Morgunblaðið - 16.10.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
19
Poul-Henrik Trampe ásamt Jette konu sinni. Jette er félagsfræðingur og vinnur við áætlanagerð í ráðhúsi Kaup-
mannahafnar á Friðriksbergi.
hefði farið fram. Undir tilkynn-
inguna skrifaði eiginkona hans,
Jette Pio Trampe.
Dánartilkynningin kom eins
og þruma úr heiðskíru lofti yfir
alla, sem til þekktu, lögreglu-
mennina og vini og kunningja
Trampe-hjónanna, enda hafði
enginn vitað til, að Trampe væri
sjúkur. Eftirgrennslan lögregl-
unnar leiddi líka í ljós, að alls
engin jarðarför hafði átt sér
stað og ekkert dánarvottorð var
fyrir hendi. Einnig hefur verið
upplýst, að í byrjun þessa mán-
aðar sagði Jette vinum þeirra
hjóna, sem voru að spyrja um
Trampe, að hann væri í Ósló að
semja um útgáfu bókar sinnar
„Hann og hún“ hjá norsku for-
lagi. I dánartilkynningunni seg-
ir hins vegar, að hann hafi lát-
ist 22. september.
Við lögregiurannsókn á þessu
undarlega máli þykir það hafa
sannast, að Trampe fór um borð
í Óslóarferjuna 22. september
sl. en nokkuð víst þykir líka, að
hann hafi ekki komið til Óslóar.
I ferjunni fannst farangur
Trampes og bréf og vegna inni-
halds þeirra, sem ekki hefur
verið sagt frá, hallast lögreglan
helst að því, að hann sé í raun
og veru látinn. Hins vegar hefur
ekkert lík fundist og því engu
hægt að slá föstu.
Jette, eiginkona Trampes, er
ekki grunuð um græsku í þessu
máli og flestir líta á dánartil-
kynninguna sem tilraun af
hennar hálfu til að verja minn-
ingu manns síns og fela e.t.v.
óeðlilegar kringumstæður við
lát hans fyrir umheiminum. Þar
hefur henni þó orðið á í mess-
unni. Trampe er kunnur maður
í Danmörku og Danir bíða nú
með öndina í hálsinum eftir
frekari fréttum af málinu.
„Forhold“
— bók um af-
brýðisemi
„FORHOLD", síðasta bók
Poul-Henriks Trampe, sem út
kemur í dag, er ekki sakamála-
saga eins og flestar fyrri bæk-
ur hans, heldur sálfræðilegur
róman. Hún fjallar um hjón og
er skrifuð frá sjónarhóli kon-
unnar. Hún hefur misjafna
sögu að segja af kynnum sínum
við karlmennina en smám sam-
an þroskast hún í samskiptum
sínum við þá og nær betri tök-
um á starfi sínu. Þá bregður
svo við, að manninum hennar
finnst sem fótunum hafi verið
kippt undan sér og hann veit
ekki lengur hvar hann stendur.
Nagandi afbrýðisemin er efni
síðasta kafla bókarinnar og á
hann að gerast á þessu ári.
Sögunni lýkur á harmrænan
hátt og það er konan, sem ber
sigur úr býtum.
Sprenging
í Toronto
Toronto, 15. oklóber. AP.
MIKIL sprenging varð i gærkvoldi
fyrir utan verksmiðju í Toronto í Kan-
ada þar sem framleidd eru leiðsögu-
kerfi fyrir handarískar stýriflaugar.
Nokkrir menn slösuðust í sprenging-
unni, en nokkru áður hafði óþekktur
maður hringt til lögreglunnar og varað
hana við.
Sprengjan, sem komið hafði verið
fyrir í sendibíl, sprakk rétt eftir að
lögreglumenn voru komnir á staðinn
og slösuðust um níu manns, þar af
tveir mjög alvarlega. Verulegar
skemmdir urðu á byggingunni.
Sprengingin varð degi eftir að
dómari hafði úrskurðað, að for-
svarsmenn verksmiðjunnar þyrftu
ekki að bera vitni í réttarhöldum yf-
ir 22 andstæðingum kjarnorku-
vopna, sem reyndu með valdi að
hindra þá starfsemi, sem þar fer
fram. Verjandi mannanna heldur
því fram, að starfsemin sé glæpur
gegn mannkyninu og þess vegna hafi
sakborningarnir verið í sínum fulla
rétti.
Fyrirtækið, sem um ræðir, Litton
Systems Canada Ltd., framleiðir
einkum leiðsögukerfi fyrir venju-
legar flugvélar en einnig fyrir
bandaríska og kanadíska herinn.
Fyrir vestan eyna Malsten í Svíþjóð
fannst þessi fjarskiptabauja á reki
nú í vikunni svo og gult litarefni á
yfirborðinu, sem gæti komið frá bil-
uðum kafbát, er þannig væri að
reyna að gefa upplýsingar um stað-
setningu sína. Einmitt þarna hafa
margar djúpsprengjur verið sprengd-
ar.
til sýnis nú um helgina
VÉRÐlAUNAHÚS
bo Rsznnp
fiaPia#Inhmmr ÍIImi _____________
Á sýningunni „Fjölskyldan og heimilið '82" vakti óskipta athygli sýningarhús
Skjólbæjar sf. frá FLEXPLAN m.a. vegna fagurfræðilegs útlits og sem vandað, vina-
legt og efnismikið orlofshús.
Vegna stöðugra fyrirspurna verður FLEXPLAN orlofshúsið til sýnis nú um helgina við
íþróttahöllina í Laugardal. Húsið verður opið almenningi sem hér segir: Laugardag
frá kl. 10.00 - 18.00 og sunnudag frá kl. 13.00- 18.00, en aðeins þessa einu helgi.
SÉRTILBOÐ
Skjólbær sf. býður viðskiptavinum sínum 39 MÁNAÐA GREIÐSLUTÍMA ef pantað er
nú í haust og húsið afhent næsta sumar.
Auk allrar venjulegrar fyrirgreiðslu annast Skjólbær sf. útvegun sumarbústaðalands
fyrir FLEXPLAN orlofshúsin í Vatnaskógi og víðar.
Allur búnaður í sýningarhúsinu er frá Gráfeldi.
SKJÓLBffR SF.
Borgartúni 29 Sími 29393