Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 Útgefandi nMfiMfr hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö. Ríkisstjórnin í ráðherranefnd intíflokkar framsóknar- manna on alþýðubanda- laKsmanna fóru í sérkennilegt kapphlaup á miðvikudags- kvöldið, það snerist um það hvor yrði skorinorðari í yfir- lýsingum um nauðsyn þess að líf ríkisstjórnarinnar yrði rætt við stjórnarandstöðuna. Alyktanir flokkanna um þetta efni voru svo lagðar fyrir Gunnar Thoroddsen á fundi ríkisstjórnarinnar á fimmtu- dagsmorgun. Sá fundur stóð ekki til rúmlega tólf eins og venja er heldur tveimur tím- um lengur og honum lauk með því að líf ríkisstjórnarinnar var sett í ráðherranefnd. Þar ætla forsætisráðherra og formenn flokkanna, sem að ríkisstjórninni standa, að ráðslaga um næstu skref og viðræður við stjórnarandstöð- una. Með því að skipa ráðherra- nefnd um ríkisstjórnina og samskiptin við stjórnarand- stöðuna er í raun hafið enn eitt stjórnarmyndunarskeiðið í tíð þessarar furðulegu stjórnar. Hvað eftir annað hefur til þess komið síðan stjórnin var mynduð að aðilar hennar hafa framkvæmt inn- byrðis pólitískt uppgjör. Því hefur jafnan lyktað með óhæfri málamiðlun, viðfangs- efnin eru tekin vettlingatök- um og við það látið sitja. Þannig var að málum staðið við setningu bráðabirgðalag- anna 21. ágúst. Strax eftir að þau sáu dagsins ljós lá skýrt fyrir, að lögin nytu ekki stuðn- ings meirihluta þingmanna í báðum deildum. Síðan hafa ráðherrar neitað að viður- kenna þessa staðreynd. Engu er líkara en þeir hafi vaknað af værum blundi, þegar þeir hittu samflokksmenn sína á þingi. Þingmennirnir færðu ráðherrunum þær fréttir af öllum landshornum, að ekki dygði lengur að rembast í ráðherrastólunum. Fréttir bera það með sér, að það hafi verið Gunnari Thor- oddsen mjög erfitt að beygja sig undir niðurstöður þing- flokksfundanna. Eins og menn muna lýsti forsætisráðherra því yfir strax eftir að bráða- birgðalögin voru gefin út, að víst myndi ríkisstjórninni tak- ast að fá einn eða tvo þing- menn úr stjórnarandstöðu í neðri deild til að tryggja fram- gang þeirra. Sú spá hefur ekki gengið eftir og hinar pólitísku mannaveiðar taka þess í stað á sig blæ alhliða stjórnmálavið- ræðna milli stjórnar og stjórnarandstöðu ef svo fer fram sem horfir. Ráðherrar og ekki síst Gunnar Thoroddsen hafa verið ómyrkir í máli um stjórnarandstöðuna fram á síðustu daga, hin „ógiftusam- lega“ og „heillum horfna" stjórnarandstaða sagði for- sætisráðherra í þinglok í vor — varla hefur viðhorf hans mildast við að stjórnarand- stöðuþingmönnum fjölgaði. Ovíst er hve lengi fjöregg ríkisstjórnarinnar verður í ráðherranefndinni. Um tíma var það hjá Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, þegar rætt var um flugstöðvarmálið. Næst verður því kastað til Geirs Hallgrímssonar og Kjartans Jóhannssonar. Vantraust á iðnaðarráðherra ingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa flutt til- lögu til þingsályktunar sem felur þuð í sér að forræði í við- ræðum íslendinga við Alusu- isse um málefni álversins í Straumsvík verður tekið úr höndum Hjörleifs Guttorms- sonar, iðnaðarráðherra. Það fer vel á því að þessi tillaga komi fram strax á fyrstu dög- um Alþingis, því að fátt er brýnna en að hefja strax til- raunir til að bæta stöðu okkar gagnvart Alusuisse eftir ax- arsköft iðnaðarráðherra. Sjálfstæðismenn færa skýr rök fyrir því, hvers vegna nauðsynlegt sé að fá öðrum en Hjörleifi Guttormssyni for- ræði íslenskra hagsmuna gagnvart Alusuisse. Þeir nefna eina höfuðástæðu, að Hjörleifur skuli vegna að- gerðaleysis í tvö ár eða síðan 1980 hafa misst af góðu tæki- færi til hagstæðra samninga. En fleira kemur vissulega til þegar vanhæfi iðnaðarráð- herra er metið eins og til dæmis 9,5 mills-tilboðið frá 6. maí 1982. Samhliða kröfunni um viðræðunefnd leggja sjálf- stæðismenn fram ramma að erindisbréfi hennar: Að gera út um eldri deilumál; að fá verulega hækkun á raforku- verði; að breyta skattareglum álversins; að ræða um stækk- un álversins og framleiðslu á rafskautum hér á landi. Það hefur sýnt sig, að Hjör- leifi Guttormssyni og fjöl- mörgum starfsmönnum hans er um megn að halda á mál- stað Islands með skynsamleg- um hætti. Tillaga sjálfstæð- ismanna þarf að ná fram sem fyrst. Verði af viðræðum milli stjórnar og stjórnarandstöðu hljóta sjálfstæðismenn að krefjast þess, að tillaga þeirra um nýja álviðræðunefnd nái strax fram að ganga. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MAGNÚS SIGURÐSSON Biðraðir setja í vaxandi mæli svip sinn á daglegt lif i Austur-Þýzkalandi. Hér má sjá mvnd af einni slíkri fyrir utan matvöruverzlun i Austur-Berlin. Sú vitneskja, sem fólk á Vesturlöndum fær að staöaldri um Austur-Þýzkaland, er jafnan af skornum skammti. Þeir, sem það land heimsækja, þeirra á meðal fréttamenn, fá afar takmarkaðar upplýsingar um ástandið í landinu. Hins vegar þarf litlum getum að því að leiða, að hvergi annars staðar hefur verið fylgzt jafn náið með stjórnarskiptunum í Vestur-Þýzkalandi nýverið og í Austur- Þýzkalandi, enda má búast við því, að þar eigi þau eftir að hafa mikil áhrif. Astæðan er einkum sú, að Austur-Þýzkaland er skuldum vafið og stærstu lánardrottnar þess eru í Vestur-Þýzkalandi. Erlendar skuldir Austur-Þjóðverja nema nú 9—13 milljöröum Bandaríkja- dollara, að því er talið er. Þetta er að vísu minna en skuldir I’ólverja, sem eru um 27 milljaróar dollara. En það þykir víst að af skuldum Austur-Þjóðverja gjaldfalli 4 milljarðar dollara á næstu 6—12 mánuóum og þessi fjárhæð er nær helmingur verðmætis alls útflutnings Austur-Þjóðverja til Vesturlanda á síóasta ári. Stjórn jafnaðarmanna og frjálsra demókrata í Vest- ur-Þýzkalandi var þegar byrjuð að kippa að sér hendinni um lán- veitingar til Austur-Þýzkalands, áður en stjórnarskiptin urðu í Bonn og nú þegar kristilegir demókratar hafa tekið við stjórn- arforystunni þar, má búast við því, að enn erfiðara verði fyrir Austur-Þjóðverja að fá gjaldfrest á skuldum sínum við lánar- drottna í Vestur-Þýzkalandi. Þá má jafnframt búast við því, að dregið verði úr verzlunarsam- skiptum þýzku ríkjanna að öðru leyti, sem myndi einkum bitna á Austur-Þjóðverjum, þar sem þeir hafa að undanförnu fengið um helming gjaldeyristekna sinna frá Vestur-Þýzkalandi. Enda þótt Austur-Þjóðverjar hafi þegar fyrir tveimur árum tekið að herða sultarólina, þar sem þeir sáu efnahagsvandræði sín fyrir, má telja víst, að ástand þar í landi eigi eftir að versna til mikilla muna frá því seir, nú er. Að vísu tókst þeim að auka út- flutning sinn til Vesturlanda um hvorki meira né minna en 27% á sl. ári — reyndar samkvæmt eig- in hagskýrslum — og minnka innflutning frá Vesturlöndum um 4%. En hvorttveggja samanlagt nægði aðeins til þess að gera viðskiptajöfnuðinn hagstaðan um 60 milljónir dollara, sem ekki var nándar nærri nóg til þess að brúa hallann á viðskiptajöfnuði fyrri ára. Af þessum sökum er Austur-Þýzkaland á svipaðan hátt og Pólland í afar erfiðri að- stöðu. Skorturinn á „hörðum" gjald- eyri blasir líka alls staðar við. Fólki frá Vesturlöndum, sem til Austur-Þýzkalands kemur, er gert að skyldu að kaupa 25 Austur- Þýzka- land er skuldum vafið austur-þýzk mörk á dag á allt of háu gengi. Þar að auki fá ferða- menn að reyna það, að í mörgum gistihúsum, veitingahúsum og mörgum öðrum stöðum, er til þess ætlazt, að þeir greiði í doll- urum, vestur-þýzkum mörkum eða öðrum gjaldeyri. Svarti mar- kaðurinn með gjaldeyri blómstr- ar líka betur nú en nokkru sinni áður. Matvæli hafa hins vegar verið næg, enda þótt þau séu ekki til í miklu magni. I kjötverzlunum eru það samt aðeins hinar lélegri kjötvörur, sem fáanlegar eru. Bezta kjötið er af dýrum, sem að hluta eru alin á fóðurkorni inn- fluttu frá Bandaríkjunum og þetta kjöt er selt til Vesturlanda fyrir harðan gjaldeyri. Ostur og ávextir eru einnig af skornum skammti og það sem til er er léleg vara. En ástandið fer versnandi. Það verður æ algengari sjón með hverjum mánuði nú að sjá biðrað- ir snemma morguns fyrir utan matvöruverzlanir í Austur-Berlín og þessar biðraðir haldast þar til búðunum er lokað. ----Það fer að verða þannig, var haft eftir ungri konu á götu í Austur-Berlín nýlega, — að ég fer að taka mér stöðu, hvar sem ég sé biðröð og það jafnvel þótt ég viti ekki, hvað á boðstólum er. Að minnsta kosti veit ég þá, að þarna er eitthvað til þess að kaupa. Minnkandi framboð á matvæl- um í Austur-Þýzkalandi nú er að verulegu leyti talið eiga rót sína að rekja til þess, hve mikil áherzla hefur verið lögð á út- flutningsiðnaðinn að undanförnu. Sem dæmi má nefna, að rafmagn til sumra verksmiðja hefur verið minnkað um helming, svo að verksmiðjur í útflutningsfram- leiðslu fengju að sama skapi auk- ið rafmagn til starfsemi sinnar. En við þetta hefur efnahagslífið farið enn frekar úr skorðum og matvælaframleiðslan sér í lagi. Þeir, sem vel til þekkja, telja, að ástandið í landinu sé nú mun verra en stjórnvöld þar vilji með nokkru móti viðurkenna. Astæð- an er að sjálfsögðu sú sama og alltaf, sem sé að viðurkenna ekki staðreyndir, sem eru stjórnkerf- inu í óhag. En þar við bætist ný ástæða utan að frá. Austur- þýzkum stjórnvöldum er það mik- ið í mun nú að róa lánardrottna sína á Vesturlöndum og fá þá til þess að trúa því, að ástandið sé ekki eins slæmt og af er látið og því sé þeim alveg óhætt að lána Austur-Þjóðverjum áfram fé. En þrátt fyrir versnandi ástand er Austur-Þýzkaland ekki bið sama og Pólland og því litlar líkur á, að upp úr sjóði og upp- reisnarástand skapist líkt og í Póllandi. Lögregluríkið blasir líka alls staðar við. Vopnaðir lögreglumenn eru hvarvetna á ferli og Berlínarmúrinn, sem nú er nær ókleifur, enda samansett- ur af tveimur múrveggjum, 3,50 metrum á hæð með jarðsprengj- um á milli auk varðturna og varð- manna, segir meiri sögu en nokk- uð annað um stjórnarfarið í land- inu. (Ileimild: I)ie Welt.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.