Morgunblaðið - 29.09.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.09.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 55 Þessir hringdu . . . Anægjulegt að heyra hann og sjá GJÓ hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Nýlega var á dagskrá sjónvarps söngþáttur, en þar söng í það sinn Júlíus Víf- ill Ingvarsson íslensk og erlend lög. Það var í alla staði ánægju- legt að heyra hann og sjá, og tilgerðarlaus sviðsframkoma hans vakti athygli hjá fleirum en mér. Ég þakka honum hvort tveggja, sönginn og látlausa framkomu, og óska þessum unga manni allra heilla um ókomin ár. JÚIÍU8 Vífill Ingvarsson Brúðuviðgerðir „Kona“ hafði samband við Velvakanda vegna fyrirspurnar í þættinum fyrir nokkrum dögum þess efnis hvort brúðuviðgerðar- verkstæði fyrirfyndist hér í borginni: — Mér er kunnugt um að hægt er að fá framkvæmdar smáviðgerðir á brúðum á Óðinsgötu 8. Varð á í messunni „Hlustandi“ hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Ég var að hlusta á sjónvarpið í gær, þar á meðai á kosningafréttir frá Þýskalandi. Þar kom m.a. fram að Kristilegir demókratar hefðu fengið 45,6%, en fengu 46% 1978, töpuðu 0,4%. Sósíaldemókratar höfðu fengið 42,8%, en fengu 44,3% 1978, töpuðu 1,5%, þ.e.a.s. 1,1% meira en kristilegir. Þess vegna furðaði mig á því mis- hermi fréttamannsins að tala um að Sósíaldemókratar hefðu unnið á. Hvernig er hægt að líta á þessi úrslit sem sigur jafnað- armanna? Ég lít á þessi úrslit sem sigur umhverfisverndar- manna, eða „græningjanna" svokölluðu, sem bættu við sig verulegu fylgi og hlutu 8% at- kvæða. Mér finnst fréttamann- inum hafa orðið þarna á í mess- unni, þó að það hafi vafalaust verið óvart. Rallakstur: Mér finnst ég sjá hann furðuvíða í umferðinni Jón Guðmundsson, Selfossi, skrifar: „Velvakandi! Undanfarið hefur verið mikið um slys í umferðinni. Sumir hafa látið lífið, aðrir hafa slasast mikið og enn aðrir minna. Allnokkrar vangaveltur eru um það, hvers vegna þessi slys verða. Sumir segja: Þetta er árvisst fyrirbæri á þessum tíma. Aðrir segja: Þetta er vegna of mikils hraða. Stress er nefnt sem orsakavaldur o.fl. o.fl. Að mínum dómi liggur hér margt til grundvallar og margir þættir væru skoðunarverðir, því ég er líka svo til viss um, að nær alla þessa þætti má rekja til veg- farandans, verulegan fjölda til ökumanna og einnig allnokkuð til hins gangandi vegfaranda, sem oft gleymir að gæta nægilegrar var- úðar. Mínar vangaveltur þetta varðandi beinast óneitanlega fyrst og síðast að ökumönnum. Ég tel að nauðsyn sé á að þeir hafi lært sem best sitt fag og fengið sem vandað- ast og best uppeldi varðandi akst- ur og umferð. Ég tel líka að öku- kennsla hér sé allgóð og lítt við kennara að sakast vegna þessa ófarnaðar. En eitt er það fyrirbæri sem ég rek augun í og hefur á undanförn- um árum þróast hér á landi og náð geysilega miklum undirtektum. Það er svonefndur rallakstur af ýmsu tagi, sem ég nánast kann ekki nöfn á. Þess konar akstur er einkum mikið stundaður af ungu fólki og er ákaflega vel tekið af fjölmiðlum, sem veitt hafa þessari starfsemi verulega umfjöllun. Þarf ekki langra skýringa við, því ekki þarf annað en líta í blað eða horfa á sjónvarp og þar gefur að líta ferskar fregnir af hinum ýmsu afrekum Péturs eða Páls á þessu sviði. Hver er tilgangurinn með öllum þessum hamagangi? Ég fæ ekki í fljótu bragði annað séð en fyrir- bærið samanstandi af ruddalegum og oft hættulegum akstri, sem í hundruðum tilvika leiðir til hroða- legrar eyðileggingar á farartækj- um. Ég er viss um, að ekki nokkur maður hefur hugmynd um, hversu gífurlegir fjármunir fara þarna á ruslahauga, en hitt veit ég, að þarna er um óhemjufjárhæðir að ræða. Samt var það nú ekki fjár- málahlið þessa máls sem fyrir mér vakti. íslendingar eru vel birgir að bílum. Á ýmsum þéttbýlisstöðum, t.d. í Reykjavík, verður ekki leng- ur þverfótað fyrir þeim, og ekki bera að virða það til verri vegar. Mér finnst það bera vott um góða peningalega afkomu. Það sem fyrir mér vakir er, hvort þessi akstur, sem hér er drepið á, er ekki stórháskalegur ungum öku- mönnum. Sagt er að þessi rall- akstur sé einna helst æfður á lok- uðum brautum, en mér finnst að ég sjái hann furðuvíða í umferð- inni, og vægt til orða tekið að segja að hann sé þar ekki til góðs. Fyrir stuttu átti ég tal við ung- an ökumann. Hann var á nýja bílnum hans föður síns, hafði fengið hann að láni. Ég hafði séð þennan unga mann æfa svokallaða „spyrnu" og ofboðið svo aðfarirn- ar, að ég ákvað að taka hann tali. Ég virti bílinn fyrir mér og sá að hjólbarðar að framan voru ekki merkjanlega slitnir, en að aftan að komast í striga, og orðnir ónýtir. Þegar ég leit á vegmælinn sá ég að enn vantaði nokkuð á að búið væri að aka bifreiðinni 5.000 km. Ég leiði hugann að því hvort verið geti að öll þessi rallvitleysa hafi verulega skaðleg áhif á um- ferðina. Hvort uppeldisáhrif af hennar völdum séu e.t.v. stór- hættuleg. í Morgunblaðinu og DV 21. þ.m. er greint frá hroðalegum slysum og dauðaslysum og birtar myndir af slysavettvangi. í sömu blöðum eru einnig myndir af rallbílum í hinu fáránlegasta ástandi. Á forsíðu DV eru þrjár myndir af jeppa sem er í rallakstri og er að endavelta. „Velt með sveiflu" stendur í blaðinu, og svo er umfjöllun sem er aðeins styttri en umfjöllunin um slysið. Á öft- ustu síðu Morgunblaðsins er mynd af jeppa og snúa framhjólin sam- an að framan, með öðrum orðum: stýrisbúnaðurinn hefur gefið sig, enda ekki að furða: svo stórir hjólbarðar virðast mér undir far- artækinu, að af þeirri þekkingu sem ég hef á bifreiðum, getur ekki öðru vísi farið, stýrisgangur og öxlar hljóta að brotna, og ekki að vita hvar rallið endar. Umfjöllun í blaðinu virðist mér töluvert meiri um rallakstur en hin hörmulegu slys. Ég set þetta ekki fram til að kasta rýrð á einn eða neinn, held- ur til að vita hvort ég sé einn um vangaveltur af þessu tagi. Ef svo kynni að vera að einhver teldi sig hafa eitthvað fram að færa ætti hann að vita hvort Velvakandi mundi ljá honum pláss í dálkum sínum." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Bora átti tvær holur á sitthvorum staðnum. Rétt væri: Bora átti tvær holur á sínum staðnum hvora. Rýmingarsala Karlmannaföt kr. 350.00, 1.150.00, 1.250.00. Tere- lynebuxur kr. 150.00, 235.00, 290.00, flanelbuxur kr 210.00. Gallabuxur frá kr. 190.00, úlpur, frakkar og fl. ódýrt. ANDRÉS, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22. ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM BRDSTU! MYNDASÖGURNAR Vik uskammtur afskellihlátri ipp LÖKK Á BlLINN BÍLAEIGENDUR, BÍLAMÁLARAR PARF AÐ BLETTA EÐA SPRAUTA BÍLINN ? Dupont lökkin LUCITE og IMLAR eru gæðavara, margreynd og henta islenskum staðháttum. Gefið okkur upp bilategund, árgerð og litanumer. Við afgreiðum litinn með stuttum fyrirvara. í Dupont blöndunarkerfinu eru 7000 litaafbrigði möguleg. Öll undirefni svo sem grunnar, þynn- ar og sparsl fást einnig hjá okkur. IMLAR LUCITE (•lCptkca Síðumúli 32. Sími 38000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.