Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 „Þar tók andskotínn við henni“ skímu lagði inn um rifu á hurð- inni, en ekki aðgaetti hann þó frek- ar, hversu umhorfs var í húsinu, heldur þaut á dyr, og var þá tekið að birta af degi. Hleypur hann nú upp götuna, uns hann hittir fyrir sér verka- menn nokkra, sem voru á leið til vinnu sinnar. Sáu þeir þegar, hve mjög manninum var brugðið, og spurðu, hvernig háttað væri um ferðir hans. Gat hann lítið sagt þeim í samhengi, enda virtist hann blanda saman draumi og veruleika. Þó gat hann bent þeim á húsið, þar sem hann hafði gist. Litu þeir þá hver á annan og þótti sýnt, að maðurinn væri eigi með sjálfum sér. Varð það því að ráði þeirra að fara með hann ofan á lögreglustöð. Þegar þangað kom, endurtók maðurinn sögu sína fyrir lögreglumönnum þeim, sem á verði voru, og þó í nokkru meira samhengi en fyrr. Lögregluþjón- arnir spurðu hann, hvort hann mundi geta rakið leiðina, sem hann hefði haldið á eftir stúlk- unni, eða fundið húsið, þar sem hann hefði átt næturstað. Hann kvaðst vel mega freista þessa, og húsið mundi hann að vísu finna. Fór nú lögreglan með honum, og héldu þeir fyrst að Hótel ísland. Skammt þaðan þóttist hann þekkja búðargluggann, sem hann hefði staðið við, þá er hann sá stúlkuna. Síðan rakti hann leið þeirra um Austurstræti og Lækj- artorg, inn Hverfisgötu allt að Frakkastíg. Þar sveigði hann niður stíginn og létti eigi fyrr en hann kom að líkhúsi Franska spít- alans. Þar kvaðst hann hafa dval- ist um nóttina. En er har.n ætlaði að fara inn í húsið, var hurðin harðlæst, og þótti honum það næsta kynlegt. Lögregluþjónninn hafði lykil, sem gekk að skránni, eða fékk hann á sjúkrahúsinu. Síð- an opnaði hann húsið. En þegar inn var komið, sáu þeir, að konulík lá á gólfinu við hliðina á lík- börunum, en við endann á þeim lá poki sjómannsins með föggum hans í. M iklabæjar-Solveig Mörgum þykir það eflaust að bera í bakkafullan lækinn að rifja upp söguna af Miklabæjar-Sol- veigu, svo oft sem hún hefur verið sögð mönnum til hrellingar á dimmum íslenskum skammdeg- iskvöldum. Það er hins vegar eng- in tilviljun að sagan hefur orðið einhver þekktasta draugasaga á íslandi enda tengdist hún frægum persónum á sinni tíð og fjallar að nokkru um atburði sem raunveru- lega gerðust, þ.e. hvarf séra Odds Gíslasonar, sem var prestur á Miklabæ á árunum 1767 til 1786, en til hans spurðist aldrei og hafa atburðir þessir verið sígilt um- ræðuefni þjóðarinnar allt fram á þennan dag. Þar sem sagan er merkileg fyrir margra hluta sakir er rétt að láta hana fylgja með í þessari umfjöllun um drauga á Is- landi: Stúlka ein sem Solveig hét var hjá séra Oddi Gíslasyni á Mikla- bæ. Hvort sem prestur hefur þá verið milli kvenna eða verið búinn að missa konu sína er óvíst, en hitt er víst að stúlka þessi lagðist á hugi við prest og vildi umfram allt að hann ætti sig, en prestur vildi ekki. Af þessu varð stúlkan sturl- uð og sat um að sálga sér er henni gafst færi á. Kona ein svaf hjá henni á næturnar til að verja henni að fara ofan, en á daginn höfðu allir heimamenn gát á henni. Eitt kvöld í ljósaskiptunum komst Solveig þó ofan og stökk þegar út í tóftarbrot er var á tún- inu. Vinnumaður var hjá presti er Þorsteinn hét, hann var ötull og ófyrirleitinn. Hann varð var við Solveigu er hún hljóp úr bænum og veitti henni þegar eftirför. En svo var hún handfljót að hún var búin að skera sig á háls í tóftinni er hann kom að. Þá er sagt að Þorsteini hafi orðið að orði er hann sá hvernig blóðiö fossaði óstöðvandi úr hálsinum á henni: „Þar tók andskotinn við henni.“ Solveig svaraði því engu, en svo mikið skildi hann af því sem hún sagði, að hún bað hann að skila til prests að grafa sig í kirkjugarði. Eftir það blæddi henni út svo hún dó. Þorsteinn sagði tíðindin heim og bar presti kveðju hennar og bæn um legstað í kirkjugarði. Prestur leitaði til þess leyfis hjá yfirboðurum sínum, en fékk af- svar þar eð hún hafði farið sér sjálf. Á meðan þessu fór fram stóð lík Solveigar uppi, en nóttina eftir að prestur hafði fengið afsvarið dreymdi hann að Solveig kæmi til sín og segði: „Fyrst þú vilt ekki unna mér legs í vígðri mold skaltu ekki njóta þar legs heldur." Var hún með reiðisvip miklum þegar hún vasaði burtu. Eftir þetta var lík Solveigar dysjað utangarðs og án yfirsöngs. En skömmu síðar fór að bera á því að hún ásótti séra Odd þegar hann var einn á ferð. Þetta varð mjög héraðsfleygt svo hver maður gjörði sér að skyldu að fylgja honum heim einkum ef hann var seint á ferð eða einn. Einu sinni reið séra Oddur á annexíu sína, en aðrir segja að Viðivöllum, og leið svo dagurinn að hann kom ekki. Heimamenn voru óhræddir um hann af því þeir vissu að presti var ávallt fylgt ef hann var seint á ferð. Það var og í þetta skiptið að presti var fylgt heim að túninu á Miklabæ, annars var vant að skilja ekki við hann fyrr en hann var kominn á fund heimamanna. Þá sagði hann við fylgdarmanninn að hann þyrfti nú Hinn kynlegi farþegi svaraði aldrei þótt hann reyndi aö brjóta upp á umræðuefni. ekki að fara lengra því nú mundi hann komast klaklaust heim og þar skildi fylgdarmaðurinn við prest eftir því sem hann sagði síð- an sjálfur frá. Um kvöldið á vök- unni heyrðu heimamenn á Mikla- bæ að komið var við bæjarhurð- ina, en af því þeim þótti nokkuð undarlega barið fóru þeir ekki til dyra. Síðan heyrðu þeir að komið var upp á baðstofuna í mesta snatri, en áður en sá fékk ráðrúm til að guða sem upp kom var hann dreginn ofan aftur eins og tekið hefði verið aftan í hann eða í fæt- urna á honum, jafnframt þóttust menn þá heyra hljóð nokkurt. Síð- ast er komið var út um kvöldið sáu menn, að hestur prestsins stóð á hlaðinu og var keyrið hans og vettlingarnir undir sessunni í hnakknum. Varð mönnum nú mjög órótt af þessu öllu því menn sáu, að prestur hafði komið heim, en var nú allur horfinn. Var þá farið að leita að honum og spurt eftir honum á öllum bæjum sem líkindi þóttu að hann hefði að komið og fékkst þá sú fregn að honum hefði verið fylgt heim að túngarðinum um kvöldið, en hann ekki viljað fylgdina lengur. Eftir það var gjörður mannsöfnuður og hans leitað í marga daga sam- fleytt. En allt kom það fyrir ekki. Síðan var leitinni hætt og töldu flestir það víst, að Solveig mundi hafa haft hann með sér í dys sína, en þó var þar aldrei leitað. Þannig segja Þjóðsögur Jóns Árnasonar frá þessum atburðum, en við það má bæta, að getum hef- ur verið að því leitt, að séra Oddur hafi lent í kíl einum skammt frá bænum, en að því skal nánar vikið á eftir. Við tökum hins vegar aftur upp þráðinn í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, því frásögninni af Miklabæjar-Solveigu er þar ekki lokið. Á gólfinu viö bekkinn, þar wm •jómaöurinn haföi lagt aig, var konulík. Solveig vitjar Þorsteins Þegar allri leit að presti var hætt ásetti Þorsteinn vinnumaður sér áð hætta ekki fyrr en hann yrði þess vísari hvað orðið hefði um húsbónda sinn. Þorsteinn Húnsér þáað Iitlu seinna kemur Solveig og held- ur á einhverju í hendinni, geng- ur hún inn á gólfið og að skör fyrir framan rúm Þor- steins... þessi svaf í rúmi rétt á móti konu þeirri er sofið hafði hjá Solveigu og var hún bæði skýr og skyggn. Þorsteinn tekur sig til eitt kvöld, safnar saman fötum og ýmsu sem var af prestinum, leggur það undir höfuð sér og ætlar að vita hvort sig dreymi hann ekki, en biður Guðlaugu að liggja vakandi í rúmi sínu um nóttina og vekja sig ekki þó hann láti illa í svefni, en taka eftir því sem fyrir hana beri. Þar með lét hann loga ljós hjá sér og leggjast þau svo bæði fjrir. Guðlaug verður þess vör, að Þorsteinn getur með engu móti sofnað framan af nóttunni, en þó fer svo um síðir, að svefninn sigr- ar hann. Hún sér þá að litlu seinna kemur Solveig og heldur á einhverju í hendinni sem hún sá ekki glóggt hvað var, gengur hún inn á gólfið og að skör fyrir fram- an rúm Þorsteins og grúfir yfir hann og sér Guðlaug að Solveig myndar til á hálsinum á Þorsteini eins og hún vilji bregða á barkann á honum. í því fer Þorsteinn að láta illa í svefninum og brýst um á hæl og hnakka i rúminu. Þykir henni þá, að svo búið megi ekki lengur standa, fer því ofan og vek- ur Þorstein, en vofa Solveigar hopar fyrir henni og fékk eigi staðist augnaráð hennar. En það sér Guðlaug, að rauð rák var á hálsinum á Þorsteini þar sem Sol- veig hafði myndað til skurðarins. Síðan spyr hún Þorstein hvað hann hafi dreymt. Hann sagði að sér hefði þótt Solveig koma til sín og segja að ekki skyldi sér þetta duga og aldrei skyldi hann vísari verða hvað orðið hefði um séra Odd, þar sem hún hefði lagt á sig hendur og ætlað að skera sig á háls með stórri sveðju og kenndi hann enn sársaukans er hann vaknaði. Eftir það hætti Þorsteinn þeim ásetningi sínum að grafast eftir hvar prestur væri niður kom- inn. Reiðstígvél séra Odds í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir að lítið hafi borið á Solveigu síðan. Þó hafi séra Gísli, sem var m.a. prestur á Reynistaðaklaustri 1829 til 1851, sonur séra Odds, sagt frá því að fyrstu nóttina sem hann svaf hjá konu sinni hefði Solveig ásótt sig ákaflega svo að hann hefði þurft að hafa sig allan við að Verjast henni, en hann var heljarmenni til burða sem faðir hans. Jón Árnason segir ennfrem- ur, að aðrar sögur hafi ekki farið af Solveigu, en það er ekki með öllu rétt, því lengi á eftir fóru miklar sögur af Solveigu í Skaga- firði þótt ekki hafi þær verið skráðar. Ein sagan segir að Sol- veig hafi átt að fylgja afkomend- um séra Odds í sex ættliði, en hverfa síðan. Eins og áður greinir hefur get- um verið að því leitt, að séra Oddur hafi lent í kíl nokkrum sem Gegnir var nefndur, sem er á milli Miklabæjar og Víðivalla og styður eftirfarandi saga þær getgátur: Um síðustu aldamót var kaupa- kona ein að sunnan á Miklabæ og gekk að heyskap á engjum niður undir Héraðsvötnum, skammt frá þar sem kíllinn gengur út í fljótið. Um þetta leyti var vöxtur í Hér- aðsvötnum að brjóta bakkann og sá stúlkan þá reiðstígvél standa út úr holbakkanum á kílnum. Stúlk- unni varð hverft við og dróst nokkuð að hún gæti sagt vinnu- manni, sem var með henni á engj- unum, frá stígvélunum, en er hún hafði það gert og þau komu aftur að ánni var bakkinn dottinn niður. Haft er eftir Jóni á Reynistað, að það hafi verið almannarómur í Skagafirði að hér hafi verið komin reiðstígvél séra Odds. Þannig gat myrkrið og hjátrúin vakið upp hinn ferlegasta draug við það að maður ferst af slysförum, drukkn- ar og finnst ekki. Við þetta má svo bæta, að séra Lárus Arnþórsson, prestur á Miklabæ jarðsöng bein, sem talin voru af Solveigu, í Glaumbæ árið 1935, en á beinin hafði verið vísað fyrir milligöngu miðils, og er það mál í rauninni önnur og meiri saga. Farþeginn úr Sandgerði En víkjum aftur að nútímanum og ljúkum þessu spjalli um ís- lenska drauga með einni sögu sem sagt er að gerst hafi á okkar tím- um, sennilega einhvern tíma á fimmta áratugnum: Bifreiðarstjóri einn úr Reykja- vík var sendur með vörur suður í Sandgerði og átti hann að taka þar einhvern flutning á bifreiðina til baka. Þetta var um vetrartíma, og segir ekki af ferðum hans fyrr en í Sandgerði. Þegar hann er þar að athafna sig, kemur maður að máli við hann og biður hann að taka stúlku til Reykjavíkur, ef hann geti, því að hún hafi misst af áætlunarbifreiðinni, en þurfi nauðsynlega að komast til bæjar- ins um kvöldið. Bifreiðarstjórinn heitir þessu og verður það að sam- komulagi að hann taki stúlkuna við hús eitt þar í þorpinu. Kveðst hann munu koma þangað og gefa hljóðmerki og verði stúlkan þá að koma tafarlaust. Slíta þeir svo tal- ið og heldur bifreiðarstjórinn áfram að reka erindi sín. Einhver dráttur varð á því, að hann fengi afgreiðslu og var kom- ið fram yfir dagsetur, er hann var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.