Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982 Ljósmyndir Mbl. Kristján Einarsson. fer hins vegar ekki mikið fyrir kraftinum í bílnum, auk þess sem vélin er óþarflega hávær. Bíllinn kom eigi að síður ágæt- lega út í innanbæjarumferðinni, þótt auðvitað væri hann farinn að þyngjast, þegar fjórir full- orðnir voru í honum. A mal- bikinu er ágætur ferðahraði, 70—80 km á klukkustund. AKSTURSEIGINLEIKAR Aksturseiginleikar bílsins í innanbæjarakstri eru mjög góð- ir. Hann er lipur með mikinn beygjuradíus og fjöðrunin er ágæt. Það er hins vegar ekki hægt að gefa honum mjög háa Suzuki Alto reynsluekið — Mjög lipur í innanbæjarakstri — Eyöslugrannur — Þröngur mmwww nnimniw 3ja strokka, 39,5 hestafla, 7% rúmsentimetra vél. Opnanlegur skutgluggi Suzuki Alto SS80. Mælabordið er af einfaldari gerðinni. Bílar Sighvatur Blöndahl SDZIIKI Alto, smábíllinn japanski, hefur notið mikilla vinselda hér á landi síðustu misserin, enda um að ræða lipran bíl, sem hentar vel i innanbæjarumferðinni. Hingað til hafa bílarnir komið fjögurra gíra beinskiptir, en nú er. bíllinn enn- fremur boðinn sjálfskiptur. A dög- unum reynsluók ég sjálfskipta bílnum og það er hreinlega eins og að fara yflr á annan ólíkan bil, svo miklu þægilegri er hann í innan- bæjarumferðinni. I)YR (Ki rými Bíllinn er af minnstu gerð, eigi að síður fernra dyra og auk þess með opnanlegum skutglugga. Það gefur auga leið, að fremur þröngt er að ganga um bílinn fyrir ökumann og farþega frammií, en á hinn bóginn er mun þægilegra fyrir þá, sem Suzuki (lerð: Suzuki Alto SS80 Framleiðandi: Suzuki Motor ('o. Kramlciösluland: Japan Innflytjandi: Sveinn Egilsson hf. Verð: 107.000.- Afgreiðslu frestu r: Til á lager Þyngd:630 kg Lengd: 3.295 mm Brcidd: 1.405 mm llæð: 1.335 mm lljólhaf: 2.150 mm Vél: 3ja strokka, 39,5 hest- öfl, 796 rúmsentimetrar Skipting: Sjálfskipting Drif: Framdrifinn Stýri: Beygjuradíus 4,4 metrar Benzíntankur: 27 lítrar Olíukerfi: 2,5 lítrar lljólbarðar: 145/70 SR 12 fara aftur í, að komast inn en ella. Rými fyrir ökumann er fremur lítið, en þó er ekki hægt að segja, að illa fari um viðkom- andi. Sætin eru ágæt, mættu kannski að ósekju hafa heldur meiri bakstuðning, og hliðar- rými er þokkalegt. Rými aftur í er ennfremur með minnsta móti, en það er ekkert því til fyrir- stöðu, að tveir fullorðnir sitji af- tur í, þegar eknar eru styttri vegalengdir. Sætisbekkurinn af- tur í er ágætur miðað við þessa stærð bíla. Það vekur athygli við bílinn, að loftrými er með ágæt- um, reyndar betra en í mörgum stærri bílum. Því má reyndar skjóta hér inn, að útsýni úr bíln- um er furðugott. Póstar og höf- uðpúðar skyggja lítið sem ekkert MÆLABORÐ Mælaborð bílsins er af ein- faldari gerðinni, en í því er engu að síður að finna alla þá mæla og aðvörunarljós, sem nauðsynleg geta talizt. Hraðamælir bílsins, sem gefinn er upp fyrir 150 km, er með ferðamæli. Þá er hita- mælir og benzínmælir í miðju borðinu. Síðan má nefna aðvör- unarljós fyrir olíuþrýsting og hleðslu bílsins. Á hægri væng borðsins er að finna stjórntæki miðstöðvarinnar, sem eru af ein- faldari gerðinni og reyndar mætti miðstöðin vera nokkuð öflugri. Innsogið er neðantil á vinstri væng borðsins og er nokkuð auðvelt að ná til þess. Aðalljósunum er stjórnað úr stefnuljósarofanum vinstra megin í stýrinu, en þurrkurofinn er hins vegar hægra megin, „eins og lög gera ráð fyrir". I bílnum er afturrúðuupphitari, sem virk- ar vel. Stýrishjólið er einfalt, en það er vel staðsett og svarar vel. Beygjuradíus bílsins er mjög góður. Það er mjög auðvelt að snúa honum á ótrúlega litlum fleti og auðvelt er að leggja hon- um í ótrúlega lítil bílastæði. Það má reyndar segja, að þessi lipurð og lítil benzíneyðsla, séu höfuð- kostir bílsins, sem hentar mjög vel í innanbæjarakstri. SKIPTING — PEDALAR Pedalar bílsins eru vel stað- settir og ástigið er létt og skemmtilegt. Hæfilega langt er á milli benzíngjafarinnar og bremsupedalans og því lítil sem engin hætta á því, að stíga á báða pedalana samtímis í ógáti. Eins og kom fram áður er bíllinn sjálfskiptur, en skiptistöngin er ágætlega staðsett og því þægi- legt að skipta bílnum. Um er að ræða ósköp venjulega skiptingu, sem reyndar hefur aðeins lággír, en ekki fyrsta og annan, sem hægt er að fastsetja, auk þess að aka bílnum í „drive-inu“. Mjög þægilegt er að aka bílnum í inn- anbæjarumferðinni. Það eina, sem kannski má finna að, er hversu fljótt hann skiptir sér upp. Eins og sagði í upphafi er eins og um annan bíl sé að ræða, þegar sjálfskiptingin er komin í Suzuki-inn. Ef um stóra menn er að ræða, var um hálfgert vanda- mál að ræða fyrir þá, að skipta beinskipta bílnum, vegna þrengsla, en það vandamál er al- veg úr sögunni með sjálfskipt- ingunni. VÉLIN Suzuki Alto er knúinn 3ja strokka, 796 rúmsentimetra, 39,5 hestafla vél, sem hefur reynzt með afbrigðum eyðslugrönn. Það einkunn fyrir aksturseiginleika á malarvegum. Hann er alltof stuttur milli hjóla og of mjór til að eiga möguleika á því, að vera skemmtilegur við þær aðstæður. Enda er bíllinn kannski fyrst og fremst hugsaður til að komast á milli staða í þéttbýli og er ein- staklega þægilegur til þeirra nota. NIÐURSTAÐA Eftir að hafa ekið Suzuki Alto-bílnum tæplega 400 km við ólíkar aðstæður, er hægt að gefa honum góða einkunn fyrir lipurð og þægindi í innanbæjarumferð- inni. Það fer þokkalega um bíl- stjóra og farþega, auk þess sem bíllinn er einstaklega eyðslu- grannur. Á malarvegum kemur hann hins vegar ekki vel út. Suz- uki Alto er sem sagt kjörinn bíll til aksturs í þéttbýli. Escort XR 3i FORD-VERKSMIÐJURNAR kynntu nýja útfærslu af Ford Escort á bíla- sýningunni i París á dögunum. Nýi billinn nefnist Ford Escort XR 3i og er ætlað að koma I staðinn fyrir XR 3 bíllinn, sem notið hefur vinsælda. Nýi bíllinn er knúinn fjögurra strokka, 105 hestafla vél, en XR 3 bíllinn var með 96 hestafla vél. Hámarkshraði nýja bílsins er 186 km á klukkustund og hröðun hans í 100 km á klukkustund er 9,7 sekúndur. Bíllinn kemur með 5 gíra kassa, sem hefur verið endur- bættur frá eldri gerð. Þá hefur fjöðrun bílsins verið breytt til betri vegar og bíllinn kemur á breiðari felgum en áður, sem hvoru tveggja gerir hann mun stöðugri í akstri. Þá hefur bremsukerfi bílsins verið breytt, þannig að ástig er léttara og bremsuvegalengd hefur verið stytt. Loks má geta þess, að inn- rétting bílsins er öll nokkru íburðarmeiri, en í eldri útfærslu. Samkvæmt upplýsingum Ford er meðaleyðsla bílsins í blönduð- um akstri í námunda við 10,6 lítrar á 100 km, en á jöfnum 90 km akstri er eyðsla 6,4 lítrar og á jöfnum 120 km akstri er hún um 8,1 lítri á hverja 100 km.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.