Morgunblaðið - 16.10.1982, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.10.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTOBER 1982 21 * Birgir Isl. Gunnarsson: Málið er ekki svona einfalt Það hefur verið háttur áróð- ursmeistara allra alda að reyna að einfalda alla hluti. Að tala í einföldum slagorðum og meitl- uðum setningum hefur löngum dugað best þeim, sem mest leggja upp úr því að villa um fyrir fólki og koma inn hjá því röngum hugmyndum. Þessa dagana erum við að upp- lifa eina umferðina enn í slíkum málflutningi. Aðilar ríkisstjórn- arinnar reyna nú að stilla hinni flóknu pólitísku stöðu og hinu flókna dæmi efnahagsmálanna upp í einfalda spurningu: „Ætlar stjórnarandstaðan að sýna það pólitíska ábyrgðarleysi að fella bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn- ar, þegar þau koma til atkvæða á Alþingi?" Þessi setning hljómar nú í öllum áróðri stjórnarliða og það látið fylgja með, að stjórnar- andstaðan hljóti að verða kölluð til ábyrgðar á efnahagserfiðleik- um íslendinga, ef svo færi. Hér eru flóknir hlutir einfald- aðir um of, eins og reyndar gæg- ist oft fram ef málflutningur stuðningsmanna ríkisstjórnar- innar er skoðaður ofan í kjölinn. Við skulum athuga nokkur atriði í þessu sambandi. Deilt um meginstefnu 1. Átökin í stjórnmálum og efnahagsmálum Islendinga snú- ast alls ekki um þessi einstöku bráðabirgðarlög ríkisstjórnar- innar. Þau snúast um efna- hagsstefnu þessarar ríkisstjórn- ar í heild. Þau snúast um stefnu, sem í mesta góðæri okkar Is- lendinga hefur leitt til þess, að allt atvinnulíf er hér á heljar- þröm, erlendar skuldir nálgast hættumörk og atvinnuleysisvof- an er farin að gægjast inn um gættina. Átökin snúast um það að látið sé af þessari stefnu sem fyrst og að hér verði tekin upp ábyrg stefna í atvinnu- og efna- hagsmálum, sem efli atvinnulíf- ið, auki þjóðarframleiðsluna og tryggi öllum vinnandi höndum arðsama atvinnu. Því fyrr sem slík stefna er tekin upp, því betra. I því efni geta nokkrir mánuðir skipt miklu máli. Hluti af víö- tækari aðgerðum 2. Þó að ríkisstjórnin láti nú líta svo út sem bráðabirgðalögin séu aðalatriðið í hennar huga þessa stundina fer því víðs fjarri. Bráðabirgðalögin eru hluti af víðtækari aðgerðum, sem boðaðar hafa verið — og sem margir stjórnarliðar telja að verði að afgreiða í einu lagi. Um þessar aðgerðir er ekki enn samstaða innan stjórnarinnar. Árásirnar á stjórnarandstöðuna eru því settar fram til að draga athyglina frá þeirri óeiningu, sem ríkir innan stjórnarliðsins um þessar viðbótaraðgerðir. Hvað með vísitölu- kerfið? 3. Eitt þessara mála, sem tengjast bráðabirgðalögunum er breyting á vísitölukerfinu. Framsóknarflokkurinn virðist leggja mikla áherslu á það mál og í forystugreinum í Tímanum hefur það verið talið eitt aðal- atriðið í aðgerðum ríkisstjórnar- innar. Um það mál er hinsvegar ekkert samkomulag. Hvaða aug- um munu Framsóknarmenn líta það, ef ekki reynist unnt að ná samkomulagi um nýjan vísi- tölugrundvöll, áður en bráða- birgðalögin koma til samþykkt- ar? Um það hafa þeir ekkert sagt. Hvað með orlofið? 4. Annað mál, sem tengist bráðabirgðalögunum er lenging orlofs. Guðmundur J. Guð- mundsson hefur lýst því yfir að stuðningur hans við bráða- birgðalögin sé háður því, að lög um lengingu orlofs verði jafn- framt samþykkt. Ýmsum finnst það hinsvegar dálítið skondið að um leið og laun eru skert, þá sé verið að gefa fólki lengra frí. I þeim hópi eru ýmsir forystu- menn launþega og stuðnings- menn bráðabirgðalaganna. Stjórnarliðið er því alls ekki bú- ið að bíta úr nálinni með það mál. Allt einn pakki — eða hvað? 5. Ýmis fleiri mál tengjast af- greiðslu bráðabirgðalaganna. Um það segir Guðmundur G. Þórarinsson í grein í Tímanum 13. október sl.: „Bráðabirgðalög- in eru aðeins hluti af heildarað- gerðum í efnahagsmálum. Hinn hlutinn eru lagafrumvarp um láglaunabætur, breytingar á vísitölukerfinu og breytingar á orlofslögum. Auðvitað á að ræða þessar aðgerðir í heild, en ekki láta stjórnarandstöðuna velja út Birgir Isl. Gunnarsson úr á þann hátt, sem hún vill ræða og fella. Þess vegna þurfa öll þessi lagafrumvörp að koma fram strax þannig að fjalla megi um þau með bráðabirgðalögun- um.“ Alþýðubandalagið vill hins- vegar leggja fram bráðabirgða- lögin ein og sér strax og knýja á um afgreiðslu þeirra. Um þetta er nú þjarkað í stjórnarherbúð- unum. Öngþveitið á ábyrgö stjórnarinnar 6. Stjórnarliðar eru smám saman að sjá að sá áróður geng- ur ekki — að stilla einungis bráðabirgðalögunum upp, eins og þau séu það, sem allt snýst um. Nú fara þeir fram á viðræð- ur við stjórnarandstöðuna. Það hefði að sjálfsögðu átt að gerast fyrir tveimur mánuðum, þegar stjórnin sá, hvernig landið lá. Hún þverskallaðist við. Allur dráttur í þessu máli er því á hennar ábyrgð, svo og allt það öngþveiti sem mál eru að fara í. Af þessu öllu má sjá að það áróðursbragð stjórnarliða að reyna að stilla stjórnarandstöðu upp við vegg með bráðabirgða- lögunum er einungis sett fram til að slá ryki í augu fólks. Málið er ekki svona einfalt. Farmenn sam- þykktu nýjan kjarasamning med 77% atkvæöa UNDIRMENN á farskipum sam- þykktu með yfirgnæfandi meirihluta alkva-ða nýgerðan kjarasamning þeirra við útgerðarmenn. Alls greiddu 128 atkvæði. Af þeim sögðu 99 já og 26 greiddu atkvæði gegn samningnum. 3 seðlar voru ógildir, að sögn Guðmundar Hallvarðssonar, formanns Sjómannafélags Revkja- víkur. Eins og kunnugt er af fréttum fóru undirmenn á farskipum í verkfall til að knýja á um bætt kjör sín. Hvorki gekk né rak á fundum þeirra og útgerðarmanna, fyrr en ríkissáttasemjari lagði fram sáttatillögu í deilunni, sem báðir aðilar samþykktu með fyrir- vara um samþykki félagsmanna, sem nú liggur fyrir. Alþingi: Þingfundur í rúmar tvær mínútur Næstu fundir boðaðir á mánudag FUNDUR sameinaðs Alþingis á fimmtudag hófst um klukkan 14.00 og lauk rúmum tveimur mín- útum síðar. Tvö mál voru á dagskrá, hvernig ræða skyldi þingsályktunartillögu um veiði í erlendri fiskveiðilandhelgi og þingsályktunartillögu um stefnu í flugmálum. , Forseti sameinaðs þings, Jón Helgason, lagði til að báðar þingsályktunartillögurnar skyldu hljóta eina umræðu og var það samþykkt samhljóða. Lauk þar með fundi sameinaðs þings og ekki var fundað í deildum. Næstu fundir verða boðaðir með dagskrá á mánudag. S SAMTALS HÆKKUN INETTOI ___1131000 NÝIR OG HÆKKAÐIR SKATTAR FRÁ HAUSTINU 1978 (VERÐLAG FJÁRLAGA1982, ÞÚS. KR.) 295 000 256000 217000 I 191000 M 130000 107000 47000 45000 30000 i 5 S i 2 : w 8i ’ 1 V i .c : 2 9 ! % 5 > -í i: i ,S S rlt > wT i s § : 4C JC R 2? ! I i j ii p «1 s f I I & * 2? 1 28500 13500 m nfB 2 :g !i I! li I -c 1 «0 l E | -a: 5 $ § FRUMVARP til fjárlaga fyrir árið 1983 hefur nú verið lagt fram á Alþingi. Engin stefnubreyting er í frumvarpinu frá því sem verið hefur, en eins og kunnugt er hafa vinstri stjórnirnar sem hér hafa setið siðan 1. september 1978, þegar Olafur Jóhannesson myndaði stjórn framsóknarmanna, alþýðuflokksmanna og alþýðu- bandalagsmanna, lagt á það höfuðkapp að þyngja skattbyrðina. Teikningin sem hér birtist sýnir hina nýju skatta vinstri stjórnanna frá 1978, en miðað er við verðlag fjárlaga 1982, og við gerð myndarinnar hefur verið tekið tillit til þeirra hækkana, sem mælt var fyrir um með bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar frá þvi i ágúst síðastliðnum. Matthías A. Mathiesen, alþingismaður, segir um skattastefnu fjárlagafrum- varpsins fyrir árið 1983: „Aukin skattheimta í tíð ríkisstjórna Olafs Jóhannessonar og Gunnars Thor- oddsen nemur í tekjum ríkisins á árinu 1983 1.650 milljónum króna (1.131 milljón á verðlagi fjárlaga 1982, innsk. Mbl.) eða 35 þúsund krónum á hverja 5 manna fjölskyldu. Ekki er ætlunin að létta skattbyrðina á næsta ári. Skattvísi- talan ætluð 152 og hækkar um 52% i samræmi við spá Þjóðhagsstofnunar um tekjuaukningu milli áranna 1981—1982. Síðan gefur ríkisstjórnin fyrirheit um að skattbyrðin skuli ekki þyngjast á næsta ári, en það þýðir að ríkisstjórnin reiknar með 60% verðbólgu og hefur gefist upp (í baráttunni við verðbólguna)." Garðabær: Grifter-hjóla- þjófar á ferö TVO síðustu daga hefur verið til- kynnt til rannsóknarlögreglunnar í Hafnarfirði um þjófnað á þremur reiðhjólum af Grifter-gerð í Garða- bæ. Einu hjóli var stolið í Túnun- um, öðru í Hlíðarbyggð og því þriðja í Lækjarfit. Rannsóknar- lögreglan biður fólk sem verður vart við slík hjól í reiðileysi eða óvenjuleg sölutilboð á hjólum þessarar gerðar að hafa samband við sig. Nýtt reiðhjól þessarar gerðar kostar, samkvæmt upp- lýsingum frá innflytjanda, um 4.500 kr. Skoðanakönnun: 42,3% styðja ríkisstjórnina DAGBLADIi) og Vísir hefur birt niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi ríkisstjórnar Gunnars Thor- oddsen. Samkvæmt henni sögðust 42,3% aðspurðra styðja stjórn- ina, 28,8% voru henni andvígir, 23,2% voru óákveðnir og 5,7% vildu ekki svara. Urtakið var 600 manns. Þá sögðust 35% aðspurðra í skoðanakönnun Dagblaðsins og Vísis vera fylgjandi bráðabirgða- lögum ríkisstjórnarinnar, að því er fram kom í blaðinu á miðviku- dag. Andvígir voru 29,5% að- spurðra, 29,5% voru óákveðnir og 6,0% vildu ekki svara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.