Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 37 Þessir hringdu . . . Fyrirspurn til Kópavogsbæjar Kópavogsbúi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég vildi gjarna að forráða- menn Kópavogsbæjar sæju sér fært að svara eftirfarandi fyrir- spurn: Hvernig stendur á því, að ekki hefur verið hreinsað til á starfsvöllum bæjarins, þó að allri starfsemi sé þar lokið fyrir all- nokkru? Byggingarefnið frá sumr- inu liggur bara í hrúgum og á víð og dreif um vellina og nauðsynlegt að ganga frá því, áður en vetrar- veður bresta á og feykja því út í buskann eða á nærliggjandi hús. Og svo getur svona trassaskapur enn fremur skapað slysahættu börnum. Séra Halldór Gröndal Mörgum hefur eflaust hlýnað vid þessa bæn Edda Larsen hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að færa séra Halldóri Gröndal þakkir fyrir fal- lega morgunbæn laugardaginn 9. þ.m., sem höfðaði til þeirra sem stríða við áfengisvandamál eða eiga í erfiðleikum vegna neyslu annarra vímugjafa. Mörgum hefur eflaust hlýnað við þessa bæn og mætti endurflytja hana. Guð blessi Halldór Gröndal um ókomin ár. „Snemma beyg- ist krókur- inn... Vilborg Dyrset hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég les alltaf Velvakanda og oft furðar mig á, hvað margir birta þar ólund sína. í dag (fimmtudag) kvartar kona úr Kópavoginum undan þvi að hún og maður hennar hafi ekki frið fyrir betli barna og sníkjum á tomból- ur. Og henni finnst þetta slæm uppeldisaðferð og mikill ósiður. Hún segist vera sammála Vestur- bæingi um happdrættispláguna, sem hún nefnir svo. Ég bý í Aust- urbænum og vil láta mína skoðun í ljós. Ég gleðst hvert sinn, þegar börn leita til mín. Þau eru svo ein- læg og glöð, þegar þeim er tekið vel. Og brosið sem maður fær frá þeim er svo margfalt meira virði en sá hlutur sem maður réttir þeim. Máltækið segir: „Snemma beygist krókurinn til þess sem verða vill.“ Og ég gæti trúað, að mörg þessara barna héldu áfram að láta gott af sér leiða, þegar þau verða fullorðin. Sem betur fer særir það flesta að heyra um slysin H.Kr. skrifar: „ Velvakandi góður. í pistlum þínum 12. október rifj- ar kona nokkur upp að í blöðum hafi birst frétt um það „að maður einn hefði bitið nefið af samborg- ara sínum“. í því tilefni segir kon- an: „enda náði þetta ekki til að særa mig, því að ég vissi að þetta var í ölæði gert.“ Síðan segir kon- an: week eru birtar myndir af ungu fólki sem lést vegna þess að ölvað- ir bílstjórar voru á ferli. Þetta fólk lifnar ekki við þó að öku- mennirnir kunni að iðrast. En myndunum fylgir frásögn af viðbrögðum aðstandenda þessara látnu ungmenna, samtökum þeirra og sameiginlegum kröfum um að eitthvað sé gert til að stöðva akstur ölvaðra. Þessu fólki sárnar eins þó að börnum þeirra og systkinum sé grandað vegna ölvunar. Annað væri líka blátt áfram óeðli. Sem betur fer særir það flesta að heyra um slysin enda þótt þeir viti „að þetta var í ölæði gert“.“ „Margur sér eftir því alla ævina, sem hann gerir undir slíkum kringumstæðum og erfitt er að dæma fólk út frá svona óhappi." Þetta er ekki ofmælt og flestum kunnugt, en hins vegar verður það sem orðið er ekki aftur tekið þó menn iðrist. Iðrun kallar engan til lífsins og fyllir ekki opið skarð. Sum slys eru óbætanleg. Þessi orð eru skrifuð vegna þess að konan segir að það hafi ekki sært sig að heyra um óhappið af því að hún vissi „að þetta var í ölæði gert“. Því er nefnilega þannig varið með okkur sum að okkur sárnar að menn skuli gera sig ölóða enda þótt þeir sleppi við óhöpp að því sinni. Þá höfum við þann metnað fyrir hönd samborgaranna að okkur sárnar ef þeir koma sér í það ástand að þeir geti ekki borið ábyrgð á sjálfum sér. Okkur er raun að verða vitni að slíku. Og við neitum að taka því sem sjálf- sögðum hlut að menn kjósi sér slíka eymd. Eitthvað fyrir alla Við teljum ástandið hættulegt þegar góðu fólki sárnar ekki það sem það veit að gert er í ölæði. Ölæði er ekki sjálfsagður hlutur. Það þarf enginn að gera sig ölóð- an. Það er ábyrgðarleysi. Að því ábyrgðarleysi er skömm en ekki sómi. Svo finnst okkur. Hitt er svo tilviljun, slembi- lukka eða eitthvað þess háttar hverjir sleppa frá óhöppum eftir að þeir eru hættir að vera ábyrgir gjörða sinna. En ólánið er engu síður átakanlegt og sárt þó að það sé sjálfskaparvíti. í ameríska tímaritinu News- Guðrún Á. Símonar söngkona skrifar: „Hr. Velvakandi! Mig langar til að hvetja for- eldra og börn til að sjá „Búum til óperu" eftir enska tónskáldið Benjamín Britten, sem íslenska óperan flytur um þessar mundir. Hún er skemmtilega flutt af öllu listafólkinu, eitthvað fyrir alla. Einnig vil ég benda íslensku óperunni á að taka til flutnings eitthvað af óperum hans, t.d. „Peter Grimes", „Billy Budd" eða „Albert Herring", svo að eitthvað sé nefnt. Það væri dálítið gaman að fá nýjar uppfærslur, sem aldrei hefðu verið fluttar hér, því að alltof mikið hefur verið gert af því að endurtaka óperur. Þó að það sé komin ný kynslóð, sem tekur við, þá er mín kynslóð enn- þá lifandi og í fullu fjöri." Gjafahappdrætti Sumargleðinnar vinningsnúmer: Bifreið nr. 55. Hjónarúm frá Ingvari og Gylfa nr. 7264. Frá Sjónvarpsbúðinni Lágmúla 7, örbylgju- ofn nr. 8097. Samsung hljómtækjasamstæöa nr. 15101. Sam- sung litsjónvarpstæki nr. 14226. Samsung ör- bylgjuofn nr. 8097. Fischer myndsegulbandstæki nr. 5732. Nánari uppl. um vinningana í síma 81397 til kl. 5 á daginn. Takk fyrir skemmtunina í sumar. Sumargleöin. Steinsteypukaupendur Nú fer vetur brátt í hönd og verður kólnandi. Því er hætt við frostskemmdum í steinsteypu. Við hörönun steinsteypu myndast hiti vegna efnabreytinga. Engu að síöur getur steypa kólnaö niöur og fari hiti í steyp- unni undir 10°C, hægir mjög á hörönun hennar. Und- ir 5°C er hörönun svo til hætt og varmaframleiðsla hennar stöðvast. Steinsteypa veröur ekki frostþolin fyrr en hún hefur náö u.þ.b. 1/3 af endastyrk sínum. Kísilrykblönduð steypa, sem nú er notuð harðnar hægar viö lágt hitastig en sú steypa er menn áttu að venjast áður en kísilrykblöndun hófst. Óhörðnuð steypa getur legið í daí dögum saman viö lágt hitastig og frosiö síöan og skemmst. Á vetrum er steinsteypa seld upphituð, en mikilsvert er aö fyrirbyggja að hún kólni. Eftirfarandi ráöstafanir eru því æskilegar: 1. Bleytiö ekki óhóflega í steypunni. 2. Byrgiö alla steypufleti. 3. Hitiö upp steypu í mótum fyrstu sólarhringana. Muniö, að steinsteypan er burðarás mannvirkisins. SteypustðOin tif Trésmiðir — Húsbyggjendur Spónaplöturnar og krossviðinn, sem þið kaupið hjá okkur getið þið sagað niöur i plötusöginni okkar og það er ókeypis þjónusta. Birkikrossviður Furukrossviöur Grenikrossviöur Spónaplötur í öllum þykktum og stæröum, rakavarðar og eldvarð- ar spónaplötur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.