Morgunblaðið - 07.11.1982, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982
54
SVIPMYND A SUNNUDEGI
SR f
yy
BUNOESKANZLERAMT
Hans-Jochen Vogel
fyrir utan
kanslaraembættið
í Bonn
Hans-Jochen Vogel
Kanslaraefni jafnaðarmanna í Vestur-Þýzkalandi
Hans-Jochen Vogel,
sem nú er tekinn viö
sem kanslaraefni jafn-
aöarmanna í Vestur-
Þýzkalandi, er alls ekki dæmi-
gerður jafnaöarmaöur eins og
báöir forverar hans. Þeir Willy
Brandt og Helmut Schmidt koma
báöir frá verkamannaheimilum,
Vogel hins vegar kemur úr
menntamannafjölskyldu. Bæöi
faöir hans og afi voru háskóla-
prófessorar og hann heföi sjálf-
sagt getaö gengiö sömu braut
sjálfur. Vogel varö efstur á laga-
prófi úr hópi 550 stúdenta og
sem doktorsritgerö valdi hann
refsiréttarleg vandamál varöandi
andstöðu viö ríkisvaldið. En
bæöi hann og yngri bróöir hans,
Bernhard, uröu stjórnmálamenn
— en hvor í sínum flokki. Sá síö-
arnefndi er nú forsætisráðherra
kristilegra demókrata í fylkinu
Rheinland-Pfalz.
Hans-Jochen Vogel er nú 56
ára gamall. Hann gekk í flokk
jafnaðarmanna (SPD) áriö 1950
og tíu árum síðar varð hann yfir-
borgarstjóri í Munchen, sem þá
var háborg jafnaðarmanna mitt í
hafi hægri manna í sjálfu Bayern.
Þegar hann var endurkjörinn
1966 hlaut hann 78% af greidd-
um atkvæöum.
Áriö 1972 hélt hann til Bonn,
þar sem hann tók viö ráöherra-
embætti í sambandsstjórninni og
gegndi þar ýmsum ráöherraemb-
ættum, en þó lengst af embætti
dómsmálaráðherra, sem senni-
lega hefur alla tiö staöiö huga
hans næst. En hann lét einnig
mikið aö sér kveöa í flokksstarf-
inu og átti jafnframt mikinn þátt í
því aö leysa ýmis vandamál sem
upp komu í stjórnarsamvinnunni
viö frjálsa demókrata (FDP).
Vogel hefur einmitt fengiö á
sig mikiö orö fyrir skyldurækni
gagnvart flokki sínum. Þegar
jafnaöarmenn í Vestur-Berlín
uröu fyrir stóráföllum fyrir tveim-
ur árum sökum mikils byggingar-
hneykslis, hélt Vogel þangaö til
þess aö endurskipuleggja flokks-
starfsemina og koma flokki sín-
um þar til virðingar á nýjan leik.
Þar hafði hann þó ekki erindi
sem erfiði. Hann tapaöi fyrst í
kosningum á móti hægri mannin-
um Richard von Weizacher. Síð-
an mátti Vogel bíöa lægri hlut í
sínum eigin flokki, er hann vildi
hefja stjórnmálasamvinnu viö
GAL (Grune und Alternative),
sem er lausleg hreyfing á vinstri
væng stjórnmálanna í Vestur-
Þýzkalandi, þar sem umhverfis-
verndarflokkurinn „Græningjarn-
ir“ ráöa mestu.
Engu aö síöur var Hans-
Jochen Vogel talinn hepþilegasti
maðurinn í hópi jafnaóarmanna
til þess aö taka viö af Helmut
Schmidt. Þar hefur fyrri reynsla
Vogels sennilega ráöið mestu.
En einnig hefur dugnaöur hans í
flokksstarfinu fyrr og siöar skipt
miklu máli. Fyrir bragöiö er hann
flestum öörum kunnugri öllum
innanflokksmálum innan SPD og
í meiri tengslum þar viö menn og
málefni en nokkur annar af for-
ystumönnum flokksins.
Þannig hefur Vogel látiö starf-
semi yngri manna innan SPD sig
miklu skipta. Hreyfing JUSOS
eöa ungsósíalistanna hefur oft
veriö forystu flokksins mjög erfiö
og látið lítt aö stjórn en viljað
fara sínar eigin leiöir. Þaö eru
ekki mörg ár síðan ungsósíalist-
arnir höfðu horn í síðu Vogels og
þá heföi vart komið til greina, aö
hann tæki við forystu í SPD. En á
síöustu tveimur árum hefur hann
lagt sig fram viö aö afla sér vin-
sælda á meðal ungsósíalistanna
og honum hefur einnig tekizt aö
afla sér álits hjá friöar-
hreyfingunni og umhverfisvernd-
armönnum. Meiri samstaóa ríkir
nú innan flokks SPD en oft áöur
á undanförnum árum og þaö er
ekki sízt aö þakka viðleitni Vog-
els viö aö draga úr innanflokks-
deilum.
Hans-Jochen Vogel getur hins
vegar varla aö svo komnu gert
sér mlklar vonir um að veröa
kanslari í Vestur-Þýzkalandi.
Fylgi SPD hefur fariö minnkandi
að undanförnu og skoðanakann-
anir sýna að hægri flokkarnir
CDU/CSU njóta nú fylgis um og
yfir 50% kjósenda en fylgi SPD er
komiö niður fyrir 40%.
Sá fræöilegi möguleiki er þó
vissutega fyrir hendi, aö jafnaö-
armenn og græningjarnir
svonefndu nái meirihluta saman,
er kosiö veröur til sambands-
þingsins í vor og Hans Geissler,
aöalritari CDU og núverandi fjöl-
skyldumálaráöherra vestur-
þýzku stjórnarinnar, lét hafa eftir
sér fyrir skemmstu, aö verkefni
Vogels sé einmitt aö framkvæma
þá hugmynd, sem sprottin sé frá
Willy Brandt, aö koma á „rauö-
grænum" meirihluta í Bonn.
Hans-Jochen Vogel er kaþ-
ólskur og sagður ráöa yfir mjög
sannfærandi persónuleika. Hann
hefur komiö til íslands og jafnan
sýnt íslendingum mikinn velvilja,
ekki hvaö sízt íslenzkum náms-
mönnum í Múnchen, á meöan
hann var þar borgarstjóri. Yfir-
bragö hans er rólegt og yfirveg-
aö og hann þykir mjög rökfastur
í umræöum. Hann hefur mikið
Ijóst hár og er brosmildur maöur.
Samt er hann ekki þekktur fyrir
aö vera fyndinn eða hnyttinn
sjálfur. En enginn skyldi misskilja
framkomu hans, enda þótt hún
þyki aðlaðandi. Hann hefur orö á
sér fyrir aö vera haröur
samningamaöur og mjög snjall í
því aö ná sínu fram.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Fjögurra kvölda tvímenn-
ingskeppni er nýlega lokið hjá
deildinni og urðu úrslit þau að
Sigurður Björnsson og Lýður
Hjálmarsson sigruðu með yfir-
burðum, hlutu 523 stig.
Röð næstu para:
Sigurrós Sigurjónsdóttir —
Gunnar Guðmundsson 491
Benjamín Þórðarson —
Jóhann P. Sveinsson 467
Gísli Guðmundsson —
Ragnar Þorvaldsson 464
Meðalskor 440.
Mánudaginn 8. þ.m. hefst
hraðsveitakeppni. Hefst spila-
mennskan kl. 19.30 og eru spilar-
ar beðnir að mæta stundvíslega.
Bridgefélag
Akureyrar
Nú er lokið fvrstu keppni BA, en
það var Thule-tvímenningur. Að
þessu sinni sigruðu Soffía Guð-
mundsdóttir og Ævar Karlsson
nokkuð örugglega. Þetta er í ann-
að sinn sem þau vinna þessa
keppni, en það er Sana hf. sem
gefur verðlaunin, sem eru tveir
forkunnarfagrir farandbikarar.
Ævar og Soffía hlutu 758 stig
og hlutu góða skor öll kvöldin í
keppninni. Spilað var í þremur
14 para riðlum, sem er mjög góð
þátttaka.
Röð næstu para:
Stig
Magnús Aðalbjörnsson —
Gunnlaugur Guðmundss. 741
Ármann Helgason —
Jóhann Helgason 726
Jakob Kristinsson —
Stefán Jóhanness. 710
Alfreð Pálsson —
Júlíus Thorarensen 709
Meðalskor 624
Næsta keppni félagsins verður
Akureyrarmótið í sveitarkeppni
og á síðasta spilakvöldi fór fram
atkvæðagreiðsla um fyrirkomu-
lag keppninnar. Verður spilað í
riðlum, tveimur eða þremur eftir
þátttöku, sem stefnir í met. Spil-
aðir verða 32 spila leikir.
Keppnin hefst nk. þriðjudag í
Félagsborg kl. 20 stundvíslega.
Keppnisstjóri verður sem fyrr
Albert Sigurðsson.
Um helgina eru væntanlegar 9
sveitir frá Húsavík til árlegrar
keppni við heimamenn.
HreyfiII —
Bæjarleiðir
Fjórum umferðum af fimm er
lokið í tvímenningskeppni bíl-
stjóranna og er staða efstu para
þessi:
Guðmundur Aronsson —
Jóhann Jóelsson 746
Guðjón Guðmundsson —
Hjörtur Elíasson 734
Jón Sigtryggsson —
Skafti Björnsson 730
Flosi Ólafsson —
Sveinbjörn Kristinsson 700
Meðalskor 660.
Síðasta umferðin verður spil-
uð mánudagskvöld kl. 20 í
Hreyfilshúsinu.
Bridgefélag
Sauðárkróks
20. og 27. október sl. var spiluð
firma- og einmenningskeppni fé-
lagsins. Þrjú efstu fyrirtækin
urðu:
stig.
Sauðárkróksapótek
(Skúli Jónsson) 87
Steypustöðin
(Sigurgeir Þórarinss.) 83
Matvörubúðin
(Jón Tryggvi Jökulss.) 78
Úrslit í einmenningskeppninni
urðu þessi:
Jón Tryggvi Jökulss. 153
Stefán Skarphéðinss. 152
Skúli Jónsson 151
Sigurgeir Þórarinss. 150
Jón Jónasson 149
Þórdís Þormóðsd. 146
Næst verður spilaður
tvímenningur miðvikud. 10. nóv-
ember.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Sl. mánudagskvöld voru spil-
aðar tvær fyrstu umferðirnar í
sveitakeppni félagsins.
Alls mættu 12 sveitir til leiks
og er staðan nú eftirfarandi:
stig
Sveit Aðalsteins Jörgenssonar 40
Sveit Sævars Magnússonar 40
Sveit Huldu Hjálmarsdóttur 39
Sveit Drafnar Guðmundsd. 23
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar nk. mánudagskvöld á
sama stað, og að venju hefst
spilamennskan kl. 19.30.