Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 40
I
/
i
í
*
E
^\iiglýsinga-
síminn er 2 24 80
lOTjproMíifoifo
^^skriftar-”
síminn er 830 33
LAUCARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
Póstur og sími
óskar eftir
25% hækkun
PÓST- og símamálastofnunin hefur
óskaA eftir því við samgönguráðu-
neytið, að fá heimild til að hækka
taxta símgjalda frá I. nóvember nk.
um 25%.
Stofnunin hefur ennfremur
óskað eftir því, að fá heimild til að
hækka póstgjöld sín um 25%. frá
og með 1. desember nk.
Beiöni stofnunarinnar er nú til
umfjöllunar hjá samgönguráðu-
neytinu, en fer síðan fyrir Gjald-
skrárnefnd, sem tekur endanlega
afstöðu.
Þess má svo geta, að Skipaút-
gerð ríkisins hefur nýverið fengið
heimild til að hækka taxta sína
um 15%.
Húsavík:
Misjöfn eftir-
tekja fyrsta
rjúpnadaginn
llúsavík, 15. október.
KJÖLDI llúsvíkinga hélt til rjúpna í
morgun, er fyrsti veiðidagur hausts-
ins hófst. Kjúpan virtist stygg og
urðu menn mismikið varir við hana.
Þar sem grátt var í jörð og
slydda fram eftir degi gekk
mönnum misjafnlega að sjá rjúp-
una og var eftirtekjan misjöfn.
Margir voru með 10 rjúpur og sá
sem mest fékk náði 30.
— Fréttaritari
MorgunblaAM/ Krintjin Örn.
Slátrað á Bíldudal
Slátrun hófst i sláturhúsinu á Bíldudal í gærmorgun eftir að ráðamenn
fyrirtækisins höfðu um nokkurn tíma staðið í erjum við yfirvöld um
sláturleyfi. Þeirri baráttu lauk með því að sláturleyfi var veitt til bráða-
birgða. Bændur og búalið úr Arnarfirði lita á það sem mikið hagsmuna-
I mál fyrir byggðarlagið, að fé sé slátrað á Bíldudal en ekki flutt til
Patreksfjarðar. Hallgrímur Ottósson var einn þeirra, sem mætti til vinnu
í sláturhúsinu i gærmorgun og kunni greinilega handtökin við gærusölt-
I unina. Sjá nánar bls. 2 og 3.
„Tel mig
gæfu-
mann“
— segir Hafsteinn
Þorsteinsson, sem
bjargaði manni úr
Vesturhöfninni
„ÞAD er mjög mikið lán að geta
aðstoðað fólk, sem er statt í
nauðum og þvi tel ég mig gæfu-
mann,“ sagði Hafsteinn Þor-
stcinsson meðal annars í samtali
við Morgunblaðið í gær. Haf-
steinn átti, að sögn lögreglunnar,
heiðurinn af því að bjarga manni
frá drukknun í höfninni við
Grandagarð í fyrrinótt. Maður-
inn hafði fallið niður á milli báta
og komst ekki upp aftur af
sjálfsdáðum. Honum varð ekki
meint af volkinu.
Hafsteinn Þorsteinsson var
á vakt um borð í Hval 9 í
Slippnum í fyrrinótt. Hann
sagði svo frá atburðinum í
samtali við Morgunblaðið:
„Það var um stundarfjórðungi
fyrir þrjú um nóttina, að ég
heyrði einhver torkennileg
hljóð og hélt að þau kæmu úr
næsta nágrenni. Eg fór því
niður úr skipinu til að kanna
málið og heyrði þá, að hljóðin
Hafsteinn Þorsteinsson
komu úr vesturhöfninni. Þá
náði ég í bíl minn og ók yfir
um og við Kaffivagninn heyrði
ég hljóðin aftur, en ekki orða-
skil.
Ég gekk þá á hljóðin og fann
manninn í sjónum á milli báta.
Hann hafði náð taki á fríholti
á milli þeirra og gat haldið sér
á floti, en komst ekki upp.
Hann var mikið klæddur og
því það þungur að ég náði hon-
um ekki upp. Því bað ég hann
að reyna að halda sér á meðan
ég færi upp í tilkynningaskyld-
una í Slysavarnafélagshúsinu
til að hringja á lögregluna.
Eftir það fór ég aftur til
mannsins og hélt honum uppi
þar til lögreglan kom og hann
náðist upp bæði þrekaður og
kaldur."
Atvinnuleysi hefúr
aukizt stórlega í ár
í ágúst sl., en 180 á sama tíma í fyrra
310 voru án vinnu
ATVINNIJLKYSI hefur aukizt mjög
mikið á þessu ári, boriö saman við
sama tíma í fyrra. 1 ágústmánuði sl.
voru skráðir atvinnuleysisdagar 6.720,
samanborið við 3.901 í sama mánuði í
fyrra. Aukningin milli ára er liðlega
72%..
Ef fyrsti ársfjórðungur er
skoðaður kemur í ljós, að skráðir
atvinnuleysisdagar í ár voru 35.622,
samanborið við 15.225 á sl. ári.
Aukningin milli ára er því tæplega
134%.
Skráðir atvinnuleysisdagar á öðr-
um ársfjórðungi þesa árs voru 8.554
talsins, samanborið við 6.002 á
sama tíma í fyrra. Aukningin milli
ára er liðlega 42,5%.
Fjöldi atvinnulausra í ágústmán-
uði var 310, en á sama tíma í fyrra
voru 180 taldir atvinnulausir. Á
fyrsta ársfjórðungi í ár voru taldir
1.644 atvinnulausir, en á sama tíma
í fyrra voru þeir 703. Loks má geta
þess, að á öðrum ársfjórðungi voru
atvinnulausir taldir vera 395, en 277
á sama tíma í fyrra.
Atvinnuleysi, sem hlutfall af
framboði vinnuafls var 0,3% í ág-
úst, samanborið við 0,2% í ágúst í
fyrra. Á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs var þetta hlutfall 1,6%, sam-
anborið við 0,7% á sama tíma í
fyrra. Á öðrum ársfjórðungi í ár
var hlutfallið 0,4%, samanborið við
0,3% á sama tíma í fyrra.
Þegar tölur um skráða atvinnu-
leysisdaga eru skoðaðar, vekur það
athygli, að aukningin er hlutfalls-
lega mun meiri á landsbyggðinni
heldur en á Reykjavíkursvæðinu.
Má í því sambandi nefna, að skráðir
atvinnuleysisdagar í ágústmánuði á
Reykjavíkursvæöinu voru 2.366 í ár,
en voru 1.999 í fyrra. Aukningin
milli ára er því liðlega 18,3%. Á
landsbyggðinni voru skráðir at-
vinnuleysisdagar í ágúst 4.354, sam-
anborið við 1.902 í fyrra og er aukn-
ingin milli ára því tæplega 129%.
Gjaldeyriskaup bankanna
neikvæd um 866 milljónir
GJALDEYRISSTAÐA bankanna hef-
ur versnað mjög síöustu mánuði, en í
lok ágústmánaðar sl. var hún 1.679
milljónir króna, samanborið við 1.646
milljónir króna á sama tíma í fyrra. í
lok árs 1981 var hún 1.710 milljónir
króna og hafði þá aukizt frá árinu á
undan um 73%, eða úr 988 milljónum
króna.
Fyrstu átta mánuðina í ár dróg-
ust gjaldeyriskaup bankanna sam-
an um 6,35%, en þau voru 7.954
milljónir í ágústlok sl., samanborið
við 8.493 milljónir króna á sama
tíma í fyrra.
Gjaldeyrissala bankanna jókst
hins vegar um 13,82% milli ára.
Heildarsalan í ágústlok var að upp-
hæð 8.820 milljónir króna, saman-
borið við 7.749 milljónir króna á
sama tíma í fyrra. Gjaldeyriskaup
bankanna, nettó, voru því neikvæð
um 866 milljónir króna fyrstu átta
mánuðina í ár, en til samanburðar
voru þau jákvæð um 744 milljónir
króna á sama tíma í fyrra. Staðan
hefur því versnað um 1.610 milljón-
ir króna á þessu tímabili.