Morgunblaðið - 07.11.1982, Síða 7

Morgunblaðið - 07.11.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982 55 Sjötugur á morgun: GUÐMUNDUR A. FINNBOGASON í maíhefti hins þjóðlega tíma- rits „Heima er best“ á sl. ári er forystugreinin helguð Guðmundi A. Finnbogasyni á Hvoli í Innri- Njarðvík á Suðurnesjum. Þar er þess getið, að hún beri nafnið Sagnamaður Suðurnesja, og eftir lestur hennar megi gjörla sjá, að Guðmundur beri það nafn með sanni og sæmd. Enda þótt segja megi, að grein þessi sé allnokkur kynning á Guð- mundi Finnbogasyni, er hitt þó vitanlega sannast mála, að sjálfur hefur hann með starfi sínu og skriftum sínum best og ótvírætt sýnt fram á hversu vel hann ber þessa nafngift. Lesendum Morgunblaðsins er þetta líka mæta vel kunnugt, bæði af greinum Guðmundar hér í blað- inu um samferðamenn hans, í eft- irmælum og afmælisminningum. Og þó ekki síður af fróðlegum og skemmtilegum sagnaháttum hans, sem á sínum tíma birtust í Lesbók. Þá ber og þess að geta, síðast en ekki síst, að árið 1978 kom bók frá hendi Guðmundar og var ekki von- um fyrr, svo margt og mikið, sem áður hafði birst eftir hann í ýms- um blöðum. Bók Guðmundar ber heitið Sagnir af Suðurnesjum og sitthvað fleira sögulegt. Með út- komu hennar sannaðist það, sem í almæli var, að hann átti í fórum sínum mikinn og margháttaðan fróðleik og sagnir úr heimabyggð sinni, Njarðvíkunum, og ná- grannasveitum. Þar syðra er Guðmundur fædd- ur og uppalinn og þar hefur hann dvalist s.a.s. öll sín æviár, þar til nú allra síðustu misserin sem þau hjónin hafa dvalið á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þess vegna er það, að Suðurnesin eru sá vettvangur, sem Guðmundur hefur helgað sína fróðleiksgáfu, um þau hefur hann safnað miklum gögnum, búsetu þar og mannlífið yfirleitt í þess margbreytilegu myndum, lífsmáta og atvinnuhætti á sjó og landi, í önnum afladaganna, í landlegum ógæftanna, vandræðum fiskileys- isins og góðu gengi uppgripanna og gæftanna þegar allt lék í lyndi. En það, sem Guðmundi er þó hug- leiknast, er fólkið sjálft, innbyrðis skyldleiki þess og ættartengsl, uppruni þess og búseta, barátta þess fyrir lífinu í blíðu og stríðu. Sá mikli kunnugleiki, sem Guð- mundur býr yfir á þessu sviði, er með ólíkindum, eins og raunar oft hefur komið fram í skrifum hans, er hann hefur minnst kunningja sinna og samferðamanna á merkisdögum í lífi þeirra. En þá er nú farið að nálgast tilefni þessa greinarkorns og það er einn mikill merkisdagur í lifi Guðmundar sjálfs, þar sem hann er sjötugur á morgun, mánudag 8. nóvember. Fæddur er hann í Tjarnarkoti í Innri-Njarðvík og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Þorkelínu Jónsdóttur frá Hópi i Grindavík og Finnboga Guðmundssonar frá Vatnsnesi í Keflavík. Skólagöngu naut Guðmundur aðeins þrjá vet- ur í Keflavíkurbarnaskóla. En heimilið og umhverfið var mikill skóli, ekki síst vinnuskóli við dag- lega önn til sjós og lands, fjöl- breytt vinnubrögð þess tíma, þar sem innihald dagsins (og raunar stundum næturinnar) var vinnan, starfið og sjálfsbjargarviðleitnin, þar sem frumskilyrðið var að hafa í sig og á án þess að vera upp á aðra kominn. Það var lærdómsrík reynsla og gaf raunar lítið tóm til að líta upp úr dagsins ríku önn. En þó var ekki um annað að gera en læra af samferðamönnunum, heyra hvað þeir eldri voru að segja og höfðu til málanna að leggja. Og í þessum lífsins skóla var Guð- mundur Finnbogason bæði næmur og námsfús lærisveinn. Hann tók eftir og tileinkaði sér hvað fram fór í kringum hann. Hann lagði eyrun við því, sem aðrir sögðu og hann lagði það á minnið. Þess vegna safnaðist honum mikill fróðleikur um menn og málefni liðinna tíma á Suðurnesjum. Allt slíkt drakk Guðmundur í sig og það er geymt en ekki gleymt. Það mun sannast á sínum tíma. Söfn- un Guðmundar á sögulegum heim- ildum mun koma framtíðinni að drjúgum notum, t.d. þegar skrifuð verður Njarðvíkursaga á sínum tíma. En Guðmundur Finnbogason hefur ekki einungis varið tóm- stundum sínum til að skyggnast aftur í fortíðina og safna gömlum heimildum. Hann hefur líka helg- að kröfum og þörfum samtímans krafta sína, ekki síst kirkjumálum í heimabyggð sinni. Svo áratugum skiptir hefur Guðmundur verið trúnaðar- «• og fjárhaldsmaður Njarðvikurkirkju og látið sér einkar annt um hana, bæði sögu hennar, útlit og allan hag. Og þeg- ar sóknin var orðin fullfjölmenn fyrir kirkjuna, beitti hann sér af miklum dugnaði og útsjónarsemi fyrir byggingu safnaðarheimilis. Mun það myndarlega hús um ókomin ár bera glöggt vitni um fórnfýsi og framsýni Guðmundar í kirkju- og safnaðarmálum Njarð- víkinga. Kona Guðmundar er Guðlaug Bergþórsdóttir frá Vestmannaeyj- um, mæt kona og hin myndarleg- asta húsfreyja meðan hún fékk notið sín, en hefur hin síðari ár orðið að dvelja langdvölum í sjúkrahúsum. Guðmundur hefur að undanförnu líka átt við van- heilsu að stríða og bæði dvelja þau hjón núna á Hrafnistu í Hafnar- firði. Kynni okkar Guðmundar hafa nú staðið í tvo áratugi. Ég vil á þessum tímamótum á ævi hans þakka honum tryggð, vináttu og góða viðkynningu um leið og ég óska honum og þeim hjónum batn- andi heilsu og bjartra daga á ókomnum árum. Afmælisbarnið verður að heiman. G.Br. Rennibekkir 250x2000 mm, til afgreiöslu strax. Einnig vélsagir 14 og 30 tonna höggpressa. Ud G: Þorsteinsson & Johnson h.f. Armúla 1. — Simi 8 55 33 Vi6 trompum út! Kynnum athyglisverðustu bíla haustsins: Stationbíll 4x4. 6 gíra — (5 gírar og lággír). Drif á öllum hjólum. 1500 cc. vél. Bíll sem vakið hefur athygli um allan heim fyrir nýstárlega lausn á feröabíl/ borgarbíl. Cressida GRAND LUX-6__________________ Sannkallaður glæsibíll. 6 cyl. vél. Bein innspýting. Sjálfskiptur með yfirgír. Vökvastýri. — Veltistýri. Rafmagnsdrifnar rúður. BÍLASÝNINCÍDAG KL1018 TOYOTA P. SAMÚELSSON & CO. HF. UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI44144

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.