Morgunblaðið - 07.11.1982, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 07.11.1982, Qupperneq 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982 Hin fjögur andlit einverunnar í hufíum margra táknar ein- vera að vera staddur fjarri öðrum mönnum t.d. einhvers staðar uppi á fjallstindi, en aðrir finna til hennar meðal fjöldans. Sálfræðingurinn Darhl Pedersen bendir á að skipta megi tilhneigingum til einveru í fjóra aðgreinanlega flokka sem hann skilgreinir á eftirfarandi hátt: Einsemd: Einvera jógans á fjallstindinum og skógarbú- ans í myrkviðnum — þrá til að vera einhvers staðar þar sem enginn maður er nálæg- ur. Einangrun: er skyld einsemd, en næst með því að dvelja einn í herbergi en vita af systkinum, maka eða vinum á ferli í húsinu. Fólk sem hneigist til einangrunar er aðgreinanlegt frá fólki sem leitar einsemdar, segir Ped- ersen. Slíku fólki þykir gott að vera eitt útaf fyrir sig en vill gjarnan vita af fólki ein- hversstaðar nærri. Hlédrægni: áhugaleysi eða andúð á samskiptum við annað fólk, sérstaklega ókunnuga. Fólk sem hneigist til hlédrægni sökkvir sér gjarnan niður í bók eða blað þegar það ferðast með troð- fullum strætisvögnum eða lestum, og forðast þannig samskipti, segir Pedersen. Nafnleysi: er skylt hlédrægni og einkennist af löngun til að komast hjá athygli annarra. Þessu má líkja við einsemd rokkstjörnunnar sem duibýr sig áður en hún leggur í ferðalög, segir Pedersen. Pedersen byggir þessa flokkun sína á ýmiss konar at- hugunum og tilraunum sem hann hefur framkvæmt. Hef- ur hann útbúið próf sem sam- anstendur af þrjátíu fullyrð- ingum, en með því telur hann unnt að ákvarða hvaða flokki fólk tilheyri. Hlédrægni segir hann t.d. einkenna það fólk sem svarar játandi setningum eins og: „Þegar mögulegt er reyni ég að forðast að vera á ferð í mannfjölda," en neit- andi setningum eins og: „Mér þykir alltaf gaman að hitta fólk.“ Þeir sem hneigjast til „nafnleysis" gefa fullyrðing- um eins og: „Mér þykir gaman þegar athygli fólks beinist að mér“ gjarnan neikvæð svör en bregðast jákvætt við setning- um eins og: „Ég kæri mig ekki i um að vera allra vinur og vil heldur takmarka samskipti mín við fjölskylduna og fáa vini.“ Tölfræðileg úrvinnsla á svörum stúdenta við þessu prófi sýnir að tilhneigingar til „einsemdar" og „einangrunar" eru skyldar — ef einstaklingur hefur tilhneigingu til að vera einn útaf fyrir sig er líklegt að hann vilji einnig vera fjarri öðru fólki. Þess utan reyndust hinar fjórar tegundir tilhneig- inga til einveru tiltölulega óskyldar hver annarri og kom það rannsóknarmönnum nokkuð á óvart. „Þráin eftir einveru er fjölþættur eigin- leiki í atferli mannsins, en ekki einn einstakur þáttur," segir Pedersen. Þær ófrföu höfðu hærri blóðþrýsting SÁLFRÆÐINGAR telja sig nú hafa komist að því að það geti verið hættulegt heilsu ' ungra stúlkna að þær séu ófríðar. Þetta er byggt á niðurstöðum rannsóknar sem Stepan Han- sell og félagar hans við Johns Hopkins-háskóla í Baltimore framkvæmdu á 283 konum og 369 körlum, sem voru á aldrin- um frá 14 til 76 ára. Var til- gangur rannsóknarinnar að komast að því hvort nokkurt samband væri á milli ytra út- lits fólks og blóðþrýstings þess. Rannsóknarmenn tóku með- altal af þrem blóðþrýstings- mælingum sem gerðar voru á hverjum og einum. Dómnefnd var fengin til að gefa tilrauna- dýrunum einkunn hvað útlit snerti og var gefið frá einum til tíu. Niðurstöðurnar voru í stuttu máli þessar: Stúlkur í efri bekkjum grunnskóla og menntaskóla, sem höfðu fengið fegurðareinkunn fyrir ofan fimm, höfðu marktækt lægri blóðþrýsting en hinar sem hlotið höfðu fegurðareinkunn lægri en fimm. Þessi mismun- ur kom hins vegar ekki fram meðal stráka, og ekki heldur hjá fullorðnum konum eða körlum. „Hið stöðuga álag sem það veldur að vera metin eftir útliti virðist samkvæmt niður- stöðum okkar leggjast þyngst á unglingsstúlkur," sögðu rann- sóknarmennirnir um þessar niðurstöður sínar. 44 Ismaðurinn og rannsóknarblaðamennskan 55 ÞÆR eru margar leiðirnar til að afla sér fjár. Frank Hanson hélt sýningar á hinni stórfættu skepnu sinni, sem kölluð hefur verið „ísmaðurinn", með góðum hagnaði í 15 ár. Þegar hann var spurður hvernig hann hefði komist yfir gripinn sagði hann einkennilega sögu. Rússneskir selveiði- menn áttu upphaflega að hafa fundið ísmanninn fros- inn inní þriggja tonna ísjaka á höfum úti. Hanson sagði að þeir hefðu flutt ísmann- inn til Hong Kong þar sem fulltrúi ónefnds milljóna- mærings í Kaliforníu hefði fest kaup á honum húsbónda sínum til handa. Hanson málið í nokkurn tíma komst hann í samband við Leonard C. Bessom fyrrverandi steingervingafræðing hjá Los Angeles-safninu. Bess- om upplýsti að skömmu eftir 1960 hefði hann verið beðinn að gera mótel af Cro- Magrion-manni sem síðan skyldi halda sýningar á í ís- klump. Þar sem Bessom vildi ekki verða til að vekja tor- tryggni í garð safnsins neit- aði hann að taka að sér þetta verk. Hann sagðist hins veg- ar vita til þess að Disney- land-mótelsmiður, Howard Bell að nafni, hefði tekið að sér að búa skepnuna til. Bell er nú látinn en ekkja hans, Helen, og sonur hans, Frank Hanson sýnir „ísmanninn“ segir að auðkýfingur þessi hafi síðan komið að máli við sig og greitt sér dágóða summu fyrir að sýna al- menningi skepnuna. Hefur hann jafnan látið að því liggja að skepnan sé Neand- erdalsmaður sem frosið hafi lifandi fyrir þúsundum ára. En þegar Hanson hóf sýn- ingar á furðugrip sínum á Rhode Island fyrir rúmlega ári ákvað blaðamaðurinn 0. Eugene Emery að rannsaka málið. Eftir að hafa kannað Kenneth, vitnuðu að þetta væri rétt. Kennth Bell sem hjálpaði föður sínum að búa skepnuna til úr gúmí, sagði að hún hefði verið mótuð eft- ir hugmyndum listamanna um Cro-Magnon-menn. „Við höfðum hann handlegsbrot- inn, með brotna hauskúpu og liggur annað augað úti. Er þessi skepna að öllu leiti skilgetið afkvæmi ímyndun- arafls föður rníns," sagði Kenneth Ball. Yerða geimfarar fram- tiðarinnar fiðraðir? Hugsið ykkur nafnlausa mannveru með innsiglaðar varir og krókódílshúð — mannveru sem væri líffræði- lega aðhæfð til að lifa í köldu tómi geimsins. Ef til vill líð- ur ekki á löngu unz erfða- verkfræðingar geta sest niður við tölvur og fært inná þær forskriftir fyrir ýmis- konar erfðavísaröðun sem svo væri unnt að móta DNA-kynfrumu eftir. Þannig væri m.a. hægt að skapa alveg nýjar manntegundir. Slikir eru draumar líf- fræðingsins Freemann Dyson sem starfar hjá rann- sóknarstofnun í New Jersey. „Við munum hafa tungumál náttúrunnar fyrir uppbygg- ingu gena á valdi okkar eftir 10 til 30 ár,“ segir hann. Og líffræðingar eru þegar farnir að kanna tæki til að endur- skapa lífverur þannig að þær geti þrifist úti í geimnum eða komist af óverndaðar við framandi aðstæður á öðrum plánetum. „Bein hafa t.d. tilhneig- ingu til að leysast upp við langvarandi dvöl í þyngdar- leysi, en á þessu væri unnt að sigrast með því að endur- stilla efnajafnvægi líkam- ans,“ segir Dyson. „Hugsan- lega væri hægt að sigrast á Freeman Dyson hinum mikla kulda úti í geimnum með því að skapa fólk sem hefði einhverja náttúrulega einangrun — þykkur feldur, fiður eða eitthvað slíkt gæti komið að góðu gagni.“ Vandamál sem torvelt væri að yfirstíga varðandi geimmenn er að í geimnum er enginn loftþrýstingur — og án loftþrýstings fer blóð mannslíkamans að sjóða inn- an fimm sekúndna. „Hugs- anleg lausn á þessu væri að hafa þrýsting innan líkam- ans einn tíunda af þeim loft- þrýstingi sem er hér á jörð,“ segir Dyson. „Slíkum þrýst- ingi mætti halda með loft- þéttri skriðdýrshúð og kröft- ugu kyngingarviðbragði sem myndi halda vökvum líkam- ans og fæði inni á meðan etið væri. — Nefinu mætti alveg sleppa, það er ekkert sem lyktar úti í geymnum hvort eð er.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.