Morgunblaðið - 14.11.1982, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.11.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 25 Hún María Maack lýsti því í 75 ára afmælisviðtali við Matthías Johannessen, sem ný- komið er út í bók, að hún hefði um æfina verið gift Sjálfstæðis- flokknum og fjöllunum. Seið- magn fjallanna, sem keppt geta við hvaða „sjarmör" sem er, hefi ég svo sannarlega orðið vör við undanfarna daga, þegar Bláfjöll- in tóku að hvítna og fólk að spyrja unnvörpum á förnum vegi formann Bláfjallastjórnar, alias Gáruhöfund, hvenær hægt verði að opna iyfturnar í Bláfjöllunum og komast á skíði. Sjálfur bregð- ur maður á morgnana sjónauka að augum og beinir honum til þessa fagra Bláfjallageims. Það gera eflaust fleiri úr hópi fólks með svo skrýtnar sérþarfir, að þurfa snjó í hvilftir og á hjalla til að mjakast yfir á spýtum og hjarnkul á vanga. Og treysta helst sambandið við ættjörðina með því að stingast á andlitið ofaní hana. Hún María heitin' Maack getur þess ekki, að mak- arnir hennar tveir hafi lent í samkeppni. Sem kandídat í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins gæti skrifari þessa pistils þó hæglega hlotið kvöl þess sem á völina. Gæti lent saman próf- kjörsspretti hjá flokknum og skíðahlaupi á snjóbreiðum Blá- fjalla. Ætli ábyrgur fram- bjóðandi verði þá ekki að láta sér nægja að ýta úr hlaði starf- seminni þar uppfrá nægilega snemma fyrir hina, og skeiða sjálf pólitíska sprettinn. Ogþó! Ih*sní ht'iAskíra, svalandi sjónarhrA fangar sinniA og minniA og hverja æA þeirri yndismynd veróur aldrei gleymt manns innsta sál er sem skattgjald heimt. Það var sannarlega gaman að koma aftur nú í sumar að stjórn- un Bláfjallafólkvangs eftir fjög- urra ára fjarveru frá þeim vett- vangi og finna hve áhugi ungra og aldinna heldur áfram að margfaldast á ári hverju á þessu útivistarsvæði. Jafnvel enn hraðar en við sáum fyrir, sem fyrir 10 árum stóðum að því að ná sveitarfélögunum sjö saman um stofnun fólkvangsins og ýta þar af stað aðstöðu, sem hefur verið að batna þótt aldrei hafist undan. Þeim áfanga er nú náð að hafa fyrir skíðafólk í Bláfjöllum vandaðan stóran skála, sem stendur til þjónustu reiðubúinn. Fyrir utan þægindin er það mik- ið öryggisatriði — þegar kannski 5000—6000 manns eru komnir þarna upp í fjöllin — að geta komið fólki í hús, ef skyndileg hríð skellur á. Og blindhríðar geta orðið býsna harðar þarna í fjöllunum og skollið yfir eins og hendi sé veifað. Annað öryggis- atriði er vegurinn, sem smám saman hefur verið hækkaður, nú í sumar frá Eldborginni inn að bílastæðum. Hækkun á erfiðum spotta upp úr sjó veitir aukna möguleika á að hægt sé að halda veginum opnum í fannfergi. Og nú í vetrarbyrjun tókst líka, með góðri hjálp og átaki vegagerðar og þingmanna, að fá lagfæringu á versta farartálmanum, bröttu brekkunni, með 10—11 gráðu halla, þar sem illa búnir bílar stöðvuðu iðulega alla umferð, og jafnvel rútubílar hafa runnið út af í hálku. Vegagerðin er nú ein- mitt þessa dagana í kappi áður en skíðatíminn hefst, að leggja veginn þarna í sveig vestur á hrygginn, svo halli á veginum fer niður í 5—6 gráður. Þriðja atriðið, sem líka má telja til ör- yggis, er skemma yfir nýja troð- arann, sem starfsmenn hafa ver- ið að koma upp, því ótroðnar brekkur auka að sjálfsögðu fall og fótbrot. Eflaust gleður það hjarta okkar með skrýtna dálætið á kulda og snjó og gerir okkur þol- inmóðari í vetur, að verið er að bjóða út nýja stólalyftu, sem þá verður væntanlega hægt að koma upp á næsta sumri í Suð- urgili. Hún ætti að dreifa fólkinu í skíðabrekkur og minnka bið- raðir við lyftur. En afkastamikl- ar stólalyftur þurfa að koma í stóru gilin þrjú, Kóngsgil, Suð- urgil og síðar í Eldborgargil, með dráttarlyftur skíðafélag- anna á milli, svo hægt verði að ferðast á skíðum með lyftum um fjöllin. í umræðum um leyfi fyrir þessari nýju lyftu í Suðurgili kom fram sú hugsun, að e.t.v. væri hægt að gera eitthvað betra fyrir börnin í borginni en að veita þessa aðstöðu. Þarna held ég að gæti mikils misskilnings, sennilega þeirra sem ekki hafa komið í fjöllin á góðri vetrar- helgi og séð fjölskyldurnar, sem þar eru rjóðar á vanga að njóta samverunnar á skíðum. Börn á öllum aldri með foreldrum sín- um, ömmum og öfum (gjarnan á gönguskíðum). Það er sameigin- legt áhugamál, sem fjölskyld- urnar vilja una sér saman við um helgar. Og það er ekki lítið atriði í okkar samfélagi, þar sem börn og fullorðnir eru alla vik- una tættir sinn á hvern staðinn í skóla og á vinnustaði. Þetta sást fljótlega á könnun sem gerð var í öllum skólum Reykjavíkur 1977, um hvað börn á aldrinum 10—16 ára gerðu í tómstundum sínum. Þá strax stunduðu 55% barnanna skíði reglulega á vetr- um, mest um helgar, og aukning- in í aldursflokkum eftir því sem neðar dró. Hefur því væntanlega aukist síðan. En fólkvangur getur boðið upp á meiri útiveru en rétt yffr vetr- artímann. Þannig var Bláfjalla- fólkvangur líka í upphafi hugs- aður, engu síður en áfastur Reykjanesfólkvangur. Og nú, þegar þjónustumiðstöð er komin í fjöllin og hringvegur á leiðinni frá Hafnarfjarðarvegi á Suður- landsbraut, aukast möguleikar til sumarnýtingar með göngu- ferðum um þetta margbreytilega landslag, kaffisopa í skálanum og jafnvel lyftingu á stöku góð- viðris’.jlgi upp á fjallatopp í stólalyftu, fyrir þá sem ekki geta stundað brattar fjallgöngur. Eins er reiðleiðin milli hrauns og hlíðar einstaklega skemmti- leg, og eftirsóknarverð fyrir hestafólk á þéttbýlissvæðinu. Möguleikar eru miklir, en þurfa sinn tima til að gerjast og kom- ast í framkvæmd. Eflaust á sumarnýtingin á fólkvanginum eftir að rætast engu síður en hugmyndirnar fyrir 10 árum um hina miklu þátttöku og ánægju, sem þéttbýlisfólk mundi geta af því haft að fara á skíði í Bláfjöll- in. Hús í byggingu fyrstu íbúð á almennum markaði, er orðið það óviðráðanlegt. Það er sú staðreynd sem forsjá Alþýðu- bandalagsins hefur dregið að hún á flaggstöng sinni. Stjórnarsinnar tala gjarnan um það að Byggingarsjóður verka- manna hafi verið efldur. En er það svo? Áður fékk þessi sjóður ráð- stöfunarfé sitt allt frá sveitarfé- lögum og ríki. Nú er honum gert að taka drjúgan skerf þess að láni á almennum lánamarkaði, með þeim lánakjörum sem allir þekkja, og endurlána með lakari kjörum. Hve lengi stenzt slíkur sjóður? Félagslegar íbúðir, bæði til sölu og leigu, eiga fullan rétt á sér, og þær þurfa að vera til staðar. En það verður aldrei tryggt íbúða- framboð sem samsvarar þörf og eftirspurn, án þess að stórbæta jafnframt hið almenna húsnæðis- lánakerfi, sem virkjað hefur fram- tak þúsundanna í þessu landi og verið undirstaða ótrúlegra verð- mæta í húsakosti landsmanna, sem fólkið sjálft hefur skapað með framtaki sínu, og væri ella ekki til staðar. Sérhver Qöl- skylda eigi kost á eigin íbúð Halldór Blöndal og tíu aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram í Sameinuðu þingi til- lögu til þingsályktunar um stefnu- mörkun í húsnæðismálum. Þar er lagt til að Alþingi álykti, „að sú stefna verði lögð til grundvallar í húsnæðismálum, að sérhverri fjöl- skyldu verði gert kleift að eignast og búa í eigin húsnæði. Til að ná því markmiði og til að auka hag- kvæmni við stjórn húsnæðismála er nauðsynlegt að eftirfarandi að- gerðir verði framkvæmdar: • Stefnt verði að 80% lánsfjár- mögnun fyrstu íbúðar á næstu 5 árum. Á árinu 1983 láni Bygg- ingarsjóður ríkisins 25% bygg- ingarkostnaðar staðalíbúðar til þeirra sem eru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn. • Lánstími verði lengdur í 42 ár. Frá ákvörðun lánsfjárhæðar til útborgunar verði lánshlutar látnir fylgja verðbreytingum í samræmi við byggingarvísitölu. • Lán til þeirra, sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn, verði með hagstæðari lánskjörum en önnur lán. • Leitað verði eftir frjálsu sam- starfi við lífeyrissjóði í landinu um fjármögnun húsnæðislána. • Framlag ríkissjóðs til Bygg- ingarsjóðs verði ekki minna en sem svarar einu launaskattsstigi. • Lánshlutfall í félagslegum byggingum verði 80%. Heimilt er þó að lána 90% af byggingar- kostnaði ef um sérstaklega erfiðar fjárhagsástæður lánþega er að ræða. • Teknir verði upp verðtryggðir bundnir reikningar í bönkum, sem veittu rétt til samsvarandi frá- dráttar frá tekjuskatti og skyldu- sparnaðurinn og gæfu rétt til 10—15 ára láns til íbúðarbygg- ingar eftir 3—5 ára sparnað sem næmi allt að 15% af tekjum. Slíkt fjármagnsstreymi hefði ekki áhrif á bindiskyldu í Seðlabanka ís- lands. • Sérstakt átak verði gert í bygg- ingu þjónustuíbúða og verndaðra þjónustuíbúða fyrir aldraða og fatlaða. Einnig verði sérstaklega athugað, hvernig hægt sé að koma til móts við þá sem eiga íbúðir fyrir, en vilja byggja sérhannaðar íbúðir fyrir aldraða og þurfa á lánsfjármagni að halda í stuttan tíma. • Heimilaðar verði lánveitingar til einstaklinga og félaga til bygg- ingar leiguíbúða. • Komið verði til móts við þá að- ila sem þurfa að framkvæma meiriháttar endurnýjun og við- gerð íbúðarhúsnæðis. • Starfsemi Húsnæðisstofnunar ríkisins verði tekin ti\ gagngerðr- ar endurskoðunar. Tæknideild stofnunarinnar verði lögð niður. • Kannaðar verði leiðir til þess að lækka byggingarkostnað, m.a. með lækkun aðflutningsgjalda á byggingarefni, lækkun launa- skatts og aðstöðugjalds. • Endurskoða þarf löggjöf um byggingarsamvinnufélög. Raunhæft skref Þær breytingar á húsnæðislög- um, sem framangreindar tillögur sjálfstæðismanna fela í sér, eru taldar munu kosta Byggingarsjóð rúmlega 50 m.kr. Til að mæta því er lagt til að framlag ríkissjóðs til Byggingarsjóðs verði ekki minna en sem svarar einu launaskatts- stigi, sem þýddi 70—80 m.kr. tekjuaukningu fyrir sjóðinn. Minna má á að launaskattur, sem atvinnuvegirnir greiða, var upp- haflega lagður á í samráði við launþegahreyfinguna (1964, fyrst 1%, síðan hækkaður í 2% og loks í 2,5%) og ætlað upphaflega að ganga alfarið til’ húsnæðislána- kerfisins. Núverandi ríkisstjórn sölsaði launaskattinn endanlega undir sig og ríkissjóðinn. Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu Byggingarsjóðsins, m.a. i kjölfar umræddrar tekjusviptingar og fjársveltis liðin ár, er nauðsynlegt, að gera ráð fyrir sérstakri auka- fjárveitingu á fjárlögum næsta árs til að rétta sjóðinn af og gera honum kleift að standa við skuld- bindingar sínar. „Æskilegt hefði verið,“ segir í greinargerð með til- lögunni, „að stíga stærra skref í húsnæðismálum strax, en þær erf- iðu kringumstæður, sem nú eru í efnahagsmálum, valda því, að það er ekki raunhæft."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.