Morgunblaðið - 07.10.1982, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982
Frá SelfosKÍ. „I>að fólk, sem harðast
hefur gengið fram á opinberum
vcttvangi til að mótmæla veru þeirra
(fanganna) hér, hefur ávallt þóst
mæla fyrir munn margra, en felur
sig þó bak við dulnefni. Finnst mér
þvi mál til komið að hinir, sem
sjálfsagt eru ekki færri, láti í sér
heyra. Skrif huldufólksins hafa ein-
kennst af þröngsýni og fordómum
og finnst mér ótækt að það birti
skoðanir sínar sem almannaróm
hér.“
má gltzýxx á. eins mi kié cxf glazpa-
Og ofbeldisrr>yndurr, oo, noig lystif, Suo
|eo9» sem fólk erekki berrassab. "
Ast er ...
... að vona að það
verði tvíburar.
TM Rag U S Pat 0«t aK rights rcservMt
• 19«? Los Angetes Times Syndicale
Fyrst þú kemst ekki út,
hvernig fórstu að þvi að kom-
ast inn?
Skiptu þér ekki af honum,
þetta er montrass!
HÖGNI HREKKVÍSI
1 *■'* ® McNaught Syndicata, Inc.
L tíí (
Fangarnir hafa reynst
traustsins verðir
Kristín iHirarinsdóttir, Selfossi
skrifar 30. september:
„Miklu moldviðri hefur verið
þyrlað hér upp að undanförnu
vegna fanga af Litla-Mrauni, sem
hafa fengið að stunda nám við
Kjölbrautaskólann á Selfossi. Það
fólk sem harðast hefur gengið
fram á opinberum vettvangi til að
mótmæla veru þeirra hér, hefur
ávallt þóst mæla fyrir munn
margra, en felur sig þó bak við
dulnefni. Finnst mér því mál til
komið að hinir, sem sjálfsagt eru
ekki færri, láti frá sér heyra. Skrif
huldufólksins hafa einkennst af
þröngsýni og fordómum og finnst
mér ótækt að það birti skoðanir
sínar sem almannaróm hér. Fjarri
fer því að þeir sem ég umgengst
hafi sama þankagang og hitti ég
þó marga sem málið þekkja af eig-
in raun, þar sem ég sjálf stunda
nám bæði við öldungadeild og
dagskóla Fjölbrautaskólans og á
fjóra unglinga, sem allir stunda
nám hér við skólann.
í Velvakanda 28. sept. birtist
bréf frá nafnlausum Selfyssingi
sem telur sig svo syndlausan að
hann hafi efni á að kasta fyrsta
steininum. Þær dylgjur, sem hann
hefur í frammi til að afsaka leynd
sína eru svo sóðalegar, að ég get
ekki látið hjá líða að benda honum
á, að til eru ódæðisverk sem unnin
eru á sálarlífi manna sem síst eru
betri líkamsmeiðingum, þótt erf-
iðara sé að koma dómum yfir þá
sakamenn er slíka verknaði
fremja. Þeir ganga frjálsir á með-
al okkar og vega sín fórnarlömb
einmitt úr launsátri. Ég verð að
játa að slíka ógæfumenn óttast ég
meira en fangana frá Litla-
Hrauni sem með mér sitja í
kennslustundum. Það hlýtur að
Þessir hringdu . . .
Fyrirspurn til
V erdlagsstofnunar
„Neytandi" hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
— Svoleiðis er að söluskáli á
Akranesi selur innihald lítra-
flösku af kók á kr. 20 dags dag-
lega, en í nætursölu á kr. 40. Mig
langar til þess að fá svar Verð-
lagsstofnunar við því, hvort þetta
sé innan leyfilegra álagningar-
marka eða ekki. Og ef svo er ekki:
Hvers vegna er það þá látið við-
gangast?
Hvað med Hans
og Grétu og
Rauðhettu og
úlfinn?
Baldvin Baldvinsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar að beina þeirri fyrirspurn
til Svanlaugar Löve og Kattavina-
félagsins, hvort þau vilji ekki láta
banna hin alkunnu ævintýri Hans
og Grétu, þar sem börnin eru svelt
og til stendur að borða Hans, en
kerlingunni er stungið í ofninn, að
maður nú tali ekki um Rauðhettu
og úlfinn, þar sem úlfurinn étur
gömlu konuna ofan á allt annað.
Er ekki meira ofbeldi í sögum eins
og þessum en er að finna hjá
Tomma og Jenna? En hvar eigum
við svo að láta staðar numið í
bannfæringunum?
Hvert er Helga
að fara?
Klín Siggcirsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég
vil taka undir gagnrýni Árna
Þorsteinssonar í Velvakanda 1.
okt. þar sem hann deilir á mál-
flutning Helgu Sigurjónsdóttur í
útvarpinu sunnudaginn 26.
september. Jafnrétti hlýtur að
vera mál beggja kynja, ekki bara
kvenna. Helga hlýtur að verða að
skýra miklu betur en hún hefur
gert hvað hún er að fara.
Lækka á
aldursmörkin
niður í 16 ár
E„SL hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Hvers vegna er
tuttugu ára aldurstakmark inn á
almenna dansleiki, jafnvel þar
sem ekki eru vínveitingar, eins og
á gömlu dönsunum? Fyrir nokkru
síðan var auglýst rokkhátíð á Hót-
el Borg, en tekið fram að inngang-
ur væri takmarkaður við tvítugs-
aldurinn. Er betra að láta ungl-
ingana híma fyrir utan dansstað-
ina í þeirri von að þeim takist með
einhverju móti að svindla sér inn
eða horfa upp á þá drekka sig
ofurölvi og þeyta flöskubrotum
um allt og valda alls kyns spjöll-
um? Það ætti að lækka aldurs-
takmörkin allt niður í 16 ár og
leyfa ungum og öldnum að
skemmta sér saman. Ég skora á
þá, sem setja svona fáránlegar
reglur, að hugsa eitthvað nánar út
í þetta.
Slæmt athug-
unarleysi
„Vinur aldraðra“ hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — I
dag (þriðjudag) kl. 11.30 er í hljóð-
varpinu þáttur um málefni aldr-
aðra; Lífsgleði njóttu heitir hann.
Það er auðséð að tímasetning
þessa þáttar er ákveðin af aðila
sem t.d. þekkir ekki til á dvalar-
heimilum fyrir aldraða, því að þar
er þetta víða matartími og lítið
næði til hlustunar. Nær hefði ver-
ið að hafa þáttinn kl. 11.00 en færa
tónlistarþáttinn sem þá átti að
vera, Islenskir einsöngvarar og
kórar, til kl. 11.30. Þetta var
slæmt athugunarleysi.
Sjálfselskustu dýr
undir sólinni
Stefán Guðbjartsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mér
finnst þessi mótmæli Kattavinafé-
lagsins við sýningum á teikni-
myndaflokknum um Tomma og
Jenna fávíslegri en orð fá lýst. Og
formaður félagsins bætir gráu
ofan á svart með því að vitna í
einhver enn vitlausari ummæli
þess efnis að kettir veitist aldrei
að neinum að fyrra bragði og megi
mannfólkið taka þá sér til fyrir-
myndar. Sjálfsagt er flestum eins
farið og mér, að kunna mýmörg
dæmi um það að kettir ráðist á
fólk að ástæðulausu, jafnvel unga-
börn í barnavögnum. Ég get t.d.
nefnt það að tengdamóðir mín,