Morgunblaðið - 07.10.1982, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982
39
félk í
fréttum
Elena Balovlenkov
væntir annars barns
+ Elena Balovlenkov, bandarísk hjúkrunarkona, sem flaug tvisvar til Moskvu í sumar til að reyna að hafa áhrif
á sovésk stjórnvöld varðandi vegabréfsáritun fyrir þarlendan eiginmann sinn, væntir nú síns annars barns.
Yuri Balovlenkov, sem er 33 ára gamall tölvusérfræðingur fór í tvö hungurverkföll í sumar til að reyna
að fá vegabréfsáritun til að geta farið til eiginkonu sinnar og dóttur í Baltimore, en hefur þráfaldlega
verið synjað.
Frú Balovlenkov, 29 ára að aldri, segir að lítill árangur hafi náðst í málum eiginmanns síns. Einu
svörin sem fáist séu þannig, að hann fái vegabréfsáritun í fyrsta lagi eftir nokkra mánuði og í síðasa lagi
árið 1985. Þegar hún var í Moskvu fyrr í sumar fékk hún eiginmann sinn til að láta af hungurverkfalli
sínu með þvi að segja honum að hann fengi vegabréfsáritunina langþráðu ef hann hætti föstunni. Síðan
þá segir hún að hann hafi lofað því að halda sér gangandi fyrir sig og dótturina Katrínu, sem hann hefur
aðeins einu sinni séð þangað til allt sé í höfn.
Naney Reagan í góðra vina hópi.
Nancy Reagan
gefur út bók
-t Nancy Reagan, eiginkona Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta,
stendur í ströngu ekki siður en hann í kosningabaráttunni, en hún
leiðir hugann frá þeim bardaga að sínum eigin sem felst í þvi að auglýsa
og selja nýja bók er hún hefur ritað og nefnist „Að elska barn“.
Meðan að Ronald Reagan er á stöðugu flakki til að tryggja sér
atkvæði flokksbræðra sinna fyrir kosningarnar er fara fram í
nóvember næstkomandi, hefur eiginkona hans notað allan mánuð-
inn í kynningu á þessari nýju bók sinni, en hún kemur á markað
þann 1. nóvember næstkomandi.
Hápunktur auglýsingaherferðarinnar verður siðan þann 19. nóv-
ember, þegar Frank Sinatra verður gestur forsetafrúarinnar sem
tekur á móti 600 ömmum og öfum ásamt barnabörnum þeirra í
hádegisverðarboði, en boðskapur í bók Nancyar er sá að börnum sé
veitt hlýja og þau sem ekki njóti hennar heima við fái hana hjá
„fósturafa" og „fósturömmu". Hér er átt við hóp fólks sem tekur að
sér að hlúa að börnum er alið hafa aldur sin á stofnunum. Þetta
fólk fær tvo dollara á tímann fyrir þetta góðverk og vinnutíminn er
tuttugu tímar á viku ...
COSPER
Nýr ráðgjafi
hjá Chanel...
+ Gsbrielle (('oco) ('hanel myndi
að öllum líkindum snúa sér við i
gröfinni ef hún vissi að framúr-
stefnuhönnuðurinn Karl Lagerfeld
mun verða næsti aðalráðgjafi
tískuhússins ('hanel, en að athug-
uðu máli myndi hún sennilega
verða sátt við tilhugsunina þar sem
hann er ekki síðri „sköpunarmað-
ur“ en hún var á sínum tíma ...
Lagerfeld sem hefur oft á tíð-
um fengið fólk til að standa á
öndinni af hneykslan eða undran
er hann hefur komið fram með
nýjungar sínar, hefur um langa
hríð verið þekktur fyrir hug-
kvæmni, en hann mun starfa
jafnt fyrir tískuhús Chanel og
Chloé, þar sem hann hefur unnið
um nokkurt skeið.
Fröken Chanel lést árið 1971
eftir að hafa rekið tískuhús sitt
með miklum blóma allt frá því í
fyrri heimsstyrjöldinni og hefur
stíll sá er hún mótaði haldist,
þrátt fyrir andlát hennar og ver-
ið fylgt eftir af dyggum sam-
starfsmönnum hennar allt þar
til nú, að fengið hefur verið nýtt
blóð í fyrirtækið.
Margrét Thatcher
hefur rétt fyrir sér:
Viö sofum
of mikið ...
+ Margrét Thatcher upplýsti það
fyrir skömmu, að hún þarfnaðist
aðeins fjögurra til fimm klukku-
stunda svefns á nóttu til að hafa
fullt starfsþrek. Þetta kom mörg-
um á óvart sem hafa það fyrir sið
að kúra minnst átta tíma á nóttu ef
ekki er um að ræða einhverja trufl-
un, en læknar í Bretlandi hafa
opnað umræður um þennan þátt í
mannlegu fari í kjölfar fullyrðingar
forsætisráðherrans.
Dr Jim Horne, sem kannað
hefur svefnvenjur undanfarin ár
segir að Márgrét Thatcher hafi
fullkomlega rétt fyrir sér í þessu
atriði ... við hin séum að eyða
tíma okkar til einskis. Fjögurra
til fimm klukkustunda svefn er
allt sem við þurfum til að hvíla
heilann og líkamann sagði hann
á ráðstefnu varðandi þessi mál í
síðastliðinni viku. Aukatíminn
sem okkur er tamt að eyða í
svefn, er arfleifð frá þeim tíma
er fólk notaði svefninn til að
drepa tímann og losna við leið-
indi ...
oKum
upp
á myndbönd:
Fræösluefni, viötalsþættir, kynningar á félags-
starfsemi og fyrirtækjum o.m.fl. Klippum og lögum
efniö til sýningar. Fjölföldun fyrir öll kerfin.
Fullkominn tækjabúnaöur.
Myndsjá
S: 11777
Já, þaö er von
þú hváir.
En líttu á: Við bjóöum
upp á meira
en 500 titla!
Það gerirsamtals
50.493 mín. dagskrá.
Fyrir
VHS, BETA og 2000.
Opiö
frá kl.12.00-21.00
virka daga.
12.00 —18.00 laugardaga.
Lokað á sunnudögum.
VIDEOMIDSTÖOIN
Laugavegi 27 — Síml 14415