Morgunblaðið - 07.10.1982, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 ^
6. leikvika — leikir 2. október 1982
Vinningsröð: 2XX — 1X1 — 111 — 111
1. vinningur: 12 réttir — kr. 100.950,00
5565(1/12, 1/11) 13260
2. vinningur: 11 réttir — kr. 3.328,00
1040 5585 14954+ 60348 80401+ 94447
1042 10312+ 19448 67067 93269 94449
1150 14859 21021+ 73856+ 93481 95994
3416 14922+ 60337 74239 94355 66482(2/11)+
Kærufrestur er til 25. október kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum og á skrif-
stofu Getrauna í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkaö, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla(+) veröa aö framvísa stofni eöa
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamióstöðinni - REYKJAVÍK
Chrysler- eigendur Qthimirí
Jöfur hf., Nýbýlavegi 2 Kópavogi, hefur tekið viö varahlutaþjónustu fyrir bandarískar Chrysler-bifreiðir frá og með 5. október 1982, þeim sem kunna aö eiga óafgreiddar sér pantanir er bent á aö snúa sér til varahlutadeildar okkar í síma 42600 til úrlausnar.
JÖFURhr I m
Nýbýtavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
5
slátur
í kassa
á aðeins
kr. 300,-
Allt dilkakjöt á
gamla verðinu
Opið:
til kl. 20.00 fimmtudag
til kl. 22.00 föstudag
til hádegis laugardag
HAGKAUP
Skeifunni15
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Indira Gandhi Maneka Gandhi
Persónulegur fjandskapur
tveggja kvenna getur haft
úrslitaþýðingu fyrir Indland
STJOKNMÁLAOLGA hefur vaxið í Indlandi síðsutu daga, í kjölfar vax-
andi persónulegrar óvildar tveggja kvenna, Indiru Gandhi forsætisráð-
hcrra og tengdadóttur hennar Mancku, ekkju Sanjay Gandhi. Um langa
hríð var reynt að láta líta svo út sem allt væri kyrrt á yfirborðinu og gert
lítið úr sögusögnum þess efnis, að fljótlega eftir lát Sanjay hefði Indira
hrugðið fæti fyrir áform Maneku um að taka við af eiginmanni sínum.
Maneka Gandhi stýrði vikuriti sem var gefið út í Delhi meðan Ilesai-
stjórnin var við völd. Hún var þá allt að þv: ein um að skjóta skildi fyrir
tengdamóður sína, en Desai-stjórnin sótti hart og títt að Indiru á þeim
árum, eins og alkunna er. Nú hefur sú ólga endanlega komið upp á
yfírborðið sem lengi hefur búið um sig. Og þótt segja megi að hún sé fyrst
og fremst vakin af persónulegum ágreiningi er af mörgu sýnt, að hún
kann að draga á eftir sér stórpólitískan dilk.
Hér er átt við handtökur sem
Indira Gandhi fyrirskipaði
á dögunum, rétt eftir að hún
kom úr opinberri heimsókn frá
Sovétríkjunum hvar henni var
hampað og iiossað meira en er-
lendum þjóðhöfðingja þar um
langar tíðir, að sögn frétta-
manna. Þessir fjórir sem voru
handteknir voru nánir sam-
starfsmenn Maneku Gandhi og
allir sömuleiðis fyrrverandi vin-
ir og samstarfsmenn bæði
Sanjay og raunar einnig Indiru.
Mennirnir eru ákærðir m.a. fyrir
morð, samsæri, þjófnað og
fleira. Meðal hinna föngnu er
Akbar Ahmed, sem var um
langa hríð traustur stuðnings-
maður Indiru Gandhi. Hann var
einn helzti skipuleggjandi og
ráðgjafi fyrir Sanjay, og sam-
taka þeirra sem Maneka hefur
nú tilkynnt að hún hafi breytt í
stjórnmálaflokk, annar er
Kalpnath Sonkar þingmaður
sem sagði sig úr Congressflokki
Indiru og gekk til liðs við
stjórnmálaflokk Maneku. J.N.
Mishra sá þriðji var áður hátt-
settur í embættismannakerfi
Indlands, og gegndi um hríð
ráðherrastöðu. Hann sagði af sér
þingmennsku á sínum tíma til að
gerast hægri hönd Sanjay og
hefur síðan verið handgenginn
Maneku og aðstoðað hana í að
skipuleggja baráttuna gegn
tengdamóðurinni.
Morðákæran sem minnst er á í
upphafi er rakin til dauðsfalls
sem er dularfullt og hefur aldrei
verið upplýst. Um var að tefla
lítt þekktan verkamann, Tikori
Singh, hann var stuðningsmaður
Sanjays. Atburðurinn gerðist í
kjördæmi Sanjays þann 19. sept.
Singh lézt tveimur dögum eftir
að hann á óútskýrðan hátt
flæktist inn í skothríð í grennd
við Gaurigunj gistiheimilið í
grennd við Amethi. Maneka og
hundruð stuðningsmanna Sanja-
ys höfðu farið þangað, að því er
sagt var til að tilkynna formlega
að þau myndu keppa við Raijv
Gandhi, eldri son Indiru Gandhi
í næstu þingkosningum sem eiga
að fara fram árið 1985. Tikori
Singh var sagður hafa slasast á
ökla, þegar skot hljóp af slysni
úr byssu, sem ekki hefur verið
skýrt frá hver bar.
I-'ögreglan handtók engan þá
og gerði ekkert í málinu, utan að
taka skýrslur af nokkrum sjón-
arvottum, og þeir hafa heldur
ekki verið nafngreindir. Tikori
Singh var fluttur til Lucknov á
sjúkrahús, en þangað var um 150
km leið. Hann lézt þar svo 21.
sept.
Þegar mennirnir fjórir voru
handteknir sagði lögreglan að
hún þyrfti að yfirheyra þá vegna
morðsins á Singh.
Maneka brást við hin versta
og efndi til blaðamannafundar í
skyndingu og bar ríkisstjórn
Indlands — undir forystu Indiru
— þeim sökum að með þessu
væri verið að reyna að murka
lífið úr flokki hennar og ekki
myndi henni koma á óvart, þótt
Indira gripi til þess ráðs að láta
handtaka sig, fyrir einhverjar
upplognar og tilbúnar sakir.
Hún fullyrti að Tikori Singh
hefði dáið vegna þess að neitað
var að taka við honum og veita
honum hjúkrun á sjúkrahúsum
bæja og borga við slysstaðinn og
að í Lucknov hefði ekki verið
hirt um að gefa honum blóð.
Maneka sagði að aðgerðirnar í
Uttar Pradesh endurspegluðu
kvíða lögreglunnar og stjórnar
fylkisins, sem hefði orðið fyrir
ýmsum áföllum þar eð ýmsir
fyrrverandi stuðningsmenn
hennar hefðu snúið baki við
henni og hallað sér að flokki
Maneku.
Eftir handtökurnar í fyrri
viku hefur verið ókyrrt víða um
land, einkum þó í Delhí. Mann-
fjöldi hefur margsinnis safnast
saman við heimili Maneku, ým-
ist til að votta henni hollustu eða
láta í ljós andúð á henni. Man-
eka staðhæfir að fundir sem
haldnir séu og beinist gegn
henni séu skipulagðir að undir-
lagi Indiru. Að dómi ýmissa
fréttaskýrenda og sérfræðinga
um indversk málefni er Indira
Gandhi orðin verulega óróleg
vegna þess meðbyrs sem Maneka
virðist fá, en stjórn hennar
sjálfrar Iiggur undir stöðugu
ámæli fyrir sinnuleysi og lítt
skörulegar aðgerðir til að bæta
innanlandsástandið. Auk þess
virðist Indira ekki lengur hafa
þau tök á sínu fólki sem fyrr.
Maneka hefur aflað sér samúðar
og nokkurs trausts. Hún sýnir
dirfsku og áræðni, sem Indverj-
ar kunna margir að meta og hún
hlúir að minningu Sanjays eig-
inmanns síns á þann hátt sem
höfðar til margra. Þá hefur það
vakið umtal að Raijv Gandhi,
erfingi ríkisins svo fremi Indira
fái að ráða, hefur tekið undir
gagnrýni móður sinnar á Man-
eku og er grunaður um að vera
potturinn og pannan í ýmsum
aðgerðum gegn mágkonu sinni,
sem ekki þykja honum sæmandi.
(Ileimildir m.a. Kconomi.st,
TIh‘ Daily Telegraph).