Morgunblaðið - 29.09.1982, Side 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982
STUD-blað-
ið í mikilli
framför
Járnsíðunni barsl í vikunni
annað tölublaö Stuö-blaðsins.
Það verður að segjast strax, að
blaöinu hefur á allan hátt vaxið
mjög fiskur um hrygg. Efnisval er
meíra, auglýsingar færri og upp-
setning og frágangur enn betri en
í fyrsta blaðinu. Sumsó allt í rétta
átt.
Allra handanna efni er aö finna
í blaðinu. Sumt er þð mjög
snubbótt enda plássiö ekki alltaf
mikið. Aftur á móti virðast skríb-
entar blaðsins ekki vera mjög af-
kastamiklír. í 2. tbl. Stuö-blaðsins
er nefnilega að finna tvær fréttir,
sem stolið er beint úr Mogganum
(þar af skrifaöi umsjónarmaöur
Járnsíðunnar aöra og þekkir því
mjög vel), eina úr Þjóðviljanum
og eina líkast til úr Vísi sáluga.
Að þessu slepptu er blaöiö í
mikilli framför og efníö óhemju
fjölbreytt og kannski dálítið
stefnulaust um leið.
Þeysarar ... eöa a.m.k. 3 af þeim. Frá vinstri: Guðlaugur, Sigtryggur og Magnús.
Nazismi eða ekki nazismi:
Þeysarar vilja þvo
hendur sínar alfarið
Blaöiö er gefið út í 5.500 eintök-
um.
„Kvölda tekur“
er komin út
PLATA Nýja kompanísins,
Kvölda tekur, hefur nú litið
dagsins Ijós. Utgefandi er Fálk-
inn.
Nýja Kompaníið er skipaö
þeim fimmmenningunum Jó-
hanni G. Jóhannssyni, Sigurði
Flosasyni, Siguröi Valgeirssyni,
Sveinbirni I. Baldvinssyni og
Tómasi R. Einarssyni.
Á plötunni er að finna átta
lög, öll frumsamin, og ef marka
má fyrstu heyrn er hér á ferö-
inni vönduð og góð plata. Við
munum fjalla um hana á Járn-
síöunni innan skamms.
Rokksveitin heimsfræga The
jj Who er nú aö leggja upp í helj-
armikið tónleikaferðalag um
Bandaríkin og er þaö aö sögn
meölimanna það síðasta sinnar
tegundar þar í landi. Vonast þeir
til að geta farið í tónleikaferðir
um fleiri lönd þar sem sveitin
hefur notið mikillar hylli. Eftir
það verður ekki um frekara tón-
Pete Townshend, forsprakki
Who.
„HUGMYND okkar hefur aldrei
veriö að mæla nazismanum bót á
einn eða annan hátt, heldur hiö
gagnstæöa. Viö viljum benda fólki
á þá hættu, sem stafar af stefnum
sem slíkri og hversu auövelt er aö
láta hrífast með fjöldanum. Stað-
reyndin er sú, að núna vilja fjöl-
margir Þjóðverjar ekki kannast
við neitt sem heitir nazismi og
heldur ekki að neitt slíkt hafi ver-
ið tíl. Við höfum t.d. veríð meö
lagið Rudolp t nazista-umgjörð en
textínn er mjög and-nazískur.
leikahald að ræða af hálfu sveit-
arinnar að því er Pete Towns-
hend sagði í viðtali í síöustu
viku.
Who fékk afleita dóma, m.a. í
Melody Maker, sem þó er
íhaldssamasta popprit Breta, fyrir
síðustu plötu sína. Sjálfur viöur-
kennir Townshend, sem nú er
orðinn 37 ára gamall, aö æ erfiö-
ara reynist að semja góð lög en
áöur. „Viö viljum ekki endurtaka
okkur of mikið, en þaö getur ver-
ið erfitt aö koma sífellt með ný og
góð lög.
Það er fyrst og fremst þessi
tilfinning að spila fyrir fólkiö, sem
heldur okkur gangandi," sagöi
Townshend ennfremur.” Ég hef
oft upplifað þaö að sjá sömu and-
litin á tónleikum okkar tvö kvöld í
röð og slíkt gerir þaö aö verkum
að maður er stoltur af því aö eiga
slíka aödáendur. Á meðan þeir fá
eitthvað út úr því að sjá okkur
spila er enginn vafi á aö um
gagnkvæma ánægju er að ræða.
Það hefur margt breyst í þess-
um bransa frá því viö hófum feril-
inn fyrir 18 árum," segir Towns-
hend. „Nú orðið er e t.v. ekki
mikiö mál að fylla tónleikahallir,
en þaö gerist æ erfiöara aö gefa
út plötu, sem selst vel.“ Eftir lest-
ur þessa viðtals rennir marga
e.t.v. í grun aö meö þessu sé
Townshend aö gefa til kynna, aö
sá dagur nálgist óöfluga aö Who
leggi upp laupana.
Hins vegar var lagið sett í þessa
umgjörö til að undirstrika þann
tviskinnungshátt, sem ríkir í af-
stöðu fólks,“ sagði Hilmar Örn
Hilmarsson, hugmyndafræðingur
Þeysara, er Járnsíðan spjallaði við
hann í vikunni.
Miklar umræður hafa spunnist
eftir tónleika Þeys í Laugardalshöll-
inni þar sem hópur manna tróö upp
og heilsaði fjöldanum með nazista-
kveðju. Fannst mörgum þetta vera
ósmekklegt uppátæki og hefur
hljómsveitin fyrir vikið sætt mikilli
gagnrýni. Til þess að þvo hendur
sínar af þessum áburði boðuöu
Þeysarar til blaöamannafundar á
mánudag.
Hljómsveitin efndi síöan til tón-
leika í Félagsstofnun stúdenta á
miðvikudag í því markmiöi að
safna fé til miöstöövar, sem starfa
myndi í anda Wilhelm Reich. Að
sögn Hilmars Arnar var Reich þessi
einn þeirra fyrstu er sá í gegnum
hugmyndafræöi nazismans og gaf
m.a. út bók 1933 um skoöanir sin-
ar. Hann var gerður brottrækur frá
Þýzkalandi og var með Gestapo á
hælunum í mörg ár.
Reich fluttist síöan til Bandaríkj-
anna, en komst einhverra hluta
vegna upp á kant við yfirvöld þar.
Hann gerði tilraunir meö andlega
orku og hélt því m.a. fram, aö
krabbamein stafaöi af súrefnis-
skorti fruma. Var hann sakaður um
skottulækningar í tilraunum sínum.
Hann var fangelsaður og allar
bækur hans brenndar. Mun þaö
vera í fyrsta sinn, sem allar bækur
vísindamanns eru brenndar þar
vestra. Hann varð á ný fyrir því
1962 aö öll rit hans voru brennd.
„Reich er alger andstaöa viö Hitler
og hans kenningar. Hann reynir að
draga út hið jákvæöa í fólki," segir
Hilmar.
„Ætlun okkar hefur allan tímann
verið að færast úr Hitler yfir í
Reich," segir Hilmar. „Viö höfum
verið með and-nazíska texta í
nazista-umgjörð. Nú höfum viö sett
Reich í nazista-umgjörð. Þetta sást
best á Risarokkinu í Laugardals-
höllinní. Þar mættum við til leiks
undir nazista-merkinu en breyttum
síöan yfir í Reich. Gengum um gólf
með rauðan fána, en engu aö síöur
réðist fólk aö okkur og brenndi
fánann. Hann stóð ekki í neinum
tengslum viö nazisma. Þarna stóð
lýöurinn sig aö því sama og nazist-
ar á sínum tíma," sagöi Hilmar.
Hann sagði í lokin: „Krakkarnir
skilja þetta ekki almennilega fyrr
en þau eru orðnir þátttakendur í
þessu sjálf. Það veröur aö láta þau
vera með í skrípaleiknum og benda
þeim síöan á hvaöa heimskupör
þetta séu. Þannig er þetta áhrifa-
ríkast. Okkur virðist hafa tekizt
bærilega upp.“
ILLA
SOTT
SATT-
KVÖLD
ÞAD voru býsnar fáir, sem sóttu
fyrsta SATT-kvöld vetrarins í
Klúbbnum á miðvikudagskvöld,
hverju svo sem um má kenna.
E.t.v. voru þarna ekki nægilega
þekkt nöfn á feröinni eða kannski
eru menn bara ekki búnir aö átta
sig á því aö veturinn er genginn í
garö.
Það var Kvalasveitin, sem tróö
fyrst upp og stóð sem fyrr fyllilega
undir nafni. Handónýt hljómsveit í
alla staði, en samt mátti greina
framfarir frá því á tónleikunum
með Comsat Angels.
K.O.S. tróö því næst upp og
flutti margt laglega eins og sveit-
inni er lagið. Þó var hljóöstjórn
eitthvaö laus í böndunum og skilin
á milli hljóöfæra voru ákaflega
dauf. K.O.S. undirstrikaöi þarna
enn frekar að hún er í fremstu röö
íslenskra popp/rokk-sveita.
Jonee Jonee kom næst fram og
lék af fingrum fram lög af nýút-
kominni plötu sinni. Jonee Jonee
getur gert mun betur en þarna á
miðvikudag, og enn sem fyrr var
hljóðblöndunin þeim erfiður Ijár í
þúfu.
Járnsíöan hvarf af vettvangi áö-
ur en jam-session hófst í lokin.
Kom sú uppákoma til vegna þess
aö Q4U gekk óvænt úr skaftinu viö
meiðsli Óðins Guðbrandssonar.
Nýplata Þeys að koma út:
Onnur plata og tónleika-
ferð eru nú á döfinni
FJÓRÐA plata Þeysara í þeirri
mynd, sem hljómsveitin er nú í,
er væntanleg é næstu dögum.
Ber hún nafnið „Fourth Reich“,
eða fjórða ríkiö eins og það
myndi útleggjast á íslensku.
Að sögn Guðlaugs Óttarsson-
ar halda Þeysarar síðan utan um
miöjan október. Er förinni heitiö
til Noregs þar sem haldnir veröa
fernir tónleikar í Klúbbi 7 í Osló.
Þaðan liggur leiðin til Stokk-
hólms þar sem m.a. verður leikiö
á tónleikum, sem sjónvarpaö
verður beint. Auk þess eru fleiri
tónleikar inni í myndinni þarlend-
is. Frá Svíþjóö halda Þeysarar yf-
ir til Finnlands og troða upp á
mikilli rokkhátíð í Helsinki í lok
október.
Ekki er förinni þar með lokið.
Frá Helsinki verður snúið heim á
leið á ný. en með viðkomu bæði í
Kaupmannahöfn svo og lengra
stoppi í Englandi. í Kaupmanna-
höfn er ætlunín að halda a.m.k.
eina tónleika, auk þess sem
hljómsveitin hefur fullan hug á aö
taka þar upp efni á næstu plötu
sína. Standa vonir til að Tony
Coook komi þangaö og stýri
tökkunum.
Lokahnykkurinn verður síöan
hjá Engilsöxum. Hafa þegar veriö
ákveðnir nokkrir tónleikar í Eng-
•andi. Ekki liggja þó á hreinu
endanlegar dagsetningar, en
Þeysarar ættu aö verða tíöir
gestir á nokkrum þekktari klúbb-
um Lundúnaborgar.
Who að syngja
sitt síðasta?