Morgunblaðið - 07.10.1982, Síða 30

Morgunblaðið - 07.10.1982, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 Á annað hundrað bækur frá Iðunni Hjá bókaútgáfunni Iðunni koma út í ár á annað hundrað bókatitlar sem er svipað og á síðasta ári, og er um að ræða: ljóðabækur, skáldsögur, frumsamdar og þýdd- ar, smásögur, fræðirit, bækur sögulegs efnis, handbækur, námsbækur, barna- og unglinga- bækur, frumsamdar og þýddar, og myndasögur fyrir börn. Eftirfar- andi er úr fréttatilkynningu Ið- unnar um útgáfuna: FRUMSAMIN SKÁLDRIT Anton Helgi Jónsson sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Vinur vors og blóma. Þetta er saga um ástir og örlög og fjall- ar um nokkra mánuði í lífi ungs manns í Reykjavík. Eftir Anton hafa áður komið út tvær Ijóða- bækur og hann vann einnig til fyrstu verðlauna í smásagnasam- keppni Vikunnar. Frá Auði Haralds kemur þriðja bókin: Ævintýri fyrir rosknar von- sviknar konur og eldri menn eða Hlustið þér á Mozart? Fjallar hún um 37 ára konu sem vaknar upp við það einn morgun að maðurinn er farinn í vinnuna og börnin í skólann og hún getur ráðstafað deginum fullkomlega eins og hana langar til. Njörður P. Njarðvík sendir frá sér sögulega skáldsögu: Dauða- menn. Hún er byggð á atburðum á sautjándu öld er tveir feðgar, Jón- ar á Kirkjubóli í Skutulsfirði, voru brenndir á báli fyrir galdra vegna ásakana séra Jóns Magnússonar þumlungs, en kunn er Píslarsaga hans þar sem hann lýsir galdra- ofsóknum feðganna á hendur sér. Hallærisplanið er fyrsta bók ungs höfundar, Páls Pálssonar. Hún segir frá lífi unglinga í Reykjavík samtímans. Ný Ijóðabók er væntanleg frá hendi Þorsteins frá Hamri. Nefn- ist hún Spjótalög á spegil. Kveður hér við nokkuð annan tón en í fyrri Ijóðabókum höfundar, ljóðin ef til vill persónulegri, segir í fréttatilkynningunni. Guðrún Svava Svavarsdóttir myndlistarmaður sendir frá sér sína fyrstu Ijóðabók: Þegar þú ert ekki, þar sem hún segir frá sam- bandi sínu og Þorsteins frá Hamri. Bókin er prýdd myndum eftir hana sjálfa. Eftir Sigurð Pálsson kemur út Ljóð vega gerð. Þetta er þriðja Ijóðabókin í trílógíunni um ljóð- vegina. Hinar fyrri voru: Ljóð vega salt og Ljóð vega menn. Ennfremur kemur út Ljóðasafn Hannesar Sigfússonar. Þetta er heildarútgáfa á Ijóðum Hannesar. Kjartan Guðjónsson myndskreyt- ir bókina. Þetta er fjórða bók í flokki Iðunnar með ljóðasöfnum meiriháttar samtíðarskálda. Áður eru komin út söfn eftir Hannes Pétursson, Stefán Hörð Grímsson og Sigfús Daðason. Væntanleg er ný bók frá Svövu Jakobsdóttur sem hefur að geyma nýjar áður óbirtar smásögur. Bók- in hefur ekki hlotið nafn. Frá Auði Haralds kemur þriðja bók- in: Ævintýri fyrir rosknar vonsvikn- ar konur og eldri menn eða Hlustið þér á Mozart. Þáttabók Hannesar Péturssonar hefur enn ekki hlotið nafn, en hún hefur m.a. að geyma þátt um síðustu daga Bólu-Hjálmars. Eftir Birgi Engilberts koma út þrír þættir sem væntanlega munu bera titilinn Andvökuskýrslurnar, en Birgir, sem er lærður leik- myndateiknari, hefur m.a. skrifað nokkur leikrit sem sýnd hafa verið í sjónvarpi og á sviði. ÖNNUR RIT FRUMSAMIN Eftir Hannes Pétursson koma út heimildaþættir sem ekki hafa enn hlotið nafn. Meðal efnis má nefna þátt um síðustu ævidaga Bólu- Hjálmars og annan um. móður hans. Ingólfur Margeirsson skráði í fyrra endurminningar Guðmundu Elíasdóttur, Lífsjátning, sú bók hefur nú verið prentuð í þrem út- gáfum og tilnefnd til bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs. Ing- ólfur er nú á ferðinni með nýja bók sem hann kallar Erlend andlit og ber undirtitilinn myndbrot af mannfólki. Fjórða bindi af Mánasilfri, úr- vali endurminninga sem Gils Guð- mundsson hefur tekið saman, kemur út í ár. Eftir Einar Braga kemur út Hrakfallabálkurinn — viðtöl við Plum kaupmann í Ólafsvík, sem var einn af síðustu verslunarstjórum konungsverslunarinnar og eftir að verslun í landinu var gefin frjáls árið 1786, var hann kaupmaður í Ólafsvík um árabil. Plum ritaði bækur, sem enn eru til í handriti, meðal annars verslunarsaga hans, sem Einar Bragi reisir frásögn sina á. Eftir Flosa Ólafsson kemur bók- in í kvosinni — æskuminningar og bersöglismál. Bókin er minn- ingabrot og hugleiðingar um lífið og tilveruna og sögusviðið er Kvosin í Reykjavík. Endurminningar koma út eftir Róbert Maitsland og er þetta hans fyrsta bók. í fréttatilkynningu Ið- unnar segir m.a.:„ Róbert er svo- Eftir Njörð P. Njarðvík kemur út söguleg skáldsaga um galdraofsókn- ir á sautjándu öld. Eftir Svövu Jakobsdóttur kemur út bók með áður óbirtum smásögum. kallað ástandsbarn, fæddur á stríðsárunum, móðir hans var ís- lensk en faðir hans bandarískur hermaður sem hvarf af landi brott mánuði eftir að Róbert fæddist 1943. Óhætt er að segja að hann hafi ekki farið troðnar slóðir í líf- inu.“ Á leið til annarra manna nefnist sönn frásögn um stúlku er fæddist mikið fötluð og var úrskurðuð vangefin. Eftir nær áratugarvist- un á Kópavogshælinu kemur í Ijós að í viðjum fatlaðs líkama bjó þroskaður hugur og var það fyrst og fremst fyrir þrautseigju og þol- inmæði skrásetjara bókarinnar, Trausta Ólafssonar kennara, að það uppgötvaðist að stúlkan var alls ekki vangefin. Brian Pilkington og Þórarinn Eldjárn senda frá sér bók um ís- lensku jólasveinana. Þetta er lýs- ing á lífi þeirra í nútíma og meðal efnis er viðtal við jólaköttinn, meðmæli frá nokkrum atvinnu- veitendum Gluggagægis, sjúk- dómsgreining frá sálfræðingi Hurðaskellis, auk þess vísur og kvæði, endurminningaþættir, lögregluskýrslur, sakaskrá o.m.fl. Þórarinn Eldjárn annast texta- hliðina en myndirnar gerir Brian Pilkington. ÞÝDDAR BÆKUR, SKÁLDSÖGUR OG FLEIRA Frásögn um margboðað morð heitir nýjasta bók Gabriel Garcia Marques sem kemur út í haust. Bók þessi kom fyrst út á frummál- inu nú í ár en Guðbergur Bergsson þýddi bókina úr spænsku eins og fyrri bækur höfundarins sem út hafa komið á íslensku. Önnur bók eftir suður-amerísk- an höfund kemur út í haust: Hinn ósýnilegi eftir Manuel Scorza en Iðunn hefur áður gefið út eftir sama höfund Rancas þorp á heljar- þröm. Þessi bók fjallar um baráttu indíána í Perú fyrir tilveru sinni og blóðbaðið sem því fylgir. Bókin greinir frá sönnum atburðum. Scorza hefur skrifað fimm binda skáldsagnaröð um þessa baráttu indíánanna við yfirboðara sína. Hinn ósýnilegi er annað bindið af þessum heimildaskáldsögum. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr spænsku. Lausnarorð er fyrsta bók Marie Cardinal sem út kemur á íslensku. Hún er fædd í Alsír en stundaði nám í París og lagði síðan stund á Spjótalög á spegli heitir ný Ijóðabók Þorsteins frá Hamri. Þórarinn Eldjárn er textahöfundur bókar um íslenzku jólasveinana og hefur Þórarinn m.a. tekið viðtal við jólaköttinn vegna útkomu bókarinn- ar. háskólakennslu í heimspeki. Á fertugsaldri tekur hún að þjást af sálsýki og þar kemur að hún gengst undir sálgreiningu sem m.a. greinir frá í þessari bók. Snjólaug Sveinsdóttir þýddi. Fyrsta bók bandarísku skáld- konunnar Anais Nin á íslensku kallast IJnaðsreitur og hefur að geyma þrettán gleðisögur. Guðrún Bachmann þýddi sögurnar. Ævisaga Elizabeth Taylor er væntanleg á íslensku í haust og er höfundur hennar Kitty Kelley. Bókin segir frá kvikmyndaferli hennar, sjö hjónaböndum, ástar- ævintýrum, veikindum, sorg og gleði. Elizabeth Taylor höfðaði mál til þess að stöðva útgáfu bók- arinnar en án árangurs. Ingibjörg Jónsdóttir þýddi. Á síðasta ári kom út hjá Iðunni Astarsaga aldarinnar eftir Mártu Tikkanen. Hún fjallaði eins og kunnugt er um hjónaband hennar og Henriks Tikkanen og ekki síst um drykkjuskap eiginmannsins. Henrik Tikkanen er kunnur höf- undur í Finnlandi og jafnframt þekktur myndlistarmaður. Hann hefur ritað endurminningar sínar í nokkrum bindum og kemur fyrsta bókin, Brenna, út á íslensku í haust í þýðingu Ólafs Jónssonar. Hrollvekjur er úrval þýddra hryllingssagna. Alfreð Flóki myndskreytir bókina. Meðal þýð- enda eru Þórbergur Þórðarson, Guðbergur Bergsson, Árni Björnsson og Úlfur Hjörvar. BARNA- OG UNGLINGABÆKUR Að venju gefur Iðunn út bækur fyrir börn og unglinga. Hér skal getið nokkurra. Gilitrutt, þjóðsagan kunna, kem- ur út í myndbúningi Brians FMlk- ington sem myndskreytti Astar- sögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Sú bók kom út í fyrra og hefur nú komið út á nokkrum erlendum tungumálum. Frumsamdar bækur eftir Magneu frá Kleifum, Kára Tryggvason og Ragnheiði Jóns- dóttur koma út og einnig koma út tvö ævintýri H.C. Andersen með litmyndum Ulf Löfgren og bækur eftir Svend Otto S. og Ole Lund Kirkegaard. Meðal höfunda ungl- ingabóka má nefna Jan Terlouw, Heildarútgáfa á Ijóðum Hannesar Sigfússonar er meðal útgáfubóka Ið- unnar. Ingólfur Margeirsson segir í bók frá sérstæðum persónum, sem hann hef- ur hitt á ferðalögum sínum erlendis. Bo Carpelan, Anke de Vries, E.W. Hildick og Erik Christian Hau- gaard. HANDBÆKUR, NÁMS BÆKUR OG FLEIRA Bók um Ijósmyndun kemur út: Taktu betri myndir eftir Michael Langford. Hún er sniðin við hæfi byrjenda jafnt sem lengra kom- inna. Hverju svarar læknirinn? í þýð- ingu Guðsteins Þengilssonar er nýkomin út en upplagið á þrotum og er ný útgáfa væntanleg fyrir jól. Ungbarnið — um þroska og um- önnun barna fyrstu tvö æviárin er leiðbeiningarrit með myndum eft- ir hjúkrunarfræðingana Maríu Heiðdal og Önnu Ólafsdóttur. Aðhlynning aldraðra eftir Sol- veigu Jóhannsdóttur er nýkomin út. Bíllinn eftir Guðna Karlsson er komin út í fjórðu útgáfu, breytt og aukin. Komin er önnur útgáfa á Lostæti með lítilli fyrirhöfn sem kom út í fyrra og nú koma tvær nýjar matreiðslubækur í sama flokki. Einnig koma tvær minni matreiðslubækur út með haustinu. Meðal nýrra námsbóka eru Ilönsk málfræði, Ritgerðabókin, Hreyfingarfræði, íþróttasálarfræði og endurskoðuð útgáfa af Straum- ar og stefnur í islenskum bókmennt- um frá 1550 eftir Heimi Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.