Morgunblaðið - 07.11.1982, Síða 15

Morgunblaðið - 07.11.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1982 63 Kjarvalsstaðir: Sýning á handprjónuðum kjólum AÐALBJÖRG Jónsdóttir hefur opnað sýningu á handprjónuðum kjólum úr íslenzkri ull á Kjar- valsstöðum. í sýningarskrá segir Einar Hákonarson listmálari: Aðalbjörg Jónsdóttir hefur um langt árabil unnið við kjóla- saum. Islenska ullin er efni, sem hún kynntist í uppvexti sínum norður á Ströndum. Síðastliðin fimm til sex ár hefur Aðalbjörg svo til eingöngu helgað sig því að prjóna og skapa kjóla úr íslensku ullinni. Þessir kjólar hafa vakið verð- skuldaða athygli bæði innan- lands og utan á ýmsum sýning- um, sem of langt mál væri upp að telja. Þó má geta sýningar, sem Islenskur heimilisiðnaður stóð fyrir 1979 og send var síðan til Chicago í Bandaríkjunum. Það er augljóst að gífurleg vinna liggur að baki hverjum kjól því allir eru þeir frábrugðn- ir hver öðrum bæði í formi og litavali. í þessum flíkum fer sannarlega allt saman, hug- myndaauðgi, formskyn og hand- bragð, sem sýnir ljóslega hver listaverk er hægt að gera úr ís- lensku ullinni. Hafnarfjörður: Kvenfélag Fríkirkjunnar heldur kaffi- sölu og basar KVENFÉLAG Fríkirkjunnar í Hafn- arfirði efnir til kaffisölu i Góðtempl- arahúsinu á sunnudaginn kemur, eftir guðsþjónustu. Auk veitinga verða á boðstólum ýmsir basarmunir, sem kvenfélags- konurnar hafa unnið sjálfar. Allur ágóði rennur til fram- kvæmda við kirkjubygginguna, sem nú stendur yfir, og ennfremur til annars kirkjulegs starfs á veg- um Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Ber þar sérstaklega að nefna, að kvenfélagið hefur um margra ára skeið stutt starf á meðal yngstu meðlima safnaðarins og verður það starf seint fullþakkað. Þá eru þær ævinlega fúsar til að sinna af alúð öðrum þeim verkefnum, sem við blasa á hverjum tíma. Nú eru því beint til allra vel- unnara Fríkirkjunnar í Hafnar- firði, að þeir sýni í verki, hvers þeir meta það starf, sem ekki er hrópað um á götuhornum, heldur sinnt af alúð og trúmennsku svo sem sæmir þeim, er hafa Jesúm Krist að leiðarljósi. Sr. Bragi Skúlason Poul Norlund fornar byggöir á hjara heims Bók um Grænlend- inga hina fornu BOKAFORLAG ísafoldar hefur sent frá sér bókina „Fornar byggðir 4 hjara heims“, en bókin kom fyrst út 1972. Þetta er bók um Grænlend- inga hina fornu. Höfundurinn Poul Norlund (1888—1951) var sagnfræðingur og fornleifafræðingur, sem lengst ævi sinnar var tengdur Þjóð- minjasafni Dana og forstöðumað- ur þess síðustu árin. Dr. Kristján Eldjárn þýðandi bókarinnar segir í eftirmála ís- $ lensku útgáfunnar: „Þessi bók er... klassískt sem alþýðlegt fræðirit um Grænlandsbyggðir, og má nú glöggt sjá að hún muni ætíð eiga fullan rétt á sér.“ Á tímum hárra vaxta og aukins fjármagnskostnaðar er hraðinn og ferðatíðnin besta vörnin gegn verbólgu. Með því að nýta sér þjónustu Flugfraktar hafa fjölmörg fyrirtæki náð mjög góðum árangri áþessu sviði,- lagerkostnaður er lágur og rýrnun sáralítil. Flugfrakt Vetraráætlun til og frá Reykjavík 1. nóv. ’82 - 31. mars ’83. Til: KAII Kaupmannahöfr Frá m Þr. fl Fi. m fl Su. n irvvvi ■ Til: KAU Kaupmannahöfr Auka fraktflug Frá r i k. á ■ ■ □ Til: OSL Osló Frá * 9 ▲ Til: STO Sfokkhólmur Frá W m i: 2 Til: LOA London Frá: Má Þr. Mi. M FO, M a A 2 A 2 Til: IWC New York Frá: $ • • & A 2 2 Til: BAL Baltimore Frá: m Til: CHI Chicago Frá: ■ Til: GLA Glasgow Frá: m • ▲ 2 Til: LUX Luxemborg Frá: • • • ■ rwvvfi Við verðum svo sannarlega á ferð og flugi! FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.