Morgunblaðið - 07.10.1982, Page 37

Morgunblaðið - 07.10.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 37 Minning: Þorbjörg Margrét Jóhannesdóttir greiðslumaður, kvæntur Jónu Guðmundsdóttur ljósmóður, Hall- grímur bóndi í Hvammi, kvæntur Sigurlaugu Fjólu Kristmundsdótt- ur, Sigurlaug Guðrún, gift séra Skarphéðni Péturssyni í Bjarna- nesi, en hann er látinn, Jón Auð- unn fv. bóndi á Marðarnúpi, kvæntur Þorbjörgu Þórarinsdótt- ur frá Dalvík, Ingibjörg, gift Þórði Guðmundssyni útgerðarmanni frá Gerðum í Garði, hún er látin, Þórhildur, gift Jóni ísberg sýslu- manni Húnvetninga, og Eggert en hann dó ungur. Guðjón hélt andlegri reisn sinni fram til hins síðasta, en Rósa var komin í annan heim, eins og sagt er um fólk sem varla veit af sér. Stundum rann þó upp fyrir henni ljós og þá þekkti hún sína nán- ustu. Guðjón var trúmaður. Dag- inn áður en hann dó spurði hann að vanda: „Hvernig líður Rósu? Hvernig er veðrið?" Guðjón hafði lengi sagt að hann dæi á undan Rósu. Og nú sagði hann án þess að bíða eftir svari um veðrið: „Þegar ég er dáinn, sem stutt er í, kalla ég á Rósu mína til mín“. Guðjón dó að morgni næsta dags. Þegar Rósu var sagt lát hans virtist hún skilja það. Hún opnaði aðeins augun, lokaði þeim aftur og andlit hennar varð enn fölara en áður. Eftir þetta var engum matarbita í hana komið. Hún andaðist þremur dög- um síðar. Þannig endaði ævi þess- ara hjóna með ást og umhyggju hvort fyrir öðru, eins og það hafði verið í gegnum lífið. Já dalurinn var fallegur þennan dag. Og þegar kistur þeirra voru bornar úr kirkju til grafar, Rósu á undan af sex stúlkum, barnabörn- um hennar sem flestar báru nafn hennar — og Guðjóns á eftir af sonum, tengdasyni og frændum, reis minning þeirra hjóna hæst eins og tindar fjallanna. Guðlaugur Guðmundsson 25. september var Margrét Jó- hannesdóttir jarðsungin frá Hjarðarholtskirkju í Laxárdal í Dölum í björtu og fögru veðri og var jarðsett við hlið foreldra sinna, en þau létust bæði 1954. Magga, eins og hún var ávallt köll- uð af vinum og frændfólki, var fædd að Saurum í Laxárdal 15.9. 1919, dóttir hjónanna Jófríðar Guðbrandsdóttur og Jóhannesar Benediktssonar. Þar ólst hún upp ásamt þremur bræðrum sínum og gekk þar að allri vinnu jafnt úti sem inni. Um þrítugsaldur kemur hún hingað til Reykjavíkur og fer að vinna hért bæði við húshjálp og saumaskap. I mörg ár vann hún á saumastofu Andrésar Andrésson- ar klæðskera. Magga var sérlega vandvirk og samviskusöm og lét enga flík frá sér fara nema vera viss um að ekki væri hægt að gera betur, og svo var um allt sem hún tók sér fyrir hendur. Það liggur eftir hana mikil handavinna og eru ótaldir dúkarnir sem hún heklaði og gaf vinum og kunningj- um, eða þá vettlingar og hosur sem hún prjónaði til að gefa smá- fólkinu. Seinustu árin vann Magga á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Þar dvaldi móðir mín um tíma þar til hún lézt 1981, og vil ég þakka Möggu alla þá tryggð og elskulegheit sem hún sýndi henni. Oft leit hún inn til hennar og var þá jafnan brugðið á glens og gam- an, sem þær áttu báðar svo létt með. Ég man vel er ég sá Möggu fyrst, er ég kom í sumarfríi á heimili foreldra hennar 1947 með eiginmanni og nokkurra mánaða dóttur okkar, og var mér einstak- lega vel tekið af hæglátum og góð- um foreldrum hennar. En Jóhann- es faðir hennar var bróðir tengda- móður minnar og var Egill í sveit á þessu heimili í mörg sumur. Þeg- ar Magga flytur hingað 1951 hefst okkar kunningsskapur. Hún bjó þá í nágrenni við okkur og kom því oft í heimsókn. Var þá margt rætt og því meira hlegið. Þurfti ekki mikið tilefni til að við fengju hlát- ursköst, því að þó Magga væri hæglát og dul í lund, átti hún gott með að sjá broslegu hliðarnar á hlutunum, en allt í græskulausu gamni. Magga giftist ekki og eignaðist ekki börn, en hún var sérlega barngóð og fóru dætur okkar Egils ekki varhluta af því. Alla tíð hefur hún verið þeim einstaklega góð og alltaf var jafn gaman að fá Möggu í heimsókn. Hún gaf sér líka tíma til að leika og tala við þær þegar þær voru litlar og hændust þær allar að henni. Alltaf fylgdist hún með velferð þeirra gegnum árin, og þegar þær voru uppkomnar og sjálfar komnar með börn, fengu þau líka að njóta blíðu hennar. Engu afmæli var gleymt, alltaf var komið með gjöf. Hún var allt- af hjá okkur þegar fjölskyldan kom saman, alltaf ein af okkur, enda tengdist hún skyldfólki mínu og vinum vináttuböndum, og þá sérstaklega Dúu systur minni. Við þrjár áttum saman margar góðar og óglevmanlegar stundir. Síðan 1954 var hún hjá okkur á hverjum jólum. Hún naut þess að fá að vera með börnunum og sjá þau gleðjast á hátíðarstundu. Ekki sat hún auðum höndum, heldur tók hún þátt í öllum heim- ilisstörfum með mér. Það verður tómlegra hér á Hrísateignum næstu jól, þegar hún verður ekki lengur með okkur. Á hverju sumri fór Magga vestur í Dali og dvaldi þá á Saurum, þar sem tveir bræð- ur hennar eiga heima, en einn býr nú hér í Reykjavík. Bræðrabörnin voru henni kær og fylgdist hún vel með þeim og börnum þeirra, ekki síst litlu telp- unum hennar Jófríðar, og fór hún margar ferðir til þeirra. Þó að Magga gengi ekki heil til skógar seinustu árin kom andlát hennar mjög á óvart, og hefði mér síst dottið í hug er ég sá hana seinast, að eftir nokkra daga ætti ég eftir að bera kistuna hennar úr kirkju. En svona er hverfulleiki lífsins. Nú þakka ég fyrir að hún fékk að kveðja þennan heim þegar séð varð, að hún fengi ekki bata eftir stóra aðgerð, sem hún fór í að kvöldi 12. september. Hún lést svo á gjörgæsludeild Borgarspítalans þann 15. september á 63 ára af- mælisdaginn sinn. Við hjónin, dætur, tengdasonur og barnabörn þökkum henni samfylgdina gegn- um árin. Það er margs að minnast og margt að þakka, því að gott fólk skilur eftir góðar minningar. Ég sendi bræðrum hennar og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðjur. Erla Sigurjónsdóttir Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. í Sigtúni í kvöld kl. 20.30 Stjórnandi Ragnar Bjarnason Spilaðar verða 15 umferðir Verömæti allt aö 160 þús. kr. Húsiö opnar kl. 19.30 Allir velunnarar þeirra eru hvattir til að mæta Topp vinningar frá GROHE Hver ekur heim á glænýjum SUZUKI Knattspyrnuráð Akraness

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.