Morgunblaðið - 16.10.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1982
23
Karpov býr svo um hnútana að
Nunn nær engu mótspili. Ef nú
15. - Dxa3? þá 16. Rxb5!
— Rfd7, 16. Hal — Rf8?
Nunn vonast til þess að koma
þessum riddara í spilið í gegnum
e6, en eftir svar Karpovs verður
hann enn óvirkari en áður.
17. d5! — Hac8, 18. Hfdl — c5
Svartur hefur mun lakara
endatafl eftir 18. — cxd5, 19.
Rxd5 - Dxd2, 20. Hxd2 - Rxd5,
21. Hxd5 - Hxc2 22. Hxb5.
19. Bfl — c4
20. a4H
Vinningsleikurinn, sem byggð-
ur er á hárnákvæmum útreikn-
ingum. Ef nú 20. — b4 þá 21. Rb5
— c3, 22. De2 - Hed8, 23. Rxa7!
— Dxa7, 24. a5 o.s.frv.
— cxb3, 21. Rxb5 — I»xd2, 22.
Hxd2 — Hxc2, 23. Hxc2 — bxc2,
24. a5 — Rc8, 25. Hcl
Endataflið er léttunnið, því
menn hvíts eru allsráðandi á
drottningarvæng.
— Rd7, 26. Hxc2 — Rc5, 27. Rxd6
— Rxd6, 28. Hxc5 — Rxe4, 29.
Hc7 — Bf8, 30. a6 — Hd8, 31.
Hxa7 og svartur gafst upp, því
hvíta frípeðið verður ekki stoðv-
að til lengdar.
Gísli Þórðarson
bóndi - Minning
Til foldar er hniginn mikill hér-
aðshöfðingi og félagsmálaforingi
vestur í Hnappadalssýslu. Sunnu-
daginn 10. október andaðist á
Sjúkrahúsi Akraness Gísli Þórð-
arson, bóndi og hreppstjóri í
Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi. Ég
skrifa þessar fátæklegu iínur,
vegna þess að ég á honum óend-
anlega mikið að þakka, bæði sem
fósturbróður mínum fyrst, og síð-
ar sem fósturföður.
Gísli var fæddur í Reykjavík 2.
júní 1906. Hann var sonur Þórðar
Gíslasonar, hreppstjóra, og Ingi-
bjargar Guðmundsdóttur ættaðri
úr Borgarfirði. Þau fluttu fljót-
lega vestur í Kolbeinsstaðahrepp.
Mýrdalur stendur á undurfögrum
stað undir Kolbeinsstaðafjalli, en
þaðan sést vítt yfir sveitina og
nærliggjandi sveitir. Þar ólst Gísli
upp á fyrirmyndarheimili ásamt
systur sinni Guðrúnu og frænda,
Gústav A. Guðmundssyni, fyrr-
verandi póstfulltrúa í Reykjavík.
Þórður faðir Gísla andaðist
1928. Tók Gísli þá við búsforráð-
um, sem ráðsmaður hjá móður
sinni, aðeins 22ja ára gamall.
Sama ár var hann settur og síðar
skipaður hreppstjóri í Kolbeins-
staðahreppi. Hefur hann því verið
hreppstjóri í sínu sveitarfélagi í
um 54 ár. Er það vafalaust með
lengsta embættisaldri á þessu
sviði, sem gerist hér á landi. Gísli
mun hafa unnið fyrir eina sjö eða
átta sýslumenn á þessu tímabili
og hef ég heyrt ýmsa þeirra láta
sérlega vel af allri embættisfærslu
hans. Hann var auk þess mikill
listaskrifari.
Gísli sótti skóla alla leið austur
á Hérað, í Eiðaskóla. Sjálfsagt
hefur einhverju ráðið, að þá var
þar skólastjóri frændi hans, herra
Auðunn Teitsson
Minningarorð
Fæddur 6. janúar 1957
Dáinn 24. september 1982
„Véf 8jáam hvar sumar rrnnur
mcA .sól yfir dauóans h*f
og lyflir í eilífan aldingarð
►ví öllu. aem Drottinn (jif.“
(MmtL JochumKNon.)
Laugardaginn 2. október sl. var
til moldar borinn að Hvanneyr-
arkirkju Auðunn Teitsson, bóndi á
Grímarstöðum í Andakílshreppi.
Frændi okkar og vinur er horfinn
yfir landamæri lífs og dauða.
Auðunn var fæddur og uppalinn
á Grímarstöðum, sonur hjónanna
þar, Teits Daníelssonar og Dóru
Þórðardóttur. Yngstur fimm
bræðra. Hann stundaði nám í
skólum héraðsins, fyrst á Klepp-
járnsreykjum, síðan í Reykholti
og loks lauk hann búfræðiprófi frá
Hvanneyri. Hafði hann fyrir fáum
árum hafið félagsbúskap að Grim-
arstöðum ásamt föður sínum og
bróður. Heitbundinn var hann
ungri myndarstúlku, Heiðu Björk
Karlsdóttur. Lífið virtist blasa
við.
Sunnudaginn 19. september sl.
kom Auðunn heitinn til okkar eins
og svo oft áður, hress og kátur að
vanda og dvaldi um stund. Þá
grunaði engan hvað í vændum var.
Föstudagurinn 24. september
rann upp, heiður og fagur. Hvað
skyldi hann bera í skauti sínu?
Skyndilega bar ský fyrir sólu.
Fregn þess efnis, að Auðunn hefði
látist þá um morguninn barst
okkur um hádegið. Þessu var erfitt
að trúa. Góður drengur er horfinn,
en björt minning hans lifir.
Við biðjum algóðan Guð að búa
honum samastað hinu megin við
landamærin og biðjum hinn sama
einnig þess, að vernda og styrkja
syrgjandi aðstandendur, unnustu,
foreldra og bræður.
Sigrún og Olafur Steinþórsson
Ásmundur Guðmundsson fyrrver-
andi biskup. Gísli brautskráðist
svo frá Eiðaskóla árið 1925. Næstu
árin annaðist hann barnakennslu í
heimasveit og víðar.
Fljótlega tóku að hlaðast á
Gísla margskonar félagsleg störf.
Var það oft með hreinum ólíkind-
um hvað hann komst yfir. Hann
var t.d. oddviti sveitarstjórnar ár-
in 1942—1950 og aftur 1958—1974,
alls í 24 ár. Þá var hann 15 ár í
stjórn Búnaðarsambands Snæfell-
inga, mörg ár í stjórn Búnaðarfé-
lags síns hrepps. Formaður og
gjaldkeri sjúkrasamlagsins um
langt árabil. Formaður ung-
mennafélagsins á yngri árum, í
varastjórn Kaupfélags Borgfirð-
inga og er þá vafalaust mörgu
sleppt. Það er því alveg ljóst, að
Gísli hefur verið valinn til fjöl-
margra trúnaðarstarfa fyrir sveit-
unga sína sökum sinna miklu
hæfileika til að vera í forystu,
starfa með öðrum og fyrir aðra.
Fyrir öll sín miklu og margvíslegu
félagsmálastörf sýndu sveitungar
hans honum mikinn og verðskuld-
aðan heiður 1976 með því að gera
hann að fyrsta heiðursborgara
sveitarinnar. Veit ég að hann mat
þá viðurkenningu mikils.
Þrátt fyrir sín miklu störf að
alls konar félagsmálum og við
embættisstörf var Gísli þó alltaf
fyrst og . fremst bóndi, góður
bóndi. Hann þótti sérstaklega góð-
ur fjárbóndi, var afar glöggur á fé
og fór afar vel með það, eins og
allan búpening. Hitt liggur í aug-
um uppi, að hin margvíslegu
opinberu störf hafa tafið hann
verulgea frá bústörfum. Hefur
þetta trúlega einungis tekist
vegna einstaks dugnaðar Guðrún-
ar konu hans. Mýrdalur er stór og
kostamikil jörð, sérstaklega til
fjárræktar. Gísli átti oft verð-
launafé á fjárræktarsýningum.
Hinn 30. apríl 1938 gekk Gísli í
hjónaband. Hann giftist þann dag
Guðrúnu frá Lækjarbug í
Hraunhreppi, dóttur Guðjóns
bónda þar, Þórarinssonar Öfjörðs
og konu hans Valgerðar Stefáns-
dóttur. Hófu þau þá búskap í Mýr-
dal. Þau eignuðust fimm syni.
Fyrst Þórð, sem andaðist í frum-
bernsku, þar næst tvíburana Þórð
og Guðjón. Síðan Ingólf og síðast
Jón Öfjörð. Þórður er giftur Krist-
ínu Stefánsdóttur, Guðjón er gift-
ur Ingibjörgu Haraldsdóttur og
Ingólfur Björk Gísladóttur. Jón er
enn í foreldrahúsum. Allir eru
þeir bændur. Þórður og Jón í
Mýrdal. Guðjón í Lækjarbug og
Ingólfur á Flesjustöðum. Má segja
að þeir hafi allir fetað í fótspor
föður síns. Þeir hafa menntun og
atvinnumöguleika á ýmsum svið-
um, en allir leitað heim til æsku-
stöðvanna.
Guðrún, kona Gísla, bjó honum
gott og stórmyndarlegt heimili.
Þau voru samhent í alveg sér-
stakri gestrisni sinni, enda var
gestakoma i Mýrdal æði mikil,
bæði af ættingjum og vinafólki.
Ég ætla, að hvernig sem á hafi
staðið, hafi ævinlega verið tíml til
að taka á móti gestum, jafnvel þó
heyannir stæðu sem hæst. Sýnir
þetta vel hversu sterka félags-
hyggjuhugsjón Gísli hafði.
Árið 1962 var Gísli sæmdur
hinni íslensku fálkaorðu fyrir
störf í landbúnaðar- og félagsmál-
um. Var það verðskuldaður heiður
fyrir mann, sem hafði unnið jafn-
vel og mikið að þessu málum, sem
hann hafði gert.
Það var mjög einkennandi fyrir
Gísla, að hann hafði ánægju af að
hafa fólk í nærveru sinni. Sér-
staklega báru þau hjón hlýhug til
ungs fólks, bæði barna og ungl-
inga. Þykist ég þar geta talað, eins
og sá sem veit, því að öll börn
okkar Hrefnu hafa dvalið í Mýrdal
i lengri og skemmri tíma, sumar
eftir sumar. Þau uppeldisáhrif,
sem þau hafa þar orðið fyrir,
verða seint fullþökkuð.
Ég hef hér aðeins skrifað örfá
ófullkomin minningarorð, um
mann, sem var mér afar kær og
sem ég á mikið að þakka. En lífið
hefur sinn gang. Það er alltaf jafn
þungt, þegar dauðann ber að
höndum. Góður orðstír deyr aldr-
ei, segir í Hávamálum. Það á hér
við.
Við hjónin og börn okkar vott-
um Guðrúnu, sonum hennar og
fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Pétur Pétursson
TR00PER
A VESTURLANDI
SYNINGARSTAÐIR:
Króksfjarðarnes - Skriðuland - Búðardalur
Stykkishólmur - Grundarfjörður - Ólafsvík
Hellissandur- Vegamót- Borgarnes
Akranes
TROOPER í tómstundum
TROOPER til allra starfa
Skemmta hjá íslend-
ingafélögum um helgina
UM HEIXIINA munu íslendingafé-
lögin í Osló og Gautaborg gangast
fyrir vísnakvöldum í báðum borgun-
um.
Þau hafa boðið til sín hljóm-
sveitinni Hrím og Bergþóru Árna-
dóttur, en Bergþóra hefur sem
kunnugt er, nýlega gefið út plöt-
una Bergmál.
Fyrir utan leik og söng á sam-
komum Islendinga ráðgera Hrím
og Bergþóra að skemmt í nokkrum
samkomuhúsum í Osló.
Isuzu Trooper leggur land undir fót og heldur
í hringferð um íslandtil þess að leyfa
landsmönnum að líta á sig.l förinni verður
einnig hinn vinsæli Isuzu Pick-up. Komið verður
við í öllum landsfjórðungum og mun þá gefast
tækifæri til þess að kynnast kostum þessara
vönduðu vagna frá ISUZU. Nánar mun verða
tilkynnt um tilhögun ferðarinnar í útvarpi.
SÝ/v,ng^rstaO/>ö
T'LKy^T/^G T,MAP
^ ^Tvarp/
V
□ $ VÉIADEILD GM
Ármúla3 CC 38900 !*—i