Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 27

Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 27 Áhöfnin af Geysi. F.v.: Ein- ar Runólfsson flugvélstjóri, Magnús Guðmundsson flugstjóri, Bolli Gunnarsson loftskeytamaður, Ingigerð- ur Karlsdóttir flugfreyja, Dagfinnur Stefánsson að- stoðarflugmaður og Guð- mundur Sívertsen siglinga- fræðingur. Stinson-flugbáturinn sem Dagfinnur flaug í síldarleitinni sumarið 1946. Flakið af Geysi á Vatnajökli. vængurinn hefur lent fyrst í snjónum og tætzt samstundis af vélinni því hann fannst síðar tvær mílur frá flakinu. Það hefur hins vegar heldur ekki munað miklu að flugvélin slyppi — hefðum við ver- ið svo sem 50 metrum ofar hefðum við farið yfir Bárðarbunguna en þetta er hæsti hluti Vatnajökuls. Þarna vorum við fremur illa stödd, og komumst við að þvi seinna að Bárðarbungan hafði verið eina svæðið sem þeir höfðu ekki getað kannað vegna þess að það var stöðugur skafrenningur þarna uppi. Það vildi okkur til lífs að flakið veitti okkur nokkurt skjól og svo var mikið af vefnað- arströngum í farminum og gátum við notað efnin í fataleppa sem héldu á okkur hita. Ingigerður saumaði á okkur bæði hosur og vettlinga úr þessu en annars hefð- um við varla komizt hjá kali. Hvassviðrið hélzt dag eftir dag og það var alltaf skafrenningur. Nokkrum sinnum heyrðum við í flugvélum en skyggnið var svo slæmt að þess var engin von að leitarmenn kæmu auga á okkur. Fjarskiptatækin höfðu farið í mask við brotlendinguna og treystum við algerlega á neyðar- sendinn. Við vissum hvar hann var í flugvélinni en hann hafði hins vegar kramizt undir flakinu og var mjög erfitt að komast að honum. Til þess urðum við að höggva sundur nokkur bönd í skrokknum og grafa okkur svo niður í gegn um brakið. Það var ekki fyrr en á fimmta degi sem við náðum að koma honum upp og tókum að senda út neyðarskeyti með vissu millibili. Efni skeytisins sem við sendum var eitthvað á þá leið að við værum stödd á jökli og allir væru á lífi. Við vissum ekki hvort nokkur næði þessum send- ingum því við höfðum engan mót- takara. Loftskeytamaðurinn á varðskipinu Ægi, sem statt var undir Langanesi, náði hins vegar skeytinu og kom því áleiðis — hann hélt reydnar að þetta væri gabb — við vorum öll talin af þeg- ar hér var komið. Skömmu eftir að við höfðum komið upp neyðarsendinum birti til og sáum við þá hvar Catalina- flugvél kom úr vesturátt. Við kyntum bál með benzíni til að vekja athygli flugmannsins á okkur og sá hann okkur þá strax. Skömmu síðar komu svo fleiri flugvélar og vörpuðu niður til okkar mat og allskyns gögnum. Þarna kom m.a. bandarísk Sky- master-vél með lækni og hjúkrun- arfólk innanborðs og bauðst það til að varpa sér niður í fallhlífum ef á þyrfti að halda. Við töldum það hins vegar of mikla áhættu og afþökkuðum boðið." Þið hafið aldrei misst móðinn meðan á biðinni stóð? nVið urðum aldrei úrkula vonar um að okkur bærist hjálp. Við héldum allan tímann að við vær- um á Mýrdalsjökli og vorum með ráðagerðir um að halda til suðurs og komast þannig til byggða — sem betur fór létum við það ógert, þá hefði leiðin legið nær þvert yfir allan Vatnajökul og hefðum við aldrei komizt nema brot af þeirri leið. Þetta er manni líka kennt og sagt, að halda sig við flakið þvi það eru langtum meiri líkur á að það finnist en fólk sem er á hreyf- ingu. En þetta var erfið bið. Við höfðum ekkert að borða nema nokkrar brauðsneiðar sem við fundum í vélinni — og á þriðja degi gátum við hitað okkur te með benzíni sem við náðum af elds- neytisgeymunum. Það hressti okkur mikið.“ Björgunaraðgerðir og förin niður af jöklinum „A sjötta eða sjöunda degi lenti svo bandarísk skíðaflugvél og voru með henni þrír Ameríkanar ásamt Sigurði Jónssyni frá Loftferðaeft- irlitinu. þeir komu þessari vél hins vegar ekki á loft aftur — ég veit ekki nákvæmlega hvers vegna, en snjórinn virtist festast á skíðun- um á henni og svo er þetta í mik- illi hæð og loftið þar af leiðandi þunnt. Þeir voru með rakettur í henni til að auka aflið en það dugði ekki til. í síðasta skiptið sem þeir reyndu, höfðu þeir látið varpa niður til sín krossviðarplöt- ur og lögðu langa braut með þeim. Með þessu móti virtist hún ætla að hafa það en svo losnaði ein kross- viðarplatan og fauk í stýrið á henni og flugmaðurinn varð þá að hætta við að reyna flugtak. Degi síðar kom björgunarleiðangurinn til okkar upp á jökulinn en ferðin niðureftir var erfið, þó leiðang- ursmenn veittu okkur alla þá hjálp er þeir máttu. Það er óskemmtilegt að lendá í hrakning- um svona slasaður en maður taldi sig bara heppinn að komast lif- andi frá þessu. Þá áttu Ameríkan- arnir mjög erfitt með að komast þetta, enda alveg óvanir fjallgöng- um — og ætluðu hreinlega að gef- ast upp. Ingiríður flugfreyja var illa meidd í baki og höfðu leiðang- ursmenn hana á sleða. Þegar Am- eríkanarnir voru að því komnir að gefast upp stóð hún upp af sleðan- um og gekk, svo þeir gætu verið á honum til skiptis. Fyrir neðan jök- ulinn biðu okkar svo flugvélar sem höfðu lent þar á malarkömbum og var þá raunin afstaðin." Hvenær ferð þú svo að fljúga aftur? „Það var í marz 1951 — hálfu ári seinna. Það þurfti að gera á mér anzi mikla læknisaðgerð og var ég þetta lengi að jafna mig. Til að byrja með var ég í innanlands- fluginu en fór svo i millilandaflug um mitt ár 1952, en ég hef verið í því síðan." Og það hefur ýmislegt borið við á þessum tíma? „Eg læt það nú alveg vera — venjulega hefur allt gengið eftir áætlun og flugið gengið tíðindalít- ið. En svo hefur líka nokkrum sinnum komið fyrir að manni hef- ur ekki iitizt á blikuna, þó aldrei hafi hent neitt slys hjá mér.“ Hvernig tilfelli hafa þetta ver- ið? Nauðlending á Grænlandi „Áður en þoturnar komu var ís- ingin mikið vandamál og urðum við að vera mjög á varðbergi gagn- vart henni. Eg held að það hafi verið 1956 eða þar um bil sem ég neyddist til að nauðlenda á Græn- landi. Við vorum í beinu flugi frá New York til Reykjavíkur á Sky- master-vél og gekk flugið eftir áætlun framanaf — þar til við komum að suðurodda Grænlands að við lendum í miklum skýjum. Við flugum í 9 þúsund feta hæð og lentum þarna í miklum mótvindi, sem er óvanalegt á þessum slóð- um. Fer þá að hlaðast is á vélina og byrjar hún að tapa hæð. Ég gaf aðstoðarflugmanninum skipun um að senda út neyðarkall. Þrátt fyrir slæm fjarskiptaskilyrði kom London nær strax inn og skipaði þegar öllum öðrum út af bylgj- unni. ísingin hélzt og urðum við að lækka flugið, en nú var sýnt að við hefðum ekki eldsneyti til íslands. Virtist ekki annað fyrir hendi en lenda í Narssarssuaq. Við fengum veðrið þar og leizt á ekki á blikuna — að vísu var þar háskýjað en veðurhæðin um 86 hnútar — þ.e. 12—14 vindstig. Þar viðbættist að brautarljósin hjá þeim voru biluð en klukkan var um þrjú að nóttu. Skömmu síðar ákváðum við að fara niður fyrir skýin og fór þá ísinn af en svo mikil ókyrrð var í loftinu að það var eins og vélin væri að hristast í sundur. Leizt mér illa á að þurfa að hringsóla þarna þar til birti og þegar skila- boð komu frá Narssarssuaq að þeir gætu lýst upp brautina með bílljósum, ákvað ég að reyna að- flug. Lendingin tókst vel, en svo hvasst var að það má segja að vél- in hafi stanzað um leið og hjólin snertu brautina — það vildi til að vindurinn var alveg beint á móti, annars hefði verið óhugsandi að lenda í þessu veðri. Veðurhæðin var svo mikil að þeir ætluðu varla að geta hamið stigann eða komið SJÁ NÆSTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.