Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 Steingrímur Hermannsson í upphafi 18. flokksþings Framsóknar: Þak á verðbætur og eng- ar grunnkaupshækkanir Raunhæfar aðgerðir frá miðju ári 1983 til miðs árs 1984, miðist við að verðbólgan verði 30 af hundraði „HJÁ ýmsum framsúknarmönnum gætir tortryggni í garð okkar samstarfs- aðila, ekki síst Alþýðubandalagsins. I>að er út af fyrir sig ekki óeðlilegt. Við erum mjög mótfallnir þeirri tilhneigingu Alþýðubandalagsina að auka sem mest allskonar ríkisumsvif og afskipti," sagði Steingrímur Hermannsson, formaöur Framsóknarflokksins, m.a. í setningarræðu sinni í upphafi 18. flokksþings Framsóknarflokksins sem hófst að Hótel Sögu i gær. I’ingið stcndur yfír þar til siðdegis ó mánudag. Steingrímur ræddi einnig stöðu efnahagsmála og sagði í lok umfjöll- unar sinnar um þau: „í orðum mín- um hefur ekki dulist nokkur gagn- rýni á aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Eg sé enga ástæðu til að leyna því þótt framsóknarmenn eigi þátt í þeim.“ í ræðunni kom m.a. fram að i ár og næsta ár verður samdráttur í þjóðarframleiðslunni sem nemur 9 af hundraði. „Það er meiri sam- dráttur en við íslendingar höfum orðið að þola allt frá því fyrir síð- ustu heimsstyrjöld," sagði Stein- grímur. Þá kom fram að að óbreyttu yrði greiðslubyrðin af erlendum lán- um orðin x/3 af gjaldeyristekjum að þremur til fjórum árum liðnum. Um verðbólguna sagði hann: í mesta lagi get ég sagt, að tekist hafi að halda verðbólgunni í skefjum. Ég kenni þvi um, að of langt hefur liðið á milli raunhæfra aðgerða." Steingrímur sagði eftirfarandi aðgerðir í efnahagsmálum nauð- synlegastar á næstu dögum og vik- 0 Kæliskápar frá USA Það er vidurkennd staðreynd að Bandaríkjamenn framleiða kælitæki í hæsta gæðaflokki. Með vandláta kaupendur í huga bjóöum viö pví núna ameríska PHILCO kæliskápa í mörgum stærðum og litum. Hér fara saman fallegt útlit og haganlegar innréttingar ásamt vandaðri hönnun sem tryggir mikla endingu. PHILCO kæiiskáparnir eru pví gæddir öllum peim kostum sem prýða fyrsta flokks kæliskápa. Sjón er sögu ríkari — komið í verzlanir okkar og kynnist af eigin raun amerísku PHILCO kæliskápunum. PHILCO FYRIR VANDLÁTA heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655 um: Dregið verði úr innflutingi með því t.d. að hækka tolla á „óþörfum varningi". Takmörkuð verði erlend vörukaupalán og innlend afborgun- arlán. Innborgunarskyldu verði komið á, þegar um erlendan sam- keppnisvarning sé að ræða. Þá sagði hann nauðsynlegt að öll atriði efna- hagsaðgerðanna kæmu skilyrðis- laust til framkvæmda. Til lengri tíma litið sagði formaðurinn útilok- að, að atvinnuvegirnir þyldu verð- bólguna miklu lengur. Hann sagöi að í bráð yrði ekki komist hjá rót- tækum aðgerðum og nefndi eftirfar- andi aðgerðir, sem hann sagði raunhæfar frá miðju ári 1983 til miðs árs 1984, þar sem markmiðið yrði að verðbólgan færi ekki yfir 30 af hundraði: Lögbundið verði 30% þak á verðbætur, sömuleiðis á launahækkun bænda og á tekju- aukningu sjómanna í gengum fisk- verð. Verðtrygging inn- og útlána verði í eitt ár bundið við 30 af hundraði og vextir í samræmi við það. Hámark á hækkun vöruverðs og þjónustu verði lögbundið 30 af hundraði, nema vegna hækkana er- lendis. Grunnkaupshækkanir verði engar, en kaupmáttur lægri launa varinn eftir mætti. Dregið verði úr erlendri lántöku til framkvæmda. Þorsteinn Páls- son í framboð „ÞAÐ ER rétt að ég hef ákveðið að gefa kost á mér til framboðs á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlands- kjördæmi," sagði Þorsteinn Páls- son, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann í gær. Morgunblaðið spurði Þorstein ennfremur, hvort það væri líka rétt, að stuðningsmenn hans hefðu kannað hug kjósenda í Árnessýslu til væntanlegs framboðs hans. „Það rétta í því er, að ég hef fengið skrifleg tilmæli frá um það bil 500 kjósendum í Árnessýslu um að gefa kost á mér til framboðs á vegum Sjálfstæðisflokksins í Suð- urlandskjördæmi," sagði Þor- steinn Pálsson. Finnur Jónsson niræður Finnur Jóns- son níræður á morgun Á MORGUN, 15. nóvember, veröur Finnur Jónsson listmálari og ald- ursforseti íslcnzkra listamanna, 90 ára. Finnur er fæddur að Strýtu í Hamarsfiröi 15. nóvember 1892. Hann fór ungur að heiman og lagði fyrir sig gullsmíðanám í Reykjavík, en hugur hans stóð til myndlistar og tók hann fljótt þá stefnu aö leggja hana alfarið fyrir sig og hefur gert það alla tíð síðan. Finnur nam myndlist í Dresden í Þýzkalandi og var þar samtímis mikilli hreyfingu, sem þá var ný- list, og gekk Finnur til liðs við þessa hreyfingu og varð expressj- ónisti. Heimkominn fékkst Finnur við kennslu ásamt list sinni í fyrstu, en um margra áratuga skeið hefur hann verið einn af fáum íslenzkum myndlistar- mönnum, sem alfarið hafa lifað af list sinni. Á níræðisafmælinu er Finnur enn vel á sig kominn og býr við góða heilsu. Aðeins smá- vegis krankleiki í auga er til baga og kemur í veg fyrir að Finnur geti unnið við ljós. Annars gengur hann enn að sínu málverki. Á sín- um tíma var Finnur í forustusveit í félagsmálum listamanna, en núna er hann heiðursfélagi í FÍM. Hann verður að heiman á afmæl- isdaginn. Gunnar Thoroddsen: Andvígur reglum - ekki í prófkjör Forsætisráðherra, Gunnar Thor- oddsen, sendi í gær eftirfarandi bréf til kjörnefndar fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík. „Með bréfi kjörnefndar full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, 9. nóvember, beinir hún þeirri fyrirspurn til mín, hvort ég vilji, að kjörnefndin setji nafn mitt á prófkjörsseðil í prófkjöri 28. og 29. nóvember. í rúman áratug hef ég tekið þátt í öllum prófkjörum sjálfstæð- ismanna til alþingiskosninga. Þau prófkjör hafa verið opin stuðn- ingsmönnum Sjálfstæðisflokksins, hvort sem þeir eru meðlimir í sjálfstæðisfélögum eða ekki. Þessi lýðræðislega tilhögun hefur verið í fullu samræmi við mín viðhorf. í Reykjavík hefur þriðji eða fjórði hver kjósandi Sjálfstæðisflokksins verið flokksbundinn, en mikill meiri hluti stuðningsmanna hans óflokksbundinn. Þessi frjálslynda, víðsýna stefna miðar að því að örva til þátttöku í prófkjöri það fólk, sem vill styðja flokkinn, en af ein- hverjum ástæðum óskar ekki að vera félagsbundið. Hið frjálsa, opna prófkjör hefur hvatt fólk til þess að taka þátt í prófkjöri. Nú hefur blaðinu verið snúið við, illu heilli. Ný tilhögun er tekin upp, lokað eða hálflokað prófkjör. Þúsundum góðra sjálfstæð- ismanna er skipað á óæðri bekk, miklum meiri hluta af kjósendum flokksins. Þetta fólk þarf að mæta á flokksskrifstofunni til skrán- ingar nokkrum dögum fyrir próf- kjörið og síðan að koma aftur til að kjósa. í stað þess að laða menn að og greiða fyrir þátttöku, eru nú lagðar torfærur og tálmanir, þessu fólki er gefið í skyn, að það sé ekki æskilegt, — þátttaka þessa gerð að hindrunarhlaupi. Þegar ákveðið var á síðastliðn- um vetri að loka prófkjöri til borg- arstjórnarkosninga, létu áhrifin ekki á sér standa, því að þátttakan hrapaði niður um helming, úr tæpum 12 þúsund í síðasta próf- kjöri, 1979, niður í 6 þúsund. Þessi vinnubrögð eru einn liður af mörgum í tilhneigingu og til- raunum vissra afla í flokknum til að þrengja valfrelsi og lýðræði og auka fámennisveldi og flokksræði. Ég er andvígur slíkum vinnu- brögðum, tel þau andstæð hug- sjónum sjálfstæðisstefnunnar og flokknum skaðleg. Ég mun ekki verða í framboði í prófkjöri, sem þannig er til stofn- að. Með góðri kveðju. Virðingarfyllst, Gunnar Thoroddsen.**

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.