vegna vanefnda á loforð- um af hálfu ríkisstjórnar og ráð- herra. Alþingi loftræstað Kögnvaldur Björnsson staddur í þingflokksherbergi Alþýðubanda- lagsins MIKLAR framkvæmdir standa nú yfir í Alþingishúsinu við Austurvöll. Verið er að leggja loftræstikerfi í vesturhluta hússins og er fyrirhugað að leggja það síðar í allt húsið. Loftræstitækin sjálf eru uppá „hanabjálka" og þaðan liggja stokkar niður um húsið og brotin hafa verið göt fyrir loftræstiristar á mörgum stöðum. Samfara lagningu loftræsti- kerfisins hefur þurft að gera nokkrar breytingar, taka niður loft í nokkrum herbergjum og setja nýjan vegg á einum stað til þess að hylja loftræstingar- stokkana. Vegna loftræstilagnarinnar þarf að færa hitalagnir og endurnýja raflagnir og síðan þarf að mála. Fram- kvæmdum á öllum að vera lokið áður en þing kemur saman í haust. Af „hanabjálka" alþiogishússins, þar hefur eins og sjá má að hluta verið komið fyrir miklu loftræstikerfi sem teygir sig niður um allt hús. Hér, eins og víðar um alþingishúsið, setja smiðirnir „falskt loft“ til að hylja loftræstistokkana. (Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.