Morgunblaðið - 07.11.1982, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982
57
þeir allir körfubolta á götum úti
frá blautu barnsbeini og ná því
ótrúlegu valdi á íþróttinni.
Ekki rétta skapgerö
— Það er ekki nóg að vera góð-
ur körfuboltamaður í atvinnu-
mannadeildinni. Það spilar svo
margt inn í þetta að með ólíkind-
um er. Mjög margir eru alveg
jafnir að getu körfuknattleikslega
séð. Þá skiptir máli hvernig skap-
gerð þú hefur. Ég hef til dæmis oft
hugsað út í það hvort skapgerð
mín er rétt. Ég á oft erfitt með að
ná upp miklu keppnisskapi í leik.
Sem dæmi um skap mitt get ég
nent að verði ég vondur í leik, á ég (
það til að vera í vondu skapi allt
kvöldið, ekki bara á meðan á
leiknum stendur.
— Til að ná langt í atvinnu-
mennsku í körfubolta verður mað-
ur að hafa óbilandi trú á sjálfum
sér og hafa gífurlegt keppnisskap
og maður má aldrei gefast upp.
Skapið verður að vera blanda af
mátulega mikilli grimmd gagn-
vart andstæðingnum.
Mig vantar þetta tilfinnanlega.
Ég á það til að hika og hik er jú
sama og tap. Ég veit vel af þessu Þjálfari Portland Trailblazers í uppáhaldsstöðu sinni: A hjánum með hand-
og þetta verð ég að laga. klæði undir hnénu. Hann situr aldrei á bekknum, segir Pétur.
Skoraöi sjö stig í röö
og tryggöi sigurinn
Pétur, hvað er þér nú efst í huga
og eftirminnilegast frá síðasta
keppnistímabili með Portland?
— Það er margt sem er eftir-
minnilegt. Hvað leikina snertir þá
gleymi ég ekki tveimur þeirra.
Annar var leikinn í Seattle og var
15 leikur okkar á keppnistímabil-
inu. Þar átti ég mjög góðan leik í
vörninni og tókst að halda tveim-
ur stórgóðum miðherjum alveg
niðri sem varð til þess að við sigr-
uðum leikinn. Ég fékk orð fyrir
það eftir leikinn að vera sterkur
varnarmaður í fyrsta skipti á mín-
um ferli. Fyrst og fremst er ég
sóknarmiðherji.
Nú, síðari leikurinn sem ég
minnist var á móti New York
Nicks. Leikurinn var mjög jafn og
vart mátti á milli sjá hvor hefði
það.
Ég hafði ekki verið mikið inná í
leiknum. En þegar sjö mínútur
voru eftir fór miðherji okkar útaf
vegna þess að hann lenti í villu-
vandræðum. Ég fór inná og stóð
mig vel í vörninni og skoraði sjö
stig í röð. Við unnum leikinn
naumlega 100—98. Mér var þakk-
aður sigurinn. Og andstæðingarn-
ir spurði hver hann væri eiginlega
þessi alveg óþekkti leikmaður sem
kom inná.
— Nú, dvölin hjá Portland var í
heild ánægjuleg. Mér finnst gott
að búa í Bandaríkjunum. Ef þú
hefur góða atvinnu þar, eru mögu-
leikarnir svo margir. Þjónusta er
öll í sérflokki, ódýrt að borða og
lifa yfirleitt. Allir eru komnir með
kapalsjónvarp, sem býður uppá
stórkostlega dagskrá og þar fram
eftir götunum.
— Það eru aliir mjög þægilegir
í viðmóti og mér hefur alltaf verið
vel tekið. Það á jafnt við hvíta og
svarta. Ég hef eignast marga góða
vini í gegnum þetta og það hefur
verið mér ómetanlegt. Ég skildi
búslóð mína og bíl eftir ytra í
höndum vina minna og mun snúa
aftur út næsta vor. Þá vel undir-
búinn. Ég mun nota tímann hér
heima til þess að æfa alhliða lyft-
ingar, styrkja mig og umfram allt
að spila eins mikinn körfubolta og
hægt er. Ég mun fara í hvern ein-
asta leik af miklu kappi. Mig vant-
ar meiri leikreynslu og meiri leik-
æfingu, sagði Pétur Guðmunds-
son, sem væntanlega verður á
fullri ferð hér í vetur í körfubolt-
anum.
- ÞR
Pétur Guðmundsson er 24 ára gamall. Hann er 2,17 m á hæð og því með
hærri leikmönnum sem voru í NBA. Hér sést Pétur ræða við forseta Islands,
Vigdisi Finnbogadóttur, er hún var í Heattle í sumar.
ingar, farið yfir varnarleik og í
gegn um sóknarkerfi mótherj-
anna.
Svertingjarnir hafa
skapiö í lagi
Ekki sama aö gera
hlutina á æfingu
eöa í leik
— Við hjá Portland höfum
frábæran þjálfara, Jack Ramsey
að nafni. Hann er mikið fyrir það
að hafa unga menn í liðinu hjá sér.
Hann hefur margt að kenna, og ég
lærði ótrúlega mikið í körfu-
knattleik á þessu tímabili. Margt
af því sem maður lærði fór maður
létt með að gera á æfingum, en
hinsvegar reyndist erfiðara að út-
færa það í leikjum þegar baráttan
er í algleymingi. Én með því að
endurtaka sama hlutinn nógu oft
og vera kappsamur við æfingar
kemur þetta.
— Flestir af bestu körfuknatt-
leiksmönnum atvinnumannadeild-
arinnar eru svertingjar. Þeir eru
stórkostlegir leikmenn. Hafa yfir-
leitt meiri mýkt og snerpu en hvíti
maðurinn. Þá koma þeir flestir frá
fátækrahverfum þar sem lífsbar-
áttan er hörð. Þeir læra snemma
að berjast fyrir sínu og gefa
hvergi eftir. Þetta kemur að góð-
um notum í hinni hörðu sam-
keppni í körfuboltanum. Þá leika
Þá viröingu og þann vinarhug, sem mér
var sýndur á 75 ára afmæli mínu, þakka
ég hér meö af alhug. Ennfremur þakka ég
allar gjafir, blómasendingar og heillaóskir.
Gísli Sigurbjörnsson
Bang&Olufsen
Þegar gæði, hönnun og verö
haldast jafn vel í hendur og í
Beocenter 7002 hljómtækja-
samstæðunni, þá er valið
auðvelt.
Komdu og leyfðu okkur að
sýna þér þessi frábæru
hljómtæki, sem fá lof tónlist-
ar- og listunnenda.
Verð 39.980 — með hátölurum.
Greiðslukjör.
Beovox S 55
SKIPHOLTI 19 SlMI 29800
Skápalamir
ný gerö, meö hæöar- og hliöarstillingu.
húsgagnahandfanga nýkomnar.
STOFNAÐ 1903
jfreJZunœent
" ÁRMÚLA 42 - HAFNARSTRÆTI 21