Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
Forsætisráðherra biður stjórnarandstöðuna um viðræður:
Stjórnarliðum ber ekki saman,
umræðugrundvöllur því óljós
— segja Geir Hallgrímsson og Kjartan Jóhannsson, formenn stjórnarandstöðuflokkanna
Forsætisráðherra, Gunnar Thor-
oddsen, hafrti samband við formenn
stjornarandstöðuflokkanna, Geir
Mallgrímsson og Kjartan Jóhanns-
son, í gær og bað þá að koma til
fundar við þriggja manna ráðherra-
nefnd hans, Steingríms Hermanns-
sonar og Svavars Gestssonar árdegis
á mánudag. Forsætisráðherra upp-
lýsti ekki hver hin „tilteknu, af-
mörkuðu mál“, sem rikisstjórnin
ákvað á fundi sínum i fyrradag að
ræða við stjórnarandstöðuna, yrðu,
en væntanlega verða bráðabirgða-
lögin og fylgifrumvörp þess þar efst
á lista, en forsætisráðherra hefur
lýst sig andvígan umræðu um þing-
rof og nýjar kosningar, sem þing-
Akureyri:
Innbrot í
Akurcyri, 15. október.
INNBROT var framið í nótt í Systra-
sel, þar sem verið er að Ijúka inn-
réttingu hjúkrunarheimilis fyrir
langlegusjúklinga.
Þar var stolið miklu af alls kon-
ar smíðatólum og áhöldum og
voru tæki þessi einkum í eigu
tveggja smiða, sem eru starfs-
flokkur Alþýðubandalagsins hefur
ályktað um að rætt verði. Ráðherra-
nefndin kom saman i gærmorgun og
var þar ákveðið að boða stjórnar-
andstöðuna til áðurnefnds fundar.
„Það er engan veginn ljóst hvert
umræðuefnið verður. I viðtölum
við Svavar Gestsson annars vegar
og Steingrím Hermannsson hins
vegar og af samþykktum þing-
flokka þeirra er ljóst að þeim ber
ekki saman og því er ekki unnt að
spá í á hvaða grundvelli þetta við-
tal mun eiga sér stað,“ sagði Geir
Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins í tilefni þessa.
Hann sagði einnig: „Þá finnst mér
Systrasel
menn trésmiðjunnar Reynis hf.
Smíðatólin eru mjög mikils virði
og tjón smiðanna því mikið. Ekki
hefur enn tekizt að ljóstra upp um
þjófana, en unnið er ákaft að
rannsókn málsins.
Sv.R
rétt að minna á að þingflokks-
fundur sjálfstæðismanna mót-
mælti hráðabirgðalögunum strax
og þau voru gefin út fyrir tveimur
mánuðum. Hann krafðist þess þá
að þing yrði samstundis kallað
saman og þar fjallað um brýnustu
úrlausnarefnin, þing yrði síðan
rofið og efnt til kosninga, þannig
að unnt yrði að takast á við hin
brýnu úrlausnarefni. Ríkisstjórn-
in og ráðherranefndin eru því
nokkuð seint á ferðinni."
„Eins og komið hefur fram áður
erum við Alþýðuflokksmenn að
sjálfsögðu reiðubúnir að ræða
stöðu rnála," sagði Kjartan Jó-
hannsson formaður Alþýðuflokks-
ins. „Yfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar eru ósamhljóða þannig að
það verður ekki af þeim ráðið
hvaða óskir ríkisstjórnin hefur
fram að færa. Það má skilja yfir-
lýsingar þingflokks Alþýðubanda-
lagsins þannig að hann vilji að
ríkisstjórnin segi af sér. Stein-
grímur Hermannasons segir að
hann vilji ræða kosningar. Óskir
þeirra verða bara að koma í ljós,
en það er líklega einstæð staða, að
stuðningsflokkar ríkisstjórnar-
innar skrifist á við ríkisstjórnina í
fjölmiðlum og ber vott um að það
hriktir í stjórnarsamstarfinu,"
sagði Kjartan að lokum.
Gro Harlem Brundtland, formaður norska Verkamannaflokksins og
fyrrum forsætisráðherra, kom til fslands i gær í boði Sambands Alþýðu-
flokkskvenna og er myndin tekin utan við bústað norska sendiherrans.
Verður Gro frummælandi ásamt Kjartani Jóhannssyni á ráðstefnu um
frið og afvopnun, sem Samband Alþýðuflokkskvenna gengst fyrir i dag,
í tilefni 10 ára afmælis sins. Morgunblaðið/Emilía.
Veirusjúkdómur á fæð-
ingardeild Landspítalans
VEIRUSJÚKDÓMIIR, sem gengið hef-
ur í borginni, hefur nú um skeið herjað
á börn og mæður þeirra á fæðingar-
deild l^ndspítalans. Hefur það orðið
til þess að takmarka hefur orðið heim-
sóknir á deildina og skilja á milli
sjúkra og smitaðra annars vegar og
heilbrigðra hins vegar.
Að sögn Harðar Bergsteinssonar,
læknis á deildinni, varð þessarar
sýkingar fyrst vart fyrir um mánuði
og var þá þegar gripið til einangrun-
araðgerða.
hafði sýkingar þá orðið vart á báðum
göngum deildarinnar og þurfti því
að flytja fólk á milli til einangrunar.
Hörður sagði ennfremur, að
venjulega sýktust nýfædd börn ekki
af farpestum, þar sem þau fengju
mótefni frá móðurinni. Skýringin á
sýkingu nú virtist því sú, að flestir
væru ekki með mótefni í sér og því
kæmi þetta upp á fæðingardeildinni.
Hann sagði að lokum, að sum barn-
anna hefðu fengið veiruheilahimnu-
bólgu vegna sýkingarinnar. En hún
væri tiltölulega vægur sjúkdómur,
sem gengi yfir á viku til 10 dögum og
hefði ekki neinar alvarlegar afleið-
ingar í för með sér.
„Mikið hagsmunamál
að fá að slátra hér“
þetta algjörlega úr höndunum á
sér,“ sagði Gunnar um vilja
bænda að fá að slátra sjálfir. Og
greiðslurnar skipta einnig veru-
legu máli. Þegar fé var slátrað á
vegum Kaupfélags Arnfirðinga á
sínum tíma, áður en það lagði upp
laupana, var bændum greitt fyrir
það í vörum. Nú hins vegar fá þeir
peninga fyrir það fé sem slátrað
er. Stefna stjórnvalda er augljós-
lega sú að eitt sláturhús eigi að
taka við fé allra bænda á stóru
svæði. Við Arnfirðingar höfum
alltaf verið á móti því, enda er
þetta mikið hagsmunamál fyrir
byggðarlagið að slátra hér á
Bíldudal vegna atvinnu sem skap-
ast.“
Tálknfirðingar hafa í nokkur ár
farið með fé sitt 'x sláturhús Arn-
firðinga, en ekki nú í haust. Getur
þú gefið einhverja skýringu á
þessu?
„Tálknfirðingar hafa farið með
fé sitt á Patreksfjörð núna í haust
nema einn bóndi, en eftir því sem
bændur þar hafa tjáð mér, var
þess óskað að sunnan, að þeir færu
með fé sitt þangað," sagði Gunnar.
Jón Bjarnason, bóndi í Grænu-
hlíð, var næsti viðmælandi okkar.
„Það sem mér finnst verst við
þetta mál er að það átti með öllum
ráðum að þvinga okkur til að fara
með okkar fé til Patreksfjarðar í
slátrun," sagði Jón. „Þetta hefði
horft allt öðru vísi við ef rætt
hefði verið við okkur um þessi
mál, en það var aldrei gert. í ann-
an stað eru það svo greiðslurnar
sem við fáum, enda þýðir það
mikla tekjuskerðingu fyrir okkur
að fara á Patreksfjörð."
Hver er þáttur héraðsdýralækn-
is í þessu?
„Okkur var sagt í fyrra að ekk-
ert þyrfti að gera við sláturhúsið,
en nú talar hann um að nauðsyn-
legt sé að gera breytingar á því.
Þegar við spurðum hann í ágúst
hvað þyrfti að endurbæta, vildi
hann ekki einu sinni segja okkur
það.“
Starfsfólk sláturhússins á Bíldudal
og bændur í Arnarfirði teknir tali
Við fláningu, til hægri er Jón Bjarnason.
Á kafflstofu Sláturhússins í gær.
SLÁTRUN hófst á vegum Sláturfé-
lags Arnflrðinga á Bíldudal í gær, en
eins og komið hefur fram í Morgun-
blaðinu hefur barátta staðið milli
bænda annars vegar og stjórnvalda
hins vegar um leyflsveitingu til slátr-
unar þar í haust. Pálmi Jónsson,
landbúnaðarráðherra, tók þá
ákvörðun í fyrradag, að veita slátur-
félaginu bráðabirgðaleyfl á þessu
hausti eftir að allir þingmenn Vest-
flrðinga höfðu lýst yflr fullum stuðn-
ingi við málstað bændanna. Slátrun
tafðist þó um tæpan hálfan mánuð á
Bíldudal sökum þess hve leyflsveit-
ingin dróst.
Forsaga máls þessa er sú að
Arnfirðingar vildu ekki una því að
þurfa að fara með fé sitt til Pat-
reksfjarðar til slátrunar, en þar
rekur kaupfélag staðarins slátur-
hús. Astæðan til þess er sú, að
bændur á þeim tíu búum sem hér
um ræðir, hafa sjálfir séð um
slátrun fjárins frá stofnun Slátur-
félagsins 1975. Nú átti hins vegar
að svipta bændur sláturleyfinu
vegna þess að húsakynni sláturfé-
Jóhannes Olafsson metur skrokka.
lagsins væru ekki í nógu góðu
ásigkomulagi. Þessi röksemda-
færsla kom mörgum bændum
spánskt fyrir sjónir, enda hafði
engin skýrsla þess efnis borist
Sláturfélaginu. En eins og áður
sagði fékkst leyfið þó að lokum
eftir að þingmenn kjördæmisins
komu til skjalanna.
Búist er við að slátrunin taki
um þrjár vikur, en 24 starfsmenn
vinna í sláturhúsinu. Þar verður
daglega slátrað 200 fjár, en alls
um 4—5 þús fjár.
Blm. Mbl. ræddi við nokkra
bændur í sláturhúsinu á Bíldudal í
gær.
Fyrstan hittum við Inga
Bjarnason. Hann var spurður að
því hvers vegna bændur á þessum
slóðum legðu svo mikið kapp á að
slátra sjálfir fé sínu?
„Þetta kemur hér betur út fjár-
hagslega fyrir okkur, en ef Kaup-
félag Patreksfjaðrar hefði séð um
slátrunina. Og rekstur Sláturfé-
lagsins hefur gengið mjög vel
fram að þessu. Það skiptir eins
miklu máli að algjör samstaða er
um starfsemi sláturhússins, enda
er það forsenda þess að svona
fyrirtæki standi undir sér.“
Hvað viltu segja um ásigkomu-
lag hússins?
„Héraðsdýralæknir hefur sagt
okkur að það þurfi að endurbæta
það, en þegar við höfum spurt
hann hvað eigi að gera, fáum við
engin svör. M.ö.o. vitum við ekki
hvaða breytingar á að gera. Ann-
ars er öll meðferð þessa máls um
sláturleyfið óskiljanleg. Ég hefði
ekki trúað því að svona gæti gerst
hér; Pólland kemur fyrst upp í
hugann í þessu sambandi," sagði
Ingi.
Næst var rætt við Gunnar
Valdimarsson, vörubílstjóra og
bónda.
„Með tilliti til byggðarlagsins
finnst mér ekki hægt að missa