Morgunblaðið - 10.10.1982, Síða 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1982
... nýjar plötur ...
Yazoo/ Upstairs
at Eric’s:
Þrusugott
tölvupopp
★ ★★★
J’m a one man band“ söng
Leo Sayer fyrir tæpum áratug
eða svo. Ekki veit ég hvort
hann hetur verið framsýnn
maöur mjög en víst er að þess
verður vart langt aö biða úr
þessu aö einhver einn troði
upp á sviöi, hlaöinn hljóögervl-
um og trommuheilum.
Brezki dúettinn Yazoo
kemst býsna nærri þessu
takmarki. Þótt tölvutónlistin
geti á stundum verið óskap-
lega kuldaleg og fráhrindandi
er hún þaö ekki í þessu tilviki
því rödd Alison Moyet er á
kðflum frábær og á allan hátt
mannlegri og líkari því er menn
áttu að venjast fyrir 10 árum
þegar Leo Sayer söng lag sitt.
Hinn helmingur dúettsins er
Vince Clarke, sem eitt sinn var
í Depeche Mode. Þaö er ekki
hægt að segja annaö en hann
skili stnu af stakri prýöi, rétt
eins og Depeche Mode gerði.
Reyndar eru áhrifin þaöan
greinileg, enda e.t.v. ekki aö
furða.
Plata Yazoo, Upstairs at Er-
ic’s, er einhver sú besta sem
ég hef heyrt lengí á þessari
línu. Mörg laganna hafa mjög
gott „dancebeat“ og ganga
þess vegna vel í almúgann. Eg
fer ekki leynt með þaö, aö sum
laganna létu meira aö segja vel
i mínum eyrum, jafnvel þótt
stundum sé ekki langt yfir í
hreinræktaöan dískótakt.
Lögín Don’t go, Bad conn-
ections, Only yOu og Bring
your love down eru öll þræl-
skemmtileg af þessari tegund
tónlistar aö vera og nokkur
hinna koma skammt á eftir.
Þetta er umfram allt heilsteypt
plata og mjög jafnsterk í gegn.
Imagination/ In the
heat of the night:
Almáttugur
en sú mæða
■k
Ég hef aldrei veriö mikiö
gefinn fyrir soul/fönk tónlist,
en ekki bætir úr skák þegar
hún er flutt á hálfum hraöa.
Plata Imagination, breska
blökkutríósins, er vafalítiö
ágæt til síns brúks, en bara
ekki fyrir mig. Þá vekur þaö
athygli aö tveir bleikskinnar
semja öll lögin í samvinnu við
þá þeldökku.
Á þessari plötu eru þrjú lög,
sem vafalítið eiga eftir aö
glymja í Hollywood (í Ármúlan-
um) á næstu vikum. Þetta er
þannig plata.
Donna Summer/
Donna Summer
Ó, þetta er
svo þreytt
★
Byrjunin á þessari plötu er
nokkuö sannfærandi og lagiö
Protection eftir Bruce
Springsteen kemur vel út.
Annaö er þaö ekki, svei mér
þá. Donna Summer er gikkföst
í diskóinu, rétt eins og í ár væri
ennþá 1977.
Þaö vantar ekki, Donna
Summer getur sungið prýöi-
lega. En aö hún skuli ekki rífa
sigi L’PJ? úr Þessari diskóör-
deyöu er óskiljanlegt möC C.M"
Þessi Goombay Dance
Band/Boney M-lykt af sumum
laganna er ægileg.
... nýjar plötur ...
Ringo Starr á maöan hann var
ungur og swtur.
Plata Egó hljóöblönduö
í stúdíói Ringo Starr
Tómas Tómasson og Louis Austin utan í vikunni meö spólurnar
Upptökum á annarri
breiöskífu Egósins lauk núna í
byrjun vikunnar. Ef marka má
það efni, sem umsjónarmaður
Járnsíöunnar fékk aö heyra
væri ekki fjarri lagi aö nefna
plötuna „Breyttir tímar — ll“,
avo mikil breyting er á tónlist-
inni frá fyrstu plötunni.
Þaö voru þeir Tómas Tóm-
asson — „takkatommi" — og
Louis Austin, sem stjórnuöu
upptökum á plötunni. Tómas er
Islendingum aö góöu kunnur,
en Austin þessi hefur getiö sér
afbragðs gott orö, sem
upptökumaöur m.a. hjá Judas
Priest, svo eitthvaö sé nefnt.
Hefur hann stýrt upptökum á
þremur síöustu plötum Judas
Priest.
Þeir Tómas og Louis fara til
Englands nú í vikulokin og
halda rakleiöis til stúdíós nokk-
urs í Ascot þar sem platan
veröur hljóöblönduö, „mixuö“.
Stúdíó þetta er í eigu fyrrum
Bítilsins Ringo Starr og er á
landareign hans í Ascot. Ef
heppnin er meö er aldrei aö
vita nema Járnsíðan skjóti þar
upp kollinum sem snöggvast.
Tveir grjótharðir
ganga í eina sæng
Way úr UFO og Clarke úr Motorhead
leggja hausinn í bleyti
Viö skýröum frá þvf hér á
Járnsíðunni fyrir nokkru og þaö
Skemmt-
anir
Upp og
ofan
Eélagsskapurinn Upp og
ofan gengst fyrir tveimur
skemmtunum í Félagsstofnun
stúdenta um helgina. Aö sögn
aöstandenda skemmtunarinn-
ar er tilgangurinn fyrst og
fremst sá að halda lífinu í fólki
(ekki ógöfugt markmiö
atarna, innsk. - SSv.).
Fyrri skemmtunin verður á
föstudagskvöld og hin síöari á
laugardagskvöld. Fjöldi lista-
manna treöur þarna upp. Má
þar nefna fremsta í flokki Þey
og Jonee Jonee, Vonbrigöi og
Vébandiö, Þór Eldon, Einar Örn
(úr Purrkinum ef einhver skyldi
hafa gleymt því) og sjálfan
Magnús í hvalnum.
Farið verður fram á sem
svarar 80 krónum íslenskum
fyrir inngöngu hvort kvöld, en
hægt er aö kaupa miða, sem
gilda fyrir bæöi kvöldin, á kr.
120. Veruleg kjarabót þar á
ferö.
Skemmtanir þessar veröa
frá kl. 21 til 23.30 hvort kvöld
og veröur húsiö opnaö gestum
kl. 20, þannig aö vilji menn vera
fyrr á feröinni er hreint ekkert,
sem mælir gegn því aö fólk tylli
sér inn nokkru áöur en uppá-
komur hefjast.
meira að segja í tvígang, að
samvinna þeirra Pete Way,
bassaleikara UFO, og „Fast“
Eddie Clarke úr Mótorhead
stæöi fyrir dyrum.
Þeir félagar hafa nú gengiö í
eina sæng ef oröa má svo, en eru
þessa dagana á höttum eftir liö-
tækum trommara og söngvara.
Upphaflega var Topper Headon
úr Clash inni í myndinni, en datt
út fljótlega. Segist hann vera aö
leita aö einhverju „djassaðra".
„Viö höfum ekki áhuga á, aö
bjóöa upp á eitthvaö, sem allir
hafa heyrt áöur," segir Pete Way.
„Viö viljum helst finna einhverja
nýja óþekkta menn, t.d. í anda
Plant og Bonham". „Þetta veröur
ekki hljómsveit í anda UFO og
Motorhead," segir Clarke.
Ástæöuna fyrir því aö hann
hætti í UFO eftir áratugadvöl þar
segir Way fyrst og fremst hafa
veriö þá, að hljómsveitin hafi ver-
iö oröin allt of „soft" og upptekin
viö aö þóknast nýjum aödáend-
um í staö þess aö gera vel viö þá
aödáendur sem viö höfum þegar.
Um brottför sína frá Motor-
head segir Clarke, aö þaö hafi
lengi staöíö til. Ævintýriö hjá
þeim Lemmy og Wendy O’Willi-
ams þegar þau tóku upp „Stand
by your man" hafi aöeins fyllt
mælinn.
poppfréttir
Vantar ekki nýtt blóö í breska poppinu:
Þeysarar á meöan sveitin var bara ung og efnileg.
Þaö er ekki eitt heldur allt í
breska poppheiminum. Eitt lag-
anna á vinsældalistanum
breska heitir „Pass the
Dutchie" og er flutt af hljóm-
sveitinni Musical Youth. í sjálfu
sér er ekkert viö þetta aö at-
huga ef ekki kæmi þar til meö-
Skýringin er
komin í Ijós
Þaö er oröiö nokkuö langt um
liöiö frá þvi skýrt var frá því á
Járnsíöunni (en ekki hvar?) aö
samband breskra hljóöfæraleik-
ara thugaöi aö fá bann á hljóö-
gervla. Ekki vitum við lyktir máls-
ins oy vissum á sínum tíma ekki
hvaö kom því af staö. Sfcýringin
er nú fundin.
Barry Manilow kom til Eng-
lands í tónleikaferö í fyrra. Haföi
meö sér sveit 50 manna til undir-
leiks. I ár kom hann aftur og þá
meö 5 hljóögervlapilta meöferö-
is. Hann haföi ekkert við hina 45
lengur aö gera.
alaldur hljómsveitarmeölim-
anna sem er ekki nema 13 ár.
Ótrúlegt en satt. Þaö vantar svo
sannarlega ekki nýtt blóö í
poppið hjá þeim í Bretlandi.
Lag þetta, sem fimmmenning-
arnir svörtu frá Birmingham hafa
fest á plötu er gamall reggae-
slagari frá árinu 1968 og hefur
svo sannarlega gert þaö gott. Á
aðeins 9 dögum seldust 500.000
plötur meö þessu lagi og fáar
plötur geta státaö af slíkri sölu.
„Ég vissi þetta um leið og ég
heyröi í strákunum," sagöi um-
boösmaöur þeirra í stuttu spjalli
við AP-fréttastofuna fyrir
skemmstu. „Ég var allan tímann
viss um aö þeir myndu slá i gegn,
en bjóst kannski ekki viö því al-
veg svona strax. Nú ætlum viö aö
undirbúa tónleikaferöalag um
England þvert og endilangt og
siöan veröur fariö úí í gsrö stórr-
ar plötu."
Vantar ekki gorgeirinn í umb-
ann, en strákarnir sjálfir í hljóm-
sveitinni eru heldur hógværari.
Gítarleikarinn er 11 ára gamall
og 13 ára bróöir hans leikur á
hljómborö. „Viö gáfum einu sinni
út plötu, en enginn keypti hana.
Þess vegna áttum viö ekki von á
aö svona vel gengi núna, þótt
auövitaö höfum viö veriö bjart-
sýnir innst inni.“
Lagið þeirra fimmmenning-
anna, sem hittust fyrst á
unglingamiðstöö í Birmingham,
tók undir sig mikiö stökk i síö-
ustu viku, hoppaöi úr 24. sæti í
þaö 7. á vinsældalistanum.
Kannski er þaö komið enn hærra
núna, hver veit? Þaö viröist allt
vera hægt í breska poppheimin-
um.
Way og Clarke skrifa undir
samning sín á milli.
Smápattar slá í gegn
meö gömlu reggae-lagi